Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 38
Miðasala virka
daga frá kl. 11-16
og 2klst. fyrir sýn.
Sími 5629700
www.idno.is
Sýningar kl. 20
Sýnt í Iðnó
Fim.Upps. 9.11
Fös. 10. 11
Lau. 11. 11
Lau. 18. 11
Sun. 19.11
Fös. 24.11
Lau. 25.11
38 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sun 12/11 kl. 14 Sun 19/11 kl. 14
Sun 26/11 kl. 14 Sun 3/12 kl. 14
Fim 9/11 kl. 20 Fös 10/11 kl. 20 UPPS.
Fim 16/11 kl. 20 Sun 26/11 kl. 20
Lau 11/11 kl. 20 UPPS. Fös 17/11 kl. 20
Fös 24/11 kl. 20 Lau 2/12 kl. 20
Fim 9/11 kl. 20 UPPS. Fim 16/11 kl. 20
Fim 23/11 kl. 20 AUKASÝNING
Sun 3/12 kl. 20 AUKASÝNING
Fös 8/12 kl. 20 AUKASÝNING
Fös 10/11 kl. 20 Sun 19/11 kl. 20
Síðustu sýningar.
Lau 11/11 kl. 14 Frumsýning
Lau 18/11 kl. 14 Lau 25/11 kl. 20
Frítt fyrir 12 ára og yngri
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR
www.borgarleikhus.is
Lau 11/11 kl. 20 Sun 12/11 kl. 20
Fös 17/11 kl. 20 Lau 18/11 kl. 20
SAKAMÁL Á SVIÐ
Leiklestrar á 3ju hæðinni.
12/11, 19/11, 26/11 kl. 20
Allir velkomnir, ókeypis aðgangur
Sun 12/11 kl. 20 4.sýning Græn kort
Lau 18/11 kl. 20 5.sýning Blá kort
Sun 19/11 kl. 20
Lau 25/11 kl. 20
Lau 11/11 kl. 17
Miðaverð 1.000
WATCH MY BACK
Fös 10/11, sun 19/11, sun 26/11
kl. 20:10 Miðaverð 1.000
LEIKHÚSSPJALL
Aðstandendur Amadeus spjalla um
leiðina frá höfundi til áhorfenda.
Fim 9/11 kl. 20 í Kringlusafni.
Allir velkomnir, ókeypis aðgangur
www.leikfelag.is
4 600 200
Herra Kolbert
Fim 9. nóv kl. 20 örfá sæti – 6. kortasýn
Fös 10. nóv kl. 19 UPPSELT - 7. kortasýn
Lau 11. nóv kl. 19 UPPSELT - 8. kortasýn
Fim 16. nóv kl.20 örfá sæti - 9.kortasýn
Fös 17. nóv kl.19 örfá sæti - 10.kortasýn
Lau 18. nóv kl. 19 UPPSELT
Fim 23. nóv kl. 20 UPPSELT
Næstu sýn: 23/11, 24/11, 25/11, 1/12, 2/12
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Sun 12.nóv kl. 14 UPPSELT
Sun 12. nóv kl. 15
Næstu sýn: 19/11, 26/11, 3/12
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
ATH! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Frumsýning 18. nóvember kl. 20 - 2. sýning 25. nóvember kl. 20
3. sýning 2. desember kl. 20
ATH! AÐEINS ÞESSAR ÞRJÁR SÝNINGAR
STRENGJALEIKHÚSIÐ
Strengjaleikhúsið í samvinnu við íslensku óperuna
SKUGGALEIKUR
Ný íslensk ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Sjón og Messíönu Tómasdóttur
ARÍUR UM ÁSTINA - HÁDEGISTÓNLEIKAR ÞRIÐJUD. 14. NÓV. KL.12.15
Jónas Guðmundsson, tenór, og Kurt Kopecky, píanó, flytja rússneskar og ítalskar aríur í hádeginu
Kuegler-fjölskyldan bjó í litlu húsi
með tveimur herbergjum og án allra
þæginda, eins og rafmagns og renn-
andi vatns. „Við tókum eftir því að
börnin léku sér ekki og virtust ekki
kunna það. Við uppgötvuðum síðar
að þetta var vegna stríðsins. Þau
leituðu ávallt í öruggt skjól og lifðu í
skugga óttans. Þegar við nálg-
uðumst þau og reyndum að fá þau til
að leika við okkur hlupu þau í burtu í
ofsahræðslu. Strákur á mínum aldri
fylgdist með okkur úr öruggri fjar-
lægð um nokkurra vikna skeið.
Hann átti boga og örvar sem ég var
mjög áhugasöm um. Ég gekk að
honum og rétti fram hendurnar og
hann gaf mér bogann og örvarnar.
Ég fór inn í húsið og fann þar lítinn
spegil sem ég gaf honum. Þegar
hann leit í spegilinn æpti hann af
skelfingu og þá vissi ég að hann
hafði aldrei áður litið í spegil.
Skömmu síðar kom hann til mín og
sagði Touare. Ég svaraði honum að
bragði; Sabine. Upp frá þessu var ís-
inn brotinn og við kenndum börn-
unum okkar leiki. Í staðinn kenndu
þau okkur margt úr þeirra heimi,
eins og að búa til boga og örvar og
þekkja hvaða jurtir í frumskóginum
eru eitraðar og hverjar má borða,“
segir Sabine.
Afstaða foreldra Sabine var sú að
þar sem þau væru gestir í landi
Fayu-fólksins yrðu þau að samlagast
samfélaginu og læra þeirra siði. Þess
vegna gengu Sabine og bróðir henn-
ar nánast sjálfala í frumskóginum
með Fayu-börnum. Þau stunduðu
nám í bandarískum bréfaskóla og
vörðu þremur tímum á dag í námið.
Sabine samlagaðist menningu Fayu-
fólksins að öllu leyti.
„Ég uppgötvaði það fyrst þegar
ég skrifaði bókina að heilinn í mér
þroskaðist á þann veg að ég kæmist
af í frumskóginum. Suma hluta heil-
ans notum við ekki á Vesturlöndum
en í frumskóginum þróast ósjálfráð
viðbrögð, innsæi og skynjun á and-
rúmslofti og að sjá fyrir hluti áður en
þeir gerast. Þetta hefur ekkert með
töfra að gera heldur einungis það
hvernig heilinn þroskast við mis-
jafnar aðstæður,“ segir Sabine.
Undarlega fólkið í Evrópu
Hún bjó á meðal Fayu-fólksins
samfleytt þar til hún varð tólf ára.
Þá ákváðu foreldrar hennar að snúa
aftur til Þýskalands. Þar voru þau í
tvö ár. „Þetta var hræðilegur tími en
í fyrstu vorum við þó mjög spennt. Í
frumskóginum hafði okkur fundist
hinn vestræni heimur vera paradís
þar sem allt var fáanlegt. Í frum-
skóginum dreymdi okkur dag-
drauma um þennan veruleika og við
héldum að hér byggi hamingjusam-
asta fólk í heimi. Við héldum að í
Þýskalandi væru allir brosandi og
faðmandi hver annan úti á götum
vegna allsnægtanna. En þegar til
kastanna kom var fólkið undarlegt.
Við fundum að andrúmsloftið var
mjög skrítið og árásargjarnt. Eftir
fyrstu vikuna fengum við heimþrá
eftir frumskóginum,“ segir Sabine.
14 ára var hún aftur komin á með-
al Fayu-fólksins og hún fann ham-
ingjuna á ný. Fyrr en varði var hún
aftur orðinn hluti af samfélagi frum-
byggjanna en málin fóru þó að vand-
ast. „Samfélag Fayu-manna byggir
á gildum hópsins, ekki einstaklings-
ins og allir hafa sínu hlutverki að
gegna að börnunum undanskildum.
Börnin ganga í hjónaband þegar þau
eru 13–14 ára gömul og þá fá þau
líka hlutverk. Konur fara til að
mynda aldrei á veiðar og stúlkur
leika sér ekki að boga og örvum.
Þegar ég komst á kynþroskaaldur
var boginn tekinn af mér. Ég hætti
líka smám saman að hafa samskipti
við drengi í ættflokknum, þar á með-
al Touare. Smám saman varð ég rót-
laus í samfélaginu. Þegar ég var orð-
in sextán ára spurðu frumbyggjarnir
pabba hvers vegna hann væri ekki
búinn að gifta mig. Á þessum slóðum
gefa feður dætur sínar í hjónaband.
Að öðrum kosti ræna karlmenn ung-
lingsstúlkum og taka þær með sér í
felur. Hafi þær ekki flúið innan
þriggja daga snúa þeir til baka með
konurnar og giftast þeim. Pabbi
spurði þá hvort þeir myndu ræna
mér. Svarið var á þá leið að þeir
héldu sig við sinn hörundslit og við
ættum að halda okkur við okkar. Ég
hafði aldrei velt því sérstaklega fyrir
mér að ég væri hvít, það var aldrei
neitt tiltökumál. Þetta var í fyrsta
sinn sem Fayu-fólkið gaf mér til
kynna að ég væri ekki eins og það.“
17 ára gömul vildi Sabine hverfa
úr samfélagi Fayu-fólksins. Hún
hélt til náms í Sviss, en átti erfitt
með að festa rætur í Evrópu. Hún
upplifði kalt andrúmsloft og vonda
strauma frá fólkinu. Hún kunni þó
vel við sig í skólanum og fór smám
saman að læra á hinn vestræna
heim. Eftir eitt og hálft ár fór
heimþráin aftur að gera vart við sig.
Hún vildi snúa aftur inn í frumskóg-
inn. Um það leyti uppgötvaði hún að
hún gengi með barni, átján ára að
aldri. „Mamma vildi að ég kæmi aft-
ur til þeirra en ég sá að það kom ekki
til greina. Í samfélagi Fayu-fólksins
þekkist ekki að börn séu óskilgetin.
Þar er dauðarefsing fyrir kynlíf utan
hjónabands. Ég vissi að ég yrði ekki
tekin af lífi en ég skammaðist mín
fyrir að snúa þangað aftur með
barn.“
Sabine varð því eftir í Evrópu og
fór til Berlínar. „Það hafði enginn út-
skýrt fyrir mér hvernig viðmót
fólksins þarna var. Ég lít venjulega
út en uppeldi mitt var í algjörri and-
stæðu við það sem gildir í Evrópu.
Ég átti því mjög erfitt með að aðlag-
ast lífinu þar. Ég gerði ýmsa hluti
sem tíðkast ekki að gera, eins og til
dæmis að heilsa ókunnu fólki úti á
götu, og viðbrögð samfélagsins voru
þau að hafna mér.“
Sabine er tvífráskilin og á fjögur
börn. Hún elur ennþá með sér þann
draum að hverfa til baka til einfald-
leikans í frumskógum Vestur-Papúa
og hyggst gera það þegar börn
hennar þurfa ekki lengur á henni að
halda.
» Við héldum að íÞýskalandi væru allir
brosandi og faðmandi
hver annan úti á götum
vegna allsnægtanna.
EKKI ER á hverjum degi sem
maður heyrir spilað á áltösku. Það
gerðist þó í Norræna húsinu á
sunnudaginn, en þar hélt Frank
Aarnink slagverksleikari tónleika í
15:15-röðinni svokölluðu. Áltösku-
verkið hét því viðeigandi nafni Case
History og var eftir Roderik de
Man. Það fólst í því að taska sem
inniheldur kjuða og annað var barin
sundur og saman með kjuðunum og
öðru er finna mátti í töskunni. Í
sjálfu sér getur hver sem er gert
það – en þó ekki! Verkið samanstóð
nefnilega af tiltölulega flókinni
hrynjandi og ýmiskonar blæbrigð-
um sem óvanir menn hrista ekki
fram úr erminni. Útkoman var
ótrúlega skemmtileg – og fyndin,
enda fögnuðu tónleikagestir ótæpi-
lega á eftir.
Mourning Dove Sonnet eftir
Christopher Deane var líka
skemmtilega blæbrigðarík tónsmíð
sem Frank lék listavel á víbrafón,
en tölvu- og slagverksverkið Bragð-
laukur eftir Lárus H. Grímsson var
nokkuð þreytandi áheyrnar. Ógn-
arlegar barsmíðarnar voru helst til
langdregnar til að tónlistin skapaði
önnur hughrif en pirring.
Verkið Frankly 2006 eftir Önnu
Þorvaldsdóttur var hins vegar fal-
lega ljóðrænt; þar spilaði Frank á
ýmiskonar slagverkstól sem fram-
kölluðu fjölbreytileg bjölluhljóð. Úr
varð ljóðræn tónlist sem virtist
segja heila sögu. Ég held þó að tón-
listin hefði orðið enn áhrifaríkari ef
Anna hefði sleppt kraftmiklum end-
inum en látið verkið bara deyja út,
eins og gerðist rétt fyrir lokin. Það
hefði verið meira í stíl við heildar-
yfirbragð tónlistarinnar, sem var
lágstemmd og seiðandi.
Frank er frábær slagverksleikari
eins og hann hefur margoft sannað.
Og gaman að hann skuli hefja
15:15-tónleikasyrpuna í vetur; sú
röð hefur fyrir löngu skapað sér
sérstöðu í íslensku tónleikalífi fyrir
frumleika og dirfsku, sem oftar en
ekki hefur hitt beint í mark. Varla
verður annað sagt en maður hlakki
til framhaldsins.
Áltaskan
barin
TÓNLIST
Norræna húsið
Frank Aarnink slagverksleikari flutti tón-
smíðar eftir Roderik de Man, Christopher
Deane, Lárus H. Grímsson og Önnu Þor-
valdsdóttur. Sunnudagur 29. október.
Slagverkstónleikar – 15:15-röðin
Slagverk „Frank er frábær slagverksleikari eins og hann hefur
margoft sannað. Og gaman að hann skuli hefja 15:15-tónleikasyrp-
una í vetur,“ segir Jónas Sen m.a í dómnum.
Jónas Sen
Fyrrverandi forsetadóttirinChelsea Clinton hefur hafið
störf hjá Avenue Capital Group fjár-
festingarsjóðnum sem er með höf-
uðstöðvar sínar í New York-borg.
Clinton sem er nú 26 ára og einka-
barn Hillary og Bill Clinton var áður
ráðgjafi hjá Mc Kinsey & Co.
Fólk folk@mbl.is