Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ICELAND FILM FESTIVAL 2006 Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGA 30. ÁGÚST - 21. SEPTEMBER A COCK AND BULL... / AKUREYRI / KEFLAVÍK SparBíó 400 KR. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL. 1:4 RENAISSANCE HAGATORGI • S. 530 1919 eeee TOMMI KVIKMYNDIR.IS eeee S.U.S. XFM 91,9. V.J.V. TOPP5.IS eeee eee S.V. - MBL eee V.J.V - TOPP5.IS eeeee blaðið DOWN IN THE... ÖSKRANDI API... The Libertine kl. 3:30 - 5:45 B.i.12 .ára. Renaissance kl. 3:30 - 10:15 B.i. 12.ára. Down in the Valley kl. 8 B.i. 16.ára. Where the Truth Lies kl. 5:45 B.i.16 .ára. A Cock and Bull Story kl. 5:45 B.i.16 .ára. Öskrandi Api, ballett í leynum kl. 8 B.i.12 .ára. WHERE THE TRU...THE LIBERTINE eeee V.J.V. TOPP5.IS eeee TOMMI/KVIKMYNDIR.IS eeeee H.J. MBL HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN BJÓLFSKVIÐA eeee blaðið eee H.J. - MBL HETJAN... SKRÍMSLIÐ... GOÐSÖGNIN. DÝRASTA KVIKMYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ Á ÍSLANDI. eeee S.U.S. XFM 91,9. eeee TOMMI KVIKMYNDIR.IS V.J.V. TOPP5.IS eeee FRAMLEIDD AF TOM HANKS. MEÐ HINUM EINA SANNA JACK BLACK OG FRÁ LEIKSTJÓRA “NAPOLEON DYNAMITE” KEMUR FRUMLEGASTI GRÍNSMELLURINN Í ÁR. BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON BÖRN kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10.15 B.i.12 AN INCONVENIENT TRUTH kl. 8 - 10:15 LEYFÐ BJÓLFSKVIÐA kl. 3:30 - 8 - 10:15 B.i.16 PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 10:15 B.i. 12 MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 3:30 - 6 LEYFÐ UNITED 93 kl. 8 - 10:15 B.i. 12 LADY IN THE... kl. 10:10 B.i. 12 ÞETTA ER EK... kl. 8 Leyfð MAURAHRE... kl. 2 - 4 Ísl tal. Leyfð LITTLE MAN kl. 6 B.i. 12 YOU, ME AND... kl. 5:45 B.i. 12 GRETTIR 2 m/ísl. tali kl. 2 - 3:50 Leyfð NACHO LIBRE kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 Leyfð STEP UP kl. 6 - 8 Leyfð MAURAHR... Ísl tal. kl. 2 (400 KR.) - 4 Leyfð UNITED 93 kl. 10 B.i. 12 LEIKARARNIR, ÓLAFUR DARRI, NÍNA DÖGG OG GÍSLI ÖRN FARA HREINLEGA Á KOSTUM UNDIR TRYGGRI LEIKSTJÓRN RAGNARS BRAGASONAR. FRÁ EINHVERJUM MEST SPENNANDI LEIKHÓP SEM ÍSLENDINGAR EIGA Í DAG, VESTURPORT, KEMUR HREINT ÚT SAGT MÖGNUÐ KVIKMYND BÖRN! www.haskolabio.is eeee HEIÐA MBL MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Í námi erlendis hafðiVíkverji kynnst Toni & Guy hár- greiðslustofunum og vanist þar góðum vinnubrögðum og af- bragðsþjónustu. Vík- verji kættist því að vonum þegar hár- greiðslukeðjan opnaði útibú við Laugaveg fyrir nokkrum árum. Stofan á Laugavegi er afbragðsgóð og Vík- verji ákaflega ánægður með hárskerann sinn góða; sérlega hæfi- leikaríkan og geðgóðan ungan mann sem byrjaði að klippa hár á Akranesi þegar hann var orð- inn rétt nógu stór til að ná upp í rak- arastólinn. x x x Víkverji fær seint fullþakkað rak-arapiltinum fyrir að kenna Vík- verja að blása á sér hárið og, það sem meira er um vert: koma Vík- verja á þá skoðun að ekkert er at- hugavert við að karlmenn mundi hárblásarann endrum og sinnum. Þannig er nefnilega með Víkverja, eins og svo marga kynbræður hans, að hárlubbinn hefur þynnst með ár- unum. Víkverja hætti að lítast á blik- una fyrir nokkrum ár- um og fór að reyna alls kyns mixtúrur og galdrasjampó til að gera sem mest úr því hári sem eftir er. Fór Víkverji jafnvel til læknis sem skrifaði upp á lyfseðil fyrir rán- dýrum pillum sem eiga að koma í veg fyrir frekari hármissi. En sama hvað Vík- verji brúkaði af vörum sá varla nokkurn mun á hárlubbanum. Það var ekki fyrr en Víkverji prufaði að blása hárið að hann loksins státaði hári sem hann gat verið mjög ánægður með. Víkverji heldur sig við gömlu góðu stuttu klippinguna, en með því að bera í hárið smá hárblásturskrem, og blása lubbann síðan þurran verð- ur hárið allt umfangsmeira og þykk- ara að sjá, og fallegra þegar búið er að greiða og móta hárið eins og Vík- verji er vanur að hafa það. Víkverja langar því að mæla með því við kynbræður sína sem eiga við sama vanda að stríða að eyða ekki peningunum í misgóðar snyrtivörur sem gera lítið gagn. Hárblásarinn skilar langsamlega mestum árangri. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is      Orð dagsins: „Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævi- daga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi.“ (Sálm. 23, 6.) Í dag er laugardagur 16. september, 259. dag- ur ársins 2006 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Þjónustuíbúðir aldraðra NÝLEGA sá ég í fréttum að áform eru um að byggja í Reykjavík 200 þjónustuíbúðir fyrir aldraða – myndi það minka mikið biðlistann eftir slíkum íbúðum. Í þessu sambandi datt mér í hug hvort ekki væri hægt að nýta stóran hluta af íbúðarhúsnæði, sem varn- arliðið skilur eftir, á svipaðan máta – eflaust mætti koma þarna fyrir allt að 400 þjónustuíbúðum með til- heyrandi afþreyingaraðstöðu, mötu- neytum, stjórnsýslu o.s.frv. Auðvelt yrði að gera umhverfið aðlaðandi og góðar samgöngur við nærliggjandi bæjarfélög. 021023-4859. Dr. Phil á Skjá 1 MIG langar að vita hvort það sé einhver sálfræð- ingur hér á landi sem vinnur á svipaðan hátt og Dr. Phil eða not- ar áþekkar aðferðir? Það er að segja kemst að kjarna málsins með því að leggja nokkuð mikla vinnu í það. Guðrún S. Ofsaakstur og drullurall GETUR það verið að fjölmiðlar, sérstaklega ríkissjónvarpið, eigi þátt í sífjölgandi banaslysum í um- ferðinni með því að hampa ofsa- akstri í Formúlu 1 og fantakeyrslu í drulluralli? Áhorfandi. Framúrskarandi þjónusta ÉG vill láta í ljós ánægju mína með alla þjónustu sem ég hef fengið í verslun sem kallast Gítarinn. Ein- staklega hjálplegur eigandinn, sem hefur ekkert á móti því að gera allt sem hann getur til að hjálpa nýliða eins og mér sem er að fikra mig áfram í tónlistinni. Sama má segja um alla aðra starfsmenn sem hafa tekið á móti mér þegar ég er að versla. Svona viðmót skapar bara meiri viðskipti og jafnvel bréf eins og þetta. Róbert Þórhallsson. Söfnun fyrir fátæk börn? ÞAÐ var hringt í mig föstudags- kvöldið 1. september sl. og í síman- um var maður sem kynnti sig og sagði: Góða kvöldið, ég heiti Hörður og er að safna fyrir fátæk börn á Ís- landi. Sagðist ég ekki vera aflögu- fær í augnablikinu og spurði ég hvort hann væri með skrifstofu eða hvert ég gæti snúið mér ef ég vildi gefa síðar í söfnunina. Sagði hann að KB banki sendi út gíróseðla og sagði ég honum þá að ég mundi snúa mér þangað. Varð hann þá reiður og sagði: Við skulum þá bara segja nei. Var þetta mjög ruddalegt og velti ég því fyrir mér eftir á hvort það væri einhver svona söfnun í gangi. Sigurrós Guðmundsdóttir. Köttur fæst gefins FÍGARÓ, sem á ættir sínar að rekja til norskra skógarkatta, vantar gott heimili til að búa á. Hann er líflegur og félagslyndur og unir sér vel inn- an um þá sem honum þykir vænt um. Þeir sem gætu tekið Fígaró að sér eru beðnir að hafa samband í síma 551 4054 eða á mbgardars- @hotmail.com Myndavél týndist í miðbænum CANON, stafræn myndavél í svörtu/gráu hulstri tapaðist í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags- ins 10. september. Skilvís finnandi beðinn að hafa samband við Guð- rúnu í síma 862 3708 eða á gudru- neh03@ru.is – Fundarlaun. árnað heilla ritstjorn@mbl.is 80 ára afmæli. Ídag, 16. sept- ember, er áttræður Svavar Stefánsson, fyrrum mjólk- ursamlagsstjóri á Egilsstöðum. Hann og eiginkona hans, Kristbjörg Sigurbjörnsdóttir, munu halda daginn hátíðlegan með dætrum sínum og fjölskyldum þeirra. Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur, Sara Sólveig, Lena Lísbet, Margrét Vigdís og Helga Björg eru í Vogaskóla og söfnuðu kr. 6.056 til styrktar fyrir ABC barnahjálp. Morgunblaðið/Golli Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu í Rimahverfi og söfnuðu þær 2.652 kr. til styrktar Barnaspítala Hringsins. Þær eru Nanna Amelía Baldursdóttir og Hanna Birgitta Harð- ardóttir. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira, lesendum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið ritstjorn@mbl.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.