Morgunblaðið - 12.08.2006, Page 18
18 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
YFIRVÖLD í Bretlandi og Pakistan
yfirheyrðu í gær á fjórða tug manna
sem grunaðir eru um að vera viðrið-
nir áform um að sprengja flugvélar í
loft upp yfir Atlantshafi á leiðinni
frá Bretlandi til Bandaríkjanna.
Hermt er að rannsókn málsins hafi
hafist fyrir um það bil ári eftir
ábendingu frá breskum múslíma.
Yfirvöld í Pakistan sögðust í gær
hafa átt þátt í að afhjúpa hryðjuver-
kaáformin með því að handtaka tvo
Breta af pakistönskum ættum í vik-
unni sem leið. Fimm menn til við-
bótar hafa verið handteknir í Pak-
istan í tengslum við rannsókn
málsins. Utanríkisráðuneyti lands-
ins sagði að fram hefðu komið vís-
bendingar um að mennirnir tengd-
ust liðsmönnum al-Qaeda í Afgan-
istan.
Óstaðfestar fregnir bandarískra
fjölmiðla herma að fimm meintir
þátttakendur í ráðabrugginu gangi
enn lausir eftir að breska lögreglan
handtók 24 menn í London og víðar
í Bretlandi.
Bankainnistæður frystar
Bresk dagblöð höfðu eftir heim-
ildarmönnum sínum að lögreglan
hefði látið til skarar skríða gegn
mönnunum 24 eftir að nokkrir
þeirra fengu skilaboð frá félögum
sínum í Pakistan um að hefja
sprengjuárásirnar þrátt fyrir hand-
tökurnar þar í landi. Hermt er að
þeir hafi einnig fengið peninga frá
Pakistan til að kaupa farmiða í því
skyni að sprengja farþegaþotur yfir
Atlantshafi.
John Reid, innanríkisráðherra
Bretlands, hefur þakkað pakist-
önskum yfirvöldum fyrir aðstoð
þeirra við rannsókn málsins. Seðla-
banki Bretlands frysti í gær banka-
innistæður nítján af mönnunum 24
sem voru handteknir. Talið er að
rannsókn á fjárreiðum mannanna
og millifærslum geti skipt sköpum
um það hvort lögreglunni takist að
upplýsa málið að fullu.
Bankinn birti einnig nöfn fang-
anna nítján. Nánast allir þeirra eru
múslímar og af pakistönskum ætt-
um. Fangarnir eru á aldrinum 17–
35 ára. Á meðal fanganna 24 er
kona með ungt barn og að minnsta
kosti tveir þeirra snerust til ísl-
amstrúar.
Michael Chertoff, heimavarnaráð-
herra Bandaríkjanna, skýrði frá því
Rannsóknin hófst fyrir ári
eftir ábendingu frá múslíma
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
ÖRYGGISVÖRÐUR á lestarstöð í Jammu á Indlandi.
Bandaríska sendiráðið í landinu varaði við því í gær að
erlendir hryðjuverkamenn, sem hugsanlega tengjast
al-Qaeda, kunni að hafa skipulagt tvær hryðjuverka-
árásir sem þeir hyggist gera á næstu dögum, líklega í
Mumbai og höfuðborginni Nýju-Delhí.
AP
Óttast hryðjuverkaárás á Indlandi
FRÉTTIR af handtöku manna í
Bretlandi sem höfðu uppi áform um
að fremja hryðjuverk í bandarískum
flugvélum hlutu óhjákvæmilega að
verða pólitískt bitbein hér vestur í
Bandaríkjunum. Kannski er til
marks um hið pólitíska ástand í
Washington hversu fljótt skeyta-
sendingar hófust milli demókrata og
repúblikana og hversu mikill hiti er í
þeirri umræðu, nú í aðdraganda
þingkosninga þar sem hefur verið
ljóst að ástandið í Írak og hið svo-
nefnda stríð gegn hryðjuverkum
yrðu efst á baugi.
Á flugvöllum í Bandaríkjunum –
en blaðamaður Morgunblaðsins fór
um bæði alþjóðaflugvöllinn í Fort
Lauderdale og Reagan-flugvöll í
Washington í fyrradag og svo um al-
þjóðaflugvöllinn í Baltimore í gær –
virtist fólk tilbúið til að sýna ýtrustu
þolinmæði og fæstir virtust ætla að
láta fréttirnar koma sér úr jafnvægi.
Umræða um 11. september 2001
hefur verið nokkur hér vestra síð-
ustu vikur, enda bráðum fimm ár lið-
in frá voðaverkunum. Hún tengist
meðal annars frumsýningu kvik-
myndar Olivers Stone, World Trade
Center, sem fjallar um lög-
reglumenn sem voru í eldlínunni
þegar tvíburaturnarnir í New York
hrundu. Fréttir fimmtudagsins hafa
breytt eðli þessarar umræðu, hún
hefur verið á lágstemmdum nótum;
en nú eru Bandaríkjamenn hins veg-
ar afskaplega varir um sig á ný, eins
og fyrstu mánuði og ár eftir at-
burðina 11. september. Allir þeir
sem fljúga finna fyrir áhrifunum.
Fyrr í vikunni var stríðið gegn
hryðjuverkum mjög í forgrunni
hinnar pólitísku umræðu, en þá
héldu demókratar og repúblikanar
víða forval vegna þingkosninga sem
fara fram í nokkrum ríkjum í nóv-
ember. Kastljósið var fyrst og
fremst á forval demókrata í Con-
necticut, en þar völdu demókratar
að refsa Joe Lieberman, varafor-
setaefni Demókrataflokksins í for-
setakosningunum 2000, fyrir stuðn-
ing hans við innrásina í Írak. Hann
tapaði í forvalinu fyrir Ned Lamont,
sem er andstæðingur Íraksstríðsins.
Segja ekki hægt að
treysta demókrötum
Repúblikanar höfðu gripið tíð-
indin af tapi Liebermans á lofti sem
merki um að demókratar væru veik-
ir í heimavarnarmálum; úrslitin
sýndu að ekki væri hægt að treysta
þeim til að tryggja öryggi Banda-
ríkjamanna á þessum viðsjárverðu
tímum. Fréttirnar á fimmtudag um
samsærið í Bretlandi urðu síðan ein-
ungis til að magna þá umræðu.
Repúblikanar eru þegar teknir að
segja, að fréttirnar sýni nauðsyn
þess að Bandaríkjaforseti beiti öll-
um ráðum í baráttu sinni við „ísl-
amska fasista“ – dagblaðið Wash-
ington Times spurði í leiðara í gær
hvort menn gætu ekki nú orðið sam-
mála um að rétt hefði verið hjá Bush
að fyrirskipa leynilegt eftirlit með
fjarskiptum sem mannréttinda-
frömuðir og frjálslyndir telja brot á
réttindum fólks, hvort vel heppnuð
aðgerð bresku lögreglunnar sannaði
ekki réttmæti þess háttar eftirlits.
Demókratar segja fréttirnar hins
vegar sýna og sanna að framganga
Bush-stjórnarinnar hafi alls ekkert
tryggt öryggi bandarísku þjóð-
arinnar betur, raunar að hið and-
stæða sé raunin. Leggja verði meiri
áherslu á að draga úr reiði múslíma í
Evrópu í garð Bandaríkjanna og
Vesturlanda almennt og breyta þurfi
stefnu Bandaríkjastjórnar í mál-
efnum Íraks.
Hryðjuverkasamsærið
orðið pólitískt bitbein
Repúblikanar segja málið sýna fram á nauðsyn hlerana
AP
Lögreglumaður lætur hund skoða
farangur á Los Angeles-flugvelli.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
í Washington
david@mbl.is
að sprengjur hefðu fundist á heim-
ilum nokkurra fanganna.
Sagði frá grunsemdum
um kunningja sinn
Dagblaðið The Times sagði að
minnst einn fanganna hefði tekið
skilaboð upp á myndband sem hann
hefði ætlast til að yrði birt eftir fyr-
irhuguð hryðjuverk. Algengt er að
hryðjuverkamenn taki upp svoköll-
uð „píslarvættismyndbönd“ áður en
þeir gera sjálfsmorðsárás.
The Washington Post sagði í gær
að rannsóknin í Bretlandi hefði haf-
ist skömmu eftir hryðjuverkin í
London 7. júlí á liðnu ári þegar 56
manns biðu bana. Tilefni rannsókn-
arinnar var ábending frá breskum
múslíma sem hringdi í lögregluna
og lét í ljós grunsemdir um að kunn-
ingi sinn kynni að vera viðriðinn
hryðjuverkasamtök.
Upplýsingarnar frá múslímanum
voru óljósar en reyndust mjög mik-
ilvægar. Um síðustu áramót var
rannsóknin orðin svo umfangsmikil
að nokkur hundruð rannsóknar-
manna í þremur heimsálfum tóku
þátt í henni. Þeir höfðu eftirlit með
tugum manna mánuðum saman áð-
ur en lögreglan hóf handtökurnar.
Fregnir um hvenær mennirnir
hafi ætlað að láta til skarar skríða
eru misvísandi. The Washington
Post sagði að mennirnir hefðu ætlað
að æfa árásirnar nú um helgina.
Breska blaðið The Independent
sagði á hinn bóginn að þeir hefðu
verið handteknir eftir að fram hefðu
komið upplýsingar um að þeir
kynnu að ætla að fremja hryðju-
verkin innan tveggja daga.
Haft er eftir rannsóknarmönnum
að hryðjuverkamennirnir hafi ætlað
að nota algeng rafeindatæki til að
sprengja sprengiefni í vökvaformi í
því skyni að granda allt að tíu far-
þegaþotum yfir Atlantshafi.
John Reid, innanríkisráðherra
Bretlands, sagði í gær að öryggis-
viðbúnaðurinn yrði áfram í hámarki
á flugvöllum landsins. Viðbúnaður-
inn olli enn töfum á millilandaflugi í
gær en þjónusta flugfélaga var að
færast í eðlilegt horf.
GETA vísindamenn þróað tækni
sem gerir flugfélögum kleift að bjóða
flug með þotum sem ekki er hægt að
ræna? Evrópskir vísindamenn reyna
nú að þróa slíka tækni. Verður m.a.
þróaður búnaður til að greina grun-
samlega hegðun farþega og verið er
að kanna möguleika á að þróa tölvu
sem stýrir þotum sjálfkrafa að næsta
flugvelli sé þeim rænt. Þeir hófu
verkefnið 2004 en búist er við að
kerfið verði sett á markað eftir 4-6
ár. Gert er ráð fyrir að það muni
kosta um 3,2 milljarða króna.
$
+
)*$
;
7 1
C C/ 7B
B
7 7 1B8 G 5I
7G7 B
11 I /O B
GB ?C B 9 G7 7:
,- #
)*
(0581
7
7
08: '8
B ? B B C
899F 7 8 /5
7
<7
B
5B
/O 1 9 :
.
(
G 5I 7 /DPBA
7 B7 B
7
78
/
B8 7?
:
/*'
$
+ #
-
*
-
$#
( )$ - # #
#'
0 $ #
$$ (- -
! " #$%&#$'
)
$ .
7
7G7 078
D 719 DP71
88
7B 7DP7
1)
$
$
>
B7I7
8 ?8 7
/=
7 /
B7
B : ::
7
G
7 B
D= ?8 C
<G8:
1+ $
!
7 C 7 87
7?
B 7GD B
/57 5
D 7 K
?8 :
0 +
! 7
G7 /57 C
7 K 5I I C
17CB :
23 - 4
>
B B /8
8
97
8 5B
<7 7 7/BB:
Örugg vörn möguleg?