Morgunblaðið - 24.09.2006, Side 48

Morgunblaðið - 24.09.2006, Side 48
48 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Glæsileg 146,1 fm sérhæð ásamt innb. bílskúr í fallegri botngötu. 3 góð her- bergi, 2 stofur og rúmgott eldhús með fallegri eikarinnréttingu og gluggum á 2 vegu. Suðursvalir með tröppum út í garð/sólpall. Rúmgóður, fullbúinn bílskúr. Eikarparket á gólfum og nýlegir skápar. Sérinngangur og sérbíla- stæði f. 2-3 bíla. Fallegur og skjólgóður suðurgarður. Eignin er öll sérlega falleg og hefur fengið gott viðhald. Verð 32,9 millj. Ingunn og Guðmundur taka vel á móti gestum í dag milli kl. 15 og 17. Opið hús milli kl. 14 og 15 í dag Skipasund 88 Franskir gluggar og mikil lofthæð Mjög sjarmerandi 3ja herbergja 75 fm íbúð á 1. hæð í gömlu og virðulegu húsi. Íbúðin er björt með óvenju mikla lofthæð og skiptist í hol, baðherbergi með glugga, tvær stofur, eldhús og svefnherbergi. Auðvelt að breyta annarri stofunni í svefnherbergi. Parket og flísar á gólfum. Fallegir franskir gluggar í stofu. Íbúðin getur losnað fljótlega. Verð 17,4 millj. Inga Dóra Kristjánsdóttir, sölumaður Húsavíkur, tekur vel á móti gestum í dag milli kl. 14 og 15. Teikningar á staðnum. Opið hús milli kl. 14 og 16 í dag Framnesvegur 29 Falleg og mikið uppgerð Falleg 77,1 fm 3ja-4ra herbergja efri hæð og ris í fallegu húsi. Húsið var mikið endurnýjað 1998, sbr. lagnir, innrétt., gólfefni o.fl. Aðalhæð skiptist í anddyri, baðherbergi með glugga, eldhús, stofu og svefnherbergi. Í risi eru tvö herbergi sem nýlega hafa verið uppgerð með nýjum Veluxgluggum. Ris mælist aðeins sem ca 11 fm en gólfflötur er í raun stærri. Verð 21,5 millj. Linda og Sigurjón taka vel á móti gestum í dag milli kl. 14 og 16. Bjalla merkt Linda og Sigurjón. Teikningar á staðnum. Opið hús milli kl. 15 og 17 í dag Hjallabrekka 16 Stórglæsileg sérhæð með bílskúr Bjóðum til sölu nýjar íbúðir í fjölbýlishúsi við Fossveg 10 á Selfossi. Húsið er 4 hæða fjölbýlishús með 6 íbúðum á hæð, nema á jarðhæð þar eru 4 íbúðir. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna, þó er baðherbergi flísalagt bæði gólf og veggir upp í hurðarhæð. Lyfta er í húsinu og lóð verður tyrfð. Bílastæði malbikuð, gangstígar hellulagðir. Afhending er 01.12.2006. Fasteignasalan Bakki Sigtún 2 Selfossi Sími 482-4000 www.bakki.com bakki@bakki.com Þröstur Árnason lögg.fasteignasali Skógarhlíð - Þóroddsstaðir í Reykjavík Eignin nr. 22 við Skógarhlíð (Þóroddsstaðir) í Reykjavík. Hér er um að ræða þrílyft steinhús sem er skráð fm hjá Fasteignamati ríkisins en er um 400 fm að stærð skv. upplýsingum eigenda. Húsið var upphaflega gamalt býli, steinsteypt 1927. Húsið hefur verið mikið endurnýjað og virðist vera í góðu ásigkomulagi. Lóðin er 1.397 fm að stærð og eru á henni mörg bílastæði. Húsnæðinu hefur verið breytt í skrifstofuhúsnæði, m.a. hefur lýsing verið stórbætt, lagnastokkar settir meðfram veggjum, raflagnir hafa verið endurnýjaðar o.fl. Nýtt öryggis- og bruna- varnakerfi er í húsinu. Fjöldi skrifstofa er u.þ.b. 12 auk 3ja stórra vinnurýma. Frábær eign sem höfuðstöðvar fyrir t.d. arkitekta, lögfræðistofur, endurskoðendur o.fl. 6116 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Í einkasölu vandað, vel viðhaldið og mikið endurn. raðhús, samt. ca 175 fm m. innb. 26,6 fm bílsk. Nýl. eldhús, baðherb., hluti gólfefna o.fl. Góður garður m. skjólg. verönd. Glæsilegt útsýni á Esjuna, Akrafjallið o.fl. Verð 49,9 millj. Ingibjörg tekur á móti áhugasömum í dag, sunnudag, frá kl. 18-20. Sími 588 4477 Opið hús í dag! Látraströnd 22 – Glæsil. raðhús á Seltjarnarnesi Opið hús frá kl. 18-20 í dag sunnudag. Í einkasölu mjög góð íbúð á 2. hæð í góðu, vel staðs. fjölb. Stutt í góða þjónustu. Nýl. innrétt. í eldhúsi og nýl. parket á gólfum. V. 12,1 m. Áhv. hagst lán ca 9,7 m. Gísli Baldur tekur á móti áhugasömum í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Torfufell 29 - íbúð 0202 Opið hús frá kl. 14-16 í dag sunnudag Í einkasölu mjög vel skipul. 4ra herb. neðri sérh í nýl. fráb. vel staðs. tvíb. innst á Álfhólsvegi, rétt við grunnsk. og aðra góða þjónustu. Sérinng. 3 herb. Sérverönd til suðurs. Góðar innrétt. V. 23,5 millj. Reynir og Þórunn taka á móti áhugasömum í dag, sunnudag, frá kl. 11-12. Álfhólsvegur 116 – Kópavogi Neðri sérhæð Opið hús frá kl. 11-12 í dag sunnudag. GLÖGGT er gests augað segir gamalt máltæki. Undirrituð er ein af þeim fjölmörgu Íslendingum, sem hafa búið erlendis í áratugi og verða alltaf jafn undrandi á þeim miklu breytingum, sem hafa orðið á efnahag þjóðarinnar, hugarfari hennar og jafnvel náttúrufari landsins. Engin eftirsjón er í fá- tæktinni, en það er eftirsjón í sam- hjálpinni, sem ríkti í þessu landi fyrir fimmtíu árum og því hug- arfari manna, sem fóstraði hana. „Þetta er ekki mitt mál,“ er setn- ing sem ég heyri undarlega oft, einhverskonar þjóðráð til þess að frelsa nútíma Íslendinginn frá því að gæta bróður síns. En margt er samt mannanna bölið og alltaf spretta vandamálin upp eins og höfuðin á marghöfða þursa; þegar eitt hefur fokið vaxa upp önnur enn ljótari og verri. Nú hefur nýfengið ríkidæmi fært þjóð- inni auðmenn, sem eiga við sérstök vandamál að etja, sem engin for- dæmi eru fyrir að leysa enn sem komið er. Menn með ofurlaun er ís- lensk nútímastaðreynd. Af viðtölum og játningum þeirra að dæma, sem hafa orðið fyrir þessum ósköpum, skapast flókinn vandi bæði á heim- ilum þessara manna sem og á op- inberum vettvangi. Menn eru í vandræðum með sjálfsmyndina, konuna, krakkana, nágrannana og ekki hvað síst ömmu gömlu, sem passar ekki lengur í kramið. Óttinn er sammannleg kennd. Óttinn og efinn um eigið ágæti, dugnað og sköpunarkraft andar ofan í háls- málið á bestu og ríkustu mönnum – oft ómeðvitað. Svo er óttinn við að missa allan þennan auð – og hvað þá? Fátæktin hefur mörg birting- arform! Á öllum tímum hafa verið til frá- bærlega gáfaðir og duglegir menn og konur, sem hafa tekið til hend- inni á þessari jörð og fengið ýmsu til leiðar komið, jafnvel breytt gangi mannkynssögunnar án þess að vera á föstum launum – hvað þá á ofurlaunum. Tökum t.d. Jesú Krist. Honum tókst að setja fram siðferðilega mælikvarða og breyta hugarfari manna – ekki þó allra – í mörgum heimsálfum til langframa. Slíkt verkefni er eitt það erfiðasta, sem nokkur maður getur ráðist í. Hvað hefði hann átt að fá í kaup? Svari nú hver fyrir sig. DR. VILBORG AUÐUR ÍSLEIFSDÓTTIR, sagnfræðingur. Um launa- réttlæti og annað Frá Vilborgu Auði Ísleifsdóttur: Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.