Morgunblaðið - 24.09.2006, Side 50
50 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
UM MIÐJAN síðasta áratug
mátti heyra að bækur væru hverf-
andi miðill, skrifstofur yrðu papp-
írslausar og nú má helst skilja á fólki
að fréttablöðin séu að hverfa líka.
Fréttir af hvarfi bóka af markaðnum
hafa greinilega verið
eitthvað orðum aukn-
ar. Við getum illa án
þeirra verið. Umræð-
an hefur oft snúist um
að tæknin standi gegn
bókunum. Það er þó
ekki þannig að engin
tækni standi að baki
bókum. Þvert á móti
eru prentaðar bækur
afurð af mikilli tækni-
vinnu og sjálfar eru
þær tæknilega afar
vel sniðnar. Þessi
bráðum sex hundruð
ára gamla tækni hefur með öðrum
orðum staðið af sér ýmsa strauma og
sýnir lítinn bilbug. Notandinn sér
bók sem lítur út líkt og þær sem
voru prentaðar fyrir þrjátíu árum,
en það sem liggur á bak við er ger-
ólíkt.
Í sumar var rætt um skort á bók-
um á Landsbókasafni-Háskóla-
bókasafni. Það sjónarmið hefur
komið fram að tæknilega þættinum
hafi verið gert of hátt undir höfði og
bókakaup þurft að líða fyrir það. Í
framhaldi af því var vakin athygli á
að bækur væru ekki það eina sem
bókasöfn landsmanna bjóða upp á.
Fyrir utan myndefni og hljóðefni á
bókasöfnunum eru rafræn gögn í að-
gangi hvar sem er á
landinu, hvenær sem er
sólarhringsins. Þetta er
einstök þjónusta sem
ekki finnst í löndum
nærri okkur. Stór hluti
vísinda- og fræðafólks
notar nú nær eingöngu
rafræn tímarit til upp-
lýsinga, annaðhvort í
landsaðgangi (hvar.is)
eða í gegnum sérá-
skriftir utan hans. Það
er ljóst að þeir sem fást
við sagnfræði, bók-
menntafræði og önnur
hugvísindi þurfa að reiða sig á góðan
kost prentaðra bóka og aðgang að
handrituðu efni. Það er þó ekki
þannig að þetta fólk hafi ekkert af
rafrænum gögnum að segja. Á tima-
rit.is er þegar komið mikið safn ís-
lensks efnis frá liðnum öldum. Stefnt
er að því að koma sem mestu af ís-
lensku efni utan höfundaréttar á
stafrænt form. Það eykur aðgengi að
þessu efni til muna og minnkar slit á
frumgögnunum. Það væri slæmt ef
fólk ætlaði að stilla þessu tvennu,
prentuðu efni og rafrænum gögnum,
sem andstæðum kostum. Á öllum
fræðasviðum eru þeir notaðir sam-
hliða og verður um næstu framtíð.
Það er fljótgert að sjá hvaða efni
er í landsaðgangi á hvar.is en sein-
legra að fara yfir það allt til hlítar,
enda er aðgangur að yfir 8.700 tíma-
ritum í fullum texta og 12 gagna-
söfnum fyrir alla sem tengjast gegn-
um íslenska netveitu á Íslandi.
Hversu mikið er þarna? Ef það ætti
að koma fyrir 10 árgöngum af 8.700
tímaritum þyrfti að fylla allar hæðir
Þjóðarbókhlöðunnar. Þá er eftir það
efni sem er í gagnasöfnunum og það
sem er gert aðgengilegt í opnum að-
gangi á hvar.is. Auk þess hefur fólk
á háskólabókasöfnum, heilbrigð-
isbókasöfnum og nokkrum rann-
sóknabókasöfnum aðgang að enn
meira efni sem er keypt í séráskrift-
Bækur eða hvar.is?
Sveinn Ólafsson skrifar um
gagnasöfn
» Fólk fer einfaldlegaá hvar.is og getur
ratað þaðan inn í hvert
tímarit fyrir sig, inn í
hvert gagnasafn fyrir
sig eða leitað í öllum
gagnasöfnunum sam-
tímis.
Sveinn Ólafsson
ÆGISÍÐA
Vorum að fá í einkasölu 261,4 fm einbýlishús við Ægisíðu. Íbúðar-
rými er skráð 231,5 fm og bílskúr 29,9 fm. Húsið stendur á 797 fm
glæsilegri hornlóð á eftirsóttum útsýnisstað. Arkitekt er Aðalsteinn
Richter. Á aðalhæð hússins eru 2 glæsilegar stofur sem gengið er í
niður af palli, borðstofa, eldhús, snyrting, rúmgott hol og forstofa.
Gengið er út í garð úr stofu og borðstofu. Á efri hæð eru 3-4 herb.,
baðh. og hol. Rúmgóðar svalir útaf hjónah. Í kjallara eru herbergi,
baðh., þvottahús, búr og hol. Mikil lofthæð er í húsinu. Húsinu hefur
verið mjög vel viðhaldið. Húsið er laust til afh. fljótlega. #6005
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúli
Rentus kynnir til leigu mjög gott 605,8 fm skrifstofuhúsnæði á
2. hæð við Síðumúla í Reykjavík. Eignin skiptist í 14 skrifstofurými,
rúmgóða móttöku, stóran sal, fjórar snyrtingar, ræstikompu og
geymslur. Vínildúkur á gólfum. Tveir inngangar. Möguleiki á að
skipta í tvær einingar. Næg bílastæði.
Halldór Jensson
halldor@domus.is
S. 440 6014/840 2100
Laugavegi 97
101 Reykjavík
Sími 440 6100
Fax 440 6101
www.rentus.is
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Mjög glæsilegt 190 fm tvílyft
parhús ásamt 28,0 fm bílskúr í
Suðurhlíðum Kópavogs. Á neðri
hæð eru m.a. forstofa, þvotta-
herbergi, 3 parketlögð svefnher-
bergi, flísalagt baðherbergi og 1
gluggalaust herbergi. Uppi eru
góðar parketlagðar stofur og
borðstofa með útgengi á svalir, eldhús með góðum innrétt., 1 her-
bergi/sjónvarpsherbergi og flísalagt baðherbergi. Gert er ráð fyrir arni í
stofu. Ræktuð lóð. Verð 45,9 millj.
Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
Skógarhjalli 19 - suðurhlíðar Kópavogs
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Sími 575 8500 Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali
Í einkasölu glæsileg 3ja-4ra herb.
hæð við Víðimel í Reykjavík. Íbúðin er
mikið endurnýjuð á smekklegan hátt,
öll gólfefni ný ásamt eldhúsinnrétt-
ingu, raflögnum, baðherbergi, fata-
skápum o.fl. Að utan er nýlega búið
að endurnýja þak hússins ásamt
rennum og þakkanti. Íbúðin skiptist í
2 stofur, 2 herb., baðherbergi og eld-
hús. Í kjallara eru geymslur og sam-
eiginlegt þvottaherbergi.
OPIÐ
VIRKA DAGA
FRÁ KL. 9-18
VÍÐIMELUR - EINSTAKT TÆKIFÆRI
Á eigninni hvíla:
Frá Íbúðalánasjóði ca . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . kr. 10.450.000
Frá SPRON ca . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . kr. 3.800.000
Seljandi er reiðubúinn að lána verðtryggt
lán til 20 ára með föstum 6,9% vöxtum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . kr. 8.160.000
Útborgun er því aðeins . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . kr. 2.490.000
Kaupverð samtals . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . kr. 24.900.000
Greiðslubyrði lána á mánuði er ca . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . kr. 127.000
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
HJARTADAG-
URINN er haldinn á
heimsvísu af rúmlega
hundrað aðild-
arfélögum Al-
þjóðahjartasamtak-
anna (World Heart
Federation) og er
Hjartavernd eitt af þeim. Viðburðir
þennan dag eru margvíslegir í lönd-
unum, allt frá heilsumælingum,
göngum, leikfimi, almennum fyr-
irlestrum, ráðstefnum, vísindasýn-
ingum og tónleikum til
stórra íþróttamóta.
Markmið Hjartadags-
ins er að auka vitund og
þekkingu almennings á
ógnum hjarta- og æða-
sjúkdóma og leggja
áherslu á heilbrigða
lífshætti svo að börn,
unglingar og fullorðnir
um allan heim öðlist
betra og lengra líf.
Hjartadagurinn var
fyrst haldinn árið 2000
og hefur hver dagur
ákveðið þema. Í ár er þemað orðað
með spurningunni „Hve ungt er þitt
hjarta?“ sem felur í sér áskorun til
fólks um að huga að hjarta sínu og
reyna að halda því ungu eins lengi
og hægt er.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru al-
gengasta dánarorsök Íslendinga og
valda um 40% dauðsfalla á Íslandi.
Margir áhættuþátta hjarta- og æða-
sjúkdóma eru þekktir og hægt er að
hafa áhrif á marga þeirra. Aðrir
áhættuþættir eru þess eðlis að þeim
verður ekki breytt. Dæmi um þetta
eru erfðaþættir eða aldur. Áhættu-
þættirnir spila saman hjá hverjum
einstaklingi. Hafi einstaklingur
marga áhættuþætti magna þeir hver
annan upp. Áhætta einstaklings með
marga tiltölulega væga áhættuþætti
getur því verið meiri en einstaklings
með einn slæman áhættuþátt. Vegna
þessa er mikilvægt að skoða áhættu-
þættina í heild sinni fyrir hvern og
einn. Reiknivél Hjartaverndar á
www.hjarta.is er mikilvægt hjálp-
artæki til að átta sig á samspili
áhættuþátta á einstaklingsgrunni.
Helstu áhættuþættir eru slegnir inn
í reiknivél sem reiknar út áhættu á
kransæðasjúkdómi á næstu 10 árum
og ber áhættuna saman við meðaltal
fyrir hvern aldur. Meðferð við
áhættuþáttum miðast við að draga
úr heildaráhættu. Þannig getur ver-
ið hentugt að meðhöndla t.d. kólest-
eról hjá einstaklingi með mikla
áhættu á kransæðasjúkdómi þótt
Hve ungt er þitt hjarta?
Bolli Þórsson fjallar
um hjarta- og æða-
sjúkdóma í tilefni af
Alþjóðlega hjarta-
deginum
»Hjarta- og æða-sjúkdómar eru
algengasta dánarorsök
Íslendinga og valda
um 40% dauðsfalla á
Íslandi.
Bolli Þórsson