Morgunblaðið - 07.10.2006, Page 29

Morgunblaðið - 07.10.2006, Page 29
Morgunblaðið/RAX Hundar Forðast ætti að gefa hundum sætuefnið xynitol sem m.a. er í sykurlausu tyggigúmmíi. BANDARÍSKIR dýralæknar hafa varað við því, að því að greint var frá á fréttavef AP, að al- gengt sætuefni, xynitol, geti valdið lifrarbilun í hundum og jafnvel dregið þá til dauða. Xynitol er m.a. í mörgum tegundum sykurlauss tyggi- gúmmís, ýmsu sælgæti, kökum og tannkremi. Rannsóknarmenn við eiturefnadeild Dýra- verndarsamtaka Bandaríkjanna söfnuðu upp- lýsingum um átta hunda sem þurftu lækn- ismeðferð eftir að hafa étið vörur sem innihéldu xynitol. Hundarnir veiktust allir og fimm þeirra drápust eða voru aflífaðir vegna lifrarbilunar, hugsanlega af völdum xynitols. „Fólk veit ekki að hundar geta drepist af völdum sykurlauss tyggigúmmís. Ég vissi þetta ekki fyrr en ég tók þátt í þessari rannsókn. En fólk ætti að hafa þetta í huga,“ sagði Sharon Gwaltney-Brant, annar höfunda greinar um rannsóknina í tímariti samtaka bandarískra dýralækna. Gwaltney-Brant sagði að lítið magn af xyni- tol gæti aukið innsúlínlosun frá briskirtli og það gæti síðan leitt til blóðsykursskorts og jafnvel valdið dauða. „Ellefu kílógramma hundur sem étur gramm af xynitol ætti að fá læknismeðferð,“ sagði Gwaltney-Brant. Vara hundaeigendur við sætuefninu xynitol Sýrukennd Sumarlínan hjá Emm- anuel Ungaro-tískuhúsinu. Stjörnustælar Viktor & Rolf feta aldrei troðnar slóðir. gæludýr MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 29 Danska neytendatímaritið Tænk hefur látið rannsaka 16 samfellur fyrir ungbörn frá hálfs árs aldri til tveggja ára aldurs. Í ljós hefur komið að sex af þeim innihalda efni sem geta haft skaðleg áhrif á heilsu fólks. Fatnaður merktur Disney kom verst út í prófuninni þar sem samfella með þrykkimynd innihélt efnið DEHP sem er talið slæmt af- brigði Þalats. Efnið sem um ræðir er bannað að nota í leikfangaframleiðslu, en þó einungis í leikföng sem börn geta stungið upp í munninn og þar með gildir bannið ekki fyrir fatnað og ekki heldur fyrir leikföng fyrir stóra krakka. Fatnaðurinn var m.a. til sölu í hjá ISO-verslanakeðjunni í Danmörku en þar hefur hann verið tekinn úr sölu. Varasöm efni í smábarna- fatnaði EF STÆRÐIN Á ÍBÚÐINNI ÞINNI KEMUR Í VEG FYRIR AÐ ÞÚ GETIR BOÐIÐ GESTUM HEIM EKKI KENNA OKKUR UM Hnota Tilboð 89.000 Hæð 75 cm x lengd 183/263 x breidd 91,5 Ný gerð Fáðu frían vörulista í verslun okkar BoConcept®Íslandi Faxafeni 8, 108 Reykjavík. Sími 577 1170 - Faxnúmer 577 1172 www.boconcept.is Hvar fást húsgögn sem sameina notagildi og frábæra hönnun? Jú, hjá BoConcept® þar sem við leggjum metnað okkar í að ná fram því besta í öllum fram- leiðsluvörum okkar - allt frá heildarhönnun til minnstu smáatriða. Þú munt einnig sjá að verðið er jafn úthugsað og húsgögnin og aukahlutirnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.