Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 60
Staðurstund Ungur og upprennandi söng- nemi, Herdís Anna Jónasdóttir, hlýtur verðlaun úr styrkt- arsjóði Halldórs Hansen » 64 tónlist Söngkonan Beyoncé og leik- arinn Robin Williams eiga ekki sjö dagana sæla um þessar mundir » 67 fólk Í listapistli sínum fjallar Hösk- uldur Ólafsson um ævisögu eins af fjölmörgum fórnarlömbum Rauðu khmeranna » 62 bækur Lars Von Trier líst ekki hætis- hót á samskipti Íslendinga og Dana og hefur gert kvikmynd sem lýsir skoðun hans » 64 kvikmynd Í sunnudagspistli sínum að þessu sinni fjallar Árni Matt- híasson um dönsku hljómsveit- irnar Mew og Under Byen » 65 tónlist RIFF 2006 er einkar fjölskrúðug, eini ókosturinn, ef svo mætti segja, er fjöldi verkanna sem í boði eru (um 80), því sýningardagarnir eru aðeins 11. Þrátt fyrir þrjá sýningarstaði, Háskólabíó, Tjarnarbíó og Iðnó, verða gestir því að velja og hafna og svo mikið er víst að allir eiga að finna yfrið nóg við sitt hæfi. Til að auðvelda valið er hátíða- myndunum skipt í nokkra efnis- flokka, eins og fram kemur. Verkin, sem hér eru kynnt, eru öll einkar forvitnileg og fara efst í for- gangsröðina. Þau endurspegla minn smekk en geta vonandi verið leið- beinandi fyrir lesendur, þegar borg- arljósin slokkna og við getum teygt okkur upp til stjarnanna. Gestir hátíðarinnar Sólin – Soltsne (Aleksandr Sok- urov, Rússland o.fl.). Nýjasta verk heiðursverðlaunahafa hátíðarinnar í ár, segir af deginum sem Keisari sól- arinnar, Hirohito, gafst skilyrð- islaust upp fyrir Bandamönnum og gerðist einn af oss dauðlegum. Sok- urov er sagður fara einkar listræn- um höndum um lokapunkt hild- arleiksins og einn af dramatískustu augnablikum sögunnar. Tjón – The Adjuster (Atom Ego- yan, Kanada 2001). Annar góður há- tíðargestur er kanadíski leikstjórinn sem mætir með þrjú af verkum sín- um, þessi er ein óséð. Líkt og flestar myndir Egoyans er örugglega um að ræða persónulegt og órætt verk, gert af listamanni, óböngnum við að berjast með vindinn í fangið. Púðurtunnan – The Powder Keg; Draumur á Þorláksmessunótt – Midwinter’s Night Dream; Hinir bjartsýnu – The Optimists Kvikmyndagerðarmenn frá lönd- um fyrrum Júgóslavíu hafa heimsótt og sett mark sitt á íslenskar kvik- myndahátíðir með forvitnilegum, oft furðulegum og blessunarlega skemmtilegum verkum. Í ár varpar RIFF kastljósinu á gest sinn, Goran Paskaljevic, sem er meiri bölsýnis- maður en þeir Makavejev og Kustu- rica, en enginn vafi leikur á að hann kemur með ferskt og öðruvísi and- rúmsloft. Fyrir opnu hafi Í þessum flokki er að finna margar af markverðustu myndunum frá síð- astliðnu ári. Ljós í húminu – Laitakaupungin valot (Aki Kaurismäki, Finnland). Góðkunningi og gamall gestur Spáð í hátíðarréttina Bretadrottning Helen Mirren þykir takast vel upp í hlutverki Elísabetar. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) hefst á fimmtudag og stendur í 11 daga Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is A TÓMSTÖÐIN er verk mánaðarins á Gljúfra- steini í septembermánuði. Í dag kl. 16 ræðir Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur um Atómstöðina við gesti í stofunni á Gljúfrasteini undir yfirskriftinni „At- ómstöðin: her og bein“. Þetta er liður í dagskrá Gljúfra- steins um Halldór Laxnes sem verður síðasta sunnudag í hverjum mánuði. Pétur Gunnarsson fjallar um Brekku- kotsannál í október og Halldór Guð- mundsson um Í túninu heima í nóv- ember. Jón Karl hefur í bókinni Ferðalok fjallað um örlög beina Jónasar Hall- grímssonar í skáldskap og veruleika, þ. á m. í Atómstöðinni. Beinin blönd- uðust óvænt í deiluna um Keflavík- ursamninginn þar sem þau komu til landsins frá Danmörku einmitt þegar umræður um veru hersins hér á landi stóðu sem hæst á Alþingi. Undir eins urðu jarðneskar leifar skáldsins að bitbeini stjórn- málaaflanna sem tókust á. Atómstöðin fjallar öðrum þræði um þessi tvö viðkvæmu samtímamál, Keflavík- ursamninginn og beinamálið. Í Atómstöðinni er látið að því liggja að beinin hafi verið flutt til Íslands beinlínis í þeim tilgangi að leiða athygli almennings frá samninga- viðræðum ríkisstjórnarinnar við Bandaríkjamenn. Ein af umdeildari bókum Halldórs „Þetta er hugsað sem sambland af spjalli og um- ræðum. Hugmyndin er sú að menn geti rifjað upp við- komandi verk þannig að þeir hafi eitthvað fram að færa sjálfir,“ segir Jón Karl. Jón Karl kveðst hafa farið að skoða Atómstöðina sér- staklega í framhaldi af skrifum sínum um bein Jónasar Hallgrímssonar. „Mér fannst gaman að sjá hvernig hann vinnur úr því máli í bókinni. En líklega er þetta ein af umdeildari bókum hans og varð það strax. Hann nýtir sér samtímaatburði og margir litu á bókina sem pólitískt níðrit. Amma mín, sem man þessa tíma, segir að margir hafi lesið þetta verk eins og revíu. Í revíum þessa tíma var stöðugt verið að vísa í samtímafréttir. Hún segir að allir hafi vitað á þeim tíma hver hafi verið hver í bókinni. Margir hafa eflaust lesið bók- ina út frá hugsanlegum fyrirmyndum persónanna í bókinni. Halldór leikur sér reyndar talsvert að því að steypa saman persónum eða kljúfa fyrirmyndir í tvennt. Menn voru alltaf að reyna bera kennsl á persónur Halldórs. Þetta hefur verið kallað hinn íslenski lesháttur og er kannski arfleifð frá því hvernig Íslendingasögurnar voru lesnar,“ segir Jón Karl. Jón Karl segir að Halldór hafi farið afar nærri staðreyndum beinamálsins svonefnda í Atómstöð- inni sem seinni tíma heimildir hafi leitt í ljós. „Beinamálið er kannski heldur skáldlegra í veru- leikanum ef eitthvað er.“ Inn í erindi Jón Karls kemur líka umfjöllun um deilurnar um Keflavíkursamning- inn. „Þessi tvö mál voru tengd saman af vinstri mönnum á sínum tíma og Halldór hnykkir á því í bókinni. Það lítur út fyrir að viss óheppni hafi ráðið því að bein Jónasar skyldu koma til Íslands nákvæmlega sömu daga og Keflavíkursamn- ingurinn var til umræðu á Al- þingi. Jónas missti af skipi til Íslands og þetta mál varð allt mjög óheppilegt og farsakennt fyrir vikið.“ Bein Jónasar og varnarsamningurinn Bókmenntir | Fjallað um Atómstöðina á Gljúfrasteini Jón Karl Helgason Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon » Beinin blönd-uðust óvænt í deiluna um Keflavík- ursamninginn þar sem þau komu til landsins frá Dan- mörku einmitt þegar umræður um veru hersins hér á landi stóðu sem hæst á Alþingi Skáldið á Gljúfrasteini Halldór Kiljan Laxness. |sunnudagur|24. 9. 2006| mbl.is 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.