Morgunblaðið - 07.10.2006, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.10.2006, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI ÁRBORGARSVÆÐIÐ STJÓRN sundfélagsins Óðins mótmælir því harð- lega að byggð verði líkamsræktarstöð á sundlaug- arsvæðinu og segir að framkomnar hugmyndir um 50 m yfirbyggða sundlaug í tengslum við Sundlaug Akureyrar rúmist ekki með þeirri byggingu sem nú er fyrirhuguð, skv. tilkynningu frá félaginu. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu samþykkti bæjarstjórn í vikunni að auglýsa breyt- ingu á deiliskipulagi og veita eiganda Vaxtarrækt- arinnar leyfi til þess að byggja heilsuræktarstöð á milli sundlaugarinnar og Íþróttahallarinnar. Að mati stjórnar Óðins er það ótrúleg skamm- sýni að heimila umrædda breytingu á deiliskipu- lagi. „Eðlilegra er að fram fari heildarendurskoð- un á skipulagi sundlaugarsvæðisins með framtíðaruppbyggingu í huga. Fyrirhuguð bygg- ing þrengir hins vegar mjög að sundlaugarsvæð- inu og reisir skorður við eðlilegri þróun þess.“ Félagið telur ljóst að framkomnar hugmyndir um 50 metra yfirbyggða sundlaug í tengslum við Sundlaug Akureyrar rúmist ekki með þeirri bygg- ingu sem nú er fyrirhuguð. „Raunar er vandséð að um frekari uppbyggingu í tengslum við sundlaug- ina geti orðið að ræða, verði af hugmyndum um byggingu líkamsræktarstöðvar á þessum stað.“ Stjórn Óðins segir að flestum ætti að vera ljóst að bygging 50 metra yfirbyggðrar sundlaugar á Akureyri til sundkennslu, æfinga og keppni, er einungis spurning um tíma. „Slíkar laugar eru þegar til staðar eða á teikniborðinu í öllum stærri bæjarfélögum landsins. Nægir að benda á nýja laug í Reykjanesbæ því til staðfestingar og áætl- anir sem í gangi eru á Akranesi, í Hafnarfirði og víðar. Stjórn Sundfélagsins Óðins skorar á bæj- aryfirvöld að skoða málin í stærra samhengi þann- ig að ein framkvæmd verði ekki til þess að skerða möguleika á uppbyggingu til framtíðar.“ Hörð mótmæli sundfélagsins Stjórn Óðins segir fyrirhugað heilsuræktarhús skerða sundlaugarsvæðið Í HNOTSKURN »Stjórn sundfélagsins Óðins leggst alfar-ið gegn byggingu heilsuræktarhúss á svæðinu milli Sundlaugar Akureyrar og Íþróttahallarinnar. »Sundfélagið telur yfirbyggða 50 msundlaug ekki rúmast á svæðinu ef heilsuræktarhúsið rís. » Stjórn Óðins skorar á bæjaryfirvöld aðskoða málið í stærra samhengi. LA æfir nú leikritið Herra Kolbert en frumsýnt verður í lok mánaðar- ins. Hér er starfsfólk sýninarinnar; leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson (Maríubjallan) og leikarar Edda Björg Eyjólfsdóttir, Gísli Pétur Hinriksson, Guðjón Davíð Karlsson, Ólafur Steinn Ingunnarson og Unn- ur Ösp Stefánsdóttir. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Herra Kolbert farinn á stjá HÁSKÓLINN á Akureyri braut ekki jafnréttislög við ráðningu í starf lektors í fjölmiðlafræði við félagsvís- inda- og lagadeild, að mati kæru- nefndar jafnréttismála, en ákvörðun um ráðninguna var tekin í apríl 2005. Karl var ráðinn en kona sem einn- ig sótti um kærði þá niðurstöðu. Báðir umsækjendur voru taldir hæfir og kærunefndin telur, miðað við skilgreiningu starfsins og hvað var lögð áhersla á í auglýsingu, að rök skólans fyrir ráðningu karlsins teljist málefnaleg og að ekki verði talið að kynferði kæranda hafi ráðið því að hún hlaut ekki starfið. HA braut ekki lög Kynferði ekki talið hafa ráðið úrslitum Jón Erlendsson var kjörinn for- maður VG á Ak- ureyri á aðal- fundi í vikunni. Fundurinn skor- ar m.a. á ríki og sveitarfélög að ganga strax til samninga um tryggingu tekju- stofna handa sveitarfélögunum, svo þau fái hald- ið uppi nauðsynlegri þjónustu á landsbyggðinni. Ennfremur skorar fundurinn á ríkisvaldið að leggja aukið fé til öldrunarþjónustu með hækkun daggjalda. Jón formaður Vinstri grænna Jón Erlendsson VEGNA mjög góðrar aðsóknar á sumarsýningu Minjasafnsins á Ak- ureyri hefur verið ákveðið að fram- lengja sýningartímann til 19. nóv- ember nk. Safnið verður opið allar helgar frá klukkan 14–16 fram til 19. nóvember og eftir sam- komulagi. Sýningin nefnist „Ef þú giftist“ og er þar fjallað um brúð- kaup, brúðkaupssiði og ýmiskonar tískustrauma. Brúðkaupssýn- ingin framlengd FÉLAGAR í Veðurklúbbnum á Dalbæ telja að október verði mild- ur, ríkjandi norðaustan- og aust- anáttir. Þó komi dagar er grána mun niður eftir fjallshlíðum, og all- mikið verður um næturfrost. Mán- uðurinn í heild verður hæg- viðrasamur. Minnt er á að spáin fyrir september hafi ræst og að spá klúbbfélaga um mjög góða berja- sprettu hafi staðist fullkomlega. Veðurklúbburinn spáir mildu veðri Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | „Ég er bjartsýnn á góða uppbygg- ingu í heilbrigðisþjónustunni á Suðurlandi og mér finnst gott að starfa hérna. Uppbyggingin gerist ekki af sjálfu sér og allir þurfa að vera vakandi. Með sameiningu heilbrigðisstofnana á Suðurlandi var stefnt að því að gera hana öfl- ugri. Hver staður á Suðurlandi hefur sín sér- kenni og margar einingar geta verið brothætt- ar til dæmis þar sem einn læknir og hjúkrunarfræðingur halda uppi þjónustunni,“ sagði Magnús Skúlason, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Framkvæmdir eru að hefjast aftur við ný- byggingu stofnunarinnar á Selfossi eftir að hafa legið niðri um skeið vegna þess að ákveðið var að stækka nýbygginguna um eina hæð. Það varð til þess að leggja þurfti talsverða vinnu í hönnun í tengslum við stækkunina. Samningar við verktaka eru nú í höfn og mun hann hefjast handa á næstu dögum. Stækkun er flókið verkefni „Það var fyrir ári að það byrjuðu umræður um að fá þriðju hæðina ofan á nýbygginguna og eftir að það var ákveðið tók við hönn- unarvinna sem lauk í júlí og samstarfsnefnd um opinberar byggingar hefur síðan samþykkt breytingarnar. Stækkunin er viðbót við fyrsta áfanga byggingarinnar sem var uppsteypa hennar og frágangur á 2. hæð hússins og á lóð. Það er ekki orðið ljóst með framgang næsta áfanga sem er að fullklára húsið en búast má við að áætlun um hann verði tilbúin núna á haustdögum. En það er mjög brýnt fyrir okk- ur og líka þingmenn að vita hvernig þessi áætl- un verður og hvað næsti áfangi verður stór og hvenær honum muni ljúka. Við munum þrýsta á að þetta gerist sem fyrst. Það hefur legið fyr- ir að það er vilji hjá ráðuneytinu að klára þau verk sem byrjað er á áður en farið er í ný verk- efni,“ sagði Magnús og benti á að fram- kvæmdir sem þessar, þar sem verið er að bæta nýju húsi við eldra hús, væru flóknar og þeim fylgdi mikil röskun á viðkvæmri starfsemi. Það væri því nauðsynlegt að geta skipulagt fram- kvæmdir vel og tekið mið af starfseminni á sjúkrahúsinu. „Við erum að fá tvær hjúkrunardeildir inn í húsið sem veldur því um leið að það þarf að breyta gamla húsinu og færa til starfsemi þar svo þetta komist fyrir. Til dæmis þyrfti heilsu- gæslan að geta flutt strax í nýja húsið svo hægt sé að breyta núverandi húsnæði hennar fyrir aðra starfsemi sem flytja þarf til í húsinu. Það má því segja að breytingarnar á gamla húsinu séu í raun þriðji áfanginn sem nauðsyn- legt er að liggi fyrir um leið og framhaldið með annan áfanga skýrist,“ sagði Magnús. „Eftir allar breytingarnar verðum við komin með öfluga heilsugæslu hérna, 40 hjúkr- unarrými, auk sjúkra- og fæðingardeildar, samtals 31 rúm, ásamt auknu rými fyrir ýmsa stoðþjónustu. Fjöldi hjúkrunarrýma á Selfossi nær með þessu landsmeðaltali en þess ber að geta að íbúum hér á svæðinu fjölgar mjög hratt. Með þessari bættu aðstöðu getum við veitt meiri þjónustu og það verður mikill styrkur að fá þessa þriðju hæð ofan á húsið. Hún mun nýtast fyrir heilabilaða og síðan opn- ast möguleikar á hvíldarinnlögnum til skemmri tíma. Þetta á allt eftir að skipuleggja og líka aukna heimahjúkrun sem er stórt áhersluatriði en tillögur vinnuhóps um öldr- unarmál sem unnið er eftir ganga út á það að HSu geti veitt stofnunum á Suðurlandi sér- hæfða þjónustu. Í tillögum hópsins er líka gert ráð fyrir lítilli öldrunarlækningadeild svo ein- hver dæmi séu nefnd. Þetta eru atriði sem eru í deiglunni en byggingin hjálpar verulega til í því verkefni að bæta þjónustuna en það er ljóst að það er framundan spennandi uppbygging í heilbrigðisþjónustunni á Suðurlandi,“ sagði Magnús en Heilbrigðisstofnun Suðurlands tekur til 8 heilsugæslustöðva á Suðurlandi, sjúkrahússins á Selfossi og Sogns, ásamt því að þjónusta Litla-Hraun. Hjá stofnuninni eru hátt á fjórða hundrað starfsmenn. Velta næsta árs er áætluð 1.480 milljónir auk Réttargeðdeildarinnar á Sogni með 180 milljónir. Í fjárlögum er að sögn Magnúsar leiðrétting fyrir stofnunina sam- kvæmt ákveðnu reiknilíkani sem metur þjón- ustumagn út frá íbúafjölda o.fl. Þessi leiðrétt- ing nemur 38 milljónum. Að sögn Magnúsar er einnig nauðsynlegt að taka tillit til aldurs- samsetningar íbúanna á þjónustusvæðinu því það er þáttur sem hefur áhrif á kostnað. Ekki liggur fyrir leiðrétting fyrir rekstur ársins 2006 og fyrri ára en um síðustu áramót var uppsafnaður halli 104 milljónir og gerir Magnús ráð fyrir að hann verði hátt í 200 millj- ónir króna um næstu áramót. „Við gerum okk- ur vonir um leiðréttingu á þessu vegna þess að hallinn er tilkominn vegna aukinnar þjónustu við vaxandi íbúafjölda og auknar kröfur til þjónustunnar,“ sagði Magnús. Krefjandi og skemmtilegt „Ég kann vel við þetta starf og mér finnst gott að starfa á Suðurlandi, þetta er krefjandi og skemmtilegt starf sem fylgir manni auðvit- að hvert sem maður fer. Jú, jú, ég reyni að nota frítímann vel og reyni að stunda útiveru með konu minni, hef gaman af stangveiði, gönguferðum ofl Svo stunda ég sund og aðra líkamsrækt og les talsvert,“ sagði Magnús þegar hann var inntur eftir því hvernig hann verði frítímanum. Hann var í nokkur ár for- maður Knattspyrnudeildar Breiðabliks sem er fjölmennasta knattspyrnufélag landsins og á syni sem leika með liði félagsins. „Ég fylgist vel með knattspyrnunni, bæði í efstu deild og annars staðar. Svo fer ég á leiki eins og ég hef gert í mörg ár,“ sagði Magnús Skúlason. Spennandi uppbygging framundan Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Framkvæmt Magnús Skúlason, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, við ný- byggingu stofnunarinnar á Selfossi. Framkvæmdir eru nú í fullum gangi á svæðinu. Magnús Skúlason er áhugamaður um útivist og knattspyrnu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.