Morgunblaðið - 24.09.2006, Síða 20

Morgunblaðið - 24.09.2006, Síða 20
Morgunblaðið/EyþórGrundvallaratriði Ingibjörg Hafstað fer yfir grundvallaratriði í íslensku þannig að menn geti bjargað sér. Það er þröngt setinn bekkur í gámi á ann-arri hæð við nýbyggingu Eyktar viðBorgartún, þar sem fram fer íslensku-kennsla fyrir iðnaðarmenn og verka- menn. Þetta er fertugasti tíminn og ákveðin sorg í hópnum með að þetta sé sá síðasti, þar til fréttist að vinnuveitandinn hafi framlengt námskeiðið um tíu tíma. Og námskeiðið er þegar farið að hafa þýðingu fyrir samskipti starfsmanna. „Verkstjórinn sagði að hann hefði aldrei trúað því hvað þetta gerði mikið gagn,“ segir Ingibjörg Hafstað, sem kennir hópnum. „Það átta sig ekki allir á því að þetta er ekki síst erfitt fyrir Íslendinga, því að þeir eru í minnihluta á vinnusvæðinu og geta ekki talað við starfsfélaga sína. – Það er hunderfitt!“ Ólíkar þarfir Alþjóðahúsið hóf að byggja upp starfstengda ís- lenskukennslu í september árið 2005 og segir Ingi- björg að einnig sé lögð áhersla á að læra um sam- félagið í nærmynd. „Ég læt til dæmis hringja í Alþjóðahúsið úr kennslustundum til að afla upplýs- inga. Þá er starfsfólkið þar undirbúið og auðveld- ara að mætast. Það kemur því vel út að Alþjóða- húsið standi bæði fyrir íslenskukennslu og veiti upplýsingar.“ Hún segir mikinn straum innflytjenda hafa legið til landsins á síðasta ári. „Þeir vinna eins og skepn- ur, margir í vaktavinnu, og það getur verið erfitt að rífa sig upp í námskeið eftir 12 tíma vinnudag. Á námskeiðinu hjá Eykt voru allir fullkomlega mál- lausir þegar við byrjuðum og þannig er staðan hjá Einingaverksmiðjunni þar sem kennsla er að hefj- ast. Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera mikið á fjörutíu tímum, – með góðan kennara,“ segir hún og hlær. Og starfstengd íslenskukennsla er mikilvæg að mati Ingibjargar, því aðstæður geta verið mjög Starfstengt íslensku- nám á vegum Alþjóðahússins Drög að náminu lögð á kaffistofunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Á áætlun Bergsteinn kennir strætisvagnabílstjórum hjá Hagvögnum sem er mikilvægt fyrir samskipti við farþega. Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is |sunnudagur|24. 9. 2006| mbl.is daglegtlíf Sumir hafa náðarvald í ríkum mæli. Sagt var um Hannes Haf- stein að hann væri fallegasti maður hér á landi. » 26 náðarvald Cliff Burton, bassaleikari Metallica, var sérvitringur og séni sem var rokkheiminum harmdauði. » 32 rokk Friðrik V á Akureyri er fjöl- skyldufyrirtæki þar sem ís- lenskar matarhefðir eru í há- vegum hafðar. » 28 hefðir Mary Ellen Mark hefur ljós- myndað krakka í Safamýrar- skóla og Lyngási; krakkana sem stundum gleymast. » 34 mannlíf Ragnar Bragason er t́víbura- pabbi og lítur á Börn og næstu mynd sína, Foreldra, sem eitt verk og kallar þær tvíbura. » 22 fólk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.