Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 35

Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 35
Mary Ellen lítur á Martin: – Ef Pétur væri ekki fatlaður, væri hann þá ekki svalasti náungi í heiminum? Sóley stelur senunni Samfélagið er heillandi sem Mary Ellen Mark hefur fundið á þessum stað og allt iðar af lífi. Sóley í grænni treyju togar í fléttu á Kol- brúnu þroskaþjálfa – það liggur vel á henni. Mary Ellen klappar og Bjössi slær sér á lær í hjólastólnum, horfir hugfanginn á hana og tenn- urnar gægjast út um brosandi munninn. Sóley togar aftur, að þessu sinni í hárið á sænska starfsmanninum Marie. Elberg lætur fara lítið fyrir sér; Mary Ellen kallar hann „flóttalista- manninn“ af því að hann er svo „slægur“. Sjálf er hún slægur myndasmiður. Jafnvel á uppstill- ingum er fólk ekki uppstillt. Skyndilega tekur Sóley upp á því að ganga til blaðamanns og setjast í fangið á honum. Ekki laust við að hann verði pínulítið upp með sér. Mary Ellen undrast þetta af því að Sóley hefur lítið haft sig í frammi. Það má segja að Sóley verði senuþjófur, því þennan síðasta dag beinist myndavélin að henni. Hún gengur næst til Martins sem tekur hana í fangið. – Hversu þung er hún? spyr hann undrandi. – Hún er sterkari og þyngri en hún lítur út fyrir að vera, svarar Anna hlæjandi. Þannig er Sóley, hún velur fólk þegar hún gengur inn í herbergi og engin leið er að fá hana ofan af því. – Þetta er ákveðin stúlka, segir Erla skóla- stjóri. Fyrir fjórum árum gat hún ekki gengið sjálf. Hún var í stöðugri gönguþjálfun, án þess að við vissum hvort það skilaði árangri. En allt í einu sleppti hún okkur, gekk allan ganginn sjálf og aftur til baka. Við stóðum bara og horfðum á. Þetta var eins og kraftaverk eftir öll þessi ár. En það er dæmigert fyrir hana. Þegar hún er tilbúin, þá gerir hún það með stæl. Mary Ellen Mark reynir að fá Bjössa til að horfa í myndavél Ragnars Axelssonar ljós- myndara, en það gengur illa af því að hann vill bara horfa á hana. Hún kallar Bjössa „bangsa“, dreng sem getur sagt ýmislegt, svo sem já, nei og hvað ertu að gera. – Bangsi verður stundum dapur, segir Mary Ellen. Ég held að hann viti að hann er frábrugð- inn og vilji geta það sama og aðrir. Ragna Sif situr í hjólastólnum hinumegin í herberginu með töfrakassa og hringir, óljóst hvert, þó að mynd á kassanum af Hildi Völu gefi ákveðna vísbendingu. Halli er uppgefinn, enda deginum á Lyngási að ljúka. Hann er alltaf fínn í tauinu, setur á sig rakspíra og er bráðmyndarlegur. Leitun að sex- tán ára strákum sem eru jafn vel til hafðir. Sól- ey er sest og leikur sér með gula miða. Hana vantar aðeins penna, þá væri hún blaðamaður á grænni treyju. – Þú komst mér á óvart í dag, sýndir á þér nýja hlið, segir Mary Ellen ljúflega við hana, svo lítur hún á blaðamann og bætir við: – Við eigum að bera virðingu fyrir þessum krökkum, sem eru iðulega hamingjusöm og ánægð, þrátt fyrir fötlunina. Alma og Pétur hafa fléttað saman fæturna í næsta herbergi og knúsast. Alma er með stutt hár í blárri peysu. – Eins og fallegur strákur, segir Mary Ellen. Svo stendur Alma upp og röltir í næsta her- bergi sönglandi lag úr Grease; hún getur sungið án þess að hreyfa varirnar – eins og búktalari. – Allir þessir hæfileikar, segir Mary Ellen og dæsir. Fatlaðir eru einstaklingar Fjölskylda stendur þétt saman við Laugalæk. Augnaráð táninganna er dreymið. Mary Ellen myndar og Martin sér um lýsinguna. Honum verður litið upp í laxárbláan himininn og segir: – Við ættum að vera að veiða núna. Hann áttar sig ekki á því að Mary Ellen er að veiða, nostrar við myndatökuna eins og veiði- maður á árbakka, fær fjölskylduna til að bíta á agnið og háfar hana inn á polaroid-mynd. – One, two, smile, kallar strákur sem hjólar framhjá og stelpurnar sem hjóla með honum skríkja af aðdáun. Um kvöldið heldur Margrét Hallgrímsdóttir matarboð fyrir Mary Ellen og Martin, en hún hefur fylgst náið með framgangi verkefnisins og segir mikilvægt að opna safnið fyrir straumum samfélagsins, þannig að það snerti við fólki og kalli eftir viðbrögðum. – Sumum kann að finnast undarlegt að Þjóð- minjasafnið snerti á eldfimum málum, en við teljum nauðsynlegt að endurspegla samfélagið og opna augu fólks fyrir því sem þar gerist. Það er hollt fyrir fólk að velta fyrir sér aðstæðum og lífi fatlaðra barna á Íslandi, sem öll eru sérstök, hvert á sinn hátt, eins og öll börn. Ég held að ljós- myndirnar og heimildarmyndin eigi eftir að vekja fólk til umhugsunar um það og þetta er liður í markmiðum safnsins um aðgengi fyrir alla. Og hún er hrifin af vinnuaðferðum Mary Ell- en Mark. Morgunblaðið/RAXAðra vini sína kallar hún meðal annars „spörfuglinn“ og „guðföðurinn“. Morgunblaðið/RAX Heimildarmynd Martin Bell vinnur að heimildarmynd um Alexander og lífið í Öskjuhlíðarskóla. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 35 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.