Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 66
Anna Agnars-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1947.
Hún lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum
í Reykjavík 1967,
B.A. prófi frá Uni-
versity of Sussex
1970 og dokt-
orsprófi frá London School of
Economics and Political Science
1989. Anna starfar nú sem prófessor í
sagnfræði við Háskóla Íslands og er
forseti Sögufélags. Eiginmaður
Önnu er Ragnar Árnason hagfræð-
ingur. Anna á tvær dætur og eina
stjúpdóttur.
Sagnfræðingafélag Íslandsstendur fyrir fyrirlestraröðí vetur. Yfirskrift dagskrár-innar er „Hvað er sagn-
fræði? – Rannsóknir og miðlun“ og
eru fyrirlestrarnir haldnir annan
hvern þriðjudag kl. 12.05 til 12.55 í
fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Ís-
lands.
Næstkomandi þriðjudag mun
Anna Agnarsdóttir sagnfræðingur
flytja fyrirlesturinn „Hvað er satt í
sagnfræði?“
„Þegar kemur að sagnfræðilegum
rannsóknum þarf að gera grein-
armun á sögulegum staðreyndum
annars vegar og túlkun þeirra hins
vegar, en allt byggist á heimildum,“
útskýrir Anna. „Hlutverk sagnfræð-
ingsins er að leita að sannleikanum
um fortíðina, t.d. að komast að því
hvað gerðist, og af hverju það gerð-
ist. Sannleikurinn um fortíðina er til
en spurningin er hvort hægt sé að
komast að hinum endanlega sannleik
og ennfremur hvort það sé bara til
einn sannleikur.“
Anna segir umræðuna um sann-
leika og sagnfræði ákaflega flókna:
„Í sumum tilvikum skiptir hin sögu-
lega staðreynd minna máli, en meira
máli skiptir að líta á bak við stað-
reyndirnar, að finna ekki sem ná-
kvæmast svar við spurningunum
„hver“ og „hvenær“ heldur „hvers
vegna“ og „hvernig“. Spurningar
eins og „hvernig var lífið hjá dæmi-
gerðri íslenskri fjölskyldu um 1600“
eða „ætluðu Bretar að leggja undir
sig Ísland 1809“ eru mun áhugaverð-
ara viðfangsefni sagnfræðinnar en
hvort Jón Sigurðsson, til dæmis,
fæddist 16. júní 1811 en ekki 17.
júní.“
Anna bendir jafnframt á að ekkert
sé til sem heitir hlutlæg sagnfræði:
„Sagnfræðingar leitast við að nota
frumheimildir í rannsóknum sínum,
og frumheildirnar breytast ekki. Hitt
breytist: túlkun og úrvinnsla fræði-
manna á heimildunum. Frá einni
kynslóð fræðimanna til þeirrar
næstu, og frá einum fræðimanni til
annars. Það er túlkunin sem gerir
sagnfræðina spennandi, og um leið er
fræðunum nauðsynlegt að skoða sög-
una frá mörgum sjónarhornum ef við
ætlum að komast nær sannleikanum.
Einnig þarf að muna að hver sagn-
fræðingur er barn síns tíma og gerir
aðeins eins vel og aðstæður og vitn-
eskja leyfa hverju sinni. Hver kyn-
slóð þarf því að skrifa söguna upp á
nýtt, fara að nýju yfir það sem vitað
er og bæta við nýrri þekkingu og
sjónarhornum eins og völ er á.“
Aðgangur að fyrirlestri Önnu er
ókeypis og öllum heimill meðan hús-
rúm leyfir. Nánar má lesa um dag-
skrá fyrirlestraraðarinnar á heima-
síðu Sagnfræðingafélags Íslands:
www.sagnfraedingafelag.net, en
næsti fyrirlestur verður 10. október
og mun þá Antony Beevor sagnfræð-
ingur flytja erindið „Stalíngrad og
Berlín. Sagnfræðirannsóknir í Rúss-
landi“.
Vísindi | Fyrirlestur á þriðjudag kl. 12.05 í
Þjóðminjasafni Íslands
Hvað er satt
í sagnfræði?
66 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Risaeðlugrín
Svínið mitt
HLUSTAÐUR Á HLJÓÐIÐ SEM
KÖRTUKARLINN GEFUR FRÁ SÉR ÞEGAR
HANN ER Í MAKALEIT.
ÞETTA ER EINS OG FALLEGT ÁSTARLJÓÐ,
SÁLMUR FRJÓSEMINNAR,
LOFSÖNGUR BARÁTTULÍFSINS...
ELSKAN MÍN ÉG HELD AÐ
BARNIÐ ÞURFI AÐ FÁ
EITTHVAÐ AÐ BORÐA
© DARGAUD
© DARGAUD
HLUSTAÐU
BARA...
KVENNDÝRIÐ
ER KOMIÐ
Ó ÞÚ HÉR?!...
ÉG BJÓST EKKI
VIÐ ÞVÍ AÐ HITTA
ÞIG HÉRNA
ELSKU
GUNNA MÍN!
ÉG VISSI AÐ
ÞÚ MYNDIR
KOMA HINGAÐ
JÚ ÞAÐ ER
EITTHVAÐ SVO
RÓMANTÍSKT OG
UNAÐSLEGT Í
LOFTINU AÐ ÉG...
FALLEGUR
DAGUR
FINNST
ÞÉR EKKI?
ÞVÍLÍKUR
DÓNI!!
SKRAMBINN!
ÉG VERÐ AÐ HÆTTA
AÐ BORÐA HVÍTLAUK.
ÉG FÆ ALLTAF Í
MAGAN AF HONUM.
HVAÐ
ER AÐ
RÚNAR?
ERTU
HÆTTUR Í
LEIKNUM?
VILTU VERA
EITTHVAÐ ANNAÐ
EN SMÁBARN?
HVERNIG
KOMUMST VIÐ
AÐ ÞVÍ HVAÐ
HANN VILL
VERA?
SÝNDU OKKUR
HVAÐ ÞÚ VILT LEIKA
RÚNAR!
JÁ
FRÁBÆRT!
HANN VILL
VERA
PABBINN!
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
NÁMSAÐSTOÐ
íslenska - stærðfræði - enska - danska
franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði
þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl.
greining á lestrarerfiðleikum
Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is
Notaðir Bílar - Bíldshöfða 10
587-1000 - Bílasalan Skeifan
Tilboð kr. 12.500.000
Nýskráður 11.2005
Leðuráklæði, Leiðsögukerfi, 19” álfelgur, Xenon ljós, Nálgunarviðvörun
Topplúga, Skipting í stýrinu o.m.fl..
BMW M5 - 507 hestöfl - Einn með öllu
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111