Morgunblaðið - 24.09.2006, Síða 27
eiginlega“. Sigurjón kvaðst síðar
hafa reynt að gera sér grein fyrir því
í hverju þetta gæti legið og komst að
niðurstöðu: „Það voru augun.“
Sumir kalla það ugglaust útgeisl-
un, en Sigurjón var viss um að augu
skáldsins höfðu þetta vald. Samt
sagði hann ekki neitt; þess þurfti
ekki.
Þeir sjást betur
úr fjarlægðinni
Hægt væri að nefna heilan hóp
stjórnmálamanna sem höfðu mikil
áhrif og bjuggu við vinsældir í sínum
flokkum og höfðu að minnsta kosti
eitthvað af þessu valdi meðal fylgis-
manna sinna. Um þetta gildir eins og
margt annað að það sést betur úr
vissri fjarlægð.
Í þessum hópi voru til dæmis Ein-
ar Olgeirsson og Hermann Jónasson,
en einn allra áhrifamesta stjórnmála-
mann aldarinnar, Jónas frá Hriflu, er
alls ekki hægt að setja á þann bekk.
Þrátt fyrir hugsjónahita vantaði
hann margt af því sem náðarvald
krefst. Aftur á móti gizka ég á að
Ólafur Thors hafi bæði með útliti
sínu, höfðingsbrag og orðheppni,
haft af miklum karisma að ausa og
hann var að minnsta kosti með aðra
höndina á náðarvaldinu.
Af þeim stjórnmálamönnum sem
nú eru á lífi er ég ekki í vafa um að
Jón Baldvin Hannibalsson er sá sem
mest hefur fengið úthlutað frá for-
sjóninni af náðarvaldi og skiptir þá
engu máli hvort hann er alveg hætt-
ur í pólitík eða ekki. Davíð Oddsson
kemur næstur Jóni, en Davíð er víst
líka hættur í pólitík, nema stund og
stund í sjónvarpsviðtölum. Meðan
hann var uppá sitt bezta gat hann
ausið af náðarvaldi sínu; að minnsta
kosti verkaði það á eigin flokksmenn.
Sá austur verkaði aftur á móti eins
og köld sturta á andstæðingana. Eft-
ir þeim mælikvarða sem mér sýnist
vera lagður á orðið karisma í erlend-
um blöðum má gera ráð fyrir að for-
seti vor sé einnig þessum kosti búinn.
Þess vegna veit maður að Ólafur
bjargar sér með snilld frá hverju sem
uppá kemur. En náðarvald er alls
ekki nauðsynlegt í þessu háa emb-
ætti; það sjáum við af Kristjáni Eld-
járn, sem komst prýðilega af án þess
og var þó hinn mætasti forseti.
Meðal kirkjunnar manna ber Sig-
urbjörn Einarsson af á tíræðisaldri
og heldur þeim hæfileika að menn
leggja við hlustir þegar hann talar.
Fæst ekki nema með
aldri og reynslu
Gæfa og gjörvileiki fara ekki alltaf
saman; það þekkjum við úr sögunni.
Hitt er svo annað mál að útlitið eitt
skiptir líklega mun meira máli nú en
áður þegar til þess kemur að hljóta
hylli fjöldans.
Mestan þátt í því á sjónvarpið, sem
fegrar þá ungu, en gömlu fólki er
sjónvarpið oftast óhagstætt. Þar fyr-
ir utan hefur gegndarlaus æskudýrk-
un fylgt sjónvarpi. En eitt er það sem
hina ungu og fögru vantar: Þeir hafa
af eðlilegum ástæðum næstum aldrei
vott af náðarvaldi; sá eiginleiki fer
varla að gera vart við sig fyrr en upp-
úr fertugu eða fimmtugu og er þá ná-
tengdur þeirri reynslu sem menn
hafa áunnið sér.
Frá Björgúlfi til Kára
Sá stjórnmálamaður sem kemur
illa út í sjónvarpi á erfitt uppdráttar
og ekki er vafi þegar sótt er um þýð-
ingarmiklar stöður að glæsilegt útlit
hjálpar. Sá sem er illa hirtur og lítur
út eins og lúði á litla möguleika þegar
hann sækir um starf á móti mönnum
með glæsisbrag Loga Bergmanns
Eiðssonar og Sigmundar Ernis Rún-
arssonar, svo tveir alþekktir sjón-
varpsmenn séu nefndir.
Flestir framámenn og eigendur
stórfyrirtækja eru stæðilegir menn á
velli og gera sér far um að líta vel út.
Enda þótt þeir ungu hafi þar alltaf
vissa forgjöf, er eftirtektarvert að
Jóhannes í Bónus gefur þeim ekkert
eftir og þegar fríð fylking Baugs-
manna var í sjónvarpsfréttum á leið í
réttarsal, bar sá gamli af. Hjá sum-
um er aldurinn jafnvel uppbót, ef út-
lit þeirra er gott. Vel má orða Björg-
ólf Guðmundsson
Landsbankaeiganda við náðarvald.
Eins og nærri má geta er suma
fríðustu syni og dætur þjóðarinnar
að finna í leiklistinni; þar er beinlínis
hægt að gera út á glæsimennsku og
alla þá þætti sem flokkast undir kar-
isma. Þar höfum við stólpagripi eins
og Hilmi Snæ og Baltasar Kormák,
sem tekið er eftir, þó að þeir séu
kannski ekki með glæsimennsku á
borð við Jón Sigurðsson forseta og
Hannes Hafstein.
Meðal annarra nútíma skemmti-
krafta ber Bubbi Morthens höfuð og
herðar yfir keppinautana og
afmælistónleikar hans duga til að
sýna náðarvald hans. Næst á eftir
honum kemur Páll Óskar Hjálmtýs-
son söngvari sem oftsinnis bjargaði
Idol-þáttunum með snilli sinni og
húmor, en um þá Bubba má báða
segja að drýgst dregur að þeir eru
báðir hörkugreindir menn.
Til eru þeir menn sem öðlast hafa
náðarvald í krafti óvenjulegra vits-
muna og árangurs í starfi. Ég nefni
bara Kára Stefánsson hjá Íslenzkri
erfðagreiningu hér, en ævinlega legg
ég við hlustir þegar hann talar. Hjá
samvinnuhreyfingunni í gamla daga
voru tveir menn með augljóst náð-
arvald. Annar þeirra, Vilhjálmur þór,
Sambandsforseti og síðar banka-
stjóri, hafði lag á að halda lægra sett-
um mönnum í sífelldum ótta, en hinn;
Egill Thorarensen, „jarl“ í Sigtúnum
á Selfossi, var sannur aristókrat að
upplagi og gat ausið á báða bóga af
sjarma sínum og glæsimennsku. Af
þeim sem ég hef haft persónuleg
kynni af á hálfrar aldar blaða-
mennskuferli finnst mér hann rísa
hæst að þessu leyti ásamt Sigurði
Nordal prófessor.
Niðurstaðan verður sú að hvort
sem menn hafa náðarvald samhliða
frábæru útliti, eða einhverja hluta
þess, sem ef til vill er þó stórum
betra en ekki neitt, þá bliknar þetta
vald og verður máttlítið ef skarpa
greind vantar.
Höfundur hefur verið blaðamaður í 51 ár.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 27
ha
gb
an
n
ha
gb
ar
ðu
rh
ag
be
it
ha
gb
or
in
n
ha
gf
ár
ha
gl
ít
ill
ha
gf
e l
ld
ur
ha
gf
el
li
ha
gf
ræ
ði
ha
gf
ræ
ði
ng
ur
ha
gf
æ
ri
ng
ur
ha
gf
æ
ri
ng
s l
am
bh
ag
ih
ag
ke
rf
ih
ag
kv
eð
lin
ga
há
tt
ur
ha
gk
vi
st
ih
ag
kv
æ
m
ni
ha
gk
væ
m
ur
ha
gl
ha
gl
au
s h
ag
lei
ku
rha
glen
dihag
leysahaglítill haglýsinghagm
æ
lskahagm
æ
lturhagnahagnaðurhagnýtaha
gný
tin
gh
ag
ný
tu
rh
ag
or
ðh
agþ
róunhagvöxturhaggþróun
sve
iflurhagræðahagræ
ðihagræðing
ha
gr
æ
nn hagsam
ur
st
ef
nah
agstjórn
hagstjórn
ar
tæ
ki
sb
ót
ha
gs
ka
rp
th
ags
keytturhagskiptihagskýrslahagsmiður
sm
íð
ur
ha
gsmunir
Greiningardeild Landsbankans býður til morgunverðarfundar
mánudaginn 25. september kl. 8:00 til 9:40 á Hótel Nordica.
Á fundinum verður leitað svara við spurningum sem eru
ofarlega á baugi í efnahagsmálum.
• Hvert stefnir hagkerfið?
• Hvert stefnir fasteignamarkaðurinn?
• Hvert stefnir krónan?
• Hvert stefnir Seðlabankinn?
Dagskrá:
8:00 Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri, setur fundinn
8:05 Höldum til hafs á ný
Björn Rúnar Guðmundsson og Lúðvík Elíasson
kynna hagspá Landsbankans 2006-2015.
8:45 Hentar núverandi fyrirkomulag peningamála?
Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs,
fjallar um stjórn peningamála við skilyrði stórfjárfestinga
og opins fjármagnsmarkaðar.
9:20 Umræður og fyrirspurnir
9:40 Fundarlok
Fundarstjóri: Edda Rós Karlsdóttir,
forstöðumaður Greiningardeildar
Boðið verður upp á morgunverðarhlaðborð frá kl. 7:45.
Vinsamlega skráið þátttöku á vef Landsbankans
fyrir kl. 16, sunnudaginn 24. september.
Hagspá Landsbankans 2006–2015
Hvert stefnir?
Laugavegi 44 • Sími 561 4000 • www.diza.is
Ekki bara efni
og garn!
Líka peysur, bolir
og úlpur.
Diza
Gæðafatnaður
á flottu verði
fyrir flottar konur!