Morgunblaðið - 07.10.2006, Side 10
10 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HINN 10. október næstkomandi, á
alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn,
verður formlega opnuð miðstöð á
Húsavík fyrir fólk með geðraskanir
og þá sem vilja vinna markvisst að
geðrækt og geðheilbrigði. Um er að
ræða tilraunaverkefni til 15 mánaða.
Verkefnið er samstarfverkefni Fé-
lags- og skólaþjónustu Þingeyinga,
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og
Húsavíkurdeildar Rauða kross Ís-
lands. Ekki er enn ljóst hvort félags-
málaráðuneytið muni einnig koma að
verkefninu, segir í fréttatilkynningu.
Miðstöðin verður í senn athvarf og
iðja þar sem veitt verður samþætt
þjónusta á sviði félagsþjónustu, heil-
brigðisþjónusta á geðsviði, þjónusta
við fatlaða og samfélagsþjónusta.
Markmið miðstöðvarinnar eru
m.a. að skapa batahvetjandi stuðn-
ingsúrræði fyrir fólk með geðrask-
anir, að efla sjálfstraust og ábyrgð til
félagslegrar þátttöku, að auka færni
til samskipta og efla þátttöku í ýmiss
konar iðju. Önnur markmið eru m.a.
að draga úr neikvæðum áhrifum geð-
raskana á einstaklinga, fjölskyldur
og samfélagið í heild, að fækka inn-
lögnum á geðdeildir og að efla geð-
heilbrigði.
Miðstöðin verður opin öllum sem
telja sig geta nýtt sér starfsemina.
Opnunartími verður mánudaga, mið-
vikudaga og fimmtudag, frá kl
11:00–16:00, til að byrja með en vonir
standa til að hægt verði að lengja
opnunartímann.
Miðstöð fyrir
geðraskanir
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
MIKILVÆGUM áfanga hefur ver-
ið náð í sögu hins undraverða
hellis, Þríhnúkagígs í Bláfjalla-
fólkvangi, dýpstu hraunhvelfingar
heims, með uppsetningu öryggis-
girðingar í kringum gígopið. Saga
hellisins er reyndar 3.500 ára göm-
ul og því þætti e.t.v. hrokafullt að
fullyrða að girðing af mannahönd-
um sé mikilvægur áfangi í svo
langri sögu. En sé tekið tillit til
þeirrar merkingar sem útivistar-
fólk leggur í nálægð við slík nátt-
úrufyrirbæri og þeirrar einföldu
staðreyndar að hellisopið var farið
að skemmast vegna átroðnings, má
færa gild rök fyrir mikilvægi inn-
gripa af þessum toga.
Vinsælt er að ganga upp að
hellisopinu frá Bláfjallaskála og
hefur nýja girðingin gríðarlega
mikið að segja fyrir öryggi fólks á
brúninni. Til að gefa hugmynd um
stærð hellisins má taka samanburð
af því að Hallgrímskirkjuturn
kæmist vel fyrir niðri í gímaldinu –
jafnvel þótt undir honum væri 12
hæða blokk á hellisbotninum.
Það er því töluverður léttir fyrir
talsmann Þríhnúka ehf., Árna B.
Stefánsson, sem fyrstur manna
seig í hellinn árið 1974, að þessar
framkvæmdir séu afstaðnar. „Hvað
sjálfan mig varðar kemur ekki
lengur yfir mig þessi óþægindatil-
finning þegar ég kem hingað að
gígopinu,“ útskýrir hann. Auk girð-
ingarinnar hefur einnig verið af-
markaður göngustígur við opið.
Samkvæmt samningi við Kópa-
vogsbæ tóku Árni og samstarfs-
menn hans að sér að útbúa girð-
inguna og göngustíginn og var
gengið út frá því að hafa mann-
virkið eins lítt áberandi og unnt
var án þess þó að slá af öryggis-
kröfum.
Gríðarlegt útsýni af hnúknum
Óhætt er að mæla með göngu-
ferð að Þríhnúkagíg á góðum degi.
Gangan tekur 30–60 mínútur og
geysivíðsýnt er af hnúknum sjálf-
um. Í góðu skyggni sést allt til
Hlöðufells og Kálfatinda auk
fjallanna á Reykjanesinu, Brenni-
steinsfjalla, Keilis, að ógleymdu
stórskemmtilegu útsýni yfir höfuð-
borgarsvæðið, allt upp á Akranes.
Bæði opinberir aðilar og einka-
aðilar hafa stutt fyrirætlanir Þrí-
hnúka ehf. sem vilja m.a. fá því
svarað með rannsóknum hvort fýsi-
legt sé að gera hellinn aðgengileg-
an almenningi með göngum inn í
sjálfa hvelfinguna. „Hellirinn er al-
veg einstakt náttúruundur sem á
skilið okkar fyllstu virðingu sem
við höfum reynt að sýna í verki,“
segir Árni. „Við erum afskaplega
þakklátir fyrir traust Kópavogs-
bæjar og þann mikla stuðning og
traust sem Bláfjallafólkvangur og
Grétar Hallur Þórisson hafa sýnt
okkur.“
Þótt öryggi göngufólks hafi verið
vel tryggt með girðingunni, hafa þó
ekki verið settir upp neinir vegv-
ísar, hvorki í Bláfjöllum né annars
staðar við veginn þar sem fólk get-
ur lagt bílum sínum á réttum stað.
Samvinnunefnd höfuðborgarsvæð-
isins ákveður um þau mál.
Framtíðarhugmynd Þríhnúka
ehf. snýst í stuttu máli um að
kanna möguleikann á því að útbúa
útsýnispall inni í sjálfum hellinum,
með jarðgöngum inn í gíghálsinn.
Meginspurningin er sú hvort það
sé yfirhöfuð gerlegt og þar með
hvort hægt verði að veita slíkt að-
gengi almennings að hellinum.
„Það virðist vera hægt að gera
jarðgöng hér,“ bendir Árni á og
hefur jarðfræðiskýrsla Kristjáns
Sæmundssonar jarðfræðings ekki
útilokað þann möguleika. „Það þarf
að staðsetja hraunlög nánar og það
gerist ekki á annan hátt en með til-
raunaborunum. Það þarf ekki
kjarnaborun, eins og við töldum,
heldur nægir loftborun og síðan má
skoða jarðlögin með borholusjá.
Meta þarf þykkt einstakra hraun-
laga og ákveða staðsetningu hugs-
anlegra jarðganga. En allar rann-
sóknir benda til að unnt sé að bora
göng og tæknilega virðist einnig
vera hægt að gera lítinn útsýnis-
pall. Ef einhver er tilbúinn til að
styðja jarðgangagerð og sátt ríkir
um að kíkja inn í gíginn, þá fyrst er
hægt að ákveða hönnun á mann-
virkjum, sem mega þó ekki vera
yfirþyrmandi. Gígurinn verður að
njóta sín sem slíkur. Ef hér verður
flæði fólks verður einnig að ganga
frá varanlegri göngustígum.“
Þegar litið er yfir úfin og mosa-
vaxin hraunin í nágrenni gígsins
má ljóst vera að svæðið hefur ekki
verið fjölfarið. Árni bendir á að
landið hafi hvorki verið beitt né
virkjað. „Hér er bókstaflega ekk-
ert – nema fegurð,“ segir hann.
Öryggi göngufólks vel tryggt við gígopið
Morgunblaðið/Eyþór
Náttúruundur „Hellirinn er alveg einstakt náttúruundur sem á skilið okkar fyllstu virðingu sem við höfum reynt
að sýna í verki,“ segir Árni B. Stefánsson hellakönnuður, sem hér gengur upp hnúkinn að dýpstu hvelfingu heims.
Öryggisgirðing og göngustígur komið við Þríhnúkagíg, dýpstu hraunhvelfingu heims
Í HNOTSKURN
» Fyrst var talið að Þrí-hnúkagígur væri um
1.000 ára gamall en nú hefur
verið leitt í ljós að hann er
3.500 ára. Hellirinn er nærri
200 metra djúpur í suðvest-
urrás hans en um 120 metrar
eru niður á stall fyrir miðju
hans.
» Sérútbúnir sigmenn hafasigið í hellinn, en það er
engan veginn á færi almenn-
ings. Flestir geta þó rölt upp
að gígopinu og virt fyrir sér
botnlaust tómið og útsýnið af
hnúknum til allra átta.