Morgunblaðið - 07.10.2006, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 07.10.2006, Qupperneq 46
46 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Haustmessa í Krýsuvíkurkirkju MESSAÐ verður í Krýsuvíkurkirkju sunnudaginn 8. október kl 14.00. Sr. Kjartan Jónsson prédikar en sr. Gunnþór Þ. Ingason þjónar fyrir alt- ari. Sveinn Sveinsson leikur á þver- flautu og Stefán Ómar Jakobsson á harmonikku. Sætaferð verður frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 13:00. Eftir messu verður boðið upp á messukaffi í Sveinshúsi. Þar stend- ur yfir ný sýning á verkum Sveins Björnssonar sem nefnist: „Siglingin mín“. Hafa trúarbrögðin komið óorði á Guð? GUÐSÞJÓNUSTA sunnudagsins kl. 14.00 verður helguð spurningunni um það hvort skipulögð og stofn- unarvædd trúarbrögð hafi ekki komið óorði á Guð. Trú manna á æðri mátt hefur í gegnum aldirnar átt stóran þátt í því að móta sjálfs- mynd og sjálfsvitund bæði ein- staklinga sem og heilu menningar- samfélaganna. Æði oft hefur trú manna verið notuð til að aðgreina, skapa fjarlægðir, fordóma og ótta á milli samfélaga. Hvað veldur? Getur verið að hinir sjálfsréttlátu og rétt- trúuðu hafi alið um of á ótta og for- dómum í stað þess að byggja brýr gagnkvæms skilnings, umburð- arlyndis og kærleika í Guðs fjöl- breytilegu sköpun? Minnum einnig á bænastundir í safnaðarheimilinu á þriðjudögum kl. 11:30 og kyrrðarstundir með alt- arisgöngu í kirkjunni á fimmtudög- um kl. 12:00–12:30. Helgihald í Seljakirkju 8. október SUNNUDAGASKÓLINN verður á sínum stað kl. 11.00. Mikill söngur, biblíusagan og ný mynd í möppuna. Almenn guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar. Kirkjukórinn leiðir sönginn undir stjórn tónlistarstjóra kirkjunnar Jóns Bjarnasonar. Sjá nánar um starf kirkjunnar á seljakirkja.is Námskeið um bænina í Breiðholtskirkju ÞRIÐJUDAGINN 10. október hefst í Breiðholtskirkju í Mjódd fræðslu- námskeið um bænina þar sem m.a. verður fjallað um notkun bæna- bandsins. Námskeiðið verður í umsjá presta kirkjunnar og verða samverurnar alls fjórar, þriðjudagana 10., 17., 24. og 31. október kl. 20:00–22:00. Nánari upplýsingar um nám- skeiðið má fá í kirkjunni í síma 587 1500 og þar er einnig tekið við skráningum. Einnig getur fólk skráð sig við upphaf samverunnar á þriðjudaginn. Kaffisala í Kristniboðssalnum ÁRLEG kaffisala Kristniboðsfélags karla í Reykjavík verður í Kristni- boðssalnum, Háaleitisbraut 58–60, norðurenda og 3. hæð, sunnudaginn 8. október kl. 14–17. Karlarnir í fé- laginu hafa lengi haft þann sið að bjóða hverjum sem vill að kaupa kaffi hjá sér og renna því –tesop- anum eða gosdrykknum – niður með gómsætum kökum og brauði og styðja um leið málefnið. Allur ágóði af kaffisölunni rennur til starfs Kristniboðssambandsins í Eþíópíu, Kenýu og Asíu. Þrír starfsmenn eru að verki í Kenýu, fjórir í Eþíópíu og tveir í Suð- austur-Asíu. Kvöldmessa í Laugarneskirkju NÚ er komið að kvöldmessu októ- bermánaðar. Þær eru ólíkar öðru þessar messur, þar rennur saman tónlist, tilbeiðsla og samtal um rétt- læti og trú með þeim hætti að margar raddir heyrast. Við erum samferðamenn í óvissu lífsins og höfum öll margt að læra hvert af öðru. Kór Laugarneskirkju leiðir gospelsönginn ásamt djasskvartetti Gunnars Gunnarssonar. Sr. Bjarni Karlsson prédikar en sr. Hildur Eir þjónar við altarisgönguna ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálp- ara en hópur unglinga mun flytja frumsamdar bænir. Messukaffi Gunnhildar Einarsdóttur kirkju- varðar bíður svo allra að messu lok- inni. Hafið hugfast að djasskvartett Gunnars Gunnarssonar leikur síð- asta hálftímann á undan messu, svo gott er að koma tímanlega í góð sæti og njóta alls frá byrjun. Trúfræðsla Laugarneskirkju NÚ verður fram haldið þeirri dag- skrá í trúfræðslu Laugarneskirkju, sem riðlaðist vegna umræðu um virkjanamál. Sr. Bjarni Karlsson sóknarprestur mun halda áfram að svara með skipulögðum hætti spurningunni „Hvers vegna lækkar trúin kvíða?“Trúfræðslan fer fram í safnaðarheimili Laugarneskirkju hvert þriðjudagskvöld kl. 20:30 og er öllum frjálst að koma og fara að vild. Hálftíma áður, kl. 20:00, er kvöldsöngur í kirkjunni sem jafnan er fjölsóttur, þar sem tónlist- armennirnir Þorvaldur Hall- dórsson og Gunnar Gunnarsson leiða gospelsönginn. Er kjörið að koma fyrst til kirkjunnar og ganga svo yfir í safnaðarheimilið í trú- fræðslutímann. Klassísk messa í Bústaðakirkju LUX Aeterna, sem er áhugahópur um klassíska messu og iðkun greg- orssöngs, stendur fyrir messu með gregorslagi 2. sunnudag hvers mánaðar kl. 20 í Bústaðakirkju. Hópurinn kallar til helgiþjónustu ýmsa presta. Kynning og æfingar á messunum verða hálfri klukku- stund fyrir messuna sjálfa eða kl. 19:30 í Bústaðakirkju. Næsta messa verður sunnudag- inn 8. október kl. 20, prestur er sr. Birgir Ásgeirsson. Allir eru hjart- anlega velkomnir. Klassísk messa og greg- orssöngur er dýrmætur arfur kirkj- unnar og kjarnmikið andlegt fóður. Það er von þeirra sem að þessari messuröð standa að með henni skapist vettvangur fyrir þau sem gleði hafa af því að iðka klassíska tilbeiðsluhætti, hins elsta söngs kirkjunnar, sem tjáningarform trú- arinnar. Kirkja, trú og samkynhneigð ÞRIÐJUDAGINN 10. október kl. 18.00 hefst í Leikmannaskóla þjóð- kirkjunnar námskeið þar sem fjallað verður ítarlega um kirkju, trú og samkynhneigð. Kennarar á námskeiðinu eru þau dr. Kristinn Ólason, dr. Arnfríður Guðmunds- dóttir, sr. Kristján Valur Ingólfsson og Grétar Einarsson. Fjallað verð- ur um hvernig við túlkum Biblíuna þegar kemur að málum sem þess- um og farið verður yfir drög að áliti kenningarnefndar þjóðkirkj- unnar og guðfræðilegan bakgrunn þess. Kynntar verðar tillögur að ritúali til notkunar við blessun á staðfestri samvist. Einnig verður fjallað um trú, kirkju og samkyn- hneigð út frá sjónarhorni samkyn- hneigðra, reynslu og veruleika. Kennt er í Grensáskirkju, 4 þriðjudaga 10.–31. október, 2 tíma í senn. Skráning fer fram í síma 535 1500 eða á vef Leikmannaskól- ans, www.kirkjan.is/leik- mannaskoli . Haustlitaferð Neskirkju ELDRI borgarar fara í ferð í Hval- fjörð og á Akranes miðvikudaginn 11. október. Ferðin hefst kl. 13. Á Saurbæ mun sr. Kristinn Jens Sig- urþórsson taka á móti hópnum í Hallgrímskirkju og segja frá stað og kirkju. Þaðan verður haldið til Akraness þar sem safnasvæðið verður skoðað. Sr. Eðvarð Ingólfs- son rithöfundur mun ræða við ferðalanga. Fararstjórar eru Úrsúla Árna- dóttir og Sigurður Árni Þórðarson. Skráning í Neskirkju. Sálmaæfing í Neskirkju MARGA langar til að syngja með í messunum, en eru ekki alveg viss um lag, eigin rödd og hvort þau eigi að þora. Nú er tækifæri til að und- irbúa sönginn. Steingrímur Þór- hallsson, organisti Neskirkju við Hagatorg, efnir til söng- og sálma- kennslu, á undan sunnudagsmess- unum. Sálmakennslan hefst kl. 10.40 og er öllum opin. Svo hefst messan kl. 11 og söfnuðurinn syngur. Allar raddir velkomnar. Krúttakór og barna- leikrit í Langholts- kirkju BÖRN og fullorðnir eiga saman stund í Langholtskirkju á sunnu- daginn kl. 11, þar sem að krútta- kórinn syngur, en í honum eru börn 4–7 ára, og sýnt verður leikritið Týndi vinurinn. Allir eru velkomn- ir. Kvikmyndasýning í Landakoti „Inside the Vatican“ – „Í páfa- garði“ (III. hluti) Páfagarður er ein elsta stofnun í heiminum og miðstöð kirkjunnar fyrir u.þ.b. 1 milljarð kaþólskra. Tveggja þúsalda gömul saga hans hefur verið mjög viðburðarík. Sir Peter Ustinov, áhugamaður mikill á list og sögu, leiðir okkur á bæði fróðlegan og skemmtilegan hátt í stórkostlega ferð í gegnum sögu páfagarðsins og kirkjunnar. Hann mætir mörgum af þeim áhrifaríku sögulegu mönnum (sem eru settir á svið af leikurum), eins og í III. hluta Marteini Lúther eða Galíleo Galílei. Að sýningunni lokinni gefst svig- rúm fyrir spurningar og at- hugasemdir. Sýning þriðja hluta myndarinnar hefst mánudaginn 9. október 2006 kl. 20.00 í safnaðarheimili kaþ- ólskra á Hávallagötu 16. Aðgangur er ókeypis og eru allir áhugasamir velkomnir. Hvað er kærleiksþjón- usta? Hvaðer djákni? Nk. sunnudag, 8. október, verður „Kærleiksþjónusta og hjálparstarf“ til umfjöllunar á Fræðslumorgni í Hallgrímskirkju , en sú er áherslan í starfi þjóðkirkjunnar starfsárið 2006–2007. Ragnheiður Sverr- isdóttir, djákni og verkefnisstjóri kærleiksþjónustusviðs á Bisk- upsstofu, fjallar um efnið á lifandi og skemmtilegan hátt ásamt Magn- eu Sverrisdóttur, djákna Hall- grímssóknar, sem veitir innsýn í það mikilvæga starf sem unnið er undir merkjum kærleiksþjónustu í Hallgrímssókn. Fræðslumorgunn hefst kl. 10 í suðursal Hallgríms- kirkju og stendur fram undir kl. 11 þegar messa og barnastarf kalla söfnuðinn til kirkju. Allir eru hjart- anlega velkomnir og heitt á könn- unni. Sorg og sorgarvið- brögð í Árbæjarkirkju ÞRIÐJUDAGINN 17. október kl.18.00–19.30 og næstu þrjá þriðjudaga á eftir á sama tíma bjóða prestar kirkjunnar sr. Þór Hauksson og sr. Sigrún Ósk- arsdóttir upp á samveru og samtal um sorg og sorgarviðbrögð. Farið verður í helstu þætti sorgar og margvíslegra viðbragða við áföll- um. Þátttakendur tjá sig um reynslu sína og á hvern hátt þeir hafa glímt við áfall og sorg. Eftir að námskeiðinu lýkur þriðjudaginn 7. nóvember verða tvær samverur eft- ir áramótin. Áhugasamir vinsam- legast skrái sig í síma 587-2405 á milli kl.9.00 og 12.00 virka daga. Fjölskylduguðsþjón- usta Árbæjarkirkju EINS og hefð er fyrir í Árbæj- arkirkju annan sunnudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölskyldu- guðsþjónustu. Stundin hefst kl.11.00 og á eftir er boðið upp á hressingu í safnaðarheimili kirkj- unnar. Í fjölskylduguðsþjónustum í Árbæjarkirkju er boðið upp á líf- lega fræðslu og skemmtun. Rebbi refur og örugglega fleiri góðir gestir líta inn til að læra af þeim fjölmörgu börnum, feðrum, mæðr- um, öfum og ömmum sem sækja þessar stundir. Kirkjudagurinn í Óháða söfnuðinum Á sunnudaginn kemur 8, október kl. 14;00 verður Kirkjudagurinn haldinn hátíðlegur í Óháða söfn- uðinum. Að vanda er fjölskyldan boðin velkomin í þessa fjölskyldu- guðsþjónustu, sem og allir aðrir líka. Að lokinni guðsþjónustunni verður kaffisala kvenfélagsins, þar sem heilu fermetrarnir af margs konar góðgerðum bíða þess að verða bitnir. Rennur ágóðinn af kaffisölunni til safnaðarstarfsins. Allir eru hjartanlega velkomnir í þessa fjölskylduguðsþjónustu. Haustfundur Safn- aðarfélags Grafarvogs- kirkju SAFNAÐARFÉlAG Grafarvogs- kirkju heldur haustfund sinn í safn- aðarsal kirkjunnar mánudaginn 9. október kl. 20. Ingrid Kuhlman, ráðgjafi og framkvæmdastjóri Þekkingarmiðl- unar ehf., flytur fyrirlestur um Tímastjórnun í starfi og einkalífi Í fyrirlestri sínum kemur Ingrid inn á mikilvægi þess að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin með góðri forgangsröðun og skipulagn- ingu og takast á við truflanir af ýmsum toga. Tekin eru fyrir atriði eins og al- gengir tímaþjófar, frestun, að segja nei og jákvætt hugarfar. Kaffiveitingar og fyrirspurnir. Mætum vel og tökum með okkur gesti. Stjórnin. Messuheimsókn í Seltjarnarneskirkju KIRKJUKÓR Möðruvallaklaust- ursprestakalls heimsækir Seltjarn- arneskirkju sunnudaginn 8. októ- ber. Kórinn mun syngja við messu sem verður í kirkjunni kl. 11:00 f.h. Kórinn syngur undir stjórn org- anistans á Möðruvöllum, Helgu Bryndísar Magnúsdóttur. Í mess- unni syngja systkinin Ingunn Ara- dóttir og Erlingur Arason einsöng. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur á Möðruvöllum, pre- dikar, en hún var sóknarprestur á Seltjarnarnesi í 14 ár. Sr. Sigurður Grétar Helgason, núverandi sókn- arprestur á Seltjarnarnesi, þjónar fyrir altari. Eftir messuna verður boðið upp á veitingar í safn- aðarheimilinu, en þar mun kórinn syngja nokkur létt og skemmtileg lög undir stjórn Helgu Bryndísar. Verið velkomin. Seltjarnarneskirkja. Vinnuskúr óskast. Óska eftir vinnuskúr fyrir lítið, má þarfnast lagfæringa. Hafðu samband í síma 897 1368. Heimilistæki Til sölu þvottavél, General El- ectric, sem ný. Sparneytin. Verð kr. 30.000. Upplýsingar í síma 869 8916. Atvinnuhúsnæði Til leigu verslunar-/iðnaðarhús- næði 141 fm til leigu á Smiðju- vegi 4. Snyrtilegt umhverfi og næg bílastæði. Laust fljótlega. Uppl. í síma 698 9030. Til leigu í Skeifunni 200 fm í Faxafeni 12. Upplýs. 899 7059.Geymslur Vetrargeymsla Geymum fellihýsi, tjaldvagna o.fl. í upphituðu rými. Nú fer hver að verða síðastur að panta pláss fyr- ir veturinn. Sanngjarnt verð. Upplýsingar í síma 899 7012 Sólhús Geymum hjólhýsi, fjallabíla og fleira. Húsnæðið er loftræst, upphitað og vaktað. Stafnhús ehf., sími 862 1936. Tjald- og húsvagnageymsla. Geymsluhúsnæði fyrir tjaldvagna og fellihýsi. Upplýsingar í símum 893 6354 og 898 8838 eða fyrir- spurn á melarkjal@simnet.is. Fyrirtæki Hjólbarðar Matador vörubílahjólbarðar 385/65 R 22.5 kr. 49.900 295/80 R 22.5 kr. 36.900 12 R 22.5 kr. 29.900 1100 R 20 kr. 33.900 Kaldasel ehf., Dalvegur 16b, Kópavogur, s. 544 4333. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið, Subaru Impreza 2006, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Vélstjórar, vélvirkjar og raf- virkjar! Til sölu er viðgerðarfyrir- tæki í fullum rekstri með húsnæði undir reksturinn og einstaklings- íbúð. Selst allt í einum pakka sem ehf. Upplýsingar í síma 895 3211. Bókhald Bókhald fyrir þig. Ég er að leita að bókhaldsverkefnum/-hluta- störfum. Ég tek 1.600 kr. + vsk á tímann. Tómas, dími 659 5031. Hjólhýsi Knaus 400T Sudwind hjólhýsi til sölu. Árg. '02, lítið notað, mjög vel með farið. Uppl. í síma 822 4971. Húsbílar Mercedes Benz árg. 1983. Ek. 218 þús. km. Benz 307D. Vaskur, helluborð og svefnpláss fyrir 3-4. Ný topplúga, rafgeymir o.fl. Skoðaður '06. Verð 560 þús. Nán- ari uppl. í s. 661 0222, Ármann. Varahlutir JEPPAPARTAR EHF., Tangarhöfða 2, sími 587 5058 Nýlega rifnir Patrol '91-05, Terr- ano II '96-'03, Subaru Legacy '90- '00, Impreza '97-04, Kia Sportage '03 og fleiri japanskir jeppar. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Byggingavörur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.