Morgunblaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 29
Ljósmynd/Sigrún
Freistandi Dökk súkkulaðikaka sem er þó án súkkulaðis.
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 29
Haustið er handan við hornið, lauf-
blöð tekin að gulna, afréttir smalaðir
og börnin komin í skólann. Þegar
þessar línur birtast lesendum þá er
að hefjast hrossasmölun á Laxárdal í
A-Húnavatnssýslu með þátttöku
fjölda gesta sem ýmist eru á eigin
reiðskjótum eða með að láni. Þessi
siður hefur verið viðhafður í fjölda
ár og nýtur vaxandi vinsælda.
Þannig er að þennan dag ber ávallt
upp á lokaumferðina í efstu deild
karla í knattspyrnu. Þannig vill til að
bæjarlífsritari sem er Frammari að
upplagi hefur fylgst með þessum
göngum í gegnum linsuna flest árin
og svo vill til að FM útvarpssend-
ingar nást ekki fram í dalinn. Það
hefur ávallt verið svo að maður vissi
aldrei hvort Fram hefði fallið eða
sloppið undangengin ár fyrr en heim
er komið um kvöldið en að þessu
sinni er maður laus við þá óvissu.
Það er til siðs að ræða aðeins um
veðrið og nánast ókurteisi að víkja
ekki að því. Undanfarnir haustdagar
hafa verið mildir og stilltir en það
hefur nánast ekki gefist einn einasti
heill þurr dagur nú um langa tíð og
gert þeim sem þurfa að taka upp
kartöflurnar lífið aðeins leiðara. Vís-
ast er að fleiri séu leiðir en mér sýn-
ist að skógarþrestirnir séu nokkuð
sáttir við lífið því grunnt er á ána-
maðkinn.
Eitt er það mál sem margir Blöndu-
ósingar eru ósáttir við og þá einkum
eldri kynslóðin en það er hvernig
gamla kirkjan lætur óáreitt undan
eyðingaröflum tímans. Ef satt skal
segja þá má þessi kirkja sem flestir
sæmilega uppkomnir Blönduósingar
eiga margar minningar úr muna
sinn fífil fegri og svo sannarlega þarf
hún á mikilli upplyftingu að halda.
Það var á dögunum að ákaflega
grandvar og heiðarlegur maður kom
að máli við undirritaðan og spurði
hvort ekki væri réttast að kveikja í
kirkjunni því enginn vildi ljá henni
hjálparhönd og betra væri að hún
hyrfi af yfirborði jarðar en vera í
þessu ástandi. Það hrökk svona út úr
mér við þennan ágæta mann að hann
væri einmitt maðurinn í verkið því
það þarf stálheiðarlegan mann til að
kveikja í. En í alvöru, þá er kirkjan
friðuð samkvæmt lögum vegna ald-
urs og það er erfitt fyrir lítinn söfn-
uð að halda úti tveimur kirkjum svo
sómi sé að en eitthvað verður að
gera, það er ljóst og það sem fyrst.
BLÖNDUÓS
Eftir Jón Sigurðsson
Bananamúffur
12 stykki.
250 g spelt
100 g ávaxtasykur
50 g haframjöl
2 tsk. lyftiduft, kúfullar
1 tsk. bökunarsódi
1 tsk. kanill (má vera meira)
örlítið af heilsusalti (Herbamere)
4–5 bananar, meðalstórir og vel
þroskaðir
1 krukka sykurlaust barnabanana-
mauk eða bætið 1 banana við upp-
skriftina
1 egg
3 eggjahvítur
1 msk. byggmalt síróp (má nota
hlynsíróp eða meiri ávaxtasykur)
1 tsk. vanilludropar
Forhitið ofn í 190 ºC. Blandið
þurrefnunum saman í skál. Stappið
banana og bætið sykurlausa barna-
bananamaukinu saman við ásamt
sírópi, eggjum og vanilludropum.
Blandið bananahrærunni saman við
þurrefnin og hrærið í stutta stund,
ekki þó of lengi því deigið á að vera
gróft og kekkjótt svo það haldist
létt. Þegar olía og smjör eru ekki
notuð eins og í þessari uppskrift er
hvorki hægt að nota hefðbundin
múffupappírsform né bökunar-
plötur einar og sér við baksturinn.
Sigrún sníður smjörpappír með því
að setja undirskál á pappírinn,
teikna með penna hring utan um
skálina og klippa hann út. Papp-
írshringinn setur hún síðan ofan í
hvert og eitt múffuform á bökunar-
plötunni og mótar vel í forminu.
Múffusmjörpappírinn má nota allt
að sex sinnum. Fyllið hvert múffu-
form að 2⁄3 með deiginu. Bakið í um
25 mínútur við 190 ºC. Látið múff-
urnar kólna í í nokkrar mínútur áð-
ur en þær eru teknar úr forminu og
flettið smjörpappírnum varlega ut-
an af.
Dökk súkkulaðikaka
(án súkkulaðis)
Botn
1 bolli möndlur
1½ bolli kasjúhnetur
1½ msk. ósætt kakó
(Það má líka nota gott kakóduft)
¼ tsk. heilsusalt (t.d. Herbamere)
1½ bolli döðlur (Látið liggja í sjóð-
andi heitu vatni í um 15 mín. og
geymið vatnið.)
1 banani, vel þroskaður
Myljið hneturnar í matvinnsluvél
og setjið í skál ásamt carob-dufti og
salti og leggið til hliðar. Setjið því
næst döðlur og banana í
matvinnsluvélina, maukið vel og
blandið saman við hnetuhræruna.
Látið deigið í smelluform og þrýstið
því vel niður. Kælið í ísskáp í um
klukkustund.
Krem
¼ bolli vatn (af döðlunum)
½ bolli Tahini (skiljið eins mikið af
olíunni frá og hægt er)
4 msk. byggmaltsíróp, kúffullar
eða hunang
1½ msk. carob-duft (eða gott
kakóduft)
1 banani, vel þroskaður
1 tsk. vanilludropar eða vanilluduft
ferskir ávextir,
kókosmjöl eða þurrristaðar hnetur
og möndlur til skreytingar
Setjið hráefnið í matvinnsluvél,
hrærið vel saman og látið í skál.
Breiðið plastfilmu yfir skálina og
kælið í ísskáp í um klukkutíma.
Smyrjið kreminu síðan á kökuna og
skreytið með ferskum ávöxtum, t.d.
vel þroskuðum banönum, jarðar-
berjum og kókosmjöli eða þurrrist-
uðum, niðursöxuðum hnetum eða
möndlum. Tvöfalda má uppskriftina
til þess að gera kökuna þykkari.