Morgunblaðið - 12.08.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 29
heilboruð með TBM-risaborum.
Það sem eftir er að vinna af öllum
þessum göngum eru um 17 km, þar
af 3,7 km í heilborun aðrennslis-
ganga með TBM-borum. Um 200 m
af göngum er eftir að sprengja, óbor-
uð Jökulsárgöng eru um 9,5 km og
Hraunaveitugöng verða 3,7 km að
lengd. TBM-borarnir eiga sem fyrr
segir eftir að bora 3.700 metra af að-
rennslisgöngum virkjunarinnar und-
ir Fljótsdalsheiði og miðað við fram-
ganginn hingað til getur sá
verkþáttur ráðið hvað mestu um
hvort tekst að gangsetja virkjunina á
réttum tíma.
Verktakafyrirtækið Suðurverk
byggir hliðarstíflur Hálslóns; Sauð-
árdalsstíflu og Desjarárstíflu sem
standa sín hvorum megin Kára-
hnjúkastíflunnar. Sauðárdalsstífla
verður 25 metra há og 1.100 metra
löng en Desjarárstífla verður 68
metra há og jafnlöng og þannig önn-
ur hæsta stífla landsins. Fram-
kvæmdum við stíflurnar lýkur í
haust, utan einhverjum frágangi
fram eftir hausti.
Ranghalarnir í fjallinu
Stöðvarhússhellir Kára-
hnjúkavirkjunar er 120 metra lang-
ur, 14 metra breiður og mesta loft-
hæð er 35 metrar. Mörg
þjónustugöng, vatnsmiðlunargöng
og ranghalar liggja að auki inni í
fjallinu og er heildarlengd ganga þar
um fimm kílómetrar. Steypuvinnu í
stöðvarhússhelli og spennasal við
hliðina lauk um mitt sumar. Fram-
kvæmdir við að stálfóðra tvenn fall-
göng, sem tengja aðrennslisgöngin
undir Fljótsdalsheiði við stöðv-
arhúsið í Fljótsdal, eru á lokastigi.
Fallgöngin eru hvor um sig 425
metra há og hafa verið fóðruð neðan
frá með stáleiningum.
Sex vélasamstæður verða í stöðv-
arhúsinu. Uppsetningu vél- og raf-
búnaðar er fram haldið af fullum
krafti í haust og vetur og þarf að vera
lokið fyrir gangsetningu virkjunar-
innar í vor. Þá er unnið að frárennsl-
isskurði sem flytja mun vatnið frá
stöðvarhúsinu og út í farveg Jökulsár
í Fljótsdal og þaðan í Lagarfljót.
Verið er að vinna í gerð sandgildra
og varnargarða inni í Hálslóni og við
að byggja eftirlitsveg umhverfis lón-
ið. Rannsóknarverkefni er í gangi
varðandi hvernig binda má ryk úr
lónstæðinu þegar á þarf að halda. Þá
verða í framhaldinu ummerki vinnu
að virkjuninni fjarlægð, s.s. búðir og
grunnar og gengið frá þannig að
náttúran á þeim svæðum komist sem
fyrst í upprunalegt horf. Skilyrði um-
hverfismats snerust að miklu leyti
um að ljúka ýmsum rannsóknum og
því hefur verið fylgt eftir af sérstakri
nefnd iðnaðar- og umhverfisráðu-
neyta. Öllum rannsóknum í lónstæð-
inu er t.d. lokið, en vöktunarrann-
sóknum og fleiri rannsóknum verður
fram haldið.
Virkjunin að mestu á áætlun
Sé á heildina litið hefur virkj-
unarframkvæmdin til þessa gengið
nánast eftir áætlun, sé mið t.d. tekið
af óvissu um jarðfræðilegar for-
sendur á einstökum stöðum, sem
hnikað hafa til hönnunarþáttum að
einhverju leyti eftir því sem á fram-
kvæmdina hefur liðið.
Þrjú banaslys hafa orðið á virkj-
unartímanum og tvö lestarslys í
göngum og önnur tilvik þar sem slys
urðu á fólki eða skemmdir á búnaði.
Andstæðingar virkjunarinnar innan
lands og utan láta að sér kveða í orði
og verki vegna m.a. náttúruverð-
mæta sem hverfa eða raskast, eftir
því hvernig á það er litið og nú eru til
umfjöllunar hjá sérstakri nefnd
vatnsréttindakröfur landeigenda að
Jökulsá, sem hættir að renna í sínum
gamla farvegi í haust og fer með tíð
og tíma yfir í Lagarfljót. Þeir sem
koma að hönnun og byggingu virkj-
unarinnar telja hana trausta, vel
hannaða og skynsamlega. Þannig
takast á rök og mótrök, með eða á
móti virkjunarframkvæmd, sem nú
sér brátt fyrir endann á.
það hefur náð fullri vatnshæð verður
yfirfall við annan enda stíflunnar þar
sem vatn rennur í safnþró og síðan
um steypta rennu út í gljúfrið og
myndar þar háan fossboga. Unnið
verður að þessum þætti áfram í
haust og vetur.
72 kílómetrar af jarðgöngum
Jarðgöng virkjunarinnar eru fjöl-
mörg. Aðrennslisgöngin frá Hálslóni
eru 39,7 km löng, aðrennslisgöng frá
Ufsarlóni 13,3 km og fern aðgöng
vegna aðrennslisganganna nema
samtals rúmum 7 km. Þá eru ótalin
tvenn hjágöng fyrir Jöklu, bergþétt-
ingargöng undir Kárahnjúkastíflu,
sveiflugöng, tvenn göng í Hraun-
aveitu, aðkomugöng að stöðvarhúsi,
frárennslisgöng og strengjagöng.
Jarðgöng verða alls um 72 km þegar
allt kemur til alls, sprengd, boruð og
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
ljúfrum, eða Dimmugljúfrum, eftir því hvað
m sem eru pínulitlir tilsýndar efst á stíflunni.
#
!
"
)
! #
!
!
"#$
"#$
"#$
1 (
f borvinnu neðanjarðar
steinunn@mbl.is
„ÞAÐ er bara meiriháttar fínt að vera hérna, svaka
mikið að gera alltaf og búið að koma margt ferðafólk
hér í sumar,“ segir Berglind Inga Guðmundsdóttir
kennari, sem starfar ásamt Sunnu Björk Ragn-
arsdóttur nema í ferðamannasjoppunni í Laug-
arásþorpinu skammt frá virkjunarsvæðinu. „Við þurf-
um nú eiginlega að vita allt milli himins og jarðar hér
um virkjunarframkvæmdirnar, en ferðafólkið hefur nú
samt yfirleitt svo grunna þekkingu á framkvæmdinni
að við höfum hingað til ekki verið reknar alvarlega á
gat í svörum,“ segir Sunna.
Þær segja erilinn hjaðna um kvöldmatarleytið og þá
taki „heimamenn“ að drífa að, starfsmenn úr búðum
Impregilo og Landsvirkjunar, svona til að ná sér í
nammi eða tóbak og fá sér „einn hammara“. Að auki sjá
þær um póstinn og menn eru sífellt að detta inn úr dyr-
unum til að spyrja hvort þeim hafi borist sending.
„Jú, maður þarf nú að hafa sterk bein til að þola at-
hyglina,“ segir Sunna og bætir því við að á Kára-
hnjúkum séu allar konur fallegar og eftirsóknarverðar,
því svo fáar séu þær miðað við karlana á staðnum.
„Þeir eru nú yfirleitt bara kurteisir, en uss, um daginn
vorum við kallaðar ljótum nöfnum og vorum næstum
farnar að berja frá okkur,“ segir Berglind, sem verður
eitthvað fram á veturinn í sjoppunni, en Sunna fer í
skóla í ágúst.
Galvaskar Þær eru bæði ánægðar með vinnustaðinn
og launin, Sunna Björk Ragnarsdóttir og Berglind
Inga Guðmundsdóttir, sem vinna í ferðamannasjopp-
unni og pósthúsinu á Kárahnjúkum.
Er komið bréf til mín?
„FRAMKVÆMDIN öll gengur vel fyrir sig,“ segir
Yrsa Sigurðardóttir, verkfræðingur og rithöfundur, en
hún starfar sem tæknistjóri við framkvæmdaeftirlit
Kárahnjúkavirkjunar og skrifar glæpasögur og barna-
bókmenntir í hjáverkum. „Við stefnum að því að hefja
vatnssöfnun í Hálslón eftir 15. september, þ.e. þegar
rennsli Jöklu er komið niður fyrir ákveðin mörk. Heil-
borun hefur tafist um tvo mánuði en við sjáum það
ekki sem stórt vandamál heldur bregðumst við því með
samhliða aðgerðum við frágang.“
Verktakar fjarlægja búnað
Að sögn Yrsu er Impregilo búið að taka niður búnað
innan lónstæðisins, svo sem grjótmulningsstöð og
steypustöð og mun halda áfram í haust, þó að ekki sé
byrjað að flytja tæki úr landi. TBM 1 borinn lýkur sínu
verki í lok mánaðarins og verður þá byrjað að rífa
hann í sundur til útflutnings, en slíkt tekur um 3 mán-
uði. TBM 2 verður dreginn út í október og borar í jarð-
göngum inneftir Fljótsdalsheiði í byrjun næsta árs og
TBM 3 á að ljúka sínu í nóvemberbyrjun og verður þá
dreginn út, tekinn í sundur og fluttur úr landi.
Fosskraft er einnig byrjað að taka saman tæki og tól
og mun afhenda sinn verkhluta við stöðvarhús virkj-
unarinnar í lok mánaðarins. Eins og fram hefur komið
lýkur Suðurverk hliðarstíflunum báðum í haust og
verður því á bak og burt með mest af sínu hafurtaski
fyrir veturinn.
Í nógu að snúast Yrsa Sigurðardóttir verkfræðingur
með hundinn sinn Palla, sem fylgir henni í fram-
kvæmdaeftirlitinu.
Verktakar byrjaðir að fjarlægja búnað
HRAUNAVEITA er framkvæmd austan Snæfells, á
milli Eyjabakka og Hrauna og mun miðla vatni í að-
rennslisgöngin u.þ.b. í þeim miðjum, við Axará á
Fljótsdalsheiði.
Sveinn Þórarinsson, verkfræðingur hjá fram-
kvæmdaeftirliti með Hraunaveitu, segir hana muni
leggja til um fjórðung af heildarvatnsmagni Kára-
hnjúkavirkjunar.
„Framkvæmdir hér eru í fjórum liðum og er Arn-
arfell verktaki í þeim öllum,“ segir Sveinn. Fyrst er
um að ræða 3,5 km af 13 km Jökulsárganga sem veita
munu vatninu í aðrennslisgöng virkjunarinnar, gerð
inntaks og 14 km langs Hraunavegar. Þá er bygging
Ufsarstíflu, yfirfalls og yfirfallsskurðar ásamt frágangi
botnrásar. Þriðji verkþátturinn er Kelduár-, Grjótár-
og Sauðárstífla ásamt skurðum og í fjórða lagi Keldu-
ár- og Grjótárgöng og skurðir. Um helmingur er búinn
af fyrsta verkþættinum, vinna er nýlega hafin við ann-
an og þriðja verkþátt og sá fjórði ekki hafinn.“ Sveinn
segir að samtals nemi framkvæmdirnar um 5 millj-
örðum króna. TBM2 risaborinn mun heilbora það sem
eftir er Jökulsárganga, eða 9,5 km.
Með mikilli einföldum má segja að vatni úr Sauðá,
svokallaðri innri Sauðárveitu, sé beint í Grjótá og þær
báðar stíflaðar, þaðan er vatninu miðlað í Kelduárlón
og áfram þaðan í Ufsarlón, þaðan sem það rennur um
Jökulsárgöng í hin stóru aðrennslisgöng Kára-
hnjúkavirkjunar undir Fljótsdalsheiði.
Gangamunni Sveinn Þórarinsson verkfræðingur
stendur hér við inntak Jökulsárganga, sem verða 13 km
löng. Arnarfell er þarna búið að bora um 1.700 metra.
Stórvirki austan Snæfells
„VIÐ erum að líta í kringum okkur hér á Kára-
hnjúkasvæðinu og m.a. að skoða hugsanlegt vegstæði
frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal og upp að aðkomugöngum
4,“ segir Guðni Nikulásson hjá Vegagerðinni. Þeir Ein-
ar Þorvarðarson, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar,
segja kaflann þar á milli um 9 km langan og þar af séu
3 km illfærir. Nú sé spurningin hvort vegur á þessari
leið þurfi að fara í umhverfismat.
Vilji heimamanna stendur til að gerð verði vegteng-
ing frá aðkomugöngunum og niður í Hrafnkelsdal en
með því yrði til auðveld fólksbílafær hringleið sem
myndi aftur tengjast líklegri miðstöð Vatnajökuls-
þjóðgarðs í Hrafnkelsdal.
Umferð á stífluna næsta sumar
Almenn umferð verður ekki leyfð á Kárahnjúkastíflu í
vetur vegna framkvæmda þar, en vonir standa til að
opnað verði fyrir hana fyrri hluta næsta sumars. Brúin
yfir Jöklu í stæði Hálslóns verður fjarlægð í næsta
mánuði. Undirstöður brúarinnar verða þó skildar eftir
og látnar hverfa í lónið. Orðið hefur að loka brúnni þrjú
kvöld í sumar þegar rennslið nam um 500 rúmmetrum
á sekúndu. Henni var líka lokað í fyrrasumar og sum-
arið þar áður, í fyrra vegna mikils hlýindakafla og fór
þá rennslið í yfir 900 rúmmetra. Nú er hins vegar búið
að taka önnur hjárennslisgöng árinnar framhjá Kára-
hnjúkastíflu sem botnrás fyrir stífluna og þurfti því
minna vatnsmagn til að brúin lokaðist nú.
Þeir Einar og Guðni höfðu einnig á orði að í framtíð-
inni yrði hugsanlega gerður vegur frá Kárahnjúkum
inn í Arnardal og myndi þar einnig opnast skemmtileg
hringleið fyrir ferðafólk.
Vegagerð Þeir Guðni Nikulásson og Einar Þorvarð-
arson umdæmisstjóri hjá Vegagerðinni huga að veg-
tengingum við Kárahnjúkavirkjun.
Vegstæði úr Hrafnkelsdal inn í Kárahnjúka
tsdals-
hæst.
magn til
50 km
ru byggð-
a ári og
róatísks
möstrin og
urnar
ema yfir
s og
línurnar
það gert
rkið er
arf að
kellur á.
að lín-
rið.
nar