Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 11
Börn síns tíma Er Ísland barnvænt samfélag? Grein I Gera má því skóna að vægi fjölskyldunnar hafi minnkað með breytt- um samfélagsháttum á Íslandi. Fyrirvinnurnar á flestum heimilum eru nú tvær í stað einnar áður og vinnudagurinn að jafnaði langur. Fyrir vikið hafa foreldrar minni tíma til að sinna börnum sínum. Á móti kemur að efnahagslegar aðstæður fjölskyldna hafa líklega aldrei verið betri. Hvað finnst foreldrum um þessa breyttu mynd? Hvaða áhrif hefur þetta á börnin? Þurfa þau að finna sér nýjar fyrirmyndir? Leita þau í þeim tilgangi á náðir fjölmiðla og jafnaldra? Hneigjast þau í auknum mæli til agaleysis? Hvernig bregðast skólarnir við þessu? Morgunblaðið mun með þessari grein og fleiri greinum á næstunni leita svara við spurningunni: Er Ísland barnvænt samfélag?|12 Morgunblaðið/ÞÖK í stjórnsýslunni en svo virðist ekki vera, a.m.k. ekki í þessu efni.“ Ástandið minnir, að áliti Eyjólfs, helst á franska lénsskipulagið. „Kerfið er yfirfullt af hertogum og barónum og boðin komast aldrei alla leið í gegn. Kerfið er m.ö.o. allt- of stirt. Þetta á við víðar en í skóla- kerfinu. Og á hverjum bitnar þetta? Auðvitað þeim sem minnst mega sín, börnunum. Ég er ekki hrifinn af þessu.“ Kennsla er list Hann segir að vandinn liggi í því að alltof margir séu í greiningu og skipulagningu í skólakerfinu. Skrif- finnskan sé yfirþyrmandi. „Kennsla er list og besta fólkið verður að vera á gólfinu. Ekki í einhverjum greiningadeildum. Það er ekki nóg að hafa her manna í að greina vand- ann ef enginn er eftir til að leysa hann. Það er nefnilega mun erfiðara að leysa vandann en greina hann. Tökum samlíkingu úr læknisfræð- inni. Ef ég er með heilaæxli þá kemur greiningin yfirleitt fljótt. Það er minnsti vandinn. Það er hins vegar flóknara mál að lækna mein- ið.“ Eyjólfur segir að skólarnir séu mun lakari vinnustaður fyrir kenn- ara í dag en fyrir fjörutíu árum. „Það gerir flatneskjan. Það eiga all- ir kennarar að vera eins. Kennarinn hefur ekki lengur frelsi til að vera hann sjálfur, iðka sína list. Þetta kemur niður á nemandanum. Hann fær á tilfinninguna að hann sé staddur í verksmiðju en ekki skóla. Boðin koma að ofan. Kennarinn er aldrei spurður álits og þaðan af síð- ur nemandinn.“ Kynjahlutföllin hafa breyst mikið Kynjahlutföllin hafa breyst mikið í grunnskólum landsins á und- anförnum áratugum. Þegar Eyjólf- ur steig sín fyrstu skref í kennslu voru karlmenn í meirihluta. Nú er yfirgnæfandi meirihluti grunnskóla- kennara konur. „Þessi þróun er óheppileg. Börn þurfa að kynnast báðum kynjum jafnt. Nú er svo komið að börn geta hæglega farið í gegnum grunnskóla án þess að sækja nokkru sinni í tíma hjá karl- manni, nema kannski í smíðum eða leikfimi. Það segir sig sjálft að þetta er ekki æskilegt. Ekkert frekar en að allir kennarar séu karlmenn.“ Eyjólfur segir þetta verra fyrir drengi en stúlkur. „Ég veit að mörgum drengjum líður illa í skól- anum enda sýna flestar kannanir að þeir séu að dragast aftur úr stúlk- unum í námi. Þá vantar föður- ímyndina sem þeir höfðu áður. Drengir þurfa öðruvísi aga en stúlk- ur. Börn eru fljót að finna veikleika kennarans og nýta sér hann til hins ýtrasta. Fyrir vikið gefast margir upp á kennslu. Afföll eru óvíða meiri en hjá kennarastéttinni.“ vandann – það þarf að leysa hann líka Morgunblaðið/ÞÖK Kennarinn „Kennsla er list og besta fólkið verður að vera á gólfinu. Ekki í einhverjum greiningadeildum,“ segir Eyjólfur Magnússon Scheving kennari í Landakotsskóla. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 11 Texti | Orri Páll Ormarsson | orri@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.