Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 21
Dolce & Gabbana
Chanel
Prada
Donna Karan
Lindberg
Versace
Roberto Cavalli
Bulgari
Tom Ford og fl.
Linsur - Gleraugu - Sjónmælingar
Gleraugu eru skart
VALIÐ hefur verið á hinn svokall-
aða „stuttlista“ bresku Man Boo-
ker-bókmenntaverðlaunanna,
einna mikilvægustu og eftirtekt-
arverðustu verðlauna sem veitt
eru á sviði bókmennta í heiminum.
Sex bækur standa nú eftir af þeim
nítján tilnefningum sem voru á
„langlista“ verðlaunanna sem til-
kynntur var fyrir um mánuði.
Handhafi Man Booker-verð-
launanna 2006 verður svo gerður
heyrinkunnur þriðjudaginn 10.
október.
Verðlaunahafi hlýtur
50.000 pund í sigurlaun
Það var formaður dómnefnd-
arinnar, ævisagnaritarinn, fræði-
maðurinn og ritrýnirinn Hermione
Lee, sem kynnti stuttlistann á
blaðamannafundi sem haldinn var
í höfuðstöðvum Man Group í
London á fimmtudaginn.
Þau verk sem eru tilnefnd eru:
The Inheritance of Loss, eftir Kir-
an Desai; The Secret River, eftir
Kate Grenville; Carry Me Down,
eftir H. J. Hyland; In the Country
of Men, eftir Hisham Matar; Mot-
her’s Milk, eftir Edward St Au-
byn; og The Night Watch, eftir
Sarah Waters.
Endanlegs sigurvegara bíður
50.000 punda (u.þ.b. 6,5 milljónir
króna) verðlaunafé auk þess sem
viðurkenningin tryggir aukna sölu.
Þá þykir mikil vegsemd að verð-
laununum.
Á heimasíðu Man Booker er
haft eftir Hermione Lee að í
hverri hinna sex skáldsagna birt-
ist lesandanum heimur sem hann
sökkvi sér í án spurninga eða van-
trausts. Hugblær þeirra fylgi les-
andanum sömuleiðis að lestri
löngu loknum.
Sex bækur bítast
um Booker-inn
AP
Blaðamannafundur Hermione
Lee, formaður dómnefndarinnar,
tilkynnir hvaða sex bækur prýða
„stuttlista“ Man Bookerverð-
launanna.
Bókmenntir | Tilnefningar kynntar
ÞAU ná ekki nema upp í miðjan tónstigann, enda bara
fjögur, systkinin Von Trapp; Amanda, Melanie, Sofia
og Justin.
Þau eru barnabörn kapteins Von Trapp, sem Chri-
stopher Plummer lék eftirminnilega í sígildu söngva-
myndinni Sound of Music. Enn er Trapp-fjölskyldan að
syngja, og systkinin fjögur, sem hér sjást, eru nú í fríi
frá tónleikaferðum um heiminn, til að leika í jólamynd
sem kemur út að ári. Aðdáendur Sound of Music munu
væntanlega taka henni með þökkum.
Reuters
Jólajóðl í undirbúningi