Morgunblaðið - 12.08.2006, Side 10

Morgunblaðið - 12.08.2006, Side 10
10 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 1% út úr kortinu á morgun Það má segja að krakkarnirá námskeiðinu hans Al-berts sanni þau orð hansað þau séu líflegur og krefjandi hópur. Þau eru spennt fyrir þessari fjölmiðlaathygli og hlaupa inn og út úr sviðsmynd við- talsins, ef svo má segja. „Taktu mynd af mér!“ er krafa dagsins. Í auga stormsins situr Albert V. Magnússon með gleraugu í hvítri umgjörð og biður þau að láta sig hverfa í smástund. Ég heyrði að þú værir með svo skemmtilegt lífsleikninámskeið. „Já, það er líklega alveg hægt að kalla þetta lífsleikninámskeið. Í rauninni er þetta útivistar- og sigl- inganámskeið, með sjálfshjálp og öðru. Þau læra að vinna í hóp, um- gangast og deila hlutum.“ Þetta er þriðja árið sem Albert heldur þessi námskeið en hann er uppal- inn á Ísafirði. „Ég er hérna í sum- arfríum bara, ég vinn annars á leikskóla og er íþróttakennari í Hafnarfirði. Ég fæ tveggja mán- aða sumarfrí og nýti það til að halda þrjú hálfsmánaðar nám- skeið.“ Læra ábyrgð gjörða sinna Krakkarnir eru á aldrinum níu til fjórtán ára og eru á námskeið- inu frá kl. 10–16. „Við stundum alls konar siglingar og útivist og förum t.a.m. í 7–9 km gönguferð hérna um skíðasvæðið og lærum að njóta þess sem við eigum hérna í firðinum. Það þarf ekki alltaf að fara til Reykjavíkur til að upplifa.“ Eru þetta þá aðallega krakkar héðan frá Ísafirði? „Nei, við erum til dæmis núna með krakka frá Lúxemborg, Noregi og alls staðar af landinu. Þau eiga þá kannski ömmu eða hafa einhver tengsl, einhvers staðar verða þau að búa.“ Hann segir þennan aldurshóp skemmtilegan að vinna með. „Mjög svo. Þau eru mátulega hress. En líka svolítið krefjandi, eiginlega mjög! Þau eru miskunn- arlaus í að þurfa að hafa fullt pró- gramm. Svo ég er líka að reyna að kenna þeim að njóta þess að slappa af og kúpla sig niður. Það þarf einhvern veginn allt að gerast núna. Ef við förum út á stórri skútu og það er ekki nógu mikill vindur, þá finnst þeim eitthvað vera að og spyrja af hverju við getum ekki sett mótorinn á og keyrt allt í botn. Þau þurfa að læra að njóta andartaksins.“ Hvernig finnst þér það ganga? „Það gengur mjög vel. En þau þurfa auðvitað að uppgötva þetta sjálf, það er erfitt að kenna það. Ég finn það samt sjálfur að það er gott að koma úr borgarysnum og þurfa ekki að vera einhvern veg- inn alltaf á klukkunni.“ En hvað fá þau helst út úr þessu? „Þau læra að taka tillit til hvert annars, en líka að ábyrgðin er hjá þeim, gagnvart seglbátum og öðru. Þau eru ábyrg gjörða sinna og ef þau hlusta ekki, hvolfa þau bara bátnum í sjóinn. Það hef- ur gerst nokkrum sinnum. Að vísu er það ekki alltaf slys held ég, fólk sem kemur brosandi upp úr sjón- um hefur ekki dottið!“ Að sjálf- sögðu segir hann þó fyllsta örygg- is gætt. „Reglunum sem við setjum er fylgt stíft eftir. Þau mega til dæmis ekki hlaupa eftir bryggjunni heldur ganga hægt og rólega.“ Sjálfur hefur hann verið við- riðinn siglingar frá barnsaldri. „Maður var að elta þá sem áttu báta og um 10– 11 ára aldur var ég sjálfur kominn á seglbáta. Um fermingu fór ég á seglbretti og stundaði það sport í 10–15 ár en er núna að færa mig aftur í bátana. En það er mjög gaman að geta borgað aðeins til baka og gefa af sér núna.“ Yfirvinna lofthræðsluna Segðu mér betur frá námskeið- inu. „Við erum á seglbátum og kajökum. Svo erum við í fleka- smíði og þar kemur inn handverk, að smíða sinn eigin fleka og nota við það sög og hamar. Svo erum við með aðgang að stórum skút- um sem þau fá að prófa. Fyrir utan reglur við siglingarnar þurfa þau svo auðvitað að læra að klæða sig. Svo yfirstígum við lofthræðslu með sigi utan í olíutönkum. Margir segjast ekki þora þegar horft er upp tank- inn og labbað upp stigana. En það hafa nú allir farið upp og niður aftur. Auk þess lærum við skyndi- hjálp og rétt viðbrögð þegar eitt- hvað kemur upp á.“ Tveir aðrir en Albert hafa starf- að við námskeiðið. „Við reynum að nýta sérþekkingu hvers og eins, einn hefur lært fjallabjörgun og annar skyndihjálp og ég sé um siglingarnar. Svo förum við saman í sundlaug þar sem krakkarnir læra að velta kajak, og þau læra líka félagabjörgun.“ Hann segir nauðsynlegt að boðið sé upp á eitthvað þessu líkt fyrir krakka í bæjarfélaginu. „Það hefur ekkert verið allt of mikið að gera fyrir þau og mætti vera miklu meira bæði hjá bæjarfélaginu og íþróttafélögunum. Nýta þennan mannauð sem er til í bænum, fullt af fólki gæti lagt fram krafta.“ Hann segir marga gamla Ísfirð- inga hafa taugar til bæjarins og geta hugsað sér að búa þar. Þá þurfi að sjálfsögðu að vera hægt að finna vinnu við hæfi. „En þetta er paradís til að ala upp krakka.“ Hressir krakkar læra lífsreglurnar Albert V. Magnússon fer til heimastöðvanna Ísa- fjarðar á sumrin og heldur útivistar- og siglinga- námskeið fyrir krakka. Þar læra þau að vinna saman og bjarga sér en ekki síður að njóta augna- bliksins eins og Anna Pála Sverrisdóttir komst að í heimsókn á Ísafjörð á dögunum. „… kenna þeim að njóta þess að slappa af og kúpla sig niður.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Albert ásamt námskeiðskrökkum, sem fannst ekki mjög leiðinlegt að láta mynda sig. VART hefur farið framhjá ökumönn- um og öðrum vegfarendum að fjöldi hringtorga hefur aukist nokkuð síð- astliðin ár. Stefán Finnsson, yfir- verkfræðingur hjá Reykjavíkur- borg, segir að kostur hringtorga umfram umferðarljós sé einkum sá að þau dragi alltaf úr umferðarhrað- anum en á umferðarljósum geti bílar keyrt hratt komi þeir að þeim á grænu ljósi. Á móti komi að hring- torgin afkasti minni umferð og geti skapað erfiðleika fyrir gangandi veg- farendur þar sem umferð bíla er stöðug útúr þeim. „Við reynum þess vegna að hafa torgin sveigjóttari þar sem gangandi vegfarendur eru nærri en sé mjög mikið um gangandi umferð, og þá sérstaklega nærri skólum, reynum við að nota frekar gönguljós.“ Erna Bára Hreinsdóttir, tæknifræðingur hjá veghönnunardeild Vegagerðar- innar, tekur undir þetta og segir meira um hringtorg inni í íbúðar- hverfum en áður. „Hraðinn er minni í hringtorgunum og því verða stór umferðarslys síður í þeim en á hefð- bundnum gatnamótum. Það verður alltaf eitthvað eignatjón en það verð- ur mun minna og lítið um slys á fólki.“ Hún bendir á að einnig noti sveit- arfélög úti á landi hringtorgin sem eins konar hlið þar sem þjóðvegur- inn kemur inn í bæi til að tryggja að umferðahraðinn minnki. Breytt útlit hringtorga Fjölmargar spurningar vakna við hönnun hringtorganna og segir Erna að taka þurfi tillit til ýmissa þátta. Eitt af því sem skiptar skoð- anir eru um er hversu mikið útsýni á að vera yfir hringtorgin. Sumir telja mikilvægt að ökumenn sjái ekki yfir hringtorgið. Minni hætta sé þá á að ökumenn keyri yfir þau í myrkri og þeir geti einbeitt sér frekar að um- ferðinni sem komi frá vinstri. Fyrir vikið hafi verið reynt að setja eitt- hvað á torgin sem byrgi mönnum sýn. Erna segir þó að varast verði að setja grjót í miðju þeirra en slíkt geti verið afar hættulegt ef ökutækjum sé óvart ekið yfir þau. Aðrir telji aft- ur á móti að mikilvægt sé að öku- maðurinn hafi yfirsýn yfir torgið í heild sinni. Erna telur að stærsta út- litsbreyting torganna sé þó svoköll- uð yfirkeyrslusvæði en þá sé ysti hringur torgsins lagður með öðruvísi vegefni sem gefi hönnuðum tækifæri til að leggja krappari hringtorg sem stærri bílar geti þó keyrt í. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hringtorgum fjölgar Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.