Morgunblaðið - 07.10.2006, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.10.2006, Qupperneq 20
Höfundurinn Johnny Depp sem Barry í Finding Neverland. VERÐLAUNA-rithöfundurinn Ger- aldine McCaughrean hefur sent frá sér framhald á hinni geysivinsælu sögu skoska rithöfundarins og leik- skáldsins, J. M. Barry um Pétur Pan, strákinn sem vildi ekki verða stór. Sagan sem heitir Peter Pan in Scar- let (Pétur Pan í skarlatsrauðu) hefst tuttugu árum eftir að upprunalegu sögunni sleppir en í millitíðinni hefur Wendy, vinkona, Péturs Pan, eignast börn og Týndu strákarnir hafa allir vaxið úr grasi – þar af leiðandi neyðst til að yfirgefa Hvergiland. Þegar Wendy og Týndu strákarnir snúa aft- ur hefur Hvergiland breyst til muna. Þar er nú hrikalegt um að litast, kuldalegt og hættulegt að vera. Gefin út í fjölmörgum löndum Fjölmargar framhaldsbækur hafa birst um ævintýri Péturs Pan í Hver- gilandi en saga Geraldines McCaug- hrean er sérstök fyrir þær sakir að hún er gerð í fullu samstarfi við rétt- hafa upprunalegu bókarinnar, barna- spítalann Great Ormond Street sem J. M. Barry arfleiddi að útgáfurétt- inum. McCaughrean er enginn byrjandi á barnabókasviðinu og hefur meðal annars unnið til Whitbread- barnabókaverðlaunanna fyrir út- gáfur sínar á klassísku sögunum um Örkina hans Nóa, Moby Dick og Kantaraborgarsögur. Hún var valin úr hópi 200 rithöf- unda til að taka verkið að sér. Samkvæmt útgefanda gengur sal- an á nýju bókinni framar öllum von- um og reiknað er með að hún koma út í þrjátíu löndum og á þrjátíu og fjórum tungumálum. Í viðtali við BBC sagði McCaug- hrean að hún hefði ekki gert sér í hugarlund hvað hún væri að koma sér út í þegar hún féllst á að skrifa framhaldið að Pétri Pan. „Ég er taugastrekktari núna en þegar ég skrifaði undir samninginn – ég áttaði mig ekki á því hversu vinsæl bókin yrði.“ Pétur Pan í skarlats- rauðu Framhald uppruna- legu sögunnar gefið út 20 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING MEÐAL þeirra verðlauna sem veitt verða í lokahófi Kvik- myndahátíðar í kvöld, verða Kvikmyndaverðlaun kirkj- unnar veitt í fyrsta sinn. Ein fyrirmynd verðlaunanna er kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar, en árið 2003 féllu þau í skaut íslensku myndinni Nóa Albinóa. Verðlaunin verða veitt mynd sem þykir vekja með áhorfendum áhugaverðar tilvistarspurningar. Dómnefnd skipa Árni Svanur Daníelsson, guðfræðingur, dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor, Gunnar J. Gunnarsson, lekt- or, og Oddný Sen, kvikmyndafræðingur. Verðlaunaveiting Kirkjan veitir kvik- myndaverðlaun Oddný Sen DANSLEIKHÚSIÐ frumsýnir fjögur ný dans- og tónverk í Verinu við Loftkastalann kl. 20 í kvöld, en sýningin er af- rakstur samstarfs íslenskra danshöfunda og erlendra tón- skálda. Í sýningunni er áhersla á samspil tónverka við dans – söng og vídeólist. Danshöfundar og dansarar eru Jóhann Björgvinsson, Irma Gunnarsdóttir, Halla Ólafsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir og Þórdís Schram, en tón- verkin eru eftir Jóhannes Bergmark, Hildi Guðnadóttur, Jukka Ruohomäki og Jean Francois Laporte. Danssýning Dansað á Norræn- um músíkdögum EINKASÝNING á verkum Valgerðar Hauksdóttur verður opnuð í Hafnarborg í dag. Á efri hæð sýnir Valgerður ný verk unnin á tímabilinu 2003 til 2006, ljósmyndir og grafíkverk unnin með blandaðri tækni. Á neðri hæð, Sverrissal, gefur að líta kynningu á hugmyndum og aðferðum er liggja að baki myndsköpun hennr. Valgerður er menntuð sem graf- íklistamaður með sérhæfingu í steinþrykki og æt- ingu. Hún nam myndlist í Bandaríkjunum og lauk meistaragráðu 1983. Hún hefur haldið fjölda sýn- inga á Íslandi og erlendis. Myndlistarsýning Verkin og það sem að baki þeim liggur Valgerður Hauksdóttir ÁRLEG Tónleikaröð kennara Tón- listarskóla Kópavogs (TKTK) hefst í dag með sembal-, fagott- og óbótón- leikum í Salnum. Tónleikaröðinni var hleypt af stokkunum af Kópavogsbæ í samvinnu við kennara skólans og Salinn haustið 2000 og eru fimm tón- leikar áformaðir í TKTK-röðinni á þessu starfsári. „Þessi tónleikaröð hófst í tengslum við flutning tónlistarskólans í nýja tónlistarhúsið í Hamraborg þar sem við erum til húsa ásamt Salnum,“ segir Árni Harðarson, skólastjóri Tónlistarskólans í Kópavogi. „Við hlutum velvild bæjaryfirvalda til að hrinda þessu af stað og nýta tengsl skólans og Salarins. Með tónleikun- um er kennurum búinn ákjósanlegur vettvangur til að vinna að þeirri frumsköpun, sem er svo mikilvægur þáttur í þjálfun hvers tónlistar- manns. Nemendum og aðstandend- um þeirra gefst líka kostur á að hlusta á kennara skólans og kynnast þeim betur sem listamönnum á tón- leikunum og við samtvinnum stund- um tónleikana kennslunni hjá nem- endum.“ Kynna möguleika sembalsins Aðspurður segir Árni að það sé enginn sameiginlegur þráður í tón- leikunum fimm í vetur. „Við byrjum á því að vera með tónleika í kringum sembalinn sem er nýjasta hljóðfærið í okkar eigu. Við fengum hann að gjöf frá Kópavogsbæ á 40 ára afmæli skól- ans. Hann var vígður seinasta vetur og við höfum fullan hug á að nýta okkur það vel og erum þegar byrjuð að bjóða upp á sembalkennslu.“ Töfratónar er yfirskrift tón- leikanna sem fara fram í Salnum kl. 13 í dag. Flytjendur eru þær Guðrún Óskarsdóttir semballeikari, Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari og Eydís Franzdóttir óbóleikari og efn- isskrá þessara fyrstu tónleika raðar- innar miðast við að kynna möguleika sembalsins í einleik og samleik og munu þær flytja verk eftir tónskáldin Louis Couperin, Jónas Tómasson, Dan Locklair og Thomas Vincent. Tónlist | Tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Kópavogs hefst í Salnum í dag Byrja á töfratón- um sembalsins Í HNOTSKURN »Á tónleikunum verðurfrumflutt tónverkið Són- ata XIII eftir Jónas Tóm- asson, skrifað fyrir fagott og sembal. »Þetta er fimmti veturinnsem Tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Kópavogs fer fram í Salnum. »Tónleikarnir eru opniröllum og miðasala fer fram í Salnum. Guðrún Óskarsdóttir semballeikari, Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleik- ari og Eydís Franzdóttir óbóleikari eru kennarar við Tónlistarskóla Kópa- vogs og munu spila saman á kennaratónleikum í Salnum í dag. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Semball, fagott og óbó DAGSKRÁ: Laugardag 7. okt. HÁSKÓLABÍÓ Salur 1 Kl. 15.45 Half Moon Kl. 18.00 Boss of it All Kl. 20.20 We Shall Overcome Kl. 22.35 Paradise Now HÁSKÓLABÍÓ Salur 2 Kl. 16.00 Keane Kl. 18.20 Gasolin Kl. 20.00 Frozen City Kl. 22.00 Life in Loops HÁSKÓLABÍÓ Salur 3 Kl. 18.00 Claire Dolan Kl. 20.00 Crows Kl. 22.00 Nothing HÁSKÓLABÍÓ Salur 4 Kl. 20.00 Turtles Can Fly TJARNARBÍÓ Kl. 14.00 Fresh Air Kl. 16.00 Wrath of Gods Kl. 18.00 Glue Kl. 20.00 Elegy of Life Kl. 22.00 The Road to Guantanamo IÐNÓ Kl. 14.00 When Children Play in the Sky Kl. 16.00 Act Normal Kl. 18.00 In Between Days Kl. 20.00 Unfolding Florence Kl. 22.00 The Cats of Mirikitani TENGLAR .............................................. www.filmfest.is Dómar um myndir Kvik- myndahátíðar eru á síðum xx-xx Kvikmyndahátíð í Reykjavík HÉR á landi er staddur fiðlusmið- urinn Andreas Aug- ustin frá Staufen í Þýskalandi, en hann verður með kynningu á hljóð- færum sínum í Hráa sal Listahá- skóla Íslands kl. 13.30 í dag. Milli kl. 11 og 17 tekur hann á móti gest- um, og þeim sem vilja skoða og prófa hljóðfærin hans. Andreas Augustin hefur 25 ára reynslu í fiðlusmíði; hann smíðar fiðlur, víólur og selló, og hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna. Hann fékk til dæmis 1. verðlaun í Stradivariusarkeppninni í Cremona 1979, og 1.- og heiðursverðlaun fyrir selló í alþjóðlegri fiðlusmiðakeppni, Jacobus Stainer, 2001. Andreas Augustin kemur með þrjár fiðlur, tvær víólur og eitt selló með sér til landsins. Fiðlusmiður kynnir hljóð- færi sín Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.