Morgunblaðið - 07.10.2006, Side 17

Morgunblaðið - 07.10.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 17 AÐALFUNDUR Samtaka fisk- vinnslustöðva lýsir furðu á þeim að- gerðum í efnahags- og peningamál- um sem beinlínis leiða af sér gengishækkun krónunnar, en slíkar aðgerðir grafa um leið undan rekstri útflutningsfyrirtækja í landinu. Á aðalfundi Samtaka fiskvinnslu- stöðva, sem haldinn var í gær, voru lagðar fram upplýsingar og útreikn- ingar um þróun heildarafla, afurða- verðs, gengis, hráefniskostnaðar og annarra liða er ráða miklu um af- komu í sjávarútvegi. „Þessir útreikningar staðfesta mismunandi afkomu einstakra vinnslugreina og sjávarútvegsins í heild. Verðlag á íslenskum sjávaraf- urðum í erlendri mynt hefur áfram haldist hagstætt að frátöldum afurð- um rækjuvinnslunnar. Síðbúin lækk- un á gengi krónunnar fyrr á þessu ári, eftir langt tímabil hágengis, hef- ur átt sinn þátt í bættri afkomu fyr- irtækjanna á þessu ári. Barátta Seðlabankans við of- þenslueinkennin með sífelldri hækk- un stýrivaxta er afar ómarkviss og bitnar harkalega á fyrirtækjum í út- flutnings- og samkeppnisgreinum. Áhrif peningastefnunnar virka fyrst og fremst til hækkunar á gengi krón- unnar en áhrif stýrivaxta á vaxtakjör til fjárfestinga í atvinnulífi eða íbúð- arhúsnæði eru nær engin. Frá síð- ustu hækkun stýrivaxta Seðlabank- ans, sem kom til framkvæmda seinni hluta september sl., hefur gengi krónunnar hækkað um 3% og hefur þá gengi krónunnar hækkað samtals um 10% frá miðju þessu ári. Aðal- fundur Samtaka fiskvinnslustöðva leggur áherslu á mikilvægi þess að fjölbreytt og öflugt atvinnulíf haldi áfram að þróast hér á landi. Það skiptir gríðarlegu máli fyrir þjóð- arbúið og lífskjörin í landinu að við nýtum þau tækifæri sem felast í eðli- legri nýtingu á auðlindum þjóðarinn- ar. Við þurfum jafnframt að kapp- kosta að slík nýting verði innan skynsamlegra marka og vandað verði til alls undirbúnings með hlið- sjón af umhverfi og náttúruvernd. Formlegur samstarfsvettvangur Aðalfundur Samtaka fiskvinnslu- stöðva samþykkir að SF beiti sér fyrir stofnun formlegs samstarfs- vettvangs samtaka atvinnurekenda í sjávarútvegi sem starfa innan Sam- taka atvinnulífsins. Meginhlutverk samstarfsins felist í nánara sam- starfi og samþættingu verkefna er varða kynningu og ímyndarmál sjáv- arútvegsins auk umhverfismála og annarra verkefna sem varða sameig- inlega hagsmuni sjávarútvegsins.“ Morgunblaðið/Sverrir Gagnrýni Arnar Sigurmundsson, formaður SF, flytur skýrslu samtakanna. Deilt á Seðlabankann á aðalfundi SF Áhrif peningastefnunnar virka fyrst og fremst til hækkunar á gengi krónunnar AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 ÚR VERINU www.icehotels.isNordica I Loftlei›ir I Flughótel I Hamar I Flú›ir I Rangá I Klaustur I Héra› Hótel Loftlei›ir, beinn sími : 444 4500 S: 444 4040 fundir@icehotels.is Guðfinna S. Bjarnadóttir Valfrelsi og skapandi umhverfi www.guðfinna.is Á morgun, sunnudaginn 8. október kl. 16:00, opnum við kosningaskrifstofu Guðfinnu S. Bjarnadóttur í Landsímahúsinu við Austurvöll. Við bjóðum alla velkomna til að kynna sér málefni frambjóðandans, þiggja kaffiveitingar og njóta dagsins með okkur. Við hlökkum til að sjá þig! Stuðningsfólk Guðfinnu S. Bjarnadóttur Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006 Kosningaskrifstofa - opnum við Austurvöll

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.