Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 59 menning GJÖRNINGUR Rúríar Tileinkun, sem framinn var með fjölda að- stoðarmanna í og við Drekking- arhyl á Þingvöllum, fór fram þriðjudaginn 5. september að við- stöddu fjölmenni. Eins og stað- setning og titill gjörningsins ber með sér þá er gjörningurinn til- einkaður þeim konum sem drekkt var í hylnum á 17. og 18. öld fyrir óleyfilegar barneignir, hórdóm og/ eða dulsmál. Í þessum viðamikla gjörningi tekst Rúrí að setja á svið tákn- ræna uppreisn hinna látnu með því að vísa til samtímaatburða þar sem fjöldagrafir eru opnaðar, bor- in kennsl á lík einstaklinganna og hverri persónu fyrir sig vottuð virðing með minningunni. Þrátt fyrir að í þessu tilfelli hafi ein- göngu verið notast við leikmuni til að vísa í líkamsleifar hinna látnu þá má segja að Rúrí hafi tekist að skapa tilfinningu og meðvitund hjá áhorfendum um hinn grimmi- lega raunveruleika þessara sögu- legu atburða þótt langt sé síðan þeir gerðust. Það er ákveðin hætta í gjörningum sem þessum að sviðsetningin verði of drama- tísk og ofleikin en hér tókst að feta vandrataðan milliveg og forð- ast óhóflega tilfinningasemi. Gjörningurinn mun án efa verða talinn eitt af lykilverkum Rúríar þar sem hann er ákveðinn sam- nefnari fyrir þær áherslur sem hafa verið áberandi í öðrum verk- um hennar. Náttúran sem Rúrí er svo hugleikin er umgjörð verksins sem fjallar í víðustu merkingu þess um virðingu fyrir náttúrunni jafnt sem mannslífum. Virðing fyrir mannslífum og barátta gegn hvers kyns óréttlæti og ofbeldi felst ekki síður í því að minnast þeirra sem hafa orðið fyrir því. Minningar eru líka áminningar því gamalt ofbeldi tekur á sig nýj- ar myndir á hverjum tíma. Gjörn- ingurinn felur í sér réttláta reiði, svipmyndir af Rúrí að brjóta gull- bensinn, sker í sögulega þjóð- arvitund eins og glerregn af himni. Hann felur í sér uppsafn- aða sorg sögunnar sem á sér enn stað í samtímanum. En fyrst og fremst tjáir hann aðgerðir og mótmæli gegn þöggun, spillingu og eyðileggingu. Femínískur andi er greinilegur í verkinu þar sem konur draga aðrar gleymdar kon- ur upp á yfirborðið og inn í sögu okkar sem þjóðar. Þetta er í takt við femínískar áherslur um endur- skoðun á vægi sögulegra atburða og tilraunir til að skrifa líf og af- drif kvenna inn í hina karlmiðjuðu sögu sem er ráðandi. Hins vegar má segja að það hefði gert gjörn- inginn enn áhugaverðari ef þeim skráðu heimildum, sem til eru um meintar sakir þessara kvenna, hefðu verið gerð betri skil í lokin. Það er villandi að gefa í skyn að þeim hafi verið drekkt fyrir það eitt að eignast barn eins og kom fram í greinargerðinni um margar þeirra. Í þessari sögu er í mörg- um tilfellum skráð óhugnanlegri saga um sifjaspell eða aðra mis- notkun sem leiðir til þeirrar ályktunar að í sumum tilfellum hafi þessar konur verið tvöföld fórnarlömb. Líklegt er að ein- hverjir barnsfeður hafi sloppið og eflaust einhverjir menn verið blórabögglar og goldið með lífi sínu. Það kemur ekki fram í gjörningi Rúríar hvaða dóma meintir feður fengu en mér skilst að heimildir séu um að þeir hafi margir verið hálshöggnir. Fram- setningin í gjörningnum skekkir því svolítið þá sögu sem skráð er og lætur sem konurnar einar hafi verið fórnarlömb gagnvart glæp- samlegu réttarkerfi þess tíma. Gjörningurinn er í táknrænni samræðu við mörg verkanna á sýningunni Mega vott sem nú stendur yfir í Hafnarborg, en þar sýnir Rúrí með fjórum öðrum kon- um. Þrjár þeirra tóku þátt í gjörn- ingnum með Rúrí við Drekking- arhyl og sú samstaða sem kemur fram í samvinnunni er einn sterk- asti og áhrifaríkasti þátturinn í gjörningnum. Þær koma fram sem fulltrúar móður- ímyndarinnar, þeirra afla sem vilja vernda líf og minnast fórnarlamba. Sem slíkur er gjörningurinn vel heppnaður, bæði hvað varðar hugmyndafræði hans, sjónræna framsetningu og áhrifamátt. Til hamingju. Dulsmál og drekkingar Morgunblaðið/RAX Gjörningur „Í þessum viðamikla gjörningi tekst Rúrí að setja á svið táknræna uppreisn hinna látnu með því að vísa til samtímaatburða.“ GJÖRNINGUR Almannagjá, Þingvellir Þriðjudaginn 5. september kl. 18 Rúrí og aðstoðarmenn/ Tileinkun Þóra Þórisdóttir GLEÐILEGT NÝTT LEIKÁR! FRUMSÝNINGAR FRÁ FYRRA LEIKÁRI SAMSTARFSVERKEFNI LÍK Í ÓSKILUM eftir Anthony Neilson Leikstjóri Steinunn Knútsdóttir Nýja sviðið apríl 2007 Gamanleikur um óborganlegt lögguteymi sem fær það hlutverk að boða eldri hjónum váleg tíðindi á aðfangadagskvöld. Þeir eiga bágt með að leiðrétta misskilning sem verður áður en þeir hafa að fullu útskýrt erindi sitt. Löggur, lygar og lygileg atburðarás! FYRIRTÍÐASPENNA eftir Björk Jakobsdóttur – Himnaríki FAGRA VERÖLD eftir Anthony Neilson Leikstjóri Benedikt Erlingsson Stóra sviðið desember 2006 Nútíma ævintýri um Lísu í „Sundralandi”. Við fylgjum Lísu inn í undraheim geðveikinnar, litríkan heim ótrúlegra andstæðna. Við skyggnumst líka hinum megin við landamærin. Þar mætum við náköldum raunveruleikanum þar sem litirnir eru horfnir. MEIN KAMPF eftir George Tabori Leikstjóri Hafliði Arngrímsson Nýja sviðið september 2006 Hitler hinn ungi kemur til Vínarborgar til að sækja um skólavist. Hann vingast við bóksala af gyðingakyni sem tekur hann undir sinn verndarvæng og kveikir hjá honum áhuga á stjórnmálum. Hann kemst ekki inn í skólann en fær þess í stað vinnu hjá óvæntum aðila. Hárbeittur og meinfyndinn gamanleikur. AMADEUS eftir Peter Shaffer Leikstjóri Stefán Baldursson Stóra sviðið október 2006 Stórsýning um samband Wolfgangs Amadeusar Mozarts og Antonios Salieris hirðtónskálds. Salieri kvelst af afbrýði út í hinn unga snilling. Afbrýðin dregur hann til andstyggilegra aðgerða til að koma Amadeusi á kné og loks í dauðann. En hvor þeirra sigrar að lokum? DAGUR VONAR eftir Birgi Sigurðsson Leikstjóri Hilmir Snær Guðnason Nýja sviðið janúar 2007. Lára býr með þremur stálpuðum börnum sínum eftir fráfall mannsins síns. Inn á heimilið kemur elskhugi Láru, Gunnar, atvinnulaus alkóhólisti sem setur fjölskylduna í uppnám og átökin blossa upp. Verk um mörkin milli snilli og geðveiki, draums og veruleika, orsaka og afleiðinga. GRETTIR eftir Ólaf Hauk Símonarson, Þórarin Eldjárn og Egil Ólafsson Tónlist: Egill Ólafsson og Þursaflokkurinn Stóra sviðið mars 2007. Söngleikur um hinn lánlausa Gretti. Hann nær skjótum frama þegar hann fær hlutverk í sjónvarpsseríu byggðri á Íslendingasögunni um Gretti sterka. En líkt og í sögunni fornu þarf hann að takast á við drauginn Glám. Átökin enda með ósköpum! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 ÁSKRIFTARKORT Á 5 SÝNINGAR Á 9.900 KR. EF ÞÚ GERIST ÁSKRIFANDI FYRIR 20. SEPTEMBER FÆRÐU GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í KAUPBÆTI. VILTU FINNA MILLJÓN? eftir Ray Cooney – Leikstjóri Þór Tulinius Stóra sviðið september 2006 BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson – Leikstjóri Stefán Jónsson Nýja sviðið febrúar 2007 RONJA RÆNINGJADÓTTIR eftir Astrid Lindgren – Leikstjóri Sigrún Edda Björnsdóttir Stóra sviðið september 2006 Föst sýning Valsýning EILÍF HAMINGJA eftir Andra Snæ Magnason – Leikstjóri Þorleifur Arnarsson Hið Lifandi Leikhús FEBRÚARSÝNING ÍD Nýtt frumsamið verk eftir Roberto Olivan og nýtt frumsamið verk eftir André Gingras – Stóra svið febrúar. MANNTAFL eftir Stefan Zweig – Leikstjóri Hilmir Snær Guðnason Leikari: Þór Tulinius ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR eftir Geraldine Aron – Leikstjóri Þórhildur Þorleifsdóttir Leikkona: Edda Björgvinsdóttir Miðasala Borgarleikhússins er opin: mánudaga og þriðjudaga frá kl. 10 til 18 miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 10 til 20 laugardaga og sunnudaga frá kl. 12 til 20. Sími miðasölu: 568 8000. Miðasala á netinu allan sólahringinn: midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is . AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.