Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ 19. september 1976: „Þessi þróun mála gefur tilefni til að rifja upp hvar við værum á vegi staddir í landhelg- ismálum, ef ekki hefði verið fylgt fram þeirri stefnu, sem bæði Morgunblaðið og Sjálf- stæðisflokkurinn tóku upp harða baráttu fyrir sumarið 1973, að fært yrði út í 200 mílur hvað sem störfum ráð- stefnunnar liði. Eins og menn muna birtu nokkrir kunnir forvígismenn í sjáv- arútvegi þá ávarp, þar sem hvatt var til útfærslu í 200 sjómílur. Morgunblaðið tók þegar upp stuðning við þessa stefnu svo og Sjálf- stæðisflokkurinn, sem gerði útfærslu í 200 mílur eitt helzta baráttumál sitt í kosningunum 1974 og í samningaviðræðum um stjórnarmyndun í kjölfar þeirra kosninga. Hins vegar skorti mjög á skilning á nauðsyn útfærslu í 200 míl- urnar sumarið 1973. Enn eru í minnum höfð þau um- mæli Lúðvíks Jósepssonar þá, að við Íslendingar ættum að einbeita okkur að 40 míl- unum en 200 mílurnar kæmu, þegar hafrétt- arráðstefnan hefði lokið störfum. Ef stefna Lúðvíks Jósepssonar hefði fengið að ráða sætum við enn uppi með 50 mílurnar einar, og kannski takmörkuð yfirráð yfir þeim.“ . . . . . . . . . . 21. september 1986: „Mark- mið Sameinuðu þjóðanna eru háleit. Þeim er ætlað það hlutverk að tryggja frið í heiminum. Á hinn bóginn er það staðreynd, að á þing- um þeirra er meiri tíma var- ið til að ræða um frið í þeim hlutum heims, þar sem hann ríkir, en hinum sem tekist er á með vopnum. Samtökin hafa til að mynda ekki getað bundið enda á átökin milli Írana og Íraka, sem hafa staðið í sex ár. Þá eru tæp sjö ár síðan Sovétmenn réð- ust inn í Afganistan og þeir hafa síðan hundsað allar ályktanir allsherjarþingsins um að leggja niður vopn í Fory s tugre inar Morgunb laðs ins landinu og kalla lið sitt það- an.“ . . . . . . . . . . 22. september 1996: „Sér- stök ástæða er til að fagna endurkjöri Lennarts Meris á forsetastól í Eistlandi. Þessi merki stjórnmálaleiðtogi er Íslendingum að góðu kunn- ur. Hann kom hér á þeim dimmu dögum, þegar úr- slitaorustan var háð um sjálfstæði Eystrasaltsríkj- anna og hafði mikil áhrif á þá, sem honum kynntust. Lennart Meri hefur háð harða og erfiða baráttu fyrir endurkjöri sínu. Það segir sína sögu um þær leifar af kommúnískum áhrifum, sem enn eru fyrir hendi í Eystra- saltsríkjunum, að þessi merki maður skuli af póli- tískum andstæðingum hafa verið sakaður um tengsl við KGB! Ungur að árum fylgd- ist hann með því, þegar sov- ézka leyniþjónustan handtók föður hans og sakaði hann um brot á sovézkum lögum um „vopnaeign“.“ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. E f Benedikt páfi XVI. hafði ekki gert sér grein fyrir því hver munurinn er á því að vera páfi og fræðimaður þegar hann steig í pontu í háskólanum í Regensburg fyrir rúmri viku þá gerir hann það nú. Í ræðu sinni vitnaði hann í býsanskan keisara, Manuel II. Paleologus: „Sýnið mér hvað Múhameð færði okkur sem var nýtt, og þar munuð þér aðeins finna illa hluti og ómennska, á borð við fyrirmæli hans um að breiða út með brandi trúna sem hann prédikaði.“ Eldfim orð, sem fóru eins og eldur um heims- byggðina. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Í fyrstu virtist sem páfi hefði með orðum sínum leyst úr læðingi fár á borð við það, sem braust út vegna skopmyndanna, sem danska dagblaðið Jyllands- Posten birti af Múhameð spámanni. Frá Marokkó til Indónesíu voru viðbrögðin á sama veg. Páfinn hafði með tilvitnuninni sýnt að katólska kirkjan væri hluti af ofsóknum vestursins á hendur íslam. Árekstur siðmenninganna var orðinn að árekstri trúarbragðanna. Ummæli páfans voru hörmuð. Þau voru sögð jafnast á við „tilræði við virðingu spámannsins“. Salih Kapusuz, talsmaður flokks Tayyips Erdogans, forsætisráðherra Tyrklands, talaði um myrka afstöðu páfa, sem væri sprottin úr myrkri miðalda. Með orðum sínum væri páfinn að reyna að „endurlífga hugarfar krossferðanna“. Kapusuz líkti páfa við Hitler og Mussolini. Flokks- systkin hans spurðu hvaða erindi þessi páfi, sem hvort sem eð var væri andvígur Tyrkjum, vegna þess að hann væri á móti inngöngu þeirra í Evrópu- sambandið, ætti til Tyrklands í næsta nóvember. Grafið undan áhrifum hófsamra múslíma? Meira að segja Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi páfann og sagði að hann hefði með tilvitnuninni grafið undan áhrifum hóf- samra andans manna í röðum múslíma. George Bush Bandaríkjaforseti tók hins vegar í annan streng og varði páfann. Hann kynni að meta að páfi hefði reynt að skýra orð sín. „Þessi barátta snýst ekki um trúarbrögð,“ sagði Bush í samtali við sjónvarpsfréttastöðina CNN. „Þessi barátta er milli manna, sem nota trúarbrögð til að myrða, og þeirra á meðal okkar, sem eru hlynnt friði.“ Hér væri ekki um að ræða bardaga milli siðmenninga, heldur „bardaga um siðmenningu“. Þetta hefði páf- inn gert ljóst. Talsmaður Evrópusambandsins sagði að páfinn mætti segja það sem honum byggi í huga, en það væri annað mál hvað væri ráðlegt í þeim efnum. Frá Páfagarði bárust brátt viðbrögð. Á sunnu- dag lýsti páfi því yfir að hann iðraðist ummælanna. Í vikulegu ávarpi sínu á Péturstorginu í Róm á mið- vikudag sagði Benedikt XVI. að reiði múslíma vegna orða hans væri afleiðing „óheppilegs mis- skilnings“ og kvaðst hann bera virðingu fyrir fylg- ismönnum allra trúarbragða, sérstaklega múslím- um. Tilvitnunin hefði ekki verið hans eigin orð, heldur til marks um sambandið milli trúar og of- beldis. Nú var deilt um það hvort hann hefði gengið nógu langt með iðrun sinni, hvort hann hefði í raun beðist afsökunar. Hann hefði harmað viðbrögðin, en ekki dregið ummæli sín tilbaka. Viðbrögð páfagarðs virtust þó hafa slegið á mestu ólguna. Mahmoud Ahmadinejad, forseti Ír- ans, kom páfanum til varnar, öndvert við Ali Khamenei erkiklerk, sem sagði að ræðan væri „nýj- asti hlekkurinn í krossferðasamsærinu“. Ahmad- inejad sagði að páfinn hefði skýrt orð sín með full- nægjandi hætti. „Við berum virðingu fyrir páfanum og öllum þeim, sem eru hlynntir friði og réttlæti,“ sagði hann. Abdullah Ahmad Badawi, forsætisráðherra Mal- asíu, kvaðst einnig taka iðrun páfa til greina, en framvegis ætti hann þó að forðast ummæli, sem gætu sært múslíma. En hvað lá páfanum á hjarta? Reyndar vakti fyr- ir honum að harma hvernig nútíminn daufheyrist við trúarbrögðunum, sérstaklega í föðurlandi hans, Þýskalandi. Hann talaði um sigur hins veraldlega yfir hinu guðlega og hvernig hinir kaldhæðnu litu á það sem rétt sinn að hæða og spotta allt sem heilagt er. Í þessum efnum á hann sennilega merkilega mikið sammerkt með íslömskum trúfræðingum, sem hafa gagnrýnt hina veraldlegu ásjónu vesturs- ins og trúleysi. „… þar munuð þér aðeins finna illa hluti og ómennska“ Í kafla úr ræðunni fjallar Benedikt hins vegar um heilagt stríð: „Ég var minntur á þetta nýlega þegar ég las ... hluta úr samtali, sem kannski fór fram 1391 í vetrarbúðum nærri Ankara, milli hins lærða býsanska keisara Manuels II. Paleologusar og menntaðs Persa um viðfangsefnið kristindóm og íslam og sannleikann í hvoru tveggja. Í sjöunda samtalinu ... nefnir keisarinn efnið heil- agt stríð. Án þess að farið sé út í smáatriði á borð við muninn á því hvernig fara eigi með þá sem hafa „Bókina“ og „trúleysingjana“ ávarpar hann við- mælanda sinn svo hranalega að furðu vekur þegar hann fjallar um lykilspurninguna um sambandið á milli trúarbragða og ofbeldis almennt og segir: „Sýnið mér hvað Múhameð færði okkur sem var nýtt, og þar munuð þér aðeins finna illa hluti og ómennska, á borð við fyrirmæli hans um að breiða út með brandi trúna sem hann prédikaði.“ Eftir að keisarinn hefur tjáð sig af þessum krafti heldur hann áfram og útskýrir í smáatriðum ástæð- urnar fyrir því að órökrétt er að breiða út trú með ofbeldi. Ofbeldi er ósamræmanlegt eðli Guðs og eðli sálarinnar. „Guði,“ segir hann, „er ekki þóknun í blóði, og óskynsamleg hegðun er andstæð náttúru Guðs. Trúin fæðist í sálinni, ekki líkamanum. Hver sá, sem vill leiða annan til trúar, verður að hafa hæfileikann til að mæla vel og rökræða af skyn- semi, án ofbeldis og hótana.“ Að skynsemi og trú fari saman Ætlun páfa var að færa rök að því að enginn mætti beita valdi til að breiða út trú. Í samtali í Lesbók Morgunblaðsins í dag, laugardag, segir dr. Sigur- jón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur og stundakenn- ari við guðfræðideild Háskóla íslands, að kjarninn í erindi Benedikts XVI. hafi verið sá að trú og vald færi ekki saman, heldur væri trúin samofin skyn- semi og opinni umræðu. „Þegar orðin eru rifin úr samhengi dettur inntak erindisins um sjálft sig, en boðskapur Benedikts var sá, að það væri kristin- dómnum eðlilegt að skynsemi og trú fari saman, og að slíkt væri nauðsynlegt í öllum samræðum á milli menningarheima,“ segir Sigurjón í samtalinu. Erfitt er að mótmæla þessum boðskap, en hins vegar kemur páfinn honum á framfæri með ákaf- lega klaufalegum hætti, ekki aðeins vegna orðanna, sem hann notar, heldur vegna þess, sem hann segir ekki. Í þýska vikuritinu Die Zeit birtist á fimmtudag grein eftir Thomas Assauer, þar sem hann segir að vitaskuld megi páfinn fjalla um valdbeitingu í nafni íslams. Það sé meira að segja skylda hans, enda þekki enginn betur sambandið milli trúar og vald- beitingar en fulltrúi katólsku kirkjunnar. „En það hefði ekki verið í andstöðu við það að nálgast sann- leikann hefði páfinn nefnt að það hefðu verið stríðs- menn Guðs, sem breyttu krossum sínum í sverð, knúðir áfram af haturspredikaranum Bernharði frá Clairvaux: „Riddari Krists drepur með góðri sam- visku; rólegri deyr hann. Þegar hann deyr gagnast hann sjálfum sér, þegar hann drepur gagnast hann Kristi.“ Það hefði hjálpað til hefði páfinn eytt orði á rómversk-katólsku útlegginguna á drápsbanninu, ofsóknir á hendur gyðingum á miðöldum, slátrun trúleysingja og nornabrennurnar, einnig hefði hann mátt nefna helgun pyntinga, örkumlunar og drekkinga, ávallt með Biblíuna á lofti. Gagnvart fasistum Francos skreið katólska kirkjan undir stein og barðist gegn frelsunarguðfræðinni eins og hún væri djöfullinn sjálfur. Vísun til dauðasynda eigin kirkju, örlítill iðrunarvilji, hefði gefið erki- klerkunum vísbendingu og hún hefði ekki þurft að vera innblásnari en þessi setning: „Kirkjunnar menn hafa í nafni trúarinnar og siðferðisins gripið til aðferða, sem ekki samræmast fagnaðarer- indinu.“ Meðal annarra orða er setning þessi ekki höfð eftir villutrúarmanni. Hana sagði Joseph Ratzinger kardináli [og núverandi páfi].“ Forvera Benedikts XVI., Jóhannesi Páli páfa II., tókst í embættistíð sinni með undraverðum hætti að sneiða hjá því að katólska kirkjan yrði dregin inn í þau átök, sem nú fara fram í heiminum, hvort sem þau nefnast stríð gegn hryðjuverkum eða heilagt stríð á hendur Vesturlöndum. Samræðum trúar- bragðanna hafnað? Eins og segir í fréttaskýringu í nýjasta tölublaði tímaritsins The Economist skildi Jóhannes Páll að róttækir múslímar fyrirlíta ekki vestrið vegna kristninnar, heldur stjórnlauss veraldleika: „Osama bin Laden kann að hafa haldið fram að inn- rásirnar í Afganistan og Írak væru nýjar „kross- ferðir“. En þótt George Bush hafi eitt sinn fært honum vopn í hendurnar með því að nota það orð gáleysislega, var ógerningur að halda því fram að múslímar væru fórnarlömb nýs heilags stríðs á meðan áhrifamesti leiðtogi kristinna manna gagn- rýndi innrásirnar opinskátt. Með því að leggjast bæði gegn sprengjuárásunum á Afganistan og inn- rásinni í Írak tryggði Jóhannes Páll páfi að stærsta Laugardagur 24. september Reykjavíkur ÞRÓUN FJÖLMIÐLAMARKAÐARINS Magn upplýsinga, sem berst tilfólks með einum eða öðrumhætti dag hvern, er gífurlegt. Nú er dreift um 260 þúsund eintökum af dagblöðum flesta daga vikunnar, sem flytja fólki fréttir og annað efni. Útvarpsstöðvum hefur fjölgað mjög og sjónvarpsstöðvum sömuleiðis. Net- miðlar eru mikið notaðir og tímaritum hefur frekar fjölgað en fækkað. Við þetta bætist svo það upplýsingamagn, sem berst með erlendum útvarps- stöðvum, sjónvarpsstöðvum, dagblöð- um og tímaritum. Framboð frétta og annarra upplýs- inga er einfaldlega meira en eftir- spurn. Í þessu samhengi kemur ekki á óvart að útsendingum NFS hafi verið hætt. Það var ekki og er ekki mark- aður fyrir svona mikið magn upplýs- inga. Fólk hefur ekki tíma til að ein- beita sér að móttöku alls þessa mikla upplýsingamagns. Og ákvörðun for- ráðamanna 365 miðla því eðlileg. En jafnframt er full ástæða til að hafa áhyggjur af því að upplýsinga- flóðið verði til þess að gæði upplýs- inga, sem bornar eru fyrir fólk, séu ekki viðunandi. Auðvitað er lengi hægt að tala um hvað sé rétt og hvað sé rangt. Og það er hægt að túlka upplýsingar með ýmsum hætti. Eftir sem áður skiptir mestu að almenningur hafi aðgang að staðreyndum. Svo getur hver og einn dregið sínar ályktanir af þeim stað- reyndum. Í þjóðfélagsumræðum hér er farið mjög frjálslega með staðreyndir. Þeir sem það gera skaða þær opnu umræð- ur, sem fram fara í samfélagi okkar. Það er tímabært að gera meiri kröfur og a.m.k. draga fram í dagsljósið þær vitleysur, sem á borð eru bornar í al- mennum umræðum. Það hefur mikla þýðingu fyrir sam- félagið að fjölmiðlun sé sem fjöl- breyttust og að upplýsingar berist úr mörgum áttum en ekki einni átt eða fáum. Hins vegar er tímabært að almenn- ingur, sem fær þessar upplýsingar í hendur geri meiri kröfur til þeirra, sem dreifa þeim. Raunar ber nú þegar á því. Morgunblaðinu berast dag hvern mikill fjöldi tölvupósta. Í mörg- um tilvikum er verið að gera athuga- semdir bæði við meðferð staðreynda á síðum blaðsins en ekki síður um mál- far. Þetta aðhald lesenda er blaðinu mikilvægt. Það sýnir að lesendum er ekki sama um Morgunblaðið. Slíkt að- hald lesenda dagblaða eða notenda annarra fjölmiðla er bezta aðhaldið, sem þessir fjölmiðlar geta fengið. Með sama hætti og útsendingum NFS hefur verið hætt – og reyndar út- gáfu DV sem dagblaðs – má gera ráð fyrir að smátt og smátt síist út aðrir fjölmiðlar, sem ná einfaldlega ekki at- hygli fólks vegna þess mikla upplýs- ingamagns, sem hér er á ferðinni. Ekki er ósennilegt að það muni eiga við um einhverjar útvarpsstöðvar og einhver tímarit. Fjárfestar verða ekki til lengdar tilbúnir til að standa undir rekstri, sem ekki gengur. Slík hagræðing á fjölmiðlamarkaðn- um af markaðsástæðum mun styrkja þá fjölmiðla, sem eftir standa og þar með auka möguleika þeirra á að halda viðunandi gæðum á þeim upplýsing- um, sem þeir senda frá sér. Segja má, að ákvörðun 365 miðla varðandi DV og NFS – þótt ólíkar ástæður liggi þeim til grundvallar – sé til marks um að fjölmiðlaþróunin hér sé að snúast við. Danir virðast hins vegar standa á byrjunarreit í því þró- unarferli og verður fróðlegt að sjá hvað þar gerist að 2–3 árum liðnum. Sumir halda því fram, að markaður- inn sjálfur rétti af ýmiss konar frávik. Kannski er það að gerast á fjölmiðla- markaðnum hér.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.