Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BLÖNDUÐ skrifstofu-, þjónustu- og íbúðabyggð mun rísa á svæðinu við Köllunarklettsveg og Héðins- götu, gangi eftir skipulagstillaga, sem kynnt var á fundi hafn- arstjórnar Faxaflóahafna í síðustu viku. Tillagan var unnin af GP Arki- tektum, en skipulagssvæðið er alls 62.000 m² að stærð. Meðal annars er gert ráð fyrir að sex 10 til 14 hæða skrifstofu- og þjónustubyggingar rísi á svæðinu. Þar eru í dag lag- erbyggingar af ýmsum formum og gerðum sem er misjafnlega vel við- haldið og að auki eru þar stór opin svæði. Segir í skipulagstillögunni að svæðið sé því til verulegra lýta fyrir aðliggjandi byggð og blasi við þorra borgarbúa á hverjum degi í akstri til og frá miðbæ Reykjavíkur. Markmiðið með tillögunni sé að skapa heildstætt svæði með „skrif- stofu-, þjónustu- og íbúðabygg- ingum með glæsilegu yfirbragði af háum gæðaflokki, sem nýta til fulln- ustu þau gæði sem svæðið hefur upp á að bjóða. Þar vegur mest einstakt útsýni til norðurs, vesturs og aust- urs“, segir í tillögunni. Þá sé svæðið nálægt Laugarnesinu og miðborg- inni, auk þess sem tenging sé við Sæbraut. Ekki eins og venjulegt þjónustuhverfi Í skipulagstillögunni kemur fram að blönduð byggð hafi í för með sér að hverfið verði ekki eins og venju- legt þjónustuhverfi, sem hvorki verði líf í eftir klukkan 17 á daginn né um helgar. „Með því að blanda íbúðum og atvinnuhúsnæði saman næst fram það sem er eftirsóknar- verðast í öllum borgum. Bæjarhlut- inn verður lifandi allan sólarhring- inn, alla daga,“ segir í tillögunni. Fyrirhugað er að meðfram Sæ- braut verði skrifstofu- og þjón- ustubyggingar en á vesturhluta svæðisins að Laugarnesi er gert ráð fyrir íbúðabyggð. Vegna þess að Sæbrautin liggur að svæðinu og vegna landhæðar þar, stendur til að svæðið verði hækkað upp fyrir að- liggjandi götur. Aðkoma að því er frá Köllunarklettsvegi og Héðins- götu, en gert er ráð fyrir að mestur hluti bifreiðastæða verði í bifreiða- geymslum neðanjarðar. Fjölbreytt starfsemi Sex, tíu til fjórtán hæða háar skrifstofu- og þjónustubyggingar eiga að rísa á svæðinu og stendur til að í þeim verði fjölbreytt starfsemi, auk skrifstofuhúsnæðis. T.d. verði verslanir, rannsóknarstofur og sýn- ingarsalir í byggingunum. Lega bygginganna hafi í för með sér að skerðing útsýnis frá íbúðarhúsum sunnan Kleppsvegar verði eins lítil og hægt er. Gert er ráð fyrir að fyrsta hæðin tengi allar skrifstofubyggingarnar saman og myndi innri tengsl, þann- ig að hægt verði að ganga innan- dyra milli bygginganna. „Hug- myndin er að á hæðinni geti verið ýmis þjónusta eins og t.d. fund- araðstaða, sýningarsalir banka- útibú, póstþjónusta, verslanir, tölvuþjónusta og ljósritun.“ 260 íbúðir Í íbúðahlutanum er gert ráð fyrir fjórum 17 hæða íbúðarhúsum sem gætu rúmað um 260 íbúðir, en íbúð- irnar eru staðsettar fjærst Sæ- braut. Úr þeim verði útsýni í norður til Esjunnar, til vesturs í átt að miðbæ Reykjavíkur, og í austur í átt að Mosfellsbæ. Íbúðirnar verði með góðri lofthæð og í háum gæða- flokki. Háar skrifstofubyggingar rísi Ljósmynd/GP Arkitektar                                Hugmyndir eru um að reisa nýtt hverfi við Köllunarklettsveg og Héðinsgötu og hafa til- lögur um hverfið verið í skoðun undanfarin misseri, en samkvæmt skipulagstillögu er gert ráð fyrir bland- aðri byggð á svæðinu. Í HNOTSKURN »Skipulagssvæðið sam-anstendur í dag af lóð- unum Köllunarklettsvegi 3 og 5, sem er 19.500 m², Héðins- götu 2, sem er 22.100 m², og Héðinsgötu 1–3, sem er 20.400 m². »Lagt er til að nýting-arhlutfall verði 2.0, en í til- lögunni segir að nauðsynlegt sé að nýting verði góð. » Í tillögunni er bent á aðágæt tengsl séu við Sæ- braut og Sundabraut, sem fyr- irhugað er að reisa. »Tillagan hefur ekki ennverið lögð fyrir skipulags- nefnd borgarinnar. elva@mbl.is REYKJAVÍKURBORG mun halda veglega upp á tuttugu ára afmæli leiðtogafundar Ronalds Reagans og Míkhaíls Gorbatsjovs sem fram fór í Höfða 12.–13. október 1986. Til að mynda verður ljósmyndasýning í Tjarnasal Ráðhússins opnuð 10. október nk. þar sem safnað hefur verið saman helstu ljósmyndum frá þessum tíma. Dagskráin mun hins vegar í raun hefjast 9. október nk. þegar lista- konan Yoko Ono kemur til landsins með fríðu föruneyti en Ono mun veita alþjóðlegu samtökunum Læknar án landamæra og fræðslu- samtökunum Center for Con- stitutional Rights friðarverðlaun, sem kennd eru við hana og John Lennon. Ono mun einnig hefja und- irbúning að Imagine-friðarsúlunni sem rísa á í Viðey. Þá verður almenningi gefinn kostur á að skoða Höfða, sem verður opnaður 10. október, þar sem einnig verður búið að koma fyrir ljós- myndum af Reykjavíkurfundinum. 11. október heldur Blaðamanna- félag Íslands málþing um fundinn og munu gamalreyndir fjölmiðlamenn miðla reynslu sinni og upplifun frá tímamótunum. Míkhaíl Gorbatsjov kemur til lands- ins 12. október og mun þá um kvöldið snæða kvöldverð á Bessastöðum. Daginn eftir heldur hann fyrirlestur í Háskólabíói um alþjóðamál og kalda stríðið en auk þess verður haldið mál- þing sem Háskóli Íslands, Reykjavík- urborg og Icelandair standa að. Þar halda erindi fræðimenn frá Banda- ríkjunum og Rússlandi sem koma m.a. með skjöl sem nýverið voru uppgötv- uð. Leynilegt atriði Gorbatsjov mun sitja hádegisverð í Höfða 14. október ásamt flestum þeim sem stóðu að fundinum, s.s. Davíð Oddssyni, þáverandi borgarstjóra, Steingrími Hermannssyni, þáverandi forsætisráðherra, Matthíasi Á. Mat- hiesen, þáverandi utanríkisráðherra, og Vigdísi Finnbogadóttur, þáverandi forseta Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá að- stoðarmanni borgarstjóra, Jóni Kristni Snæhólm, verður að auki leynilegt atriði sem tengist fundinum en ekki greint frá nú. Leiðtogafundarins í Höfða minnst Morgunblaðið/RAX Leiðtogafundur Myndin er frá upphafsfundi leiðtoganna Míkhaíl Gorbat- sjovs og Ronald Reagans sem fram fór í Höfða í október fyrir 20 árum. Veglega verður haldið upp á 20 ára afmæli Reykjavíkurfundarins Í ÝMSUM starfsgreinum sem hafa vaxið mikið á undanförnum árum er fjölgunin mest í eldri aldursflokkunum. Þetta kemur fram í gögnum, sem Hag- stofa Íslands hefur unnið fyrir fjár- málaráðuneytið. Upplýsingarnar byggjast á staðgreiðsluskrám og sýna stöðuna fyrir október á hverju ári. 32% allra voru á sextugs- eða sjötugsaldri Tvær fjölmennar greinar vekja þarna athygli umfram aðrar. Í grunn- skólunum þar sem alls voru taldir starfandi 7.700 manns í október í fyrra eru rúmlega 2.400 á sextugs- og sjötugsaldri, 32% allra sem við þessa atvinnugrein starfa. Hópurinn á þessu aldursskeiði hefur stækkað um tæplega 1.000 manns á fimm árum. Þetta er vísbending um að fram und- an sé mikil þörf fyrir nýja starfsmenn við grunnskólana enda hafa margir hinna eldri möguleika á að hefja töku lífeyris fljótlega upp úr sextugu. Hin atvinnugreinin er heilbrigðis- þjónusta. Við hana störfuðu tæplega 10.500 manns í október 2005, sem er nánast óbreyttur fjöldi frá því sem verið hafði fimm árum fyrr. En á þessum tíma hafði fækkað í öllum ald- ursflokkum sem við hana starfa nema í hópi þeirra sem eru á sextugsaldri. Hér sýnist stefna í nokkurt óefni, seg- ir í vefritinu. Eldra starfsfólk í skólum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.