Morgunblaðið - 12.08.2006, Page 22
22 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
7
7
8
SUÐURNES AKUREYRI
Njarðvík | „Mér fannst mjög lær-
dómsríkt að komast að því að fólk í
öðrum löndum er alveg eins og við
Íslendingar. Ég var líka hissa á því
hvað allir eru hrifnir af Íslandi og
langar til að koma hingað,“ sagði
Njarðvíkurmærin Sigríður Sesselja
Sæmundsdóttir, sem eyddi mestum
hluta júlímánaðar í ferðalagi á veg-
um Lionsklúbbsins Æsu í Njarðvík.
Síðastliðið vor efndi Lionsklúbb-
urinn Æsa í Njarðvík til ritgerð-
arsamkeppni vegna vals á unglingi í
unglingabúðir Lions í Lier í Belgíu,
en hver klúbbur velur sína valleið.
Ritgerðin átti að fjalla um heimabæ
ritsmiðs ásamt umsögn og stuttri
lýsingu á honum. Sigríður ákvað að
taka þátt eftir að henni hafði verið
bent á auglýsinguna og varð hlut-
skörpust.
„Ég vissi nú ósköp lítið um fyr-
irkomulagið fyrst, vissi t.d. ekki að
ég myndi dvelja hjá ókunnugu fólki
til að byrja með en vissi að fram-
undan væru smávegis verkefni. Ég
ákvað samt að skella mér,“ sagði Sig-
ríður í samtali við blaðamann.
Í farteskinu voru íslenskar vörur
til gjafa handa gestgjöfum og efni til
Íslandskynningar í búðunum í
Belgíu. Fyrst um sinn dvaldi Sig-
ríður á heimili í bænum Arlon í
Belgíu sem er rétt við landamæri
Lúxemborgar. Þar kynntist hún
stúlku frá Eistlandi, Triinu, sem var
á leið í sömu búðir og hún í Lier og
Sigríður sagði að þau kynni hafi
breytt miklu þegar komið var í búð-
irnar.
„Fyrstu vikuna vorum við aðallega
að leika okkur og skoða okkur um
bæði í Belgíu og Lúxemborg og
kynnast löndunum og fólkinu. Þá
vorum við mikið saman ég og Triinu.
Ég þurfti einu sinni að skipta um
fjölskyldu þessa viku í Arlon og það
var kannski ekkert verra því fólk var
alltaf að spyrja mig um Ísland og ég
var búin að tala svo mikið um það að
þegar kom að Íslandskynningunni
minni var ég orðin svo vön,“ sagði
Sigríður og viðurkenndi að hún hafi
kviðið nokkuð fyrir því að tala ensku
allan tímann og halda landkynningu
á ensku. Það hafi hins vegar gengið
mjög vel og segir hún þá reynslu
eina af þeim lærdómsríkustu í ferð-
inni.
Ungur Ísraeli upplifði
hörmungar í búðunum
Alls 38 unglingar hvaðanæva úr
heiminum dvöldu í unglingabúðum
Lions í Belgíu í tvær vikur í júlí.
Dagskráin var þétt alla daga, mest
þó í formi ferðalaga og dagurinn var
tekinn snemma. Sigríður var sú eina
frá Íslandi en 11 aðrir unglingar fóru
í sumar frá Lionsklúbbum á Íslandi
til dvalar í unglingabúðum í öðrum
löndum, einn til hvers lands. Sigríður
sagði það góða lífsreynslu að hafa
ferðast ein, kannski sérstaklega af
því að það gekk ekki áfallalaust fyrir
sig.
Bæði seinkaði fluginu til Kaup-
mannahafnar í upphafi ferðar sem
gerði það að verkum að hún þurfti að
gista á hóteli yfir nótt og svo hafði
orðið lestarslys á leiðinni til Lier sem
tafði förina frá Arlon. Sigríður sagði
að þá hafi verið gott að hafa Triinu
vinkonu sína með sér og ekki síst í
búðunum þar sem enginn þekktist.
„Við vorum nú samt fljót að kynn-
ast og við Triinu kynntumst strax
stelpu frá Króatíu. Við áttum öll að
tala ensku en það var nokkuð um það
að krakkar sem töluðu sama tungu-
mál hópuðu sig saman. Mér fannst
mjög lærdómsrík að geta tjáð mig á
ensku og þjálfaðist mikið í því. Mér
fannst líka lærdómsríkt að kynnast
fólki frá ólíkum löndum og komast að
því að það er alveg eins og við.“
Sigríði fannst ekki síður áhuga-
vert að komast að því hvað Ísland er
ofarlega á vinsældalistanum og
t.a.m. hafi fólk rokið að henni eftir
Íslandskynninguna til að láta í ljós
aðdáun sína á landinu og löngun til
að koma þangað. Það er því ekki
ósennilegt að Íslandskynningin í
Belgíu muni skila sér í náinni fram-
tíð.
Eftir dvölina erlendis sagðist Sig-
ríður vera með mikla útþrá en hún sá
ekki síður kostina við að búa á Ís-
landi. „Það var strákur frá Ísrael
með mér í búðunum og meðan við
vorum þar missti hann tvo bestu vini
sína í sprengjuárásum og afi hans lá
særður á sjúkrahúsi. Maður veit
ekkert hvort þessi strákur er á lífi í
dag,“ sagði Sigríður í lokin, víðsýnni
nú en fyrir mánuði og til í fleiri
ferðalög.
Ung Njarðvíkurmær var í unglingabúðum Lions í Belgíu í sumar
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Sigld Eftir dvöl í unglingabúðum Lions í Belgíu segist Sigríður Sesselja Sæmundsdóttir vera ánægð með að búa á
Íslandi. Hana langar samt í fleiri ferðalög. Hér er hún heima í Njarðvík á fallegum sumardegi.
Útþráin mikil eftir ferðina
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
GRÍÐARLEG aðsókn var að sýn-
ingum Leikfélags Akureyrar á síð-
asta leikári. Aldrei hafa fleiri sótt
sýningar leikhússins á Akureyri en
til viðbótar sóttu þúsundir leik-
húsgesta sýningar leikhússins í
Reykjavík. Tvær sýningar voru á
fjölum syðra í vor, Fullkomið brúð-
kaup og Litla hryllingsbúðin. Til að
mæta fjölda áskorana verða örfáar
aukasýningar á verkunum nú í
haust. Fullkomið brúðkaup verður
sýnt í Austurbæ í ágúst en Litla
hryllingsbúðin snýr aftur til Ak-
ureyrar í september.
Fullkomið brúðkaup er löngu
orðin vinsælasta sýning LA frá upp-
hafi. Hún sló öll aðsóknarmet á Ak-
ureyri og setti einnig sölumet þegar
sala hófst á sýningar á stóra sviði
Borgarleikhússins. Þegar sýningum
lauk í lok júní var enn mikil eft-
irspurn eftir miðum. Fyrsta sýn-
ingin verður laugardaginn 12. ágúst
en sýnt verður í þrjár helgar. Edda
Björg Eyjólfsdóttir tekur við hlut-
verki brúðarinnar af Esther Thalíu
Casey en hún er ófrísk og getur því
ekki leikið í hinum ærslafulla gam-
anleik. Litla hryllingsbúðin var
sýnd fyrir troðfullu húsi á Akureyri
síðastliðinn vetur og komust færri
að en vildu. Var allt að sjö sýn-
ingum í viku en dugði samt ekki til.
Sýningin naut einnig mikilla vin-
sælda þegar hún var í Íslensku
óperunni í maí og júní. Tekist hefur
að bæta þremur sýningarhelgum
við á Akureyri í byrjun september
og eru þetta allra síðustu sýningar
á verkinu en þá víkur hún fyrir nýj-
um uppsetningum LA. Fyrsta sýn-
ingin verður laugardagskvöldið 2.
september en þegar er orðið upp-
selt á þá sýningu. Birna Hafstein og
María Þórðardóttir taka við hlut-
verkum Esther Thalíu Casey og Ar-
dísar Ólafar Víkingsdóttur. Sem
fyrr segir er Esther ólétt en Ardís
er að flytjast af landi brott í lok
ágúst og geta þær því ekki tekið
þátt í aukasýningum verksins.
Nýtt leikár verður kynnt í lok
ágúst og hefst þá sala áskrift-
arkorta. Fjórar nýjar frumsýningar
verða hjá LA á leikárinu auk gesta-
sýninga og fjölda annarra fjöl-
breyttra viðburða.
Hryllingsbúðin sýnd
fyrir norðan og
Brúðkaupið syðra
SKÓLADEILD Akureyrar efnir til
námskeiðs fyrir alla kennara grunn-
skólanna á Akureyri, um 230–250
manns, það fjallar um samkynhneigð
og verður á mánudag, 14. ágúst í sal
Brekkuskóla. Öðrum starfsmönnum
skólanna, sem ekki eru komnir til
starfa, er heimilt að sækja námskeið-
ið en þeir munu hljóta sambærilega
fræðslu síðar.
Viðfangsefni á námskeiðinu er
samkynhneigð einkum með tilliti til
skóla. Það er stefna skóladeildarinn-
ar og skólastjóranna að taka upp
kennslu þar sem fjallað verður um
samkynhneigð og samkynhneigt
fjölskylduform eins og hvert annað
lífsform í samfélaginu og þetta mun
verða gert á öllum skólastigum
grunnskólans að því er fram kemur í
frétt um námskeiðið.
Það er haldið til þess að búa kenn-
ara og aðra starfsmenn skólanna
undir þá nýjung, að talað verði um
samkynhneigð í skólanum en ekki
þagað yfir henni skipulega, og eins
að búa þá betur undir að takast á við
vandamál sem upp kynnu að koma
og tengjast kynhneigð. Á námskeið-
inu verður jafnframt gerð grein fyrir
hugmyndum um kennsluefni og
kennsluaðferðir, sem stefnt er að því
að taka upp innan skamms.
Fyrirlesarar á námskeiðinu verða
Ingunn Snædal kennari, Guðmund-
ur Páll Ásgeirsson námsráðgjafi og
Helga Margrét Clarke háskólanemi.
Fundarstjóri verður Sverrir Páll Er-
lendsson, sem tekið hefur þátt í und-
irbúningsstarfinu. Sigurlína Jóns-
dóttir mun gera grein fyrir
námsefnisgerð. Þá verður lagður
fram á námskeiðinu splunkunýr
bæklingur, Undir regnboganum, en
það er ýmis fróðleikur sem Sverrir
Páll hefur tekið saman fyrir kennara
og starfsfólk skólanna um samkyn-
hneigð og skóla á Íslandi.
Sverrir Páll segir um algert frum-
kvöðlastarf að ræða, en fræðsla um
samkynhneigð hefur ekki enn verið
sett inn í námskrá grunnskóla, þótt
að því hafi verið stefnt. Skóladeild og
skólastjórar grunnskóla á Akureyri
gangi því fram í merkilegu forystu-
hlutverki og jafnréttismálum.
Að tala en þegja
ekki skipulega um
samkynhneigð