Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 302. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is SVÖRT AÐ INNAN FRUMSKÓGARSTELPAN SABINE KUEGLER ÓLST UPP Á MEÐAL FRUMBYGGJA Í V-PAPÚA >> 37 ADRENALÍN FRAMHALDSSKÓLA- MÓTIÐ Í LITBOLTA EINS OG ELDING >> 20 Bagdad. AFP. | Saddam Huss- ein, fyrrver- andi forseti Íraks, og sex samverkamenn hans voru í gær dæmdir fyrir morð á 148 sjítum í þorpinu Dujail norður af Bagdad 1982. Hussein og tveir aðrir voru dæmdir til dauða, einn var dæmdur í lífs- tíðarfangelsi og þrír fengu 15 ára fang- elsisdóm hver. Viðbrögð við dauðadómnum voru mis- jöfn. Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, fagnaði honum og sjítar í Bagdad dönsuðu á götum úti af gleði og veifuðu fánum, en súnnítar í Tikrit mótmæltu dómnum. Dómnum var meðal annars fagnað í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kúveit og Ír- an. Alþjóðamannréttindasamtökin Amn- esty International fordæmdu dóminn og Renato Raffaele Martino, kardináli í páfagarði, sagði að ekki væri rétt að refsa fyrir glæp með öðrum glæp. Rúss- ar vöruðu við afleiðingunum í Írak ef Saddam Hussein yrði hengdur. | 14 Skiptar skoðanir á dómnum Saddam Hussein dæmdur til dauða Dæmdur Saddam Huss- ein, fyrrv. forseti Íraks. Eftir Brján Jónasson og Örlyg Stein Sigurjónsson STORMUR gekk yfir landið allt í gær og hafði í för með sér talsverð- ar skemmdir á eignum víða um land. Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki, en þakplötur, trampólín og annað lauslegt fauk um og skip slitnuðu frá bryggju. Gríðarlegur fjöldi björgunar- sveitarmanna var kallaður út og segir Jón Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, að á höfuðborgar- svæðinu einu hafi um 150 björg- unarsveitarmenn á öllum tiltækum ökutækjum sveitanna verið við störf. Hann segir að jafnvel þessi gríðarlegi fjöldi hafi ekki haft und- an, en samtals bárust um 70 óskir um aðstoð. Rak í átt að grjótgarðinum Tvö skip slitnuðu frá bryggju í Hafnarfjarðarhöfn þegar veðrið stóð sem hæst í gærmorgun en þá var einnig stórstreymt. Skipin rak í átt að grjótgarðinum án þess að nokkur fengi rönd við reist, og strönduðu á sandbakka. Tveir dráttarbátar Hafnarfjarð- arhafnar, auk björgunarskips Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, reyndu að ná skipunum á flot og tókst að ná minna skipinu um tveimur klukkustundum eftir strandið og því stærra þegar flæða fór að seinnipart dags í gær. Veðrið var afar slæmt á Möðru- dalsöræfum og segir Anna Birna Snæþórsdóttir, ábúandi á Möðru- dal á Fjöllum, að rúður hafi brotn- að í fjölda bíla þegar möl fauk, auk þess sem þakið fauk af fjárhúsi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Landfestar slitnuðu Tvö skip losnuðu frá bryggju í Hafnarfjarðarhöfn í gærmorgun og strönduðu á sandbakka, en vel gekk að ná þeim á flot. Aftakaveður gekk yfir og olli víða usla Miklar annir voru hjá björgunarsveitum þegar þakplötur fuku, steypumót fóru af stað, fiskikör tókust á loft og malarregn skall á bílum í storminum                            !       "     #     "    !$     % "                                             !   !    !    !   !   "  "  "  "  " #  $ % & '  & %    (  ) &   & Í HNOTSKURN » Þakplötur fuku víða á höf-uðborgarsvæðinu, auk þess sem tjaldvagn, garðhýsi og fjöldi trampólína fór á fleygi- ferð. » Þakplötur fuku af þakigrunnskólans í Grund- arfirði. » Togarinn Margrét SK-20slitnaði frá bryggju á Skagaströnd. » Hjólhýsi fauk á hliðina áStokkseyri og lausamunir fuku til. » Steypumót losnuðu á 10.hæð á nýbyggingu í miðbæ Akraness. » Ekki er vitað til þess aðskemmdir hafi orðið í óveðrinu á Kárahnjúkum eða á álverinu í Reyðarfirði. » Fiskikör fuku um í Sand-gerði og skemmdir urðu á vegi þegar sjór gekk á land. Tafir hjá þúsundum  Millilandaflug lá niðri fyrri part dags í gær og gætu orðið tafir í dag. » 4 Hætta á Akranesi  Steypumót á 10. hæð á ný- byggingu á Akranesi losn- uðu í óveðrinu. » Miðopna ELDUR varð laus í íbúðarhúsi á Húsavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Lögreglan bjargaði manni úr brennandi húsinu áður en slökkvilið kom á vettvang og var hann fluttur á sjúkrahús til aðhlynn- ingar. Slökkvistarf stóð enn yfir um miðnætti, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Húsavík. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Bruni Slökkviliðsmenn voru enn að störf- um við húsið um miðnætti í gær. Bjargað úr brennandi húsi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.