Morgunblaðið - 24.09.2006, Side 32

Morgunblaðið - 24.09.2006, Side 32
þungarokk 32 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ F östudagurinn 26. sept- ember 1986 er að kvöldi kominn. Bandaríska þungarokkshljóm- sveitin Metallica hefur nýlokið vel heppnuðum tónleikum í Sonahallen í Stokkhólmi og er að búa sig til brottferðar frá höfuðstað Svía. Meiningin er að nýta nóttina til að keyra suður til Kaupmannahafnar þar sem næstu tónleikar í Norð- urlandareisu sveitarinnar eru fyr- irhugaðir kvöldið eftir. Hljómsveitin og starfsmenn hennar eru að tínast inn í tvær rútur við tónleikahöllina og tveir menn draga svo lítið ber á spila- stokk upp úr pússi sínu til að skera úr um það hvor fái efri kojuna í annarri rútunni. Þetta eru gítarleikarinn Kirk Hammett og bassaleikarinn Cliff Burton. Sá síðarnefndi dregur spaða- ásinn. Kojan er hans. Segir nú ekki meira af ferðum Me- tallica fyrr en í dagrenningu, laug- ardaginn 27. september. Rúturnar eru að nálgast bæinn Ljungby í Smá- löndunum og allt með kyrrum kjörum á þjóðveginum. Skyndilega fer eitt- hvað úrskeiðis. Bílstjóri annarrar rút- unnar missir stjórn á henni. Um borð eru meðlimir Metallica, fjórir að tölu, fyrrnefndir Burton og Hammett, Lars Ulrich trommuleikari og James Hetfield gítarleikari og söngvari, auk aðstoðarmannanna Flemming Lar- sen, John Marshall og Aidan Mullen og tónleikastjórans Bobby Schneider. Hvar er Cliff? John Marshall lýsir atburðarásinni þannig: „Við vorum á einbreiðum vegi. Rútan beygði snögglega til hægri og ég held að bílstjórinn hafi rétt hana of mikið af þegar hann snarsneri stýrinu til vinstri í því augnamiði að halda okkur á veginum. Stýrið læstist og rútan snerist al- gjörlega við. Afturendinn slóst eins og sporður á fiski og skoppaði á hjól- unum. Á þessu augnabliki byrjuðu menn að ranka við sér. Ég held að ég hafi dottið fram úr kojunni. Rak mig illa í bríkina og gat varla gengið á eft- ir. Rútan hafnaði á endanum ofan í skurði við veginn þar sem hún valt á hliðina.“ Mikil skelfing grípur um sig meðan farþegarnir reyna að brjóta sér leið út úr flakinu. Mullen og Larsen sitja fastir undir rútunni en eru á lífi. Þrjár klukkustundir tekur að losa þá. Þrír liðsmenn hljómsveitarinnar komast út tiltölulega óskaddaðir, Ulrich er fingurbrotinn, Hetfield aðeins með skrámur og Hammett með glóð- arauga. Þeir eru í losti. Að öðru leyti amar ekkert að þeim. „Við sátum þarna í geðshræringu í frostinu. Ég á brókinni og sokkunum einum fata áður en einhver færði mér teppi,“ heldur Marshall frásögn sinni áfram. „Ég man að James og Kirk öskruðu á bílstjórann. Þarna voru menn farnir að gera sér grein fyrir því að Cliff var ekki heill á húfi. Ég man að James gekk upp veginn til að athuga hvort hálka væri á honum en það var skýringin sem bílstjórinn gaf á slysinu. Kirk grét.“ Það er engin hljómsveit lengur! Cliff Burton, sem var í fasta svefni í efri kojunni þeim megin sem rútan fór út af, hafði kastast út þegar hún valt. Hann varð undir rútunni og beið bana samstundis. „Ég sá hann liggja undir rútunni. Fæturnir stóðu út undan flakinu. Ég missti stjórn á mér,“ rifjaði James Hetfield upp mörgum árum síðar. „Ég man að bílstjórinn var að reyna að toga teppi undan honum til að geta notað það handa öðrum. Þú skalt ekki voga þér, þrumaði ég yfir honum. Mig langaði að drepa mann- inn. Ég hef ekki hugmynd um hvort hann var ölvaður eða hvort hann lenti í hálku. Það eina sem ég vissi var að hann hafði verið við stýrið og að Cliff var ekki lengur á lífi.“ Og hann heldur áfram: „Ég man að Bobby tónleikastjóri sagði: „Ókei, söfnum hljómsveitinni saman og komum henni á hótelið.“ Ég hélt nú ekki. Hvaða hljómsveit? Það er engin hljómsveit lengur!“ Við björgunaraðgerðina slitnaði kapall sem notaður var til að hífa rút- una upp með þeim afleiðingum að hún skall aftur á líki Burtons. Bílstjórinn var yfirheyrður af lög- reglunni í Ljungby en ákæra var aldrei gefin út á hendur honum. Nið- urstaða rannsóknarinnar var sú að hálka á veginum hefði valdið slysinu. Sögusagnir þess efnis að bílstjórinn hafi verið ölvaður eru enn á sveimi. Þær eiga ekki við rök að styðjast. Hér var aðeins um hörmulegt slys að ræða. Þrír eftirlifandi liðsmenn Metallica komu niðurbrotnir á hótel um morg- uninn ásamt föruneyti sínu. Þar sleiktu þeir sárin. Reiðin helltist yfir Hetfield sem ku hafa mölvað tvær rúður í herbergi sínu um kvöldið. Hann var ekki mönnum sinnandi. Sagan segir að hann hafi hlaupið út á götu um nóttina og hrópað: „Cliff, hvar í andskotanum ertu?“ Tilgangslaus dauði Ulrich og Hammett báru harm sinn í hljóði. „Ég var ekki svo reiður í fyrstu,“ sagði Ulrich síðar. „Ég var að sjálfsögðu sorgmæddur en reiðin greip mig ekki fyrr en ég fór að velta dauðdaga Cliffs fyrir mér. Það er gömul saga og ný að rokkarar falli frá en oftast kalla þeir það yfir sig með ofdrykkju eða eiturlyfjaneyslu. Þetta var öðruvísi. Gjörsamlega tilgangs- laus dauði.“ Tveimur dögum síðar flaug Metal- lica heim til Bandaríkjanna, buguð af harmi. Burton var jarðsunginn í San Francisco 7. október 1986. Líkið var brennt. Athöfnin náði hámarki þegar tónverkið Orion af Master of Puppets var leikið en það er að verulegu leyti eftir Burton. Metallica lék Orion ekki opinberlega í heild sinni aftur, aðeins part og part, fyrr en nú í sumar, þeg- ar hljómsveitin minntist þess að tutt- ugu ár eru liðin frá útgáfu plötunnar. Mikil óvissa ríkti um framtíð Me- tallica eftir fráfall Burtons en þre- menningarnir brugðust við áfallinu á þann hátt sem þeir þekktu best – með taumlausri drykkju. Fljótlega hertu þeir þó upp hugann og ákváðu að halda starfsemi hljómsveitarinnar áfram – í virðingarskyni við Burton. Það var ekki í hans anda að leggja upp laupana. Efnt var til áheyrn- arprófs, þar sem fjörutíu bassaleik- arar spreyttu sig. Jason Newsted hreppti hnossið. Saga Metallica hélt áfram. Hljómsveitin minntist Burtons með dramatískum hætti á næstu plötu, … and Justice for All, sem kom út 1988, en eitt laganna, To Live is to Die, er að mestu sett saman úr stefj- um sem Burton hafði samið sjálfur. Og bautasteinarnir eru víðar. Þannig er eitt frægasta lag Megadeth, In My Darkest Hour, tileinkað Burton en aðalsprauta Megadeth, Dave Mus- taine, var forveri Hammetts í Metal- lica. Æfði í fjóra til sex tíma á dag Clifford Lee Burton fæddist 10. febrúar 1962 í Castro Valley í Kali- forníu. Hann lærði á píanó frá sex ára aldri og tók sér bassagítar fyrst í hönd átta árum síðar. Hann lék í bíl- skúrshljómsveitum í heimabæ sínum samhliða tónlistarnámi hjá manni að nafni Steve Hamady. Að sögn for- eldra Burtons varði hann alla tíð fjór- um til sex klukkustundum á dag í æf- ingar, jafnvel eftir að hann gekk til liðs við Metallica. Tæknina vildi Bur- ton hafa á sínu valdi. Hann sótti um tíma nám í tónlist á háskólastigi. Orðspor Burtons óx hratt og snemma á níunda áratugnum var hann farinn að vekja mikla eftirtekt með hljómsveit sinni Trauma í San Francisco. Meðal aðdáenda hans voru tveir bólugrafnir unglingar frá Los Angeles, James Hetfield og Lars Ul- rich. Þá sárvantaði bassaleikara í ný- stofnaða hljómsveit sína, Metallica, en meðleigjandi Hetfields, Ron McGovney, var ekki vandanum vax- inn. Félagarnir fréttu af Trauma og skruppu norður til San Francisco í því skyni að berja bandið augum. „Við heyrðum þetta líka mergjaða sóló,“ rifjar Hetfield upp, „en hugs- uðum með okkur, það er enginn gít- arleikari þarna. Þá kom í ljós að þetta var bassaleikarinn, Cliff, með wah wah-pedala og svona líka svakalegan makka. Honum stóð á sama hvort fólk var í salnum. Hann horfði bara niður á hljóðfærið og spilaði.“ Til gamans má geta að Burton var að spila hið fræga sóló (Anesthesia) Pulling Teeth sem síðar var hljóð- ritað fyrir fyrstu plötu Metallica. Við komum þá bara til þín Hetfield og Ulrich voru ekki í vafa. Þennan mann yrðu þeir að fá til liðs við sig. Burton var því ekki afhuga en það var bara eitt vandamál: Hann gat ekki hugsað sér að flytja til Los Ang- eles. Tónlistarlífið þar var í hans huga ein stór loftbóla. Hetfield og Ulrich horfðu ráðvilltir hvor á annan en gripu svo lausnina á lofti: „Við kom- um þá bara til þín.“ Málið var leyst og á síðustu dögum ársins 1982 gekk Burton í Metallica. Ulrich var sonur danskra innflytj- enda, staðráðinn í að láta ameríska drauminn rætast, og Hetfield ólst upp á strangkristnu heimili. Í brjósti hans brann reiði. Burton var af allt öðru sauðahúsi. Foreldrar hans voru gamlir hippar og hann drakk ýmis þau gildi í sig með móðurmjólkinni. Burton hafði tamið sér afslappað við- horf til lífsins. Hann var prúðmenni, nautnamaður og húmoristi. Sjarmör og sérvitringur. Sannkallaður lífs- kúnstner. Þessir eiginleikar nutu sín ekki síst í samskiptum við aðdáendur Metal- lica. Burton hafði alltaf nægan tíma fyrir þá. Einhverju sinni knúði ungur drengur dyra hjá honum að morgni dags til að fá bolinn sinn áritaðan. Rauða vindmyllan Á miðvikudaginn kem- ur verða tuttugu ár síð- an Cliff Burton, bassa- leikari hinnar goðsagnakenndu þungarokkshljóm- sveitar Metallica, beið bana í rútuslysi í Sví- þjóð, 24 ára að aldri. Orri Páll Ormarsson rifjar þennan voveif- lega atburð upp og reynir að varpa ljósi á sérvitring og séní sem var rokkheiminum harmdauði. Berserkur Hinn dagfarsprúði Cliff Burton minnti helst á Heklu gömlu í ham á sviði. Í HNOTSKURN »Cliff Burton tók við starfibassaleikara í Metallica milli jóla og nýárs 1982 og gegndi því til dauðadags, 27. september 1986. »Hann lét lífið í hörmulegurútuslysi skammt frá bæn- um Ljungby í Svíþjóð. Rútan rann til í hálku og hafnaði ofan í skurði. Burton kastaðist út úr rútunni og varð undir henni. »Burton lék inn á þrjár fyrstuplötur Metallica, Kill ’Em All, Ride the Lightning og Mast- er of Puppets. »Hann var best menntaðurMetallica-manna í tónlist og hafði mikil áhrif á félaga sína. »Foreldrar Burtons fullyrðaað hann hafi alla tíð æft í 4–6 klukkustundir á dag, jafn- vel eftir að hann gekk til liðs við Metallica.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.