Morgunblaðið - 07.10.2006, Page 23

Morgunblaðið - 07.10.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 23 SUÐURNES Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn: NÝ HUGSUN Í GEÐHEILBRIGÐISMÁLUM Ráðstefna 10. október 2006 kl. 8-16 á Grand hóteli Reykjavík Lýðheilsustöð í samvinnu við Landlæknisembættið, Landspítala – háskólasjúkrahús, Heilsugæsluna í Reykjavík og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík, stendur fyrir ráðstefnu á alþjóða geðheilbrigðisdeginum sem í ár ber yfirskriftina: Vaxandi vitund – aukin von. Saman eflum við geðheilsu og drögum úr sjálfsvígum. Á undanförnum árum hefur gagnrýni á hefðbundna meðferð geðröskunar aukist. Þessi gagnrýni beinist annars vegar að of mikilli áherslu á lyfjagjöf í meðferð og hins vegar að of lítilli áherslu á þætti, sem auðvelda fólki með geðröskun að lifa svokölluðu eðlilegu lífi í samfélaginu. Tímabært er að opna þessar umræður og leiða fram gagnstæð sjónarmið, vega þau og meta. Þátttakendur skrái sig á ráðstefnuna fyrir 8. október 2006 á vef Lýðheilsustöðvar, www.lydheilsustod.is, eða í síma 5 800 900. Einnig verður skráning við innganginn. Ráðstefnugjald 3000 kr. og 1500 kr. fyrir námsmenn og öryrkja. Opnun ráðstefnu: Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Ávarp: Eydís K. Sveinbjarnardóttir, svíðsstjóri á geðsviði LSH, Fyrirlesarar: Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur WHO EURO, Halldóra Ólafsdóttir, geðlæknir, Halldór Júlíusson, sálfræðingur, Elín Ebba Ásmundsdóttir, iðjuþjálfi, Ellý Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi, Guðný Anna Arnþórsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur, Elísabet Jökulsdóttir, fulltrúi notenda, Erna Indriðadóttir, fulltrúi aðstandenda, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, alþingismaður, Jón Kristjánsson, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra. Pallborðsumræður: Stjórnandi Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar og ÖBÍ. Lokaorð: Kristófer Þorleifsson, formaður Geðlæknafélags Íslands. Ráðstefnuslit: Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar. Ráðstefnustjóri: Egill Helgason LANDIÐ Akranes | Mikið hefur verið að gera í Grundaskóla á Akranesi þessa vik- una. Skólinn á 25 ára afmæli og hald- ið var upp á afmælið með pomp og prakt. Þriðjudag og miðvikudag var opið hús fyrir bæjarbúa, þar sem margir litu inn og fylgdust með starfi skól- ans. Á fimmtudag var svo húllum- hæ-dagur í skólanum, þar sem byrj- að var að fara í afar litríka skrúð- göngu, þar sem bekkir klæddust mismunandi litum. Eftir skrúðgöng- una var safnast saman í brekkusöng á skólalóðinni undir stjórn Flosa Einarssonar. Allir tóku vel undir í söngnum og þar ríkti mikil stemn- ing, eins og myndin gefur til kynna. Að lokum fóru krakkarnir í ýmsa leiki og þrautir, þar sem allir, jafnt stórir sem smáir, skemmtu sér sam- an. Mikið um dýrðir í Grundaskóla Húsavík | Opnuð verður miðstöð á Húsavík fyrir fólk með geðraskanir og þá sem vilja vinna markvisst að geðrækt og geðheilbrigði. Opnunin fer fram 10. október, á alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn. Verkefnið er samstarfsverkefni félags- og skólaþjónustu Þing- eyinga, Heilbrigðisstofnunar Þing- eyinga og Húsavíkurdeildar Rauða kross Íslands. Er þetta tilaunaverk- efni sem á að standa í 15 mánuði, segir í fréttatilkynningu. Miðstöðin verður í senn athvarf og iðja þar sem veitt verður sam- þætt þjónusta á sviði félagsþjón- ustu, heilbrigðisþjónusta á geð- sviði, þjónusta við fatlaða og samfélagsþjónusta. Aðstaðan verð- ur opin þrjá daga í viku til að byrja með, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga, kl. 11 til 16.30. Miðstöð fyrir fólk með geðraskanir opnuð Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Grindavík | Vinna við stækkun húsnæðis heilsulindarinnar við Bláa lónið er í fullum gangi og mun þeim ljúka fyrir vorið. Núverandi húsnæði meira en tvöfaldast án þess að gert sé ráð fyrir nema óverulegri fjölgun gesta. „Markmiðið er að auka vellíðan gestanna svo þeir geti noti dval- arinnar sem allra best,“ segir Magnea Guðmundsdóttir kynning- arstjóri um markmið fram- kvæmdanna. Þröngt hefur verið um gesti á mestu annatímum og hafa stjórnendur fyrirtækisins haft áhuga á að bæta úr því. Vegna þess hversu þröngt er um heilsulindina í hrauninu við Bláa lónið þarf að byggja við húsið á þremur stöðum. Búningsklefar eru stækkaðir og þeir sem fyrir eru innréttaðir upp á nýtt. Þar verða 750 læstir skápar sem er aðeins 50 skápa aukning. Jafnframt verður boðið upp á einkaklefa, sjö klefa sem hver er fyrir tvo til fjóra gesti. Gestirnir hafa aðgang að innilaug og sérútgang í lónið. Magnea segir að eftirspurn hafi verið eftir þess- ari þjónustu, ekki síst frá þekktu fólki sem vilji vera út af fyrir sig. Í annarri byggingu verður nýr veitingastaður. Hann er byggður inn í hraunið og er náttúrulegur hraunhamar einn veggur staðar- ins. Sérinngangur verður inn í nýja veitingastaðinn og er ætlunin að auka áherslu á þennan þátt starf- seminnar að sögn Magneu og bjóða þar upp á mannfagnaði af ýmsu tagi. Núverandi veitingastaður verður gerður að sjálfsafgreiðslu- stað og pláss aukið fyrir móttöku og miðaafgreiðslu. Í þriðju bygg- ingunni fær Blue Lagoon-verslun- in stóraukið pláss auk þess sem starfsfólk fyrirtækisins fær betri vinnuaðstöðu. Það þarf mikla skipulagningu til að vinna að framkvæmdum sem þessum á fjölmennum viðkomustað ferðafólks. Hartmann Kárason fasteignastjóri segir að þetta hafi tekist furðanlega. Reynt sé að sprengja og vinna störf sem hávaði stafar af á nóttunni. Framkvæmdum við tvöföldun húsnæðis Bláa lónsins miðar vel áfram Boðið upp á einkaklefa Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Veitingastaður í hrauninu Nýr veitingastaður er byggður inn í hraunið. Magnea Guðmundsdóttir og Hart- mann Kárason standa hér við hraunvegg sem setja mun mikinn svip á staðinn. Í HNOTSKURN »Nýir búningsklefarverða teknir í gagnið með vorinu. »Nýr veitingastaður, rúm-góð verslun og aðstaða starfsfólks. HAFINN er undirbúningur átaks sem ætl- að er að koma í veg fyrir ofsaakstur á Suð- urnesjum og helst að útrýma bílslysum. „Ég geng hér daglega um og ek auk þess Reykjanesbrautina á hverjum degi. Ég hef séð mörg slæm dæmi um ofsaakstur,“ segir Hjálmar Árnason alþingismaður sem boð- aði ýmsa aðila til fundar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja til að ræða málin og undirbúa aðgerðir. Hann segir að umræðan um hrað- akstur og alvarleg slys á Suðurnesjum hafi einnig ýtt við sér og hræðsla fólks við fleiri slys. Til fundarins komu meðal annars bæj- arstjórar á Suðurnesjum, fulltrúar trygg- ingafélaga, lögreglunnar, sýslumanns, Um- ferðarstofu og Vegagerðarinnar. Hjálmar segir nauðsynlegt að koma á samvinnu sem flestra til að breyta umferð- armenningunni á svæðinu. Hópurinn mun koma saman aftur til að ákveða hvernig best sé að ná markmiðum um að koma í veg fyrir ofsaakstur og fækka slysum. Almenningur virkjaður Ýmsar hugmyndir komu fram á fundin- um, að sögn Hjálmars. Flestar miða að því að virkja almenning. Nefnir hann að lög- reglan sé að huga að því að koma upp sér- stökum síma og netfangi þar sem almenn- ingur geti tilkynnt um ofsaakstur. Ræddar hafi verið hugmyndir hvernig hægt sé að ná beint til ungmennanna sem þessa iðju stunda. Hugmyndir hafi komið fram um að foreldrum verði gert kleift að gera skriflega samninga við börn sín um afnot af bílum og jafnvel notka ökurita til að fylgjast með aksturslagi. Tryggingafélögin hafi í báðum tilvikum til athugunar að gefa fólki afslátt af iðgjöldum. Undirbúa átak gegn hraðakstri og bílslysum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.