Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ALLS munu fjórtán kvik- myndir bítast um heið- ursnafnbótina „uppgötvun árs- ins“ á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF). Myndirnar eiga það sameiginlegt að vera ýmist fyrsta eða annað verk leik- stjóra. Þær koma frá fjórum heimsálfum og hafa sumar hverjar þegar sópað til sín verðlaunum. Meðal þeirra mynda sem keppa um titilinn er Fjórar mínútur eftir Chris Kraus en hún verður Evrópufrumsýnd á hátíðinni. Verð- launin verða afhent með viðhöfn laugardaginn 7. október. Kvikmyndir Fjórtán „uppgötv- anir“ á RIFF Chris Kraus MAGNÚS Helgason opn- ar í dag málverkasýningu í Baksalnum í Galleríi Fold. Nefnist hún Landslög. Sjálfur segir listamað- urinn að á sýningunni séu fjöldaframleidd landslög fyrir borgarbúa nútímans sem séu í flötum pakkn- ingum sem auki hag- kvæmni og auðveldi flutninga. Magnús hefur tekið þátt í fjölda listviðburða bæði hérlendis sem erlendis. Hann vinnur með ljósmyndir, kvikmyndir, hreyfimyndir, málverk og innstillingar. Þá kemur hann fram með tónlist- armönnum og sýnir kvikmyndir í bakgrunni. Myndlist Landslög í baksal Gallerís Foldar ANNAÐ kvöld klukkan 20.30 endurtekur Dean Ferrell, kontrabassaleikari í Sinfón- íuhljómsveit Íslands, óvenju- legan tónlistargjörning sinn frá því í sumar í Menningar- miðstöð Skaftfells. Uppistaða gjörningsins er ensk tónlist frá 1605 eftir Tobi- as nokkurn Hume, málaliða sem Dean spilar í fornstill- ingum á garnastrengi. Meðan á tónlistarflutn- ingnum stendur flytur hann svo ávarp sem Hume fór með fyrir breska þinginu árið 1642. Auk þess syngur hann undir frægu „tóbakslagi“ tónskálds- ins. Tónlist Gjörningur á kontrabassa Dean Ferrell Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is TVEIR ungir og upprennandi myndlistarmenn, Þórunn Maggý Kristjánsdóttir og Ragnar Jón- asson, hlutu í gær styrk úr styrkt- arsjóði Guðmundu Andrésdóttur að upphæð 1.500.000 kr. hvor. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr styrktarsjóðnum. Sjóðurinn var stofnaður með erfðaskrá Guðmundu Andrésdóttur listmálara en hún lést í september árið 2002. Samkvæmt skipulagsskrá Styrkt- arsjóðs Guðmundu Andrésdóttur er markmið sjóðsins að styrkja og hvetja unga og efnilega myndlist- armenn til framhaldsnáms. Að sögn Ólafs Kvaran, safnstjóra Listasafns Íslands, er þetta stærsti sjóður sinn- ar tegundar á Íslandi. Honum er ætlað að styrkja og efla íslenskt myndlistarlíf. Þórunn Maggý hlaut 1.500.000 kr. styrk til framhaldsnáms við Listahá- skólann í Kaupmannahöfn og Ragn- ar hlaut sömu upphæð í styrk til framhaldsnáms við Glasgow School of Arts. Ólafur Kvaran safnstjóri af- henti styrkina og sagði við það til- efni að það væri von stjórnar sjóðs- ins að þessi stuðningur kæmi þeim að góðum notum í námi þeirra og starfi og óskaði stjórnin þeim vel- gengni í framtíðinni. Ólafur sagði að Guðmunda Andr- ésdóttir hefði tilheyrt þeirri kynslóð listamanna sem á sjötta áratug síð- ustu aldar ruddu abstraktlistinni braut á Íslandi. Hún hefði þróað mjög svo persónulega listsköpun sem gerði framlag hennar til sam- tímalistar á Íslandi sterkt og áhrifa- mikið. Guðmunda arfleiddi Lista- safn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Háskóla Íslands að listaverkum sínum og fram kom að þau gæfu gott yfirlit yfir feril henn- ar og yrðu söfnunum mikilvæg við umfjöllun um list hennar í framtíð- inni. Faðir Ragnars tók við styrknum fyrir hans hönd þar sem hann var staddur í útlöndum, en Þórunn Maggý tók sjálf við sínum styrk. Hún sagði í samtali við Morg- unblaðið að styrkurinn kæmi sér af- ar vel þar sem framundan væri fjög- urra ára nám við Listaháskólann í Kaupmannahöfn. „Stór upphæð sem breytir miklu fyrir mig“ „Þetta er stór upphæð og breytir miklu fyrir mig. Ég fer í Kon- unglega listaháskólann í Kaup- mannahöfn. Þar er reyndar allt ann- að kerfi en gengur og gerist í Evrópu,“ segir Þórunn Maggý, sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2004 með BA-gráðu. „Mastersnámið er sex ár. Þeir taka alla nýja nemendur inn á fyrsta ár og meta þá svo upp í framhaldinu. En þeir meta BA-gráðu aðeins til tveggja ára þannig að ég verð þarna að öllum líkindum í fjögur ár. Af þeim sökum kemur styrkurinn sér óneitanlega mjög vel og vegur upp á móti nauðsyn þess að taka náms- lán,“ segir Þórunn Maggý. Hún sótti um styrk úr sjóðnum sl. vor og lagði fram greinargerð um framtíðaráætlanir í námi og möppu með verkum. Hún segir að það hafi komið sér á óvart að verða fyrir val- inu. „Ég vinn með vídeólist og tónlist. Ég sem tónlistina og vinn með þessa tvo miðla saman. Verkin verða þannig til að miðlarnir koma fram sem andstæðar sögur eða and- stæðar tilfinningar sem fléttast í einhvers konar frásögn eða and- rúmsloft.“ Þórunn Maggý hefur haldið tvær einkasýningar hérlendis og tekið þátt í nokkrum sýningum erlendis. Núna stendur yfir sýningin Prójekt Patterson á verkum hennar og fleiri listamanna í galleríinu Suð- suðvestur í Reykjanesbæ sem stendur til 24. september. Myndlist | Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur Ungir og upprennandi fá styrk FRAMLEIÐENDUR söng- leikjaútgáfu af Hringadróttinssögu í eru á höttunum eftir tuttugu leik- urum sem geta gert hinum smá- vöxnu og fótstóru hobbitum sann- færandi skil auk þess sem þeir þurfa að geta sungið tvö lög. Um- sækjendur verða að vera lægri en 170 cm og á aldrinum 16–35 ára. Að sögn framleiðenda eru hærðar tær og fætur „æskileg“ einkenni en þó ekki nauðsynleg. Ráðgert er að setja söngleikinn upp í Theatre Royal-leikhúsinu í London á næsta ári en hann hefur áður verið á fjölunum í Toronto í Kanada. Búist er við að eitthvað verði krukkað í handrit söngleiks- ins áður eftir að kanadískir gagn- rýnendur gáfu honum slaka ein- kunn. Áheyrnaprufur fara fram næst- komandi mánudag. Auglýst eftir Hobbitum Ljótur Hann er ófrýnilegur þessi þátttakandi í söngleikjaútfærslu Hringadróttinssögu. Hann hefur væntanlega verið of stór til að hreppa hlutverk hobbita. »Guðmunda Andrésdóttirfæddist árið 1922 og lést í september 2002. »Guðmunda ruddi abst-raklistinni braut í íslenskri listasögu. »Guðmunda arfleiddi Lista-safn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Há- skóla Íslands að listaverkum sínum. »Þetta er í annað sinn semúthlutað er úr sjóðnum. Stjórn sjóðsins úthlutaði nú tveimur styrkjum að upphæð 1.500.000 til Þórunnar Maggý Kristjánsdóttur og Ragnars Jónassonar. Í HNOTSKURN Halda til framhalds- náms í Danmörku og Skotlandi Morgunblaðið/Eyþór Styrkþegar Þórunn Maggý Kristjánsdóttir og Jónas Ragnarsson, sem tók við styrknum fyrir hönd sonar síns. Velkomin á sjávarréttahátíðina Fiskirí á 80 veitingastöðum um land allt. Komið og njótið gómsætra fisk- og sjávarrétta í stórkostlegri sjávarfangsveislu. Kíktu á www.fiskiri.is www.fiskiri.is FO R ST O FA N 2 0 0 6 / M yn d : H al la Só lv ei g Þo rg ei rs d ó tt ir Helgina 15.- 17. september
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.