Morgunblaðið - 07.10.2006, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rúmgafl
StólarSpeglar
ALLT FYRIR
SVEFNHERBERGIÐ
Komið og gerið góð kaup
Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40
Fataskápar Dýnu
Kommóður
Náttborð
OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„VIÐ HJÁ Landhelgisgæslunni er-
um mjög ánægðir með þessar breyt-
ingar og teljum að þetta skip sé í
raun mun betur búið en það nokk-
urn tíma var og með þesum breyt-
ingum er búið að lengja líftíma Týs
um fjöldamörg ár,“ sagði Georg
Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu
Íslands, þegar hann kynnti fjöl-
miðlum verulegar endurbætur sem
gerðar hafa verið á varðskipinu og
lauk nú nýverið.
Týr var, líkt og varðskipið Ægir á
síðasta ári, sendur til Póllands til
endurbóta og í raun má segja að fyr-
ir utan skrokkinn og vélarnar sé allt
um borð nýtt. Meðal endurbóta er að
sett var á skipið ný og stærri brú,
björgunar- og dráttarvinda var end-
urnýjuð og stækkuð, er nú með 47
tonna vinnuátaki með stillanlegum
átaksbúnaði og 90 tonna bremsu
auk þess sem ný stjórntæki voru sett
fyrir akkerisvindur í brú og við
vindur. Einnig eru komin ný stjórn-
tæki fyrir aðalvélar í brú og stjórn-
rými véla.
Þá var aðbúnaður starfsmanna
um borð mikið bættur og allar íbúð-
ir endurnýjaðar. Eru nú eins manns
herbergi og hluti herbergja þeirra
með sérbaðherbergi.
Stórt varðskip tekið í
notkun árið 2008
Týr var tekinn í notkun hjá gæsl-
unni árið 1975, skipið er um 342
tonn, 71 metri á lengd og 10 metrar
á breiddina. Það hefur þrisvar sinn-
um farið í gegnum gagngerar end-
urbætur en þessar voru þær viða-
mestu. „Með þessum nýju spilum og
nýju stjórntækjum er þetta skip al-
veg fullkomlega sambærilegt við
fullkomnustu skip af þessari stærð,“
segir Georg og bætir því við að varð-
skipin tvö sem nú eru í eigu gæsl-
unnar eigi að geta nýst mjög vel sem
strandgæsluskip. „Eins og ráðherra
hefur rætt um er verið að undirbúa
smíði á mjög stóru skipi sem mun
koma mjög vel í samstarf með þess-
um minni skipum, sem eru nú orðin
mjög öflug og búin nýjustu tækni.“
Björn Bjarnason, dóms- og kirkju-
málaráðherra og æðsti yfirmaður
Landhelgisgæslunnar, gerði grein
fyrir stöðu gæslunnar á þessum
miklum breytingatímum og fór í
ljósi þess yfir framgang mála í und-
irbúningi smíði nýs varðskips. „Nú
er unnið að yfirferð tilboðanna og
reiknað er með niðurstöðu og und-
irritun samninga í nóvember næst-
komandi. Nýja skipið verður með að
minnsta kosti 100 tonna togkrafti
þannig að það verður mun stærra en
Týr og Ægir og að sjálfsögðu búið
nýjustu tæknum.“
Ráðherra reiknar með að smíða-
tími varðskipsins taki um þrjátíu
mánuði og megi því gera ráð fyrir
að floti gæslunnar stækki um mitt ár
2009. Áætlaður kostnaður við smíð-
ina er um 2,6 milljarðar, eða 30
milljónir evra.
Eldsneytistanki komið fyrir
á varðskipunum
Í ljósi vaxandi umsvifa þyrlu-
sveitar Landhelgisgæslunnar vegna
brotthvarfs varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli var komið fyrir á Tý
eldsneytistanki fyrir þyrlueldsneyti
og verður unnt að dæla því á þyrl-
urnar án þess þær lendi á skipinu.
Dælubúnaður fyrir tankinn kemur
hins vegar ekki til landsins fyrr en í
lok mánaðarins og verður settur um
borð hér á landi. „Þetta bar svo
brátt að með brotthvarf Bandaríkja-
hers að þó svo að við höfum lagt
fram pantanir að ósk ráðherra strax
í mars um dælubúnað þá tekur það
þennan tíma að fá hann,“ segir
Georg en einnig hefur verið smíð-
aður tankur fyrir Ægi og verður
honum komið fyrir í skipinu hér á
landi og verður kominn í gagnið á
sama tíma.
Litið til gæslunnar á nýjan hátt
Ráðherra sagðist þess fullviss að
gæslan væri tilbúin til að sinna öll-
um þeim verkefnum sem á hana
verða lögð á komandi tímum og seg-
ir ásjónu gæslunnar breytta. „Ég
þarf ekki að fara mörgum orðum
um að til Landhelgisgæslunnar er
litið á nýjan hátt núna þegar varn-
arliðið er farið úr landinu,“ sagði
dómsmálaráðherra sem ræddi um
að það væri skýrt markmið hjá rík-
isstjórninni og dómsmálaráðuneyt-
inu að búa svo um hnútana að gæsl-
an geti sinnt umfangsmeiri
verkefnum en áður og orðið mik-
ilvægur þátttakandi í því örygg-
iskerfi sem þörf er á að byggja upp.
„Við höfum varnarsamninginn við
Bandaríkin og hann lýtur að land-
vörnum sérstaklega en það eru aðr-
ir þættir sem við þurfum að líta til,
sem varða löggæslu á hafinu og
landamæraeftirlit, og þar reynir
meira en áður á Landhelgisgæsl-
una.“
Eftir helgi fara ráðherrar, fulltrú-
ar dómsmálaráðuneytisins og Georg
Lárusson til Washington til við-
ræðna við strandgæsluna í Banda-
ríkjunum og aðra aðila. Ráðherra
sagði það vera hluta af sam-
komulaginu við Bandaríkin að stað-
festa á pólitískum grunni það góða
samstarf sem hefði verið um mörg
ár á milli gæslunnar og strandgæsl-
unnar bandarísku.
„Betur búið
en það nokk-
urn tíma var“
Morgunblaðið/Sverrir
Til í slaginn Eftir endurbæturnar á Tý er það fullkomlega sambærilegt við fullkomnustu skip af sömu stærð.
Varðskipið Týr er komið frá Póllandi þar
sem það gekk í endurnýjun lífdaga – aðbún-
aður er nú eins og hann gerist bestur
Í HNOTSKURN
»Hafist var handa við end-urbætur á Tý í Póllandi 20
apríl sl. og lauk þeim 23. sept-
ember.
»Að jafnaði unnu á milli 85og 90 manns við skipið
mestan hluta verkefnisins.
»Heildarkostnaður viðverkið nam um 190 millj-
ónum króna – eða rúmum 2,1
milljón evra.
Morgunblaðið/Sverrir
Glænýtt Sigurður Steinar Ketilsson skipstjóri Týs, Georg Lárusson for-
stjóri LHG og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra voru kátir í brúnni.
AUKIN gagnrýni á hefðbundna
meðferð geðröskunar er tilefni ráð-
stefnu sem haldin verður nk. þriðju-
dag, alþjóðageðheilbrigðisdaginn, á
Grand hóteli og ber yfirskriftina:
„Vaxandi vitund – aukin von. Saman
eflum við geðheilsu og drögum úr
sjálfsvígum“. Aðstandendur telja
tímabært að opna umræðuna og
leiða fram gagnstæð sjónarmið, vega
þau og meta.
Guðrún Guðmundsdóttir, verkefn-
isstjóri hjá Lýðheilsustöð, segir
gagnrýnina á hefðbundna meðferð
geðröskunar beinast annars vegar
að of mikilli áherslu á lyfjagjöf í með-
ferð og hins vegar að of lítilli áherslu
á þætti sem auðvelda fólki með geð-
raskanir að lifa eðlilegu lífi í sam-
félaginu. „Ég
held að þetta sé í
fyrsta skipti sem
svona ráðstefna
er haldin, þar sem
stefnt er saman
fagaðilum, að-
standendum og
notendum geð-
heilbrigðisþjón-
ustu,“ segir Guð-
rún en á
ráðstefnunni eru fjölmargir fyrirles-
arar sem ræða munu málefni geð-
heilbrigðis frá öllum sjónarhornum.
„Fordómar gegn geðsjúkdómum eru
því miður enn til staðar í samfélagi
okkar þó svo að margt hafi unnist í
þeim efnum. Við megum ekki
gleyma því að geðsjúkdómar eru
meðal algengustu sjúkdóma og gera
má ráð fyrir að engin fjölskylda í
landinu komist alfarið hjá því að tak-
ast á við vandamál sem tengjast
þeim.“
Eftir ráðstefnuna, á þriðjudags-
kvöld kl. 20, verður svo fjölmennt í
Hallgrímskirkju áður en haldið verð-
ur í geðgöngu niður að Tjörninni þar
sem kertum verður fleytt til minn-
ingar um þá sem tekið hafa eigið líf.
Ýmislegt verður gert í tilefni af al-
þjóðageðheilbrigðisdeginum og
verður m.a. geðhlaup þreytt í dag kl.
11 en mæting er í Nauthólsvík hálf-
tíma fyrr. Í Ráðhúsi Reykjavíkur
verður auk þess dagskrá fyrir alla
fjölskylduna og hefst hún kl. 14.
Ætla að draga fram
gagnstæð sjónarmið
Ráðstefna haldin um nýja hugsun í geðheilbrigðismálum
Guðrún
Guðmundsdóttir