Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 33

Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 33
Kappinn var þá nýgenginn til náða eftir spilamennsku næturinnar en staulaðist á fætur, er móðir hans ýtti við honum. „Auðvitað skal ég árita bolinn.“ Vinsældir Burtons voru fyrir vikið miklar. Hann var líka hógværðin upp- máluð. Systir hans minnist þess að hafa einu sinni spurt hann hvernig það væri að vera rokkstjarna. Brást Burton þá vondur við og bað hana að kalla sig því nafni aldrei aftur. En þessi dagfarsprúði maður hafði hamskipti þegar hann steig á svið. Sumir líktu honum við eldfjall, aðrir við vindmyllu. Rauður makkinn sveiflaðist í allar áttir og blóðið bull- sauð í æðum. Allra augu hvíldu ósjálf- rátt á Burton og þessi ákafi og auð- þekkjanlegi stíll varð á augabragði vörumerki Metallica. Varanleg áhrif Breska nýbylgjan í þungarokki hafði gengið á land í Kaliforníu sem víðar og Metallica gekkst upp í þeirri ímynd. Burton stakk aftur á móti í stúf. Félagar hans höfðu áhyggjur af því að úrelt hippatískan gæti skaðað hljómsveitina og báðu hann ítrekað að skipta um stíl. Svarið var alltaf það sama: „Étið skít!“ Cliff Burton vissi hvar hann stóð og lét ekki segja sér fyrir verkum. Burton var ekki margmáll en þeg- ar hann opnaði munninn lögðu menn við hlustir, ekki síst félagar hans í Metallica. Þeir litu upp til hans og tóku sér um margt til fyrirmyndar, ekki síst Hetfield. Burton var best menntaður Metallica-manna í tónlist og hafði því margt til málanna að leggja. Hann sameinaði spuna og til- raunastarfsemi melódísku innsæi og teorískri þekkingu og enda þótt Het- field hefði frá upphafi verið helsti lagasmiður Metallica gætir áhrifa Burtons á tónsmíðar sveitarinnar fram á þennan dag. Tónlistarsmekkur Burtons var líka fjölbreyttari en hinna. Hann kynnti fyrir þeim hljómsveitir á borð við The Misfits, Pink Floyd og Thin Lizzy, að ekki sé talað um sjálfan Johann Seb- astian Bach. Burton hafði mikið dá- læti á hinum sígilda meistara, ekki síst flutningi Glenns Goulds á píanó- verkum hans. Burton ók um á grænum Volkswa- gen station á þessum tíma og hafði víst einstakt lag á því að þvinga far- þegana til að hlusta á það sem var honum mest að skapi hverju sinni. Þannig kynntust félagar hans í Me- tallica m.a. tónlist The Misfits. „Það var sumarið 1985. Við vorum að semja efni á Master of Puppets milli þess sem við keyrðum á milli mynda- taka,“ rifjar Ulrich upp. „Cliff tróð þessu drasli alltaf í tækið og sló takt- inn með á mælaborðinu. Ekki var á það bætandi en ég hef kynnst mörg- um betri bílstjórum en Cliff um dag- ana. Við vorum að ganga af göflunum. Þoldum ekki þessa tónlist í upphafi en smám saman meðtókum við hana. Cliff vissi hvað hann söng.“ Hammett minnist þess að hafa kynnst Creedence Clearwater Revi- val, Simon og Garfunkel, Velvet Un- derground og Dictators með þessum sama hætti. Burton var mikill áhugamaður um súrrealískar hryllingsbókmenntir og drakk m.a. í sig verk H.P. Lovekraft. Þess sér glöggt merki á fyrstu plöt- um Metallica, bæði í efnistökum í ein- stökum lögum og myndskreytingum á umslögum. Demó-upptakan No Life Til Leat- her ruddi brautina fyrir Metallica í undirheimum rokksins og þegar fyrsta plata sveitarinnar, Kill ’Em All, kom út síðla árs 1983 átti hún þegar talsverðu fylgi að fagna. Þarna kvað við nýjan tón í þungarokki, keyrslurokkið (Thrash Metal) varð til. Önnur platan, Ride the Lightning, kom út ári síðar og styrkti stöðu Me- tallica ennfrekar. Skífunum var fylgt eftir með þrotlausu tónleikahaldi, austan hafs og vestan. Það var svo með þriðju plötunni, Master of Pup- pets, sem gefin var út snemma árs 1986, að Metallica varð endanlega að leiðandi afli í rokkheimum. Það var síðasta framlag Burtons í hljóðveri. Hefði hann hitt Simpson? Sagan eftir það er flestum kunn en frá og með Svörtu plötunni, fimmtu plötu Metallica með frumsömdu efni, hefur sveitin gnæft yfir aðrar þunga- rokkssveitir. Meira en níutíu milljónir platna hafa selst gegnum tíðina sem er sjöunda mesta sala bandarísks flytjanda frá upphafi. Metallica hefur um árabil verið ein stærsta tónleika- sveit heims. Margir eru þeirrar skoðunar að Jason Newsted hafi reist sér hurð- arás um öxl þegar hann fetaði í fót- spor Burtons. Hann rakst heldur aldrei vel í hljómsveitinni. Skuggi Burtons hvíldi alltaf á honum. Það var ekki síst Hetfield sem gat ekki lit- ið á hann sem jafnoka forverans. Newsted hvarf á endanum á braut snemma árs 2001. Robert Trujillo tók við bassanum. Hann hefur fallið mun betur að Metallica enda gæddur meiri persónutöfrum en Newsted, auk þess að vera vitaskuld tæknilegt undur á hljóðfærið, eins og Burton. Raunar eru líka til menn sem eru sannfærðir um að Newsted hafi hent- að Metallica betur en Burton. Nóg hafi verið að horfa upp á öfgaegóin, Hetfield og Ulrich, takast á gegnum tíðina, þótt Burton væri ekki til stað- ar líka. Newsted var þeirrar gerðar að hann kunni best við sig í bak- grunninum. Á síðari árum hafa umsvif Metal- lica margfaldast. Markaðssetningin verið algjör. Mikil velta er á öllum sviðum, ekki bara í plötuútgáfu og tónleikahaldi heldur líka í minja- gripasölu og öðru. James Hetfield er til í formi brúðu og tindáta. Þá hafa liðsmenn í seinni tíð verið óþreytandi við að koma fram við furðulegustu tækifæri, m.a. léðu þeir eigin eftirlík- ingum rödd í þáttunum um Simpson- fjölskylduna. En þannig snúast hjólin hjá risavöxnu fyrirtæki. Margir hafa í áranna rás velt því fyrir sér hvaða stefnu Metallica hefði tekið hefði Cliff Burton lifað. Hljóm- sveitin gerði t.a.m. ekki sitt fyrsta myndband fyrr en að honum gengn- um, One árið 1988, en Burton hafði ekki smekk fyrir slíkan hégóma. Að vísu er önnur hlið á því máli því við andlát Burtons söknuðu eftirlif- andi liðsmenn Metallica þess að eiga engar upptökur af honum á sviði. Fyrir vikið var lýst eftir ólöglegum upptökum frá tónleikum sem skiluðu sér í trukkaförmum. Útkoman var minningarmyndbandið Cliff ’Em All sem gefið var út 1987. Með gildum rökum má gera því skóna að þessar kerlingafleytingar hefðu ekki verið Burton að skapi. Hann var maður grasrótarinnar. Listamaður sem kærði sig kollóttan um prjál og glingur. Maður sér hann hvorki fyrir sér í tindátaútgáfu né í samræðum við Hómer gamla Simp- son – og seint hefði hann gefið kost á sér til þátttöku í tónsápunni okkar hjartfólgnu, Rock Star: Supernova. Á uppleið Metallica árið 1986. Að ofan Cliff Burton og James Hetfield. Að neðan Kirk Hammett og Lars Ulrich. orri@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 33 „Heilinn er dásamlegt líffæri. Hann byrjar að virka um leið og þú vaknar og slekkur ekki á sér fyrr en þú mætir í vinnuna.“ Passaðu að næra toppstykkið í morgunsárið og hlustaðu á Morgunhanann Jóhann Hauksson milli kl. 7 og 9 alla virka daga á Útvarpi Sögu á fm 99,4 og utvarpsaga.is. Viðtöl við þekkta einstaklinga, hárbeittar fréttaskýringar og mikilsverð mál krufin á gagnrýninn hátt. Vaknaðu við Morgunhanann á Útvarpi Sögu milli 7 og 9 alla virka daga!Robert Frost Haukur Þór Hauksson GSM 893 9855 Sigurbjörn Magnússon hrl. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Investis Við höfum til sölumeðferðar veitingastaðinn Salthúsið í Grindavík ásamt fasteignum fyrirtækisins VEITINGASTAÐURINN SALTHÚSIÐ TIL SÖLU Aukum verðmæti eigna þinna! Lágmúla 7 - 108 Reykjavík - Sími 590 7660 - www.investis.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.