Morgunblaðið - 12.08.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 11
FRÉTTIR
VIÐ anddyri aðseturs Landsbankans
fyrir ofan gjána í Hamraborg í Kópa-
voginum varð það atvik í vikunni að
roskin kona sem þar átti leið um fékk
útidyrnar í hlið sér og skelltist upp að
vegg. Konan lemstraðist eitthvað við
áfallið en taldist óbrotin. „Við hörm-
um þetta atvik mjög,“ segir Sigríður
Pálmadóttir, formaður rekstrarfélags
fasteignarinnar og hjúkrunarforstjóri
hjá Heilsugæslunni, sem einnig er
þar til húsa.
„Þessi hurð hefur verið okkur
áhyggjuefni frá því að Heilsugæslan
flutti hingað inn. Það renna á annað
hundrað manns í gegnum þessar dyr
daglega og sumir þeirra eru fatlaðir
eða aldraðir eða fólk með börn og það
tekur þetta fólk oft lengri tíma en
aðra að komast í gegn,“ segir Sigríður
og útskýrir að dyrnar séu með sjálf-
virkum opnara og lokist því einnig
sjálfkrafa, en það er einmitt þegar
hurðin lokast skyndilega sem fólk
lendir í hættu á að verða fyrir höggi.
„Við erum að skoða ýmsa mögu-
leika til að bæta úr þessu. Það er ekki
hægt að hafa hreyfiskynjara því það
er hraðbanki í anddyrinu sem má því
ekki opnast sjálfkrafa um miðja nótt
þegar fólk tekur út peninga. Eins höf-
um við reynt að stilla opnunartíma
hurðarinnar, þ.e. hversu lengi hún
stendur opin í hvert skipti. Best væri
að skipta um dyr þarna en til þess
þarf að fá samþykki frá arkitekt húss-
ins,“ segir Sigríður. Þessi mál standi
vonandi öll til bóta. Þá bendir Sigríð-
ur á að ef fólk styðji á hnapp sem opni
hurðina sjálfvirkt þá haldist hún opin
í ákveðinn tíma, óháð því hvort hún sé
þegar opin þegar ýtt er á hnappinn.
Þessi tími ætti svo að nægja fólki að
komast slysalaust inn um dyrnar.
Fékk sjálf-
virka hurð
í hlið sér
HINIR sívinsælu Stuðmenn munu
ljúka ferð sinni um landið með stór-
tónleikum í Ölfushöll í kvöld. Að
sögn Jakobs Frímanns Magnús-
sonar verða tónleikarnir stór-
brotnir og merkilegir fyrir þær
sakir að með þeim mun lands-
byggðarstefna Stuðmanna kveðja
sér hljóðs í fyrsta sinn. Spurður um
hina nýju stefnu segir Jakob Frí-
mann að til standi að bjóða öllum
íbúum norðvestur- og norðaustur-
kjördæmis ókeypis á tónleikana,
þar sem Stuðmenn hafi ekki getað
sinnt svæðunum nægilega vel í
sumar þrátt fyrir góðan ásetning.
„Allir þeir sem búa norðan Akra-
ness og Hafnar í Hornafirði geta
mætt á svæðið og framvísað skil-
ríkjum og verða þeir boðnir vel-
komnir í kjölfarið,“ segir Jakob. Á
tónleikunum mun Trabant deila
sviðinu með Stuðmönnum „ekki síst
vegna þess að Stuðmenn finna sig
allir í einhverjum ljóðlínum lags
þeirra Nasty Boy“, að sögn Jakobs.
Sumartónleikaröð Stuðmanna
hefur gengið fanta vel fyrir sig og
að sögn Jakobs hefur stemningin
ekki verið betri í hópnum síðan á
fyrstu árum hljómsveitarinnar. Í
sumar hefur gamla kempan Val-
geir Guðjónsson lagt Stuðmönnum
lið, ásamt þeim Birgittu Haukdal og
Stefáni Karli. „Við vissum svo sem
að Birgitta myndi hrífa unga sem
aldna nú sem fyrr, en við vorum
ekki jafnvissir um hvernig fólk tæki
Stefáni. Hann hefur hins vegar
staðið fyllilega undir væntingum og
þau bæði hafa reynst frábærir liðs-
menn og skemmtilegir samstarfs-
menn,“ segir Jakob. Stuðmenn
koma svo fram á Menningarnótt
Reykjavíkur um næstu helgi en síð-
ustu tónleikar sumarsins verða hin-
ir árlegu Gróttutónleikar sveit-
arinnar á Seltjarnarnesi 26. ágúst.
Stuðmenn kveðja
landsbyggðina
með myndarbrag
Morgunblaðið/ÞÖK
Stuðmenn verða með tónleika í Ölfushöll í kvöld.
„ÞAÐ hefur verið mjög mikið að gera
hjá okkur á Umhverfisstofnun síð-
ustu tvo daga varðandi afgreiðslu
veiðikorta“ segir Bjarni Pálsson,
verkefnisstjóri hjá stofnuninni. Hann
segir að yfirleitt sé mikið að gera við
afgreiðslu kortanna á þessum tíma
árs, enda margir að endurnýja kortin
sín fyrir veiðar sem hefjast 20. ágúst á
grágæs og heiðagæs og 1. september
á öðrum fuglum að rjúpunni undan-
skilinni. Bjarni segir þó fullljóst að
umsóknaskriðurinn hefjist fyrr en
vanalega og er ekki í nokkrum vafa
um hann tengist fréttaflutningi af
lundaveiðum Einars K. Guðfinnsson-
ar sjávarútvegsráðherra og félaga
hans. „Það hefur reyndar alltaf verið
þannig að þegar fréttir berast sem
tengjast veiðikortunum finnum við
fyrir mikilli aukningu umsókna,“ seg-
ir Bjarni.
Að sögn Kristínar Völundardóttur,
sýslumanns á Hólmavík, er búið að
gefa lögreglu fyrirmæli um að hefja
opinbera rannsókn á lundaveiðum í
Strandasýslu. Rannsóknin beinist
annars vegar að því hvort veiðar án
korts hafi verið stundaðar um langt
skeið í sýslunni og hins vegar hinu
einstaka tilviki sem fjallað var um í
Fréttablaðinu á dögunum, þar sem
hópur fólks, þar á meðal sjávarút-
vegsráðherra, var við lundaveiðar í
Grímsey í Steingrímsfirði. „Ég sem
lögreglustjóri hef þeirri skyldu að
gegna að rannsaka meint brot ef
ábendingar berast um það og við bíð-
um ekkert eftir kærum hvað það
varðar“ segir Kristín, en í fjölmiðlum
hefur verið fjallað um að Umhverf-
isstofnun hefði til skoðunar að kæra
ráðherra og hópinn sem hann til-
heyrði fyrir veiðar án korts. Kristín
telur að um fyrsta mál sinnar tegund-
ar sé að ræða hjá sýslumannsembætt-
inu. Hún segir að rannsóknin gæti
dregist fram í ágúst, enda er lögreglu-
lið á Hólmavík fámennt og forgangur
verkefnisins ekki mikill þar sem veið-
arnar eru yfirstaðnar.
Veiðimenn vakna
af værum blundi
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
REGLUGERÐIR um skemmtibáta
eru til vinnslu hjá samgönguráðu-
neytinu samkvæmt tilkynningu á vef
þess. Munu reglurnar annars vegar
ná til björgunar- og öryggisbúnaðar
skemmtibáta og hins vegar til breyt-
inga á reglugerð um skoðanir á skip-
um og búnaði þeirra.
Leitað hefur verið álits fulltrúa
skemmtibátaeiganda og Siglinga-
ráðs á reglugerðardrögunum en
þeim sem málið varðar er einnig gef-
inn kostur á að kynna sér drögin og
gera athugasemdir við þau. Frestur
rennur út 15. september.
Málið hefur verið í vinnslu frá
árinu 2004 er samgönguráðuneytið
fól Siglingastofnun að kanna með
hvaða hætti skemmtibátar væru
skráðir í nágrannalöndunum og
hvaða kröfur væru gerðar til þeirra
þar. Þeim sem vilja kynna sér reglu-
gerðardrögin er bent á heimasíðu
samgönguráðuneytisins.
Nýjar reglur um skemmtibáta