Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 16
Reykjahverfi | Loksins hefur hlýnað í Þingeyjar-
sýslu, en vorverk hafa tafist mikið vegna krapa-
hríða og kulda. Snjórinn þarf sinn tíma til að fara
og girðingar eru víða illa farnar. Á myndinni má
sjá þá Elvar Rúnarsson og Jónas Þór Viðarsson úr
Hrísateigi í girðingarvinnu en mikið er framundan
hjá þeim við það verk. Þeim finnst útivistin
skemmtileg enda báðir nýkomnir af skólabekk.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Girðingarvinna í hita og snjó
Vorverkin
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Glenn Moyle heldursýningu á ljós-myndum sínum á
Hótel Ólafsvík um þessar
mundir. Moyle er frá
Nýja-Sjálandi en tók
flestar myndirnar í nátt-
úru Snæfellsness þegar
hann dvaldi í Ólafsvík.
Glenn Moyle sagði í
samtali við fréttaritara að
Snæfellsnes væri falleg-
asti staður í heimi og auð-
velt að ná góðum mynd-
um – og litirnir væru
einstaklega fallegir.
Hann sagðist hafa tekið
flestar myndirnar
snemma á morgnana og
kvöldin.
Glenn starfaði sem
matsveinn á Hótel Ólafs-
vík í tvö sumur og féll þá
algjörlega fyrir náttúru
svæðisins. Sagðist Glenn
hafa farið fjórum sinnum
umhverfis jörðina en ekk-
ert séð sem jafnaðist á við
Ísland. Stendur sýningin í
tvo mánuði og svo áætlar
Glenn að fara með mynd-
irnar til Reykjavíkur og
sýna þær þar. Þá hefur
hann áhuga á að setja
sýninguna upp í heima-
landi sínu í febrúar á
næsta ári þegar hann fer
aftur til Nýja-Sjálands.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Ljósmyndir Glenn Moyle við nokkur verka sinna.
Ekkert jafnast á við Ísland
Handjárnum ogstækkunarglerivar stolið á
glæpasýningu í Þjóð-
menningarhúsinu, en þar
eru sýnd tæki og tól sem
lögreglan notar til að
hafa hendur í hári glæpa-
manna. Davíð Hjálmar
Haraldsson sá spaugilegu
hliðina á atvikinu:
Ljótur er skaði eins lögreglumanns,
hann leyst fær ei gátuna stóru.
Með stækkunarglerið og handjárnin
hans
helvískir bófarnir fóru.
Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd horfði á
fréttatíma NFS:
Fréttatíma finn ég hvern
framarlega standa.
Sigmundur er alltaf ern
og Edda hress að vanda.
Bæði kynna frábært form,
fjörleg mjög í orðum.
Og svo má heyra Sigga storm
setja allt úr skorðum!
Af glæpum
pebl@mbl.is
Hvammstangi | Fulltrúar Framsóknar-
flokksins í sveitarstjórn Húnaþings vestra
hafa tekið upp viðræður við fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins um myndun nýs meiri-
hluta. Framsóknarflokkur var í meiri-
hlutasamstarfi með T-lista á liðnu
kjörtímabili.
Sjálfstæðisflokkur vann á í Húnaþingi
vestra og fékk flest atkvæði allra fram-
boða. Fulltrúafjöldi breyttist þó ekki og
eru Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokk-
ur og T-listi með tvo menn hvert framboð
og S-listi með einn mann. Guðný Helga
Björnsdóttir og Rakel Runólfsdóttir eru
fulltrúar D-lista, Heimir Ágústsson og
Stefán E. Böðvarsson fulltrúar T-lista, El-
ín R. Líndal og Þorleifur Karl Eggertsson
af B-lista og Ágúst F. Jakobsson af S-lista.
Elín R. Líndal, efsti maður á lista Fram-
sóknarflokks og oddviti sveitarstjórnar,
sagði að sjálfsagt hafi verið að ganga til
viðræðna við D-lista eftir að hann fékk
flest atkvæði í kosningunum og fulltrúar
hans óskuðu eftir viðræðum um meiri-
hlutasamstarf. Hún sagði að málið væri í
ákveðnum farvegi og niðurstaða myndi
liggja fyrir á næstu dögum.
B-listi ræðir
við D-lista um
nýja stjórn
Grindavík | Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
og Samfylkingarinnar í bæjarstjórn
Grindavíkur eiga í viðræðum um endurnýj-
un meirihlutasamstarfs flokkanna.
Samið hefur verið um að Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir, efsti maður á lista Sam-
fylkingarinnar, verði forseti bæjarstjórnar
ef samningar takast að öðru leyti, Sigmar
Eðvarðsson, efsti maður Sjálfstæðisflokks-
ins verði formaður bæjarráðs og að Ólafur
Örn Ólafsson verði endurráðinn bæjar-
stjóri. Samkvæmt upplýsingum oddvita
flokkanna standa nú yfir viðræður um mál-
efnasamning og er góður gangur í þeim.
Unnið að gerð
málefnasamnings
♦♦♦
Sandgerði | Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
K-lista óháðra borgara hafa náð samkomu-
lag um endurnýjun nýs meirihlutasam-
starfs í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar.
D-listi og K-listi mynda nú meirihluta í
Sandgerði og hélt meirihlutinn í kosning-
unum. Strax á kosninganótt óskaði Sam-
fylkingin eftir viðræðum við Sjálfstæðis-
flokk um myndun meirihluta en Sjálf-
stæðismenn sögðust fyrst vilja ræða við
K-listann.
Sjálfstæðismenn
ræða við K-lista
♦♦♦
Nokkrir Öræfingar fóru í sína árlegu
eggjatökuferð í Ingólfshöfða á dögunum.
„Við fórum heldur með fyrra móti núna svo
að fuglinn var ekki alveg orpinn, fengum
um 1.100 egg sem er nokkru minna en verið
hefur,“ sagði Ragnar Frank Kristjánsson,
þjóðgarðsvörður í Skaftafelli í samtali við
vefinn hornafjordur.is. Að venju sáu þeir
Ari frá Hofi og Jóhann í Svínafelli um að
síga í bjargið eftir eggjunum en í það hlut-
verk er ekki hver sem er gjaldgengur og al-
gjört skilyrði er að sigmaðurinn sé innan
við 80 kg. Ragnar sagði að eggin væru
borðuð með bestu lyst enda hollur herra-
mannsmatur og enginn hafði minnstu
áhyggjur vegna fuglaflensu, enda búið er að
aflétta hættustigi vegna hennar.
Hótel Núpur verður opnaður á Núpi í
Dýrafirði um helgina. Nýir aðilar hafa tekið
við rekstri hótelsins og ætla þeir að leggja
sérstaka áherslu á gómsætan mat, að því er
fram kemur á fréttavefnum bb.is. Tveir
kokkar menntaðir í frönsku eldhúsi munu
sjá um matseldina. Í tilefni opnunarinnar
verður boðið upp á sex rétta máltíð nk.
laugardagskvöld. Hótel Edda rak sum-
arhótel á Núpi í áratug en hætti rekstri
þess á árinu 2004 og var því ekkert hótel á
Núpi í fyrra.
Allt er komið á fullt hjá kylfingum á Svarf-
hólsvelli við Selfoss. Völlurinn kemur vel
undan vetri og er í góðu standi, að því er
segir á fréttavefnum sudurland.is. Völl-
urinn hefur mikið verið notaður af sunn-
lenskum kylfingum undanfarnar vikur þar
sem hann var með fyrstu völlum sem teknir
voru í notkun í vor. Það sem af er ári hafa
um fimmtíu nýir félagar bæst í klúbbinn og
fagna forystumenn hans því. Nú stendur
yfir kvennanámskeið á Svarfhólsvelli.
Nemandi sem útskrifaðist úr Viðskiptahá-
skólanum á Bifröst notaði tækifærið í út-
skriftarveislunni að giftast sínum heittelsk-
aða. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir
útskrifaðist sem viðskiptalögfræðingur úr
lagadeild Viðskiptaháskólans. Hún hlaut
8,41 í lokaeinkunn og náði annarri hæstu
meðaleinkunn úr sinni deild. Á síðasta ári
náði hún einnig öðrum besta árangri í sinni
deild og fékk út á það námsstyrk. Þetta
voru þó ekki einu gleðitíðindin í lífi Önnu
Guðmundu og fjölskyldu hennar á laug-
ardaginn því eftir útskriftina var brunað í
sumarhús í nágrenninu þar sem séra Sig-
ríður Óladóttir sóknarprestur á Hólmavík
mætti og pússaði saman í hjónaband þau
Önnu og Þorvald Hermannsson. Þetta vissu
fáir um fyrirfram og kom gestum í útskrift-
arveislunni á óvart, að því er fram kemur á
fréttavefnum strandir.is.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Su›urlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000 • www.falkinn.is
BÍLAVÖRUR
• Legur
• Höggdeyfar
• Kúplingar
• Reimar
• Hjöruli›ir
• Hemlahlutir
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
31
.2
94