Morgunblaðið - 07.10.2006, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Benidorm
12. eða 19. október í 1 eða 2 vikur. Þú bókar og tryggir þér sæti
og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tæki-
færið og tryggðu þér sumarauka á frábærum kjörum á einum vin-
sælasta sumarleyfisstað Íslendinga.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Benidorm
12. eða 19. október
frá kr. 29.990 m.v. 2
Allra síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð í viku, 12. eða 19. október.
Aukavika kr. 12.000.
VEÐUR
ÍMorgunblaðinu í gær var skýrt fráþví, að meirihluti sveitarstjórnar
Skagafjarðar hefði í fyrradag sam-
þykkt að í aðalskipulagi sveitarfé-
lagsins verði gert ráð fyrir þeim
möguleika að Héraðsvötn verði virkj-
uð við Skatastaði og Villinganes.
Augljóst er afviðbrögðum
við þessari
ákvörðun meiri-
hluta sveit-
arstjórnarinnar
að umtalsverðar
deilur eru í upp-
siglingu og Ómar
Ragnarsson í
startholunum.
Það er óþarfi að láta þær deilurverða of langvinnar. Nú eiga
Skagfirðingar að grípa tækifærið og
láta íbúa sveitarfélagsins taka þessa
ákvörðun í almennri kosningu innan
sveitarfélagsins. Þetta blasir við með
þeim hætti að ekki þarf um að deila.
Í raun og veru er hægt að gera þaðsama með hugsanlegt álver við
Húsavík og jarðvarmavirkjun á
Þeistareykjum. Afgreiða málin með
atkvæðagreiðslu meðal íbúa.
Það er líka hægt að gera vegna ál-vers við Helguvík og auðvitað
sjálfsagt að gera vegna fyrirhug-
aðrar stækkunar álversins í Straums-
vík.
Öll þessi mál á að afgreiða með at-kvæðagreiðslu meðal íbúa við-
komandi sveitarfélaga. Þá þarf ekki
að skamma ríkisstjórn eða Alþingi.
Þá geta þeir, sem hafa eitthvað við
ákvarðanir íbúanna í þessum sveit-
arfélögum að athuga, beint spjótum
sínum að þeim meirihluta, sem
myndast í hverju sveitarfélagi fyrir
sig.
Náttúruverndarsinnar geta þábeint kröftum sínum að því að
sannfæra íbúa í hverju sveitarfélag-
anna um réttmæti sjónarmiða þeirra
og hið sama geta talsmenn annarra
viðhorfa gert.
STAKSTEINAR
Austari Jökulsá
í Skagafirði.
Atkvæðagreiðsla
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
''
'-
'.
'/
'.
'-
/0
/-
/1
/2
-/
3!
4 3!
4 3!
4 3!
)
%
3!
4 3!
4 3!
3!
4 3!
4 3!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
/'
5
/'
//
/6
/1
/1
/6
/1
/-
/.
3!
4 3!
7 7 7 *%
3!
7 3!
4 3!
8
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
(
-
1
1
5
/
+'
-
/.
//
/6
4 3!
!4*%
7 4 3!
3!
3!
3!
3!
3!
7*%
9! :
;
!
"#
$
%
&
'
(
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
9:
=
#-
5
; * <
7 %
; %
:! :
*
%
<
4
)* 2 5
!!
* "
<; !
7 *
- ( <
=; *3
*>
"3(4>
><4?"@A"
B./A<4?"@A"
,4C0B*.A"
..-
'.(
2/0
.<.
?.</
.<.
1.0
(.6
/.'5
-/0
/''.
/2'2
/1-.
5-/
/('2
'./5
''2(
/62'
062
(.'
026
0'2
/(-1
/(-0
/('.
/(.6'/21
2<-
'<2
/<2
'<2
.<.
.<.
.<.
.</
2<2
'<6
/<6
'<2 .<'
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Lands-
björg hyggst heimsækja fjölda
heimila eldri borgara þessa lands
næstu tvær helgarnar og bjóða
fólki að fara yfir heimilið með tilliti
til þeirra slysagildra sem þar kunna
að leynast. Sigrún Þorsteinsdóttir,
sviðstjóri slysavarnasviðs Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, segir
að meirihluti slysa eldri borgara
gerist á heimilum þeirra og í ná-
grenni heimilanna, s.s. á bílastæð-
um eða í bílskúrum.
Hún segir að ýmsar slysagildrur
geti leynst á heimilunum fyrir eldri
borgara, s.s. lausar mottur, þrösk-
uldar og rafmagnssnúrur sem
liggja í gangveginum og ónóg lýs-
ing. Ennfremur segir hún að hálku-
blettir geti verið varasamir á vet-
urna.
Sigrún segir að fulltrúar Slysa-
varnafélagsins muni einnig bjóðast
til þess að fara yfir heimilið og
kanna hvernig eldvörnum sé háttað.
Eldri borgurunum verði þar boðið
að kaupa reykskynjara, eldvarn-
arteppi og slökkvitæki.
Þá muni fulltrúarnir dreifa bækl-
ingum Landsbjargar með upplýs-
ingum um þessi mál. Í honum er
einnig komið inn á umferðaröryggi,
mikilvægi hreyfingar og holls mat-
aræðis, að sögn Sigrúnar.
Sigrún segir að verkefnið hafi
verið prufukeyrt í Keflavík fyrr á
þessu ári og að það hafi gefið mjög
góða raun. „Við fengum mjög góðar
viðtökur,“ segir hún. Tvö heimili af
230 hafi ekki viljað bjóða fulltrúun-
um í heimsókn.
Þeir staðir sem heimsóttir verða
næstu tvær helgar eru: Seltjarn-
arnes, Árborg, Eyrarbakki, Vopna-
fjörður, Dalvík, Vestmannaeyjar,
Garður, Seyðisfjörður, Patreks-
fjörður og Grindavík. Hún segir
stefnt að því að fleiri staðir verði
heimsóttir í framtíðinni.
Fall langalgengasta ástæðan
Samkvæmt úttekt, sem gerð var
á slysum eldri borgara og byggist á
gögnum frá Slysaskrá Íslands og
slysadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss, frá árinu 2003, kemur
m.a. í ljós að fall er langalgengasta
ástæðan fyrir þeim slysum sem
verða hjá öldruðum. Hlutfallið er
73%. Þá er hlutfall kvenna sem
slasast mun hærra en karla, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Sigrún segir að í þessum slysum,
séu beinbrot algeng. Þá segir hún
að þessi slys hafi mikil áhrif á eldri
borgara; þeir séu lengur að ná fyrri
hreyfifærni en ella, nái þeir henni á
annað borð.
Kanna hvort slysagildrur leyn-
ast á heimilum eldri borgara
Morgunblaðið/Ásdís
Forvarnir Sigrún A. Þorsteinsdóttir með Erlu Ólafsdóttur á Skólabraut á Seltjarnarnesi
Í HNOTSKURN
»75% allra slysa eldri borg-ara gerast í heimahúsum,
skv. gögnum frá Slysaskrá Ís-
lands og slysadeild LSH frá
árinu 2003.
»Sysavarnafélagið telur aðhægt sé að fyrirbyggja
slys aldraðra með því að skoða
heimilin m.t.t. öryggis. Því
munu félagsmenn ganga í hús
og leita að slysagildrum.
Félagar í Slysa-
varnafélaginu
Landsbjörgu ætla
næstu tvær helgar
að ganga í hús
víða um land
Fáðu fréttirnar
sendar í
símann þinn