Morgunblaðið - 31.05.2006, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Jónína MagneaGuðmundsdótt-
ir, fv. húsmóðir í
Hafnarfirði, fæddist
á Grímsstaðaholti í
Reykjavík 7. ágúst
1923 en ólst upp í
Hafnarfirði. Hún
lést á Landspítalan-
um í Fossvogi laug-
ardaginn 27. maí
síðastliðinn. For-
eldrar Jónínu voru
Guðmundur Eiríks-
son sjómaður, f. á
Stuðlum á Barðsnesi
22. júní 1874, d. 27. apríl 1935, son-
ur Eiríks Filippussonar, f. á Hofs-
sókn í Álftafirði S-Múl., d. 20. sept-
ember 1918 og k.h. Guðnýjar
Halldórsdóttur, f. í Skorrastaða-
sókn S-Múl. 1848, d. 22. október
1948, og móðir Jónínu, Þórunn
Kristjánsdóttir, f. að Kirkjuvogi í
Höfnum 12. ágúst 1890, síðar í
Hafnarfirði, d. 22. nóvember 1966,
dóttir merkishjónanna Kristjáns
Jónssonar, útvegsbónda, f. í Odda-
sókn 6. maí 1860, d. 26. september
1922, og k.h., Guðbjargar Jóns-
dóttur, f. í Kirkjuvogi í Hafnarhr. í
Gull. 15. mars 1860, d. 29. janúar
1924. Systkini Jónínu eru Guð-
mundur Guðmundsson heildsali, f.
á Býjarskerjum í Miðneshr. í Gull.
6. apríl 1905, d. 9. nóvember 1967,
Eiríka verslunarmaður, f. í Merki-
nesi í Hafnarhr. í Gull. 5. janúar
1909, d. 21. júlí 1981; Kristín hús-
freyja, f. í Merkinesi 9. júlí 1910, d.
28. apríl 1989; Guðni forstjóri, f. á
Nesi í Norðfirði 14. nóvember
1912, d. 14. desember 1974; Vil-
helmína húsfreyja, f. í Neskaup-
stað 15. september 1914; Jóhanna
húsfreyja, f. á Nesi, Neskaupstað
17. febrúar 1916, d.
5. júlí 2002; Stefanía
húsfreyja, f. á Nes-
kaupstað 8. október
1917; og Ólafur
húsasmíðameistari,
f. í Hafnarfirði 16.
júní 1928.
Jónína hóf sam-
búð 1948 með Guð-
mundi Ólafssyni, f.
14.1. 1923, bifvéla-
virkja og verkstjóra.
Þau giftu sig 1963.
Foreldrar Guð-
mundar voru Ólafur
Jóhannes Guðlaugsson, f. 24.2.
1897, d. 2.1. 1959, búfræðingur og
veitingamaður, og f.k.h., Sveinína
Magnea Vilborg Eiríksdóttir frá
Smærnavelli í Gerðahreppi, f.
22.10. 1901, d. 30.7. 1931, húsmóð-
ir. Sonur Jónínu og Guðmundar er
Guðmundur, f. 7.11. 1962, verk-
fræðingur og gæðastjóri Siglinga-
stofnunar, búsettur í Garðabæ,
kvæntur Þórunni Stefánsdóttur
hjúkrunarfræðingi og eiga þau
saman tvo syni, Bjarka Ágúst, f.
21.12. 1993, og Hlyn Óskar f.
24.6.1996. Sonur Guðmundar
Ólafssonar frá fyrri sambúð er
Ólafur Grétar augnlæknir, f. í
Hafnarfirði 26. febrúar 1946, bú-
settur í Reykjavík. Fyrri kona
hans er Lára Margrét Ragnars-
dóttir. Þau skildu. Börn þeirra eru
Anna Kristín, f. 26. mars 1966,
Ingvi Steinar, f. 24. mars 1973, og
Atli Ragnar, f. 14. mars 1976.
Seinni kona Ólafs Grétars er
Steinunn Aagot Kristjánsdóttir, f.
15. september 1962.
Útför Jónínu Magneu verður
gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
í dag og hefst athöfnin klukkan 11.
Ég vil í fáeinum orðum minnast
móður minnar, Jónínu Magneu
Guðmundsdóttur, húsmóður í Hafn-
arfirði. Jónína vann ýmis störf á
yngri árum, m.a við sælgætisgerð
og síðar verslunarstörf hjá bræðr-
um sínum, Guðmundi og Guðna, en
lengst af stundaði hún húsmóður-
störf. Á árunum 1943–48 sýndi Jón-
ína dans opinberlega ásamt Ólafi,
bróður sínum. Þau nefndu sig Nínu
og Óla. Eflaust muna margir eftir
þeim frá tímum kabarettanna, s.s.
Hallbjargar og Fischers, Kristjáns
Kristjánssonar og Músík Kabar-
ettsins.
Móðir mín veiktist af berklum
tuttugu og þriggja ára gömul og
má segja að það hafi haft mikil
áhrif á hennar líf fram eftir aldri.
Ég ólst upp við mikinn móðurkær-
leik enda held ég að hún hafi ekki
reiknað með að geta eignast börn.
Þegar ég kom heim úr skólanum
var hún alltaf til staðar og gætti
þess að ég fengi það sem ég þurfti.
Við ferðuðumst mikið með föður
mínum, Guðmundi Ólafssyni. Hann
lést árið 2004 og var það mikill
missir fyrir móður mína. Farið var
í margar ferðir um landið og má
segja að ekki hafi verið margir
staðir sem ekki voru heimsóttir.
Ekkert land komst með tærnar
þar sem Ísland hafði hælana að
hennar mati. Árið 1990 komu faðir
minn og móðir í heimsókn til mín
til Álaborgar í Danmörku þar sem
ég var að ljúka námi og fórum við
víða bæði um Danmörku og Þýska-
land. Þegar þau komu til baka til
landsins góða þá fannst nú móður
minni vanta skóginn fallega sem
hún sá í Danmörku.
Móðir mín saumaði, heklaði og
prjónaði og má sjá mörg hagleiks-
verkin eftir hana enn í dag.
Eftir að synir mínir komu í heim-
inn heimsóttu þeir ömmu Nínu oft
og þótti þeim þá gott að fá kex og
vera með ömmu og afa. Þegar þeir
urðu eldri var passað upp á að þeir
fengju fræðslu í tölvunum hans afa
og amma bakaði fínar kökur.
Elsku mamma, við Þórunn,
Bjarki Ágúst og Hlynur Óskar
kveðjum þig með söknuði og biðj-
um þig að hafa það sem allra best
hjá afa Guðmundi. Minning þín lifir
með okkur.
Guðmundur.
Jónína mágkona mín er farin
„heim“.
Ég hitti hana fyrst fyrir meira en
50 árum er við hjónin heimsóttum
hana þar sem hún lá á Vífilsstöð-
um. Hún var þá að koma frá Ak-
ureyri vegna aðgerðar á lungum
sem sá ágæti læknir Guðmundur
heitinn Karl framkvæmdi. Aðgerð-
in tókst vel og Jónína sigraði berkl-
ana með Guðs hjálp og góðra
manna.
Jónína var gift Guðmundi Ólafs-
syni, en hann lést hinn 30. mars
2004. Þau bjuggu í Hafnarfirði all-
an sinn búskap lengst af á Mela-
braut 7 og síðan á Álfaskeiði 96.
Heimili þeirra var skreytt með fal-
legu handverki hennar.
Guðmundur vann lengi hjá „Vita-
mál“ og vegna vinnu hans dvöldu
þau smátíma á hinum ýmsu stöðum
á landinu, eftir því hvar verkefnið
var, s.s. Ísafirði eða Grímsey svo
eitthvað sé nefnt. Hún eignaðist
góða vini bæði þar og annarsstaðar.
Þegar Nína eignaðist vini, voru það
vinir hennar alla tíð. Hún var mjög
vinaföst, hreinskiptin og frændræk-
in.
Jónína og Guðmundur eignuðust
einn son en Guðmundur átti fyrir
soninn Ólaf, hann er augnlæknir.
Sonur þeirra hjónanna er Guð-
mundur. Hann er verkfræðingur.
Það er sagt að börnin séu eins og
óskrifað blað en mér fannst svo
snemma að hann skrifaði á sitt blað
bæði manndóm og dugnað, ekki að-
eins í námi heldur ýmsu öðru, nú
síðast en ekki síst sú umhyggja
sem hann sýndi móður sinni sem
hefur verið rúmliggjandi sjúklingur
meira en tvö ár. Hún þráði að vera
heima á sínu heimili. Hann vitjaði
hennar daglega ef ekkert alveg sér-
stakt hindraði. Hann verslaði fyrir
hana og sá um öll hennar mál. Þór-
unn tengdadóttir hennar og dreng-
irnir Bjarki og Hlynur komu að
sjálfsögðu einnig í heimsókn eftir
atvikum. Guðmundur var að sjálf-
sögðu augasteinninn hennar og þau
foreldrarnir fylgdust með honum
alla tíð í námi. Þau ferðuðust ekki
mikið til útlanda en fóru til Dan-
merkur þegar hann útskrifaðist
sem verkfræðingur.
Við Nína mágkona mín höfðum
mikið samband í gegnum árin nú
síðustu misserin oft í gegnum síma.
Hún hafði gaman af að rifja upp
ýmislegt frá liðnum tíma og var
stálminnug.
Á kveðjustund er margs að
minnast. Þau glöddu börnin mín
með ýmsum hætti er þau misstu
pabba sinn á viðkvæmum aldri. Á
þessum árum voru margvísleg sam-
skipti, enda stutt á milli „bæja“.
Elsku Nína, nú er bara að kveðja
um stund. Þú áttir trúna og baðst
fyrir öllu þínu fólki. Við áttum
bænastund áður en þú kvaddir. Er
ég fór veifaðir þú yfirleitt glaðlega
og sagðir: „Ég bið að heilsa öllu
fólkinu mínu“. Hugsunin var skýr
og tryggðin óbilandi. Ég kem þeirri
kveðju, hér með til skila.
Jesús sagði: Sá sem lifir og trúir á mig,
skal aldrei að eilífu deyja.
(Úr Jóhannesarguðspjalli.)
Við munum sjást á ný. Þökk fyrir
allt og allt.
Innilegar samúðarkveðjur til
allra aðstandenda.
Jóhanna F. Karlsdóttir.
JÓNÍNA MAGNEA
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Ágústa Þórðar-dóttir fæddist 5.
desember 1927. Hún
lést 18. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Magn-
ea Vilborg Magnús-
dóttir, f. 6.8. 1899, d.
7.9. 1959, og Þórður
Jónsson. f. 21.9.
1893, d. 7.9. 1962.
Ágústa giftist
Skúla Magnússyni
verkstjóra, f. 3.5.
1927, d. 19.2. 1998,
og áttu þau saman
dótturina Guðlaugu Ragnheiði
Skúladóttur. Guðlaug var gift
Kristjáni G. Þor-
valdz sem nú er lát-
inn. Synir þeirra
eru: 1) Skúli K. Þor-
valdz kennari,
kvæntur Ingibjörgu
Sif Antonsdóttur og
eiga þau soninn Atla
Hrafn Skúlason. 2)
Ólafur Steinar K.
Þorvaldz leikari.
Ágústa var ein af
sjö systkinum. Af
þeim eru fjögur eft-
irlifandi.
Útför Ágústu var
gerð í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Elsku Gústa frænka, þú varst
ein af þeim sem geta breytt and-
rúmsloftinu í kringum sig með
nærveru sinni. Þú gast breytt
hverju boði úr vandræðalegu eða
leiðinlegu yfir í þægilegt og
skemmtilegt. Ef maður vildi vera
þar sem eitthvað skemmtilegt var
að gerast eða bara vildi láta sér
líða vel þá settist maður við hliðina
á þér. Þannig hefur það verið alla
mína ævi og þannig hélt ég að það
yrði áfram.
Samband þitt við pabba var al-
veg sérstakt, hvernig þú stríddir
þínum annars skapmikla bróður og
hann þér var yndislegt að fylgjast
með, svo ekki sé talað um sam-
band þitt við mömmu. Við hvern
talar mamma nú nokkrum sinnum
á dag?
Arnór, sonur minn, kynntist þér
eitt sumar á Siglufirði, kom til Sví-
þjóðar yfir sig hrifinn af afasystur
sinni og spurði hvort ég vissi
hversu skemmtileg og æðisleg hún
væri. Eftir margra daga samvistir,
margar sögur og samræður um líf-
ið og tilveruna, kom hann heim
með vasaúr sem þú hafðir gefið
honum og fallegar sögur um þig og
afa sinn þegar þið voruð lítil. Hann
var fullur aðdáunar á afasystur
sem nennti að gefa sér tíma til að
tala við hann og horfa á sjónvarps-
þætti sem hann hélt að enginn
fullorðinn hefði áhuga á.
Við systurnar höfðum mjög
gaman af því þegar þú varst til í
að spá fyrir okkur og síðast þegar
við hittumst ákváðum við að hitt-
ast bráðlega aftur og þú ætlaðir að
spá. En nú erum við í sitt hvorum
heiminum og enginn veit hvenær
við fáum tækifæri til þess.
Faðmaðu Þórð fyrir okkur og
alla hina sem við þekkjum. Við
skulum faðma Gullu fyrir þig og
alla sem við þekkjum í þessum
heimi.
Elsku Gulla og synir, þið hafið
misst svo mikið á svo stuttum
tíma. Megi guð vera með ykkur og
leiða ykkur í gegnum sorg ykkar.
Hrönn Harðardóttir.
Elsku Gústa, það var aldrei leið-
inlegt þegar þú komst í heimsókn
til foreldra minna. Þá var alltaf
mikið hlegið og þú sagðir svo
skemmtilegar sögur. Þegar þú
bjóst í Laugarnesinu fór ég oft
ásamt einhverri systra minna í
heimsókn til ykkar með pabba. Þá
þurfti ég að hlaupa við fót til að
halda í við hann og þó að þetta
væri góður spölur vildi ég ekki
missa af þessum heimsóknum. Ég
hafði mjög gaman af því þegar þú
komst á Sigló með mömmu og
pabba, þau gistu hjá Hödda bróður
og fjölskyldu en þú gistir hjá mér.
Þetta voru skemmtilegir dagar, þó
að bakið á þér hafi eitthvað verið
að angra þig. Ekki grunaði mig
það, þegar ég hitti þig í jarðarför-
inni hjá Kristjáni tengdasyni þín-
um 31. mars, að þetta væri í síð-
asta sinn sem við sæjumst.
Gústa mín, það sem skipti þig
mestu í lífinu var hún Gulla einka-
dóttir þín og hennar fjölskylda, þú
varst svo stolt af þeim öllum.
Elsku Gulla mín og fjölskylda,
þið hafið misst svo mikið á stuttum
tíma. Guð veri með ykkur. Megi
góðar minningar um Gústu frænku
og Kristján hugga og ylja.
Helga Magnea Harðardóttir.
ÁGÚSTA
ÞÓRÐARDÓTTIR
Elskulegur bróðir minn, mágur og frændi,
ANDRÉS HAFLIÐASON
flugvirki,
Háaleitisbraut 22,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grensáskirkju fimmtu-
daginn 1. júní kl. 13.00.
Anna Hafliðadóttir, Sigfús Hreiðarsson,
Hafliði Sigfússon, Katherine Davidson,
Hildur Sigfúsdóttir,
Edda Sigfúsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ANDRÉS GUNNARSSON,
Erluhrauni 10,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 1. júní kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Auður Eiríksdóttir,
Elísabet Andrésdóttir, Erlendur Karlsson,
Eiríkur Hjörtur Andrésson, Marianne Andersen,
Gunnar Andrésson,
Valgerður Auður Andrésdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju við
andlát og útför sonar míns, stjúpsonar og bróður
okkar,
PÁLS GUNNARSSONAR,
Katrínarlind 6,
Reykjavík.
Edda Björgmundsdóttir, Bragi Björgvinsson,
Einar Már, Kristín,
Guðbjartur og Jóakim.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTJANA M. ÓLAFSDÓTTIR,
Smiðjugötu 11,
Ísafirði,
sem lést fimmtudaginn 25. maí verður jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 3. júní kl. 14.00.
Soffía Bergmannsdóttir, Einar Jónsson,
Ólöf Bergmannsdóttir, Guðjón Kr. Harðarson,
Elías Bergmannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.