Morgunblaðið - 07.10.2006, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● VIÐSKIPTI í Kauphöllinni í gær
náðu tæpum 19 milljörðum króna.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,31%
og var 6.378 stig í lok dags. Mest
hlutabréfaviðskipti voru með bréf
Kaupþings banka fyrir um 1,7 millj-
arða.
Bréf Marels hækkuðu mest, um
3,2%, og bréf Atlantic Petroleum
hækkuðu um 2,2%. Þá hækkuðu
bréf Kaupþings um 2,1%. Bréf Avion
Group og Mosaic Fashions lækkuðu
um 0,6% hvor um sig og þá lækkuðu
bréf Flögu Group um 5,9%.
Talsverð velta
í Kauphöllinni
● NYSIR UK Limited, sem er dótt-
urfélag Nýsis hf., hefur keypt 69%
hlutafjár í breska fasteignastjórn-
unarfélaginu Operon. Í tilkynningu
frá Nýsi kemur fram að kaupverðið
sé trúnaðarmál, en að velta félags-
ins á þessu ári sé áætluð um 6
milljarðar króna og að um 800
manns starfi hjá félaginu.
Operon er með samninga um
fasteignastjórnun á byggingum víða
um Bretland. Meðal annars rekur fé-
lagið byggingar og veitir stoðþjón-
ustu í þeim fyrir bresku ríkisstjórn-
ina, skóla, sjúkrahús, skrifstofur og
rannsóknastofur. Þá sinnir félagið
einnig rafmagns- og lagnahönnun,
verkefnisstjórnun og bygg-
ingastjórnun.
Meðeigendur Nysir UK í Operon
eru 6 helstu stjórnendur þess. Nýsir
á fyrir nokkra skóla og skrif-
stofubyggingar sem leigðar eru op-
inberum aðilum ásamt stoðþjón-
ustu.
Nýsir eykur umsvif
sín á Bretlandi
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
FYRIRTÆKIN MEST og Súp-
erbygg hafa sameinast og mun öll
starfsemi Súperbyggs fara fram
undir merkjum MEST frá og með
næsta mánudegi, 9. október. Árs-
velta sameinaðs fyrirtækis verður
um 6 milljarðar króna og starfs-
menn um 250 talsins.
Þórður Birgir Bogason, forstjóri
MEST, segir að með sameiningunni
náist fram hagræðing í rekstri og
gríðarleg aukning í vöruúrvali sem
efla muni þjónustu við viðskiptavini
fyrirtækisins til muna. „Með þessari
sameiningu verður til fyrirtæki sem
á sér enga hliðstæðu á íslenskum
byggingamarkaði,“ segir Þórður.
Þórður segir sameiningu MEST
og Súperbyggs breyta miklu fyrir
byggingariðnaðinn, bygg-
ingaverktakar geti nú fengið alla þá
þjónustu sem þeir þurfi á einum
stað, hjá fyrirtæki sem hafi nánast
eingöngu fagmenn í vinnu, og því
þjónusti fagmenn fagaðila. „Okkar
stefna er að vera með bestu, ákjós-
anlegustu vöruna í hverjum verð-
flokki fyrir sig og sameinum við há
gæði og góð verð,“ segir Þórður.
Súperbygg á rætur að rekja til
danska byggingavörufyrirtækisins
Dansk Trælast A/S sem árið 1991
stofnaði starfsstöð á Íslandi undir
merkjum Superbyg. 2003 var starf-
semin seld íslenskum starfsmönnum
og nafninu breytt í Súperbygg.
MEST varð til við sameiningu Merk-
úrs og Steypustöðvarinnar um síð-
ustu áramót.
Ný verslun í Norðlingaholti
Eftir sameininguna rekur MEST nú
verslanir á Bæjarflöt og Malarhöfða
í Reykjavík og í Bæjarhrauni í Hafn-
arfirði þar sem m.a. er selt hráefni
til innréttingaiðnaðarins. Unnið er
að byggingu nýrrar 3.600 fermetra
byggingavöruverslunar í Norð-
lingaholti sem ráðgert er að opna í
vetur. Ennfremur er fyrirhugað að
reisa 2.000 fermetra verslunar- og
þjónustuhúsnæði á Malarhöfða.
MEST rekur einnig söluskrifstofur
á Hringhellu í Hafnarfirði, á Reyð-
arfirði og Selfossi.
MEST og Súper-
bygg sameinast
Starfsemin öll undir merkjum MEST
Ánægðir Þórður Birgir Bogason, forstjóri MEST, og Pétur Hans Pét-
ursson, áður framkvæmdastjóri Súperbyggs og nú framkvæmdastjóri
byggingasviðs MEST, ánægðir með sameininguna.
OMX eignast 10% í
norsku kauphöllinni
SÆNSKA kauphallarsamstæðan
OMX hefur eignast 10% hlut í
norsku kauphöllinni, Oslo Børs
Holding. Kaupverðið er 287,5 millj-
ónir sænskra króna, jafnvirði tæp-
lega 3,0 milljarða íslenskra króna.
Frá þessu er greint í frétt á frétta-
vef norska blaðsins Dagens Nær-
ingsliv (DN).
Norska kauphöllin verður vænt-
anlega eina norræna kauphöllin sem
ekki er í eigu OMX, sem í síðasta
mánuði undirritaði viljayfirlýsingu
um kaup á Kauphöll Íslands. OMX
rekur kauphallirnar í Stokkhólmi,
Helsinki og Kaupmannahöfn auk
kauphallanna í Eystrasaltsríkjun-
um.
Per Eikrem hjá kauphöllinni í
Ósló segir í samtali við DN að Sví-
arnir séu velkomnir í hóp hluthafa
kauphallarinnar. Segir hann að þeir
telji kaupin væntanlega vera góða
fjárfestingu. Haft er eftir Magnusi
Boecker, forstjóra OMX, í fréttatil-
kynningu að norska kauphöllin sé
spennandi fjárfestingartækifæri,
OMX þekki vel til kauphallarinnar
og hlakki til frekara samstarfs við
hana.
Eftir að greint var frá viljayfirlýs-
ingunni um kaup OMX á Kauphöll
Íslands í síðasta mánuði sagði Bente
Landsnes, forstjóri norsku kauphall-
arinnar, að hún hefði ekki trú á því
að það myndi gagnast norskum
hlutabréfamarkaði að norsk hluta-
félög yrðu með á hinum svokallaða
norræna lista OMX, sem áætlað er
að hleypa af stokkunum á næstunni.
!
"# $%
&'
$
() # $
'* $ + *
,
,
&
-.&
-/
0/1 23 &43$
5
!" 67
&#
8
*
9:4
;<## #/ 2 !2
= !2
#"$" % &
03># 02*
%'()"
8?6@
0A2
2 2
< # 3
< 2 2
1 1 1
1
1 1 1
1
1
1
1
B CD
B 1CD
B CD
B 1CD
B CD
1
B CD
B CD
B CD
1
B CD
B 1CD
B CD
B CD
B CD
B CD
B 1 CD
1
1
1
1
1
B CD
E * 2
*#
; $2 A *# F
( 0
1
1
1
1
1
1
= 2 A )%
;E G # &4!*
2
1
1
1
1
9 *H
0I-
C
C
&;06
"J
C
C
?? K,J 0
C
C
K,J (!
9
C
C
8?6J "L M
C
C
FYRSTA eintak af Nyhedsavisen,
fríblaði Dagsbrúnar í Danmörku,
kom út í gær. Ekki gekk þó allt
áfallalaust fyrir sig fyrsta daginn en
vegna bilunar í prentvél var upplagið
aðeins um 250 þúsund eintök í stað
þeirra 500 þúsund sem dreifa átti.
Nyhedsavisen kom út í nokkurn veg-
inn réttu upplagi í bæði Óðinsvéum
og Árósum en hins vegar vantaði um
250 þúsund eintök upp á upplagið í
Kaupmannahöfn og þeir voru því
ófáir sem fóru fýluferð í póstkassann
til þess að sjá hið nýja dagblað.
„Þetta var að sjálfsögðu gremju-
legt en hafði ekki neitt með dreif-
inguna að gera. Ástæðan var vanda-
mál í prentsmiðjunni og strax á
morgun [í dag] verður þetta komið í
betra lag,“ segir Morten Nissen
Nielsen, framkvæmdastjóri Nyhed-
savisen.
„Ég er ekki í vafa um að það er
mest spunnið í Nyhedsavisen [af frí-
blöðunum] en þeir þurfa að vinna
betur með forsíðuna,“ sagði Henrik
Qvortrup ritstjóri Se & Hør í dómi
sínum um blaðið. „Ég vil ganga svo
langt að gefa þeim 10 [af 13] í ein-
kunn. Þeir eru með góðar fréttir og
ég tek hattinn ofan fyrir þeim að
þora að vera með þyngra efni sem
greinir þá frá hinum fríblöðunum.“
Qvortrup telur að Nyhedsavisen
muni ekki veita áskriftarblöðunum
minni samkeppni en fríblöðunum,
svo fremi sem ritstjórnin nái að
halda sömu gæðum í fréttaskrifum.
DNY / Alda Lóa Leifsdóttir
Andað léttar Ritstjórn Nyhedsavisen eftir útkomu fyrsta eintaksins.
Nyhedsavisen fær
jákvæða dóma