Morgunblaðið - 07.10.2006, Page 50

Morgunblaðið - 07.10.2006, Page 50
Ein athyglisverðasta kvikmyndin sem nú er sýnd á Aljóðlegu kvikmyndahátíðinni íReykjavík kallast Electroma og er eftir þá Thomas Bangalter og Guy-Manuel De Ho-mem-Christo en þá þekkja eflaust fleiri sem danstónlistardúettinn Daft Punk. Sveitinvar stofnuð árið 1992 en sló fyrst í gegn á heimsvísu árið 2001 þegar önnur plata sveit- arinnar Discovery kom út. Var þeirri plötu lýst sem ferskum andblæ inn í annars staðnaða danstónlistarsenu og ekki skemmdu tónlistarmyndbönd sveitarinnar sem snillingar á borð við Michel Gondry og Spike Jonze leikstýrðu en þau þóttu í senn nýstárleg, aðgengileg og ótrú- lega töff. Erum ekki að keppa við neinn Þeir Thomas og Guy-Manuel eru staddir hér á landi í tilefni af sýningu myndarinnar en þá mun sá fyrrnefndi þeyta skífum á NASA í kvöld og það gerir hann eftir tíu ára hlé frá skífuþeyt- ing- um – hvorki meira né minna. Electroma er ekki síður listaverk en kvikmynd og Thomas segir að þeir hafi ráðist í gerð hennar vegna þess að þá langaði til að gera tilraun með kvikmyndaformið og þá í listrænu samhengi við elektróníska tónlist. En tónlistin í Electroma er ekki eftir þá Daft Punk-félaga. Af hverju ekki? „Ég held að það sé út af því að við vildum einbeita okkur að hinum sjónræna þætti eingöngu. Við höfum unnið að tónlist til fjölda ára og þurfum ekki að sanna neitt fyrir sjálfum okkur lengur. Okkur fannst það auðveldara að láta aðra um að skapa hljóðheiminn því þá fengjum við meira frelsi til að leika okkur með allt hitt sem þurfti að gera.“ Endurtökum okkur ekki Thomas er spurður hvort þeir félagar séu hræddir um að mistakast á kvikmyndasviðinu, bæði með tilliti til góðs árangurs í tónlistinni og svo í ljósi þess að þeir hafi í tónlistarmyndböndum sínum notið liðsinnis snillinga á borð við Michel Gondry og Spike Jonze. „Nei, ég get ekki sagt það,“ svarar Thomas og hlær. „Hvað Michel og Spike varðar þá hvöttu þeir okkur báðir til að reyna fyrir okkur í kvikmyndum. En við erum ekki í þessu til að keppa við einhvern eða ná frama á þessu sviði. Það eina sem vakir fyrir okkur er að deila listrænni sýn okkar með kvikmynda- áhugamönnum. Við gerðum þessa mynd af auðmýkt og hógværð og þannig á líka að upplifa hana.“ Búist þið við að halda áfram á þessari braut og gera fleiri myndir? „Við erum mjög spenntir fyrir því að vinna með þennan miðil aftur en hvort við gerum aðra mynd eins og þessa veit ég ekki. Við lifum eftir þeirri heimspeki að endurtaka okkur ekki. Hins vegar höfum við mikinn áhuga, eins og ég sagði, á þessum miðli og það eru allar líkur á því að við munum taka þátt í einhvers konar kvikmyndaframleiðslu aftur.“ Einhvern veginn svona lítur raftónlist út |laugardagur|7. 10. 2006| mbl.is Staðurstund Árni Matthíasson segir frá leit sinni að geislaplötum með pí- anóleikaranum Angelu Hewitt í íslenskum verslunum. » 52 af listum Jónas Sen upplifði bæði skemmtun og leiðindi á Sinfón- íutónleikum síðastliðið fimmtu- dagskvöld. » 53 gagnrýni Evanescence er gotarokksband sem notið hefur mikillar hylli, en önnur plata sveitarinnar, The Open Door, er nýkomin út. » 52 tónlist Danska rokkbandið Gasolin er viðfangsefni samnefndrar heimildarmyndar á RIFF, sem hlýtur fjórar stjörnur. » 54 kvikmynd „Af Miðnesheiði horfinn er her, en draslið blífur“ – og botnaðu nú! Orð skulu standa er á dag- skrá Rásar 1 í dag. » 55 íslenska Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is JAKOB S. Jónsson, leikhúsmaður í Jönköbing í Svíþjóð, hyggst láta skrá nafn sitt í heimsmetabók Guin- ness í dag en þá hefur hann lestur á Njálssögu frá upphafi til enda á Borgarbókasafninu þar í borg. Upplesturinn er liður í dagskránni Menningardagur, -nótt, og segir Jakob að markmiðið sé að vekja at- hygli á því að upplestur góðra bók- mennta sé hin besta skemmtun, en jafnfram að láta skrá þennan at- burð á spjöld Heimsmetabókar Gu- inness, „enda mun þetta vera í fyrsta sinn sem einstaklingur les heilt bókmenntaverk frá upphafi til enda í einni lotu,“ segir hann. Jakob verður þó ekki einn við upplesturinn því hann hefur alls tíu manna hóp sænskumælandi aðstoð- armanna sem sjá um að allt fari fram eins og áætlað er. Jakob hefur verið búsettur í Sví- þjóð um nokkurra ára skeið og starfar þar að leikhús- og menning- artengdum verkefnum. „Það má búast við því að það verði nokkur þrekraun að lesa alla Njálu í einum upplestri. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem ég geri þetta því fyrir tveimur árum las ég hana alla og tók það á fjórtándu klukkustund að ljúka upplestrinum. En þá náð- um við ekki að setja okkur í sam- band við skrásetjara hjá Heims- metabók Guinness. Það er nú lítið gaman að þessu nema þetta sé skráð og maður fái skjal upp á það. Það kitlar auðvitað líka met- orðagirndina að vera heimsmets- hafi á einhverju sviði,“ segir Jakob. Hann segir að öðrum þræði sé til- gangurinn vissulega sá að fá við- urkennt heimsmet í upplestri. „En svo er ég líka að þessu í þeim til- gangi að vekja athygli á upplestri sem listformi og sem ákjósanlegri leið til þess að takast á við bók- menntir og sagnahefð, bæði sem flytjandi og hlustandi. Við sjáum það ekki síst á öllum þeim hljóð- bókum sem gefnar eru út að þetta er vinsælt list- og afþreyingarform og svo er auðvitað ennþá meira gaman ef flutningurinn er lifandi,“ segir Jakob. Jakob les Njálu á sænsku í þýð- ingu Ingegerd Fries, sem gerð var á sjöunda áratug síðustu aldar. Jak- ob segir að þýðingin sé afar nú- tímaleg, læsileg og þægileg til upp- lestrar. Njála er til í að minnsta kosti þremur sænskum þýðingum en stendur þó langt að baki þýð- ingum á Völuspá, sem er til í fjórtán útgáfum. Les upp Njálu í einni lotu Miðasala á dansveisluna á NASA í kvöld fer fram á midi.is og Thorvaldsen Bar. Gunnar Hámundarson og félagar Myndin er úr Brennu-Njálssögu eftir Björn Brynjúlf Björnsson sem gerður var árið 2003.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.