Morgunblaðið - 12.08.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 51
PETE GARRISON (Douglas) er í
hópi reyndustu leyniþjónustumanna
í öryggisvörslu Hvíta hússins. Hann
er tekinn að reskjast en fáir stand-
ast honum snúning þegar á reynir.
Þrátt fyrri langan vinnudag er
Garrison óbreyttur liðsmaður,
ástæðan er sú að honum brást boga-
listin þegar Reagan forseti varð fyr-
ir skotárás árið 1981.
Aftur er Garrison í slæmum mál-
um. Uppljóstrari sem hann hefur
getað treyst í gegnum árin stingur
að honum upplýsingum um að
hryðjuverkamenn hyggist ráða
Ballentine forseta (Rasche) af dög-
um með hjálp svikara í innsta hring
leyniþjónustunnar.
Ekki nóg með það, Garrison er
frekur á fóðrum þegar kemur að
kvennamálum og virðist einblína í
giftar konur. Hefur fjölþreifnin
spillt vináttu hans og Breckinridge
(Sutherland), fyrrum besta vinar
hans og félaga í leyniþjónustunni.
Garrison lætur sér ekki segjast og
er þegar hér er komið sögu í þing-
um við forsetafrúna (Basinger). Þó
það fari leynt verður sambandið
Garrison til vandræða þegar leitin
að svikaranum er í hámæli. Ný-
skriðinn úr bóli frúarinnar stenst
hann ekki lygamælisprófið spurður
um trúnað við húsbónda sinn í Hvíta
húsinu. Breckinridge á harma að
hefna og gerir það sem hann getur
til að sanna sök á fyrrum eljara
sinn. Skyndilega er reyndasti líf-
vörðurinn grunaður um samsæri og
verður að fara huldu höfði uns hann
hefur uppi á hinum seka.
Hvíta húsið er sem oftast fyrr
forvitnilegur og spennandi bak-
grunnur samsæristrylla og útlit The
Sentinel er eins og best verður á
kosið. Útitökum af forsetabústaðn-
um er laglega fléttað saman við
vandvirknislegar stúdíótökur þar
sem frábær leiksvið og munir gefa
myndinni ákveðinn gæðastimpil.
Sömu sögu er að segja af leik-
arahópnum, þar er hvergi veikan
punkt að finna. Douglas er skap-
aður í slík hlutverk, hann er traust-
ur og sannfærandi í hverju sem
hann tekur sér fyrir hendur og ekki
sakar orðsporið sem af honum fer í
bólþurftarmálum. Sutherland er á
svipuðum slóðum, velgengni sjón-
varpsþáttanna 24 hefur fært leik-
aranum nauðsynlegt sjálfsöryggi,
sem var tekið að minnka eftir mörg
og mögur hlutverk, eftir gott gengi í
upphafi ferilsins. Basinger er freist-
andi sem tilkippileg forsetafrú,
Longoria (Desperate Housewives)
getur beðið frami á hvíta tjaldinu í
einhver ár og minni hlutverk eru vel
mönnuð. Tónlist og taka eru í góð-
um höndum og leikstjórinn heldur
keyrslunni gangandi frá upphafi til
enda.
The Sentinel er þó ekkert annað
og meira en hundrað prósent popp-
kornsmynd; sem raunsæ mynd um
vána af hryðjuverkum, þrautþjálf-
aða öryggisgæslu og viðsjá í henni
veröld fær hún falleinkunn. Látið
ykkur líða vel, fylgist með Douglas,
njótið gæðaframleiðslunnar, vel upp
byggðrar og linnulausrar spennunn-
ar en sleppið því gjörsamlega að
velta fyrir ykkur efninu, sumarpopp
er ekki fallið til nærskoðunar.
Lífvörðurinn og
lausláta forsetafrúin
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Clark Johnson. Aðalleikarar:
Michael Douglas, Kiefer Sutherland, Eva
Longoria, Kim Basinger, David Rasche.
105 mín. Bandaríkin 2006.
The Sentinel – Sæbjörn Valdimarsson
Að mati gagnrýnanda er hvergi veikan punkt að finna í leikarahópnum í
The Sentinel og Hvíta húsið spennandi bakgrunnur samsæristrylla.
Hljómsveitin Fræ heldur tón-leika í Ketilhúsinu á Akureyri
í kvöld, en þetta mun vera í fyrsta
sinn sem hljómsveitin heldur tón-
leika í höfuðstað Norðurlands.
Helmingur hljómsveitarmanna er
frá Akureyri og í fréttatilkynningu
segir að mikil eftirvænting ríki
meðal þeirra. Fræ gaf nýverið út
plötuna Eyðilegðu þig smá og hafa
lög á borð við „Freðinn fáviti“ og
„Dramatísk rómantík“ heyrst tölu-
vert á öldum ljósvakans að und-
anförnu. Upphitun verður í hönd-
um Sadjei, sem einnig er meðlimur
í Fræ. Húsið verður opnað klukkan
21.30 og aðgangseyrir er 1.000
krónur. Tónleikarnir eru opnir öll-
um aldurshópum.
Fólk folk@mbl.is
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8
HÖRKU SPENNUMYND Í ANDA JAMES BOND
ÞÚ ERT ALDREI
OF UNGUR
TIL AÐ DEYJA Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14 ára
Mögnuð
spennu
mynd
í anda „
24“
eeee
K.M. - Sena
COLIN FARRELL JAMIE FOXX
ACADEMY AWARD WINNER
Sýnd kl. 4, 7 og 10-POWER B.i. 16 ára
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
SVALASTA
SPENNUMYND SUMARSINS
Sýnd kl. 2, 4 og 6 ÍSL. TAL
Það hefur ekki verið svikari í
leyniþjónustunni í 141 ár...
þangað til núna!
POWERSÝNING KL. 10 Á STÆRSTA thx TJALDI LANDSINS
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sími - 551 9000
ÓVISSUBÍÓ kl. 8
A Praire Home Company kl. 3, 5.45, 8 og 10.15
Ástríkur og Víkingarnir kl. 3 og 6
Silent Hill kl. 8 og 10.40 B.i. 16 ára
The Da Vinci Code kl. 5 og 10 B.i. 14 ára
Click kl. 3, 5.50, 8 og 10.10
Benchwarmers kl. 3
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Sýnd kl. 2 ÍSL. TAL
Sýnd kl. 10
B.i. 12 ára400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU