Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 73 / KRINGLAN/ ÁLFABAKKI FRAMLEIDD AF TOM HANKS. „the ant bully“ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ TÆKIFÆRI ÞARFTU AÐ TAKA FYRSTA SPORIÐ. FRÁBÆR DANSMYND HLAÐIN GEGGJAÐRI TÓNLIST EN MYNDIN KOM HELDUR BETUR Á ÓVART Í USA FYRIR NOKKRU. MEÐ KYNTRÖLLINU CHANNING TATUM (“SHE’S THE MAN”) BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON FRÁ EINHVERJUM MEST SPENNANDI LEIKHÓP SEM ÍSLENDINGAR EIGA Í DAG, VESTURPORT, KEMUR HREINT ÚT SAGT MÖGNUÐ KVIKMYND BÖRN! eeee HEIÐA MBL eee ÓLAFUR H. TORFASON RÁS2 BÖRN ER EIN BESTA ÍSLENSKA MYNDSEM FRAM HEFUR KOMIД GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM Takið þátt í spennandi ferðalagi þar sem vil- lidýrin fara á kostum. Ekki missa af fyndnustu Walt Disney teiknimynd haustins. ÓBYGGÐIRNAR „THE WILD“ Sýnd með íslensku og ensku tali ! THE ALIBI Hnyttin spennumynd og frábær flétta.Með þeim Steve Coogan (Around the World in 80 Days), Rebecca Romjin (X-Men) ofl. Hann var meistari á sínu sviði þar til hann hitti jafnoka sinn. DEITMYNDIN Í ÁR 45 Í ÁFABAKKA OG KL. 2 Á AKUREYRI OG KEFLAVÍK NACHO LIBRE kl. 6 - 8 - 10:20 B.i. 7.ára. NACHO LIBRE VIP kl. 2 - 4:50 - 8 - 10:20 ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 1:45 - 4 - 6 LEYFÐ THE WILD m/ensku tali kl. 4 - 6:15 - 8:10 LEYFÐ THE ALIBI kl. 8:10 - 10:20 B.i.16.ára. BÖRN kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12.ára. STEP UP kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára. MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 1:45 - 3:50 LEYFÐ LADY IN THE WATER kl. 10:20 B.i. 12.ára. OVER THE HEDGE m/Ísl. tali kl. 1:45 - 3:50 LEYFÐ BÍLAR m/Ísl. tali kl. 1:45 - 4 LEYFÐ NACHO LIBRE kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7.ára. ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ STEP UP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 7.ára. UNITED 93 kl. 8 - 10:15 B.i.14.ára. MAURAHRELLIRINN m/Ísl tali kl. 2 - 3:50 LEYFÐ OVER THE HEDGE m/Ísl tali kl. 2 LEYFÐ eeeee LIB - topp5.is “ógleymanleg og mögnuð upplifun sem mun láta engan ósnortinn”eeee HJ, MBL eeee Tommi - Kvikmyndir.isÞann 11.september 2001 var fjórum flugvélum rænt. Þrjár þeirra flugu á skotmörk sín. Þetta er saga fjórðu vélarinnar. SparBíó* — 400kr SparBíó* : 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 1:45 og 2 Laugardag og Sunnudag Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA : I I l: : Í Í Nýtt eee L.I.B. Topp5.is eee S.V. Mbl. „THE WILD“ ÓBYGGÐIRNAR Sýnd með íslensku tali ! BÍLAR M/- Ísl tal. SÝND Í ÁLFABAKKA KL 1:45 OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. SÝND Í ÁLFABAKKA KL 1:45 MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal. SÝND Í ÁLFABAKKA KL. 1:45 (KEF. OG AK. KL. 2) ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. SÝND Í ÁLFABAKKA KL. 1:45 (KEF. OG AK. KL. 2) Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn uppgötvar dýrmætan slump af friðsæld í óreiðu umferðar, biðraða í verslunum og félagslegra skuldbindinga – hún er meira eins og ímynd eða hugar- ástand heldur en raunverulegur staður. Taktu sneið þína af himnaríki með þér hvert sem þú ferð. Naut (20. apríl - 20. maí)  Orka nautsins vex og dvín í dagsins önn, allt eftir því hverjir eru í kringum það. Taktu eftir því hvernig þú ert í einrúmi og hvernig þú ert innan um aðra, þannig færðu innsýn í persónuleika þinn. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það sem þú gerir og gefur í eigin nafni er kannski til þess fallið að auka orðstír þinn, en það sem þú gerir nafnlaust eyk- ur kraft þinn og gerir þér mun meira gott. Gefðu í laumi. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það er freistandi að rifja upp einfaldari og auðveldari tíma. En í raun og veru voru þeir hvorki einfaldir né auðveldir. Minnið er brigðult. Ef þú sættir þig við margbreytileika nútímalífshátta áttu eftir að skemmta þér mun betur. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið er með puttana á púlsinum og brunar með tískubylgjunni. Þú ert herra eða frú Réttur staður á réttum tíma. Ef þér finnst það ekki passa skaltu bara ganga út frá því og gá svo hvernig þér verður innanbrjósts seinna. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan hefur frekar sterkar skoðanir (sem er frekar vægt til orða tekið). Láttu þær allar í ljós, þannig getur þú verið viss um að móðga alla sem þú þekkir og það innilega. Smávegis hér og þar gerir þig hins vegar yndislega ósvífna. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Sumir ástvina þinna, eins og til dæmis litlu börnin, geta ekki fyllilega svarað fyrir gerðir sínar. Þar að auki hefur þú nóg á þinni könnu. Að ganga úr skugga um að refsingum sé útdeilt hæfilega er bara of þreytandi til þess að það sé hægt. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdrekinn hefur náð miklum árangri – ekki vegna þess að hann veit svo mikið, heldur vegna þess að hann gerir eitthvað með það sem hann veit. Þekking er máttur þess sem veit hvernig á að nota hana. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn er aldrei glaðari en þegar hann gefur sínum nánustu. En það þarf samt ekki að kosta neitt. Það besta sem þú getur gefið er eyra sem hlustar án þess að eitthvað annað sé að trufla ein- beitinguna. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Hollusta þín gagnvart ástvinum er óhagganleg. Þess vegna gæti þér brugð- ið við að komast að því að það besta sem þú getur gert fyrir þá í dag er að sýna eigingirni. Það sem þú gerir fyrir sjálfa þig er hinn endanlegi rausnarskapur. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vináttan er ekki alltaf laus við erjur. Ef þú gengur út frá því að hin manneskjan sé saklaus (þó að það virðist einstaklega ósennilegt í augnablikinu) hjaðna þær á svipstundu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Aðstæður krefjast þess að fiskurinn láti sér lynda við alla, jafnvel þá sem hann á ekkert sameiginlegt með. Burtséð frá því erum við öll kolefnislífverur í grunn- inn. Gildi okkar og lífsstíll lenda augljóslega í árekstri þegar Júpíter, eyðsluklóin mikla, og Neptúnus, stjórn- andi draumanna, eru í spennuafstöðu. Málefni sem koma upp eru til dæmis trú á móti verslun, ímynduð geta á móti raunveru- legri, og hvað maður eigi að gera við of mikið af því góða. Góð spurning ber mann hálfa leið í átt að svarinu. stjörnuspá Holiday Mathis Kínverjar ku vera með eigin út-gáfu af Lærlingi Donalds Trump í burðarliðnum. Meg- inspurningin er: Hvernig hljómar „Þú ert rekinn!“ á kínversku? Mun þetta verða fyrsti þátturinn sinnar tegundar í Kína sem nýtur fulls leyf- is frá upprunalegum eigendum vöru- merkisins. Það er raunveruleikakóngurinn Mark Burnett sem er heilinn á bak við Lærlinginn sem notið hefur tölu- verðra vinsælda. Kínverska ríkið hefur járnaga yfir því hvað má horfa á og hvað ekki, og nær ritskoðunin meðal annars til netheima, og tala gárungar um hinn mikla kínverska eldmúr (firewall), með tilvísun í hinn efnislega múr. Kennari við fjöl- miðlaháskólann í Kína, Miao Di, sagðist vonast til þess að kínverska útgáfan af Lærlingnum myndi höfða til kínversk almennings. „Það vita allir að Kínverjar elska peninga meira en Ameríkanar, en þeir myndu aldrei viðurkenna það op- inberlega,“ sagði Di. Chris Reitermann, fram- kvæmdastjóri auglýsingastofunnar Ogilvy & Mather í Peking, sagði það góðar fréttir að þekktur þáttur eins og Lærlingurinn væri að hefja inn- reið sína í kínverskt samfélag. „Margir af skjólstæðingum okkar eru hikandi við að auglýsa í kín- versku sjónvarpi þar sem efnið í sjónvarpinu hentar ekki vörunum nægilega vel,“ sagði Reitermann. Þátturinn kallast The Apprentice China á ensku en Xue Tu á kín- versku. Í fyrra var þátturinn Super Girl Voice, sem er kínversk eft- irherma af American Idol, gagn- rýndur harðlega af hinum komm- únísku sjónvarpseftirlitsmönnum.    Sjónvarpsáhorf í Bandaríkjunumvex með degi hverjum, þrátt fyrir að aðrir myndmiðlar keppi grimmt við sjónvarpið nú um stund- ir. Þetta er staðfest með tölum frá fjölmiðlarannsakandanum Nielsen Media Research. Met var slegið í ár, og vekur at- hygli að þeir sem glápa mest eru þeir sem hvað mest tileinka sér aðra miðla, eins og spilastokka, farsíma og tölvuleiki. Þetta þykir staðfesta að sjónvarpið er enn meginvett- vangur fyrir skemmtana- og afþrey- ingarneyslu almennings. Talsmaður hjá Nielsen sagði að í augnablikinu væri sem aðrir miðlar sköruðust ekki við sjónvarpsneysl- una. Meðaltalið á neyslu ein- staklinga er fjórir tímar og þrjátíu og fimm mínútur. Fólk folk@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.