Morgunblaðið - 24.09.2006, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 61
Kynning
í dag
Frábært
verð
Ármúla 42
sími 895 8966
Opið alla daga frá kl. 10-18
Einstakt tækifæri til þess að eignast kínverska listmuni beint frá framleiðendum
LÚXUS GJAFIR OG SÖFNUNARVÖRUR – GÓÐ FJÁRFESTING
Úti- eða inniblómapottar - myndir - lampar - skilrúm - matarstell - vasar - skálar og fleira
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Einbýlishús óskast nú þegar
Æskileg staðsetning:
Garðabær, Seltjarnarnes eða Arnarnes.
Rétt eign má kosta allt að 150 millj.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Æskileg stærð 350-400 fm
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í Fossvogi.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST -
STAÐGREIÐSLA
Listahátíðar, er sagður með sína
bestu mynd í áraraðir og var tilnefnd
fyrir skömmu sem Óskarsverðlauna-
framlag Finnlands. Aki fæst við
gamalkunnugt viðfangsefni, veik-
burða stöðu undirmálsmannsins í
hörðum heimi. Vonandi notar hann
skopskynið sem aðalkrydd í grá-
móskuna.
Drottningin – The Queen (Steph-
ens Frears, England). Spánný mynd
um vandann sem blasti við bresku
konungsfjölskyldunni þegar Díana
prinsessa féll frá. Það gustar af Mir-
ren í titilhlutverkinu og á góðum degi
er Frears með eftirtektarverðari
kvikmyndagerðarmönnum.
Sumarhöllin – Yihe yuan (Lou Ye
Kína/Frakkland). Gerð af merkasta
leikstjóra Kínverja og einum fárra
sem þora að gagnrýna þjóðfélagið.
Hér tekur hann m.a. á mannréttinda-
brotunum sem framin eru eystra.
Fékk að launum frábæra dóma um
allan heim en bann við að sinna list
sinni í heimalandinu. Ómissandi.
Allt annað dæmi – Whole New
Thing (Amnon Buchbinder, Kanada).
Þvílíkt forvitnileg mynd um vand-
stigin skref ungs pilts út í lífið, en
hann hefur búið heima, hjá afdönk-
uðum hippum, foreldrum sínum.
Virðist talsvert frábrugðin þroska-
saga þar sem söguhetjan þarf að
klífa margan múrinn.
Vitranir
Forvitnileg fyrstu verk höfunda
sem keppa um þrenn aðalverðlaun
hátíðarinnar.
12:08, austur af Búkarest – A fost
sau n-a fost? (Rúmenía). Efnið og
umhverfið toga í mann. Sögusviðið
smábær í Rúmeníu, 16 árum eftir að
Ceaucescu, einn síðasti og illræmd-
asti einræðisherra leppríkja sovéts-
ins, var hrakinn frá völdum. Hvernig
minnast bæjarbúar atburðarins?
Fjórar mínútur – Vier Minuten
(Þýskaland). Hugsanlega ein merk-
asta mynd hátíðarinnar. Segir af
sambandi ungrar konu sem situr af
sér dóm fyrir manndráp og áttræðs
píanókennara sem kennir föngunum.
Gamla konan finnur mikla hæfileika
hjá fanganum og nú reynir á viljann
til að láta rætast úr þeim.
Ferskt lloft – Friss levegö (Ung-
verjaland). Viðfangsefnið er ung-
verskar mæðgur sem virðast í fyrstu
eiga fátt sameiginlegt en líklega eru
markmiðin svipuð. Tvær gjörólíkar
kynslóðir Ungverja túlka tímana
tvenna.
Sherry, elskan – Sherry baby
(Bandaríkin). Eiturlyfjafíkillinn og
smákrimminn Sherry (Maggie Gyl-
lenhaal) reynir að rækta samband
við unga dóttur sína, forðast dópið og
standa í fæturna er hún kemur aftur
út í lífið. Ómissandi sakir frammi-
stöðu leikkonunnar.
Rauður vegur – Red Road (Dan-
mörk/England). Gamalt samband
milli öryggisgæslukonu og glæpa-
manns blossar óvænt upp í öngstræt-
um Glasgow. Hljómar fersk og for-
vitnileg.
Bless, Falkenberg – Farväl Fal-
kenberg (Svíþjóð). Þroskasaga af
fimm vinum í smábæ er áhugaverð,
þó ekki væri fyrir annað en að sjá
hvernig Svíar taka á þessu gjörnýtta
umfjöllunarefni.
Ísland í brennidepli
Frumsýningar á nýjum, íslenskum
myndum.
Vertu eðlilegur – Act Normal
(Ólafur de Fleur, Ísland). Skoðað er
undarlegt lífshlaup Englendingsins
Roberts T. Edison, sem gerðist búd-
damunkur. Dvaldi í Taílandi uns
hann kom hingað og stofnaði trúfélag
Búddista. Kastaði kuflinum, giftist,
skildi og gekk aftur guði sínum á
vald.
Reiði guðanna – Wrath of Gods
(Jón Gústafsson, Ísland). Hnýsileg
heimildarmynd um hvað gerðist á
bak við tjöldin undir erfiðu og ill-
viðrasömu tökuferli Bjólfskviðu.
Þrjár þrennur
Hér eru kynnt þrjú verk þriggja
úrvalsleikstjóra.
Bahman Ghobadi (Kúrdistan):
Tími drukknu hestanna – A Time for
Drunken Horses ~ Zamani barayé
masti asbha (Íran). Fimm mun-
aðarlaus systkini búa við kröpp kjör
hátt uppi í fjöllum Kúrdistan. Þau
gera það sem þau geta til að bjarga
því yngsta, sem er fársjúkt.
Lodge H. Kerrigan (Bandaríkin):
Keane (Bandaríkin). Titilpersónan
er faðir vanheill á geði, sem leitar
dóttur sinnar mánuðum saman eftir
að hún hvarf á umferðarmiðstöð í
New York.
Heimildarmyndir
Áður en flogið er aftur til jarðar –
Pries parskrendant i Zeme (Arunas
Matelis. Litháen). Leikstjórinn á
barn sem læknaðist af hvítblæði, í
framhaldinu dvaldi hann á sjúkra-
húsinu og ræddi við litlar hetjur og
mæður þeirra um sjúkdóminn, lífið
og dauðann.
Umsátur – Blokada (Sergei Loz-
nitsa, Rússland). Einkar forvitnileg
og óhefðbundin um umsátrið um
Leníngrad í síðari heimsstyrjöldinni.
Kettirnir hans Mirikitani – The
Cats of Mirikitani (Linda Hatten-
dorf, Bandaríkin). Segir af kynnum
kvikmyndagerðarkonunnar og landa
hennar af japönskum ættum. Hann
er háaldraður utangarðsmaður í
New York og hefur frá mörgu að
segja þegar hann fer að opna sig.
Af engum – No nadie (Tin Dirda-
mal, Mexíkó). María er frá Mið-
Ameríku á leið norður í leit að betra
lífi í Bandaríkjunum. Lendir í
óvæntri martröð í Mexíkó, flökku-
fólkið er landlaust og traðkað á því.
Lífið í lykkjum – Life in Loops
(Timo Novotny, Austurríki). Mynda-
vélin skannar undir yfirborð skugga-
hliða ýmissa stórborga.
Leiðin til Guantanamo – The Road
to Guantanamo (Michael Winterbot-
tom og Mat Whitecross, England).
Leikin saga Tipton-þremenning-
anna, píslargöngu þeirra um Afgan-
istan til Guantanamo, vítisholunnar á
Kúbu, og heim aftur.
Sjónarrönd: Danmörk
Forstjóri heila klabbsins – Di-
rektören for det hele (Lars von
Trier). Nýjasta mynd leikstjórans er
til tilbreytingar í gamansömum
ádeilutón um tilbúið skálkaskjól for-
stjóra auglýsingastofu.
Miðnæturmyndir
El topo (Alejandro Jodorowsky,
Mexíkó). Nú verður gripið tækifærið
og endurnýjuð kynnin við einn af
byltingarmönnum kvikmyndarinnar
á 8. áratugnum og geggjaðar sögu-
hetjur hans.
Leiðin til Guantanamo Leikin saga Tipton þremenninganna, píslargöngu þeirra til Guantanamo.