Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, MAGNÚS MAGNÚSSON pípulagningameistari, Hallanda, Árnessýslu, sem lést af slysförum laugardaginn 16. september, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 26. september kl. 13.00. Sigríður Harðardóttir, Magnús St. Magnússon, Ingunn Jónsdóttir, Sigurjón Magnússon, Vigdís Birna Hólmgeirsdóttir, Ólafur Björn Magnússon, Jónatan Mikael og Benjamín Magnús, Guðrún E. Guðmundsdóttir, Magnús St. Magnússon, Margrét Magnúsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Einar Gylfason, Guðmundur Magnússon, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Systir mín, KRISTÍN EGGERTSDÓTTIR frá Haukagili í Vatnsdal, lést mánudaginn 11. september sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Svava Eggertsdóttir. Bróðir minn og mágur. KOLBEINN G. ÓSKARSSON, Keldulandi 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudag- inn 12. september. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ástþór Óskarsson, Sigrún Pétursdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur, HELGI HALLGRÍMSSON, til heimilis í Norðurbyggð 1c, Akureyri, lést mánudaginn 18. september. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 28. september kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Geðhjálpar, sími 570 1700. Fyrir hönd aðstandenda, Helga G. Erlingsdóttir, Steinþór Helgason, Sigríður Svana Helgadóttir, Arnar Helgason, Sigríður J. Helgadóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐA EINARSDÓTTIR, Miðvangi 41, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 26. september kl. 15.00. Ólafur Guðbjörnsson, Guðbjörn Steinþór Ólafsson, Ásta María Janthanam, Anna Elísabet Ólafsdóttir, Kristján Sigurmundsson, Ólafur Rúnar Ólafsson, Oddný Kristinsdóttir, Helgi Þór Ólafsson, Ingibjörg Jóhannesdóttir, Einar Örn Kristinsson, Áslaug Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ÁSLAUG ODDSDÓTTIR, Álfhólsvegi 12, Kópavogi, lést aðfaranótt þriðjudagsins 19. september. Útför fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 25. september kl. 13.00. Aðstandendur.                        Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919      Hann pabbi okkar er dáinn. Þetta er lík- lega sú erfiðasta staðreynd sem ég og systkini mín höfum þurft að sætta okkur við. Við eigum börn sem við þurftum að segja að afi þeirra væri dáinn, móður sem horfði á eftir sínum betri helmingi á brott úr lífi sínu. Þrátt fyrir allan sársaukann, sorg- ina og tárin vakna minningar, brosið kviknar á vörum. Hver man ekki eftir stríðnislegu glotti á and- liti hans þegar eitthvert prakkara- strikið var í uppsiglingu. Fyrsti Kjartan Pálsson ✝ Kjartan Pálssonfæddist í Reykjavík 28. júlí 1918. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 13. sept- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Selfoss- kirkju 23. sept- ember. apríl er tengdur ótal gabbhlaupum. Við vorum að borða morgunmat, þegar allt í einu kom í ljós að vasahnífurinn eða tóbaksdósin höfðu gleymst úti í fjósi eða höfðu dottið undir tröppurnar á leið hans inn úr fjósinu kvöldið áður. Auðvit- að trúðum við honum alltaf og hlupum yfir þröskuldana þrjá. Kaldavatnsslangan í mjólkurhúsinu átti það líka ótrú- lega oft til að taka völdin af honum á furðulegan hátt og endaði bunan á okkur. Honum fannst það nú ekki leiðinlegt er við supum hvelj- ur og hlupum æjandi burt með stríðnishlátur hans í eyrunum. Svo var það er við trúðum því að hann sæi í gegnum holt og hæðir. Hlöðu- þakið var óspart notað sem renni- braut og rifnar buxur komu upp um okkur. Við reyndum að segja mömmu að þær hefðu bara rifnað svona sjálfar, en hann sagðist hafa séð okkur á hlöðuþakinu. Auðvitað trúðum við honum og fylltumst lotningu yfir þessum hæfileika hans. Þetta voru ekki einu hæfi- leikar hans, honum voru gefnir sönghæfileikar sem fjallmenn er honum voru samtíða á fjalli muna. Sögur sem hann sagði voru ungum áheyrendum líka minnisstæðar vegna þess að hann gæddi þær lífi. Pabbi lét okkur ung að árum fara að vinna, öll störf okkar áttum við að vinna vel og skilja að verkin tala. Hvernig þau eru unnin segir til um hvernig manneskjan sem vann þau er og hvað hún hefur til brunns að bera. Þannig leit hann á fólkið í kringum sig, mannkosti dæmdi hann út frá verkum hvers og eins. Hann mátti ekki vita af neinum í vanda án þess að bjóða aðstoð sína áður en um hana var beðið, þannig var hann bara. Barnabörnin áttu hvert sitt pláss í lífi hans, þau sakna nú öll afa og hvert um sig á sínar minningar um hann. Sumar tengjast atvikum úr sveitadvöl, aðrar heimsóknum sem voru mislangar, en öll eiga þau eft- ir að sakna þess að vera réttur súkkulaðimoli úr afastól. Það er okkar sem eldri erum að sjá til þess að hann lifi áfram í minn- ingum og sögum af uppátækjum hans í gleði og sorg. Pabbi bjó yfir þeim eiginleikum að reynast vinur í raun, vera hlýr, ljúfur, en umfram allt trúr sjálfum sér. Honum tókst flest það sem hann ætlaði sér og var stoltur af, á honum sannaðist að margur er knár þó hann sé smár. En í okkar huga er hann bara pabbi sem við elskuðum, dáð- um og virtum, við erum betri fyrir það að hafa kynnst honum. Elsku pabbi, við kveðjum þig og þökkum samveruna. Til þín, elsku pabbi. Hinsta kveðja. Brúney og systkinin frá Vaðnesi. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG BJARNADÓTTIR sjúkraliði, andaðist á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 21. september. Elsa Þ. Axelsdóttir, Pálmi Ólason, Björk Axelsdóttir, Jón S. Pálsson, Þyri Axelsdóttir, Ásgeir Guðnason, Davíð Axelsson, Selma K. Albertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.