Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 21 Su›urlandsbraut 22, 108 Reykjavík Sími 540 1500 www.lysing.is Við viljum að þú náir árangri H in rik P ét ur ss on l w w w .m m ed ia .is /h ip “Vi› vitum a› me› réttum tækjum og tólum eiga vi›skiptavinir okkar meiri möguleika a› ná árangri í sinni starfsemi. Okkar markmi› er a› a›sto›a flá til gó›ra verka enda vitum vi› a› velgengni okkar byggist á velgengni vi›skiptavinanna.“ Gu›rí›ur Ólafsdóttir Yfirma›ur fyrirtækjasvi›sólíkar og þar af leiðandi þarfir manna. „Það er fátt sameiginlegt með býtibúrinu á Landspítalanum, byggingarvinnunni hér eða nám- skeiðinu hjá Hagvögnum, þar sem bílstjórarnir eru flestir pólskir og kunna að keyra en geta ekki átt í samskiptum við farþega.“ Hlustar eftir húmornum Til að byrja með sest Ingibjörg á kaffistofuna og fylgist með sam- skiptunum. „Ég reyni að taka eftir því hvernig Íslendingarnir eru að stríða þeim, hverskonar mál er talað og hvaða húmor er ríkjandi. Menn- ingin er svo ólík milli vinnustaða. Ég var að gera þarfagreiningu hjá CCP og það er heimur sem ég þekki ekki – gekk inn á 120 tölvunirði,“ segir hún og hlær. Og það er langt í frá ómögulegt að kenna íslensku. „Okkar hug- myndafræði er sú að kenna það sem þarf að kenna með eins lítilli mál- fræði og hægt er,“ segir Ingibjörg. „Þess vegna er vinnustaður gott verkfæri, því að menn þekkja sig þar og vita um hvað þeir eru að tala, þó að þeir þekki ekki orðið. Það er góð- ur útgangspunktur. Einnig er mikilvægt að starfs- mennirnir þekkjast innbyrðis. Þá þurfum við ekki að yfirstíga þann þröskuld að fólk kynnist og byggi upp sjálfsmynd áður en það þorir að tjá sig. Það er jafningjastemmning frá upphafi, sem sparar tíma. Hér eru til dæmis allir iðnaðarmenn og með svipaða skólagöngu að baki.“ Hringlandaháttur Íslendinga Viðmiðið er að eftir 150 tíma ís- lenskunám fái menn skírteini sem þeir sýni Útlendingastofnun til þess að fá búsetuleyfi. En Ingibjörg seg- ist meta kunnáttuna hverju sinni, samkvæmt samningi við dóms- málaráðuneytið, og búa til munnlegt próf ef menn hafi lært íslensku með öðrum hætti, eigi til dæmis íslenska kærustu eða séu í vinnu. „En það gildir ekki sami mæli- kvarðinn á alla, því Asíubúar eru lengur að tileinka sér málið. Taílend- ingar eiga oft erfitt með framburð- inn og 40 tímar duga tæpast til að læra að segja l og r. Pólverjar og Lettar eiga að geta lært meira á mun skemmri tíma. Ef við notuðum sama mælikvarða þá kæmust As- íubúar aldrei í gegn. Það ruglar þá til dæmis í ríminu að ég heiti stund- um Imba og stundum Imbu. „Í Taí- landi heitirðu eitt,“ segja þeir og hafa engar forsendur til að breyta orðum, eins og fjalli eða fjöllum. Þeim finnst þetta hálfgerður hringl- andaháttur í okkur, að við getum ekki ákveðið okkur.“ Ábyrgðinni velt á innflytjendur Ingibjörg segir að það vanti „auð- vitað“ stefnumótun á þessu sviði. Í fyrsta lagi þurfi að endurskoða skil- yrði um 150 tíma íslenskunám með tilliti til frjáls flæðis vinnuafls innan Evrópu. Þá gagnrýnir hún að ríkið geri kröfu um 150 tíma íslenskunám án þess að veita kennslu eða gera námið aðgengilegt. Ábyrgðinni sé velt yfir á innflytjendur. „Úti á landi er ekki til 150 tíma samfellt íslenskunám heldur aðeins byrjendanámskeið. Þetta ætti að vera tvíhliða ábyrgð. Í stað þess eru dæmi um að fólk sæki sama byrjend- anámskeiðið þrisvar til fjórum sinn- um til að verða sér úti um nægilegan tímafjölda.“ Þá segir Ingibjörg ekki sjálfgefið að innflytjendur eigi að greiða fyrir námið. „Að vísu er það í sumum til- fellum styrkt af stéttarfélögum og vinnuveitendur greiða starfstengt nám, en innflytjendur þurfa sjálfir að greiða nám sem þeir sækja á kvöldin.“ Lengra í skotgrafirnar Aðstæður innflytjenda á íslensk- um vinnumarkaði eru misjafnar. „Langflestir Austur-Evrópubúar stefna heim aftur til fjölskyldu og vina,“ segir Ingibjörg. „En veruleik- inn er sá að þar eru lífskjör mun síðri og þeir ílengjast hér. Hvatinn er því ekki mikill til að læra íslensku til að byrja með og þeir hafa engan áhuga á þjóðfélaginu, en eftir nokkra mánuði breytist það. Þá flyt- ur fjölskyldan jafnvel til landsins og áhuginn kviknar.“ Ingibjörg segist telja það stór- hættulegt ef sá áhugi sé ekki virkj- aður og innflytjendum þannig auð- veldað að aðlagast samfélaginu. „Þá skapast hætta á misskilningi og sundrungu. Ég nefni sem dæmi að það þykir ruddalegt af Íslendingum þegar þeir segja: „Ha?“ Og margir halda því að Íslendingar séu viljandi ruddalegir í garð útlendinga, þannig að ég hef þurft að útskýra að þetta þyki í lagi á Íslandi. Ef fólk samlag- ast, þá er lengra í skotgrafirnar.“ Morgunblaðið/Eyþór Að morgni Nám er auðveldara á morgnana en eftir 12 tíma vinnudag. ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122 Morgunblaðið/Eyþór Námið að hefjast Starfsmenn Einingaverksmiðjunnar fylgjast með.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.