Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 31
sem það getur keypt sér lífrænt
og meinhollt nammi eða drykki.
Allur ágóðinn fer í námsferð
starfsmanna til Minnesota sem
hópurinn heldur í á vordögum.
„Ef þú ert nærður og hvíldur þá
getur þú betur ráðið við að-
stæður,“ segir Ólafur og heldur
áfram: „Þetta er mjög einfalt. Ef
við erum þreytt, streitt, svöng eða
illa upp lögð á einhvern hátt þá
hættum við að ráða eins vel við
krefjandi uppákomur og grípum
jafnvel til uppeldisaðferða sem
virka ekki.“
Stjórnendum skólans finnst líka
mikilvægt að eftir vinnudaginn
gangi starfsfólkið ekki út orku-
laust, heldur geti það tekist á við
sitt eigið fjölskyldulíf þegar heim
er komið. Þannig kemur starfs-
maður sáttari til starfa næsta
morgun.
En þar með er ekki öll sagan
sögð. Starfsfólkið hefur greiðan
aðgang að stjórnendum skólans og
getur rætt við þá þegar upp kem-
ur þörf fyrir að spjalla. „Með því
að koma til móts við starfsmann-
inn, vera til staðar og bjóða hon-
um að ræða málin aukum við lík-
urnar á því að hann taki ekki
persónuleg vandamál með sér í
samskiptin við börnin,“ segir Ás-
laug Daníelsdóttir leikskólastýra
og brosir hlýlega.
Hollt og gott veganesti
Það að annast börn er síður en
svo einfalt mál. Hvað þá mörg
börn í einu. Leikskólaárin eru
mikilvægur þáttur í námi barna,
tími mótunar og mikils þroska.
Takist vel til í leikskóla er óhætt
að segja að barnið hafi fengið gott
nesti með sér til að takast á við
kröfur grunnskólans. Á Hvarfi
skipta allir máli, bæði börn og
fullorðnir.
Á leiðinni út kemur blaðamaður
við á hinum rómaða kornbar og
fær nesti. Það er enn rigning og á
harðastökki er hlaupið út í bíl. Á
meðan rigningin bylur á bílrúð-
unni er gott að maula bragðgóð
sólblómafræ og fylgjast með börn-
unum sem eru önnum kafin við
kökugerð og pollahopp. Leik-
skólabörnin á Hvarfi hafa fallegan
svip og þeim virðist líða vel, bæði
inni við í fallegu umhverfinu og
líka úti í haustrigningunni. Á
Hvarfi er rigningin góð.
Kornbar Hollt nasl er gott fyrir
starfsfólkið í dagsins önn.
Í athvarfi starfs-
mannanna er allt í
hvítum og ljósum
litum og þar er
mjög notalegt að
vera. Dúnmjúkir
sófar og teppi sem
hægt er að sveipa
um sig á meðan
gluggað er í góða
bók gera umhverf-
ið mjög hlýlegt.
Það er hingað sem
starfsfólkið kemur
til að sækja sér
orku í dagsins önn.
Rúnar Kristjánsson segir fariðað hausta og þó að besta veður
sé í miðri viku virðist verra ástand
um helgar. Ekki sé hægt að róa og
annað eftir því:
Helgin með sér bleytu bar,
brugðust sóknarfærin.
Sól í kortum varla var,
vonbrigðin því ærin.
Ytri bleytan ergði geð,
engan veitti þerri.
En innri bleytan sem var séð
samt mér þótti verri!
Rúnar yrkir um góðan kveðskap-
armann:
Vin og bróður ljóðs og lags
lífs með rjóða vanga,
veit ég á slóðum besta brags
bjartan hróður fanga.
Síst með þversum þankalag,
þrátt til hvers sem dregur,
kveður hann vers og kíminn brag
Kristjáns Bersa - legur!
Bróðir ljóðs
og lags
VÍSNAHORN
pebl@mbl.is
Fréttir á SMS