Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 23

Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 23 vinna í góðum hópi. Kvikmynda- leikstjórn og kvikmyndagerð er mjög fjölbreytt og skemmtileg vinna.“ Rithöfundadraumurinn rætist Ragnar skrifar öll sín kvik- myndahandrit sjálfur. „Það er í rauninni rithöfundurinn í mér því þegar allt kemur til alls er þetta sami hluturinn. Þörfin fyrir að segja sögur er það sem drífur mig áfram í kvikmyndagerðinni. Ég fór ekki í kvikmyndagerð til þess að græða peninga eða verða frægur. Í henni fann ég farveg sem er kannski nútímalegri en skáldsagan, því að mínu mati er kvikmyndin skáldsaga nútímans. Ég nýtti mér þennan farveg til þess að uppfylla þörfina til að segja eitthvað, þörf sem ég hef haft síðan á barnsaldri.“ Eins og margir kvikmyndaleik- stjórar er Ragnar ómenntaður í faginu, hann byrjaði einfaldlega á því að vinna við kvikmyndagerð. „Mín reynsla kemur í gegnum vinnu og ég hef aldrei farið í form- legt kvikmyndanám. Fljótlega eftir að við gerðum stuttmyndina í menntaskólanum gerðum við aðra mynd og lærðum heilmikið af því. Við fengum lánuð tæki hjá fag- mönnum og réðum atvinnuleikara því við nenntum ekki að vera með einhverja vídeóstemningu í mynd- unum okkar. Síðan leiddi eitt af öðru og við fórum fljótlega að framleiða efni fyrir sjónvarp. Við Ingi R. stofnuðum fyrirtækið Plú- ton ásamt Frey Einarssyni og störfuðum í fimm ár við að fram- leiða sjónvarpsefni fyrir Stöð 2. Eftir að ég byrjaði að gera kvik- myndir gafst minni tími til að fram- leiða efni fyrir sjónvarp og auðvitað vildi ég fyrst og fremst gera kvik- myndir.“ Ragnar hefur fengið ótal verð- laun og viðurkenningar fyrir störf sín, bæði hér heima og erlendis. Hann vill ekki gera mikið úr því. „Jú, verðlaun eru vissulega við- urkenning á því að maður hafi gert eitthvað rétt en þau eru ekki endi- lega rétt viðmið. Verðlaun geta vissulega greitt leiðina að næsta verkefni. Ef maður hefur gert fimm kvikmyndir sem vekja enga athygli og fá hvorki verðlaun né viðurkenn- ingar er ekki auðvelt að fá fjár- magn til þess að gera fleiri myndir. Í sjálfstæðum kvikmyndaheimi, eins og í Evrópu, lifum við svolítið við það að sölumarkaðsmöguleik- arnir tengjast oft verðlaunum, þátt- töku á kvikmyndahátíðum og öðru slíku. Þetta er öðruvísi í Bandaríkj- unum þar sem kvikmyndagerð er meira sjálfbær, þú gerir bara mynd og áhorfendafjöldinn er eina við- miðið um það hvort hún er góð eða slæm. Sem betur fer lifum við ekki við það í Evrópu þótt það myndi vissulega ekki saka að fá fleiri áhorfendur á evrópskar myndir.“ Skilningsríkir foreldrar og eiginkona Aðspurður segir Ragnar að for- eldrum hans, Braga Ragnarssyni og Bryndísi Jóhannsdóttur, lítist bara vel á starfsvalið og hann seg- ist vera svo heppinn að eiga góða foreldra sem hafi stutt þá bræð- urna í öllu sem þeir hafi viljað gera. „Þau voru samt voða glöð yfir því að ég skyldi ná að taka stúd- entspróf áður en ég leiddist út þessa vitleysu. En auðvitað er þetta oft erfitt. Í þessum geira er lítið um fjárhagslegt öryggi og ég bý að því þegar í harðbakkann slær að faðir minn er vélstjóri á togara. Þegar ég hef komið mér í skuldir vegna kvikmyndagerðar hefur hann getað bjargað mér um pláss á togaranum og ég hef líklega varið svona tveimur árum af ævinni á sjónum eftir að menntaskóla-Morgunblaðið/ÞÖK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.