Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 24
fólk
24 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Frábærar helgarferðir
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara þang-
að í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Haustið er
frábær tími til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heims-
ferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heill-
andi menningu. Góð hótel í hjarta Búdapest auk frábærra
veitinga- og skemmtistaða.
Búdapest
6. eða 13. október
frá kr. 44.990
Verð kr.44.990 - 6. okt. ***
Netverð á mann m.v. 2 í herbergi 6. okt.
í 4 nætur á Hotel Mercure Duna ***
með morgunmat.
Verð kr.49.990 - 13. okt. ****
Netverð á mann m.v. 2 í herbergi 13. okt.
í 4 nætur á Hotel Novotel Centrum ****
með morgunmat.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
árunum lauk. Það eru ekki nema
svona þrjú ár síðan ég fór í túr á
togaranum. Vinna við kvikmynda-
gerð er sveiflukennd, ég hef tekjur
hluta af árinu, sem oft eru ágætis
tekjur, en síðan koma heilu árin
sem ég sé ekki krónu.“
Ragnar er kvæntur Helgu Rós
Hannam og árið 1999 eignuðust
þau tvíburastrákana Alvin Huga og
Bjart Elí. „Ég kynntist konunni
minni ungur að árum og man fyrst
eftir henni þegar ég var í gagn-
fræðaskóla. Hún er úr Mosfells-
bænum og er þremur árum eldri en
ég þannig að við vorum ekki saman
í skóla. Ung byrjaði hún að vinna í
félagsmiðstöðinni í Mosfellsbænum
og sá um tómstundastarf bæjarins.
Þegar ég var í síðasta bekk í gaggó
var ég í keppnisliði í spurn-
ingakeppni og hún var spyrillinn.
Við kynntumst fyrst eitthvað að
ráði í leikfélaginu í Mosfellsbæ þar
sem við vorum bæði viðloðandi. Ég
byrjaði sextán eða sautján ára að
leika, vera á bak við tjöldin og að-
stoða leikstjórana. Við Helga Rós
vorum saman í leikfélaginu í nokk-
ur ár. Hún réð mig í vinnu í fé-
lagsmiðstöðinni nokkur kvöld í viku
þegar ég var í menntaskóla þannig
að við þekktumst vel og vorum orð-
in bestu vinir þegar við byrjuðum
að draga okkur saman. Þetta var
sem sagt engin skyndiákvörðun,“
segir Ragnar brosandi.
Ragnar segir að Helga Rós sé
sátt við að búa við sveiflukenndar
tekjur. Sjálf sé hún mjög list-
hneigð, vinni við kvikmyndagerð og
búningahönnun bæði í sjónvarpi og
kvikmyndum, og þau búi því bæði
við sömu fjárhagslegu kvaðirnar.
Þau hafi ekki unnið mikið saman en
það komi þó fyrir. „Þegar ég var að
gera myndirnar Börn og Foreldra
höfðum við ekki efni á því að ráða
búningahönnuð og þá var Helga
Rós leikurunum til ráðgjafar og að-
stoðar. Í myndunum voru engir
sérstakir búningar, engin leikmynd
og fylgihlutir og leikararnir sáu um
sig sjálfir. Við hjónin unnum síðast
saman í Stelpunum á Stöð 2, þar
sem hún sá um búningana.“
Samstarfið við Vesturport
Ragnar kynntist leikurunum sem
síðar áttu eftir að stofna Vest-
urport þegar hann vann að kvik-
myndunum Fíaskó 1999 og Villiljósi
sumarið 2000. „Fyrst kynntist ég
Ólafi Darra Ólafssyni og síðan
Ingvari Sigurðssyni. Þegar ég gerði
Villiljós vantaði mig ungt par í
þann hluta myndarinnar sem sneri
að mér og ég fann Gísla Örn Garð-
arsson og Nínu Dögg Filipp-
usdóttur uppi í Leiklistarskóla.
Nanna Kristín Magnúsdóttir lék
einnig í myndinni og þannig kynnt-
ist ég fólkinu í þessum hópi og við
höfum haldið góðu sambandi síðan.
Vesturport er mjög skapandi hópur
fólks og þegar ég vildi gera myndir
sem byggðar væru upp á frjálsan
hátt, eins og Börn og Foreldrar,
var einhvern veginn eðlilegt að ég
hefði með mér þetta fólk sem ég
þekki og treysti og veit að hefur
metnað til þess að gera eitthvað
öðruvísi og án þess að fá mikið
greitt fyrir það.
Nú er Vesturport þeirrar nátt-
úru að allt sem fólkið þar kemur
nálægt verður að gulli í höndunum
á því.“
Heldur þú að það sé vegna þess
að það eru frjálst og ekki bundið í
klafa stóru leikhúsanna?
„Já, mín skoðun er sú að allir
hlutir eigi sinn líftíma. Akkiles-
arhæll leikhússins í dag er það
kerfi sem viðgengst í atvinnuleik-
húsunum, Borgarleikhúsinu og
Þjóðleikhúsinu. Leikararnir eru
fastráðnir og þeim er hent inn í
hlutverk án þess að þeir hafi sér-
stakan áhuga á þeim. Ef maður er í
listsköpun er grunnhvötin sú að
búa til eitthvað nýtt og persónulegt
og frumsköpun er grundvöllur
góðra hluta. Leikhússtjórar stóru
leikhúsanna ættu að velta því fyrir
sér hvort ekki væri hollara að hafa
leikarana lausráðna og ráða þá í
sérstök verkefni. Þeir nota þá af-
sökun að það gæti haft í för með
sér flótta úr stéttinni og að fólk
myndi búa við ótryggt starfsöryggi.
En listamanni er ekki hollt að búa
við öryggi. Hvötin verður að vera
sú að skapa eitthvað. Ég vorkenni
ekki fólki að þurfa að berjast fyrir
hlutunum og fyrir þá sem telja sig
vera listamenn er þetta falskt ör-
yggi. Í leikarastarfinu, eins og í öll-
um öðrum störfum, er þetta spurn-
ingin um að þeir hæfustu lifi af,
góðir leikarar fá vinnu, þeir sem
leggja sig fram og vinna verkefnin
af ástríðu.“
Samstarf sem vatt upp á sig
Kristín Ólafsdóttir er meðfram-
leiðandi Barna og Fullorðinna og
hefur yfirumsjón með framleiðsl-
unni. „Samstarf hennar við Vest-
urport hófst þegar ég var byrjaður
að vinna að myndunum en síðan
var ákveðið að leikhópurinn færi til
London til þess að setja upp Róm-
eó og Júlíu í Oldwick. Mér fannst
svolítið súrt í brotið að þurfa að
fresta tökunum og stakk upp á því
í hálfgerðu bríaríi að ég færi út
með hópnum og gerði heimild-
armynd um þessa uppákomu.
Kristín, sem rekur fyrirtæki sem
heitir Klikk Productions, sýndi
áhuga á því að koma að því verk-
efni sem framleiðandi. Það var ekki
mikill tími til þess að leita að fjár-
magni þannig að ég valdi bara tvo
Æskuheimilið Ragnar fyrir utan
æskuheimilið í Súðavík árið 1975.
Bræður Ragnar og Bragi heima
í Súðavík 1979.
Fermingarmyndin Ragnar
glerfínn á fermingardaginn sinn. Synirnir Alvin Hugi og Bjartur Elí í Hnausakoti.Bangsapabbi Ragnar með bangsann sinn.
Ættarlaukar Ragnar og Jóhann Helgason, móðurafi hans, með tvíbura-
bræðurna Alvin Huga og Bjart Elí.
Með afa Ragnar og Ragnar föðurafi hans í Hafnarfirði árið 1974.
Morgunblaðið/ÞÖK
Fjölskyldan Ragnar og Helga Rós með tvíburana Alvin Huga og Bjart Elí.
» Þegar ég hef komið mér í skuldir vegna
kvikmyndagerðar hefur hann getað bjargað
mér um pláss á togaranum og ég hef líklega
varið svona tveimur árum af ævinni á sjónum
eftir að menntaskólaárunum lauk.