Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á SÍÐUSTU árum hefur vaxið upp öflugur þekkingariðnaður hér á landi. Gríðarlega mik- ilvægt er að við tryggj- um áframhaldandi vöxt þekkingariðnaðar hér á landi því framtíð ís- lensks atvinnulífs bygg- ir á þekkingu en ekki frumframleiðslu. Und- irstaða þekkingariðn- aðarins er öflugt menntakerfi. Stjórnvöld þurfa því að standa vörð um okkar öfluga menntakerfi og tryggja að íslenskt menntakerfi sé með því allra besta í heimi. Á Íslandi er vel menntað vinnuafl en ljóst er að ef við horfum til framtíðar þurfum við að leggja mikla rækt við íslenska menntakerfið og tryggja gæði þess. Mjög stór hluti lands- framleiðslu rennur til menntamála en við þurfum að tryggja að þessum fjármunum sé betur varið. Lausnin gæti verið fólgin í auknu samstarfi einkaaðila og ríkisins. En einkaaðilar hafa í auknum mæli sýnt fjármögnun og rekstri menntastofnanna áhuga. Samstarf atvinnulífs og skóla Samkvæmt niðurstöðu Alþjóða við- skiptastofnunarinnar þurfum við að bæta framhaldsmenntun og þjálfun, því er nauðsynlegt að tryggja samstarf háskóla og atvinnulífs enn frekar. Á síðustu árum höfum við í auknum mæli séð sam- starf þessara aðila. Það má þakka því að fjöl- breytileiki í rekstr- arformi hefur riðið sér til rúms innan háskóla- samfélagsins. Þetta hef- ur aukið fjölbreytni í námsframboði og stuðlað að samkeppni milli skóla. Samkeppnin hefur svo skilað því að skólar þurfa að vera í samstarfi við at- vinnulífið, skilja þarfir þeirra og væntingar og aðlaga nám og náms- framboð sitt að þessum þörfum. Þegar litið er á grunn- og framhaldsskólann er ástæða til að horfa til þeirra gríðarlegu fram- fara sem átt hafa sér stað innan háskólanna og læra af því. Skólastigin eiga að vinna í auknum mæli saman og tengjast atvinnulífinu með einum eða öðrum hætti. Menntakerfið þarf að vera mun sveigjanlegra en það er í dag og geta aðlagað sig hraðar að þörfum markaðarins, næsta skólastigi og/eða atvinnulífinu. Öflugt menntakerfi er grunnurinn að þekkingarsamfélagi Bryndís Haraldsdóttir fjallar um menntakerfið og þekking- ariðnaðinn Bryndís Haraldsdóttir » Á Íslandi ervel menntað vinnuafl en ljóst er að ef við horf- um til framtíðar þurfum við að leggja mikla rækt við ís- lenska mennta- kerfið og tryggja gæði þess. Höfundur er varaþingmaður og gefur kost á sér í 4.–5. sæti í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Suðvestur kjördæmi. UNDANFARIN fjögur ár hefur farið fram talning á þátttak- endum í kirkjustarfi innan safnaða Reykja- víkurprófastsdæmis vestra fyrstu vikuna í október. Talning sem þessi gefur ekki tæm- andi mynd af fjölda þeirra sem kirkjurnar sækja, enda er það nokkuð breytilegt eftir árstíma. En hún sýnir svo ekki verður um villst að nýting kirkju- húsa og safnaðarheim- ila í Reykjavík- urprófastsdæmi vestra er gríðarlega góð eina venjulega haustviku. Í prófastsdæminu, sem nær frá Seltjarnarnesi í vestri að Elliðaám í austri, tilheyra 52.504 þúsund manns söfn- uðum Þjóðkirkjunnar, en alls búa 66.489 manns á svæðinu sam- kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Samkvæmt talning- unni í ár komu alls 19.752 manns í kirkjur og safn- aðarheimili þessa einu viku. Þar af eru ferðamenn stór hópur, hátt í sex þús- und manns, mest í Hallgrímskirkju (5.600). Þótt gera megi ráð fyrir að a.m.k. hluti þessa fólks komi í kirkjuna til að sækja sér andlega næringu og biðja fyrir sér og sínum höfum við valið að draga ferðamennina frá lokatölunni. Verður þá niðurstaðan sú að nærri fjór- tán þúsund manns, 13.814, hafi komið til kirkju fyrstu vikuna í október. Er þetta nokkur aukning frá fyrra ári þeg- ar sambærileg tala var rétt rúm 13 þús- und. Þessi tæpu fjórtán þús- und koma til kirkju í ýms- um tilgangi: Börn og ung- menni í sitt starf; foreldrar með smábörn á foreldramorgna; aldraðir í öldunarstarf og opin hús; fullorðið fólk á öllum aldri að sækja fræðslu, kyrrðarstundir og tón- leika; nefndir, kórar og klúbbar með sitt málefnið hver og við öll saman í sunnudagsmessunni. Ef við leyfum okkur að fjórfalda þessa tölu og fá þá út viðmiðunartölu fyrir mánuðinn allan sem gerir á sjötta tug þúsunda – svarar niðurstaðan til þess að hvert sóknarbarn sæki kirkjuna sína mán- aðarlega og rúmlega það. Af einstökum liðum sjáum við mesta aukn- ingu í helgihaldinu, en messum, kyrrðar- og bænastundum hefur bæði fjölgað og eins sækja þær fleiri. Þá stendur öldr- unarstarfið mjög vel og ýmiskonar tónlistarstarf er á öruggri siglingu upp á við. Allt í allt eru þessar niðurstöður mjög hvetj- andi og skýr ábending um að söfn- uðirnir eru á réttri leið í störfum sínum. Tölur úr Reykjavíkurprófastsdæmi eystra styrkja þessa mynd enn frekar og þar er það ekki síst barna- og ung- lingastarf sem á sér öruggan sess í kirkjulífinu. Hvað koma eiginlega margir í kirkju? María Ágústsdóttir fjallar um kirkjusókn María Ágústsdóttir » Af ein-stökum lið- um sjáum við mesta aukningu í helgihaldinu, en messum, kyrrðar- og bænastundum hefur bæði fjölgað og eins sækja þær fleiri. Höfundur er héraðsprestur. FRUMKVÆÐI Sjóvá Almennra með að hugmyndum um fjár- mögnun framkvæmda við tvöföldun og lýsingu Suðurlandsvegar frá Reykjavík austur fyrir Selfoss hefur opnað möguleika á að hefja framkvæmdir við tvöföldun vegarins mun fyrr en annars hefði orðið. Framsýnir sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi voru fljótir að hoppa á vagninn með Sjóvá Almennum og hafa með trygg- ingafélaginu stofnað einkahlutafélagið Suð- urlandsvegur ehf. Sveitarstjórn- armenn vel með á nótunum Aðkoma Sjóvár Almennra að þessu máli gerir það enn meira spennandi, þar sem félagið horfir á framkvæmdina út frá öryggissjón- armiði fyrst og fremst og leggur áherslu á að gengið verði út frá háum öryggisstöðlum á öllum svið- um hvað framkvæmdina varðar. Þó sveitarstjórnarmenn austan Hellisheiðar hafi verið snöggir til með Sjóvá Almennum í þessum efn- um, hafa enn ekki komið þau við- brögð frá Vegagerð og samgöngu- yfirvöldum sem vekja vonir um að þeir ætli líka snögglega að hoppa á vagninn. Óásættanleg áætlun Samkvæmt áætlunum sem uppi eru af hálfu Vegagerðarinnar er gert ráð fyrir 2 + 1 vegi, eins og þegar hefur verið byggður í Svína- hrauni, frá Hveragerði að Hafra- vatnsvegi utan við Reykjavík og er forhönnun í þeim framkvæmdum lokið. Einnig er gert ráð fyrir sams- konar vegi milli Hveragerðis og Sel- foss í fyrstu en áætlað að á þeirri leið verði í framtíðinni byggður veg- ur með tveimur akreinum í báðar áttir. Af þessu má ráða að þeir er með ferðina fara í þessum efnum berja hausnum enn við steininn og neita að viðurkenna nauðsyn þess að Suðurlands- vegur verði tvöfaldaður alla leið frá Reykjavík og austur fyrir Selfoss. Það er með öllu óá- sættanlegt að ekki skuli horft til framtíðar í þessum efnum, sér- staklega í ljósi þeirrar miklu umferðar sem nú þegar er á þessari leið og ljóst er að sú umferð á eftir að aukast til muna á næstu árum. Lykillinn að þróun byggðar Það er ekki einungis öryggisins vegna sem gera þarf kröfu um að þegar verði hafist handa við að und- irbúa tvöföldun og lýsingu Suður- landsvegar alla leið frá Reykjavík austur fyrir Selfoss. Heldur er sú framkvæmd einnig lykillinn að frek- ari þróun og eflingu byggðar austan Hellisheiðar. Skref í þá átt að gera suðvestur hornið að einu atvinnu- svæði og efla þannig bæði atvinnu og byggð á öllu svæðinu. Ekki á að sóa fjármunum í vonlausa 2 + 1 lausn Í þessu mikla hagsmunamáli duga engin vettlingatök lengur og ljóst er að koma verður í veg fyrir að frekari fjármunum verði sóað í vonlausa 2 + 1 lausn á þessari leið. Vegfarendur um Suðurlandsveg hafa þegar fengið reynsluna af þessari lausn með vegarkaflanum í Svínahrauni og ljóst er að hún gengur einfaldlega ekki upp og stendur ekki undir þeim kröfum sem gera þarf til svo fjölfarins veg- ar. Ýtum vagninum saman í mark Nú þarf að leggjast á eitt um að þegar verði hafist handa við und- irbúning framkvæmda á tvöföldun og lýsingu Suðurlandsvegar. Tæki- færið hefur verið opnað með stofn- un Suðurlandsvegar ehf. Möguleik- inn liggur á borðinu hjá yfirvöldum samgöngumála. Það er Sunnlendinga allra að sameinast um að berja þetta stóra hagsmunamál í gegn. Sjóvá Al- mennar og sveitarfélögin hafa ýtt vagninum af stað með stofnun Suð- urlandsvegar ehf. og nú er það Sunnlendinga allra að ýta vagninum áfram að markinu. Ég er til í að leggja mitt afl af mörkum, með Sunnlendingum, til að koma þeim vagni í mark sem fyrst. Tvöföldun Suðurlandsvegar lykillinn að þróun byggðar Grímur Gíslason fjallar um samgöngumál » Sjóvá Almennar ogsveitarfélögin hafa ýtt vagninum af stað með stofnun Suður- landsvegar ehf. og nú er það Sunnlendinga allra að ýta vagninum áfram að markinu. Grímur Gíslason Höfundur er framkvæmdastjóri og býður sig fram í 3–5 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suður- kjördæmi. Í KASTLJÓSINU 18. september hafði Sigmar sjónvarpsmaður feng- ið tvo sérfræðinga til að ræða við sig um hraðakstur á íslenskum vegum. Var þeim báðum mikið niðri fyrir og höfðu ríka þörf fyrir að tjá sig sem er síst að furða eftir að 20 banaslys hafa þegar orðið á árinu auk allra þeirra slysa sem leitt hafa til limlestinga og alvarlegrar fötlunar. Gestir þáttarins voru sammála um það, að ökuhraði væri mikill og að vegirnir væru ekki nógu góðir. En úrbótatillögur þeirra voru mismunandi. Annar þeirra taldi það meðal forgangsverk- efna að breikka vegina og bæta þannig akstursskilyrðin, en hinn lagði til að sérstakir kassar sem skráðu ökuhraðann væru settir í hvern bíl og nú þegar væri byrjað að framleiða bifreiðar sem hefðu aukalykla fyrir takmarkaðan öku- hraða. En sameiginlegt fyrir þessar til- lögur var það, að framkvæmd þeirra beggja tók langan tíma, jafnvel áratug, og kostnaður við þær var yfirþyrmandi, lék á millj- örðum fremur en milljónum. Sjón- varpsmenn eiga skilið þakkir fyrir að taka þetta stórmál fyrir og opna þannig umræðu um það, þótt sum- um kunni að finnast að umræddur þáttur hafi ekki skilað miklu. En nú er vonandi að sú umfjöllun sem hlýtur að fylgja í kjölfarið leiði til aðgerða sem snýr hlutunum til betri vegar. Ég undirritaður leyfi mér hér með að leggja strax orð í belg og koma þannig hugmyndum mínum á framfæri, þ.e.a.s. hug- myndum sem leiða fljótt og vel til bættrar umferðarmenningar. Og satt að segja beið ég stöðugt eftir að þær kæmu fram í þættinum. En svo varð ekki og þess vegna eru þær settar fram hér: Margreynt hefur verið að hvetja bíl- stjóra með ákveðnum orðum að aka gætilega en það hefur því mið- ur lítinn árangur bor- ið. Ökuhraðinn er sí- fellt að aukast og það virðist vera orðinn hreinn kækur hjá mörgum að aka stöð- ugt á yfir 100 km hraða þegar þess er kostur. Þetta er orðinn svo ríkur vani að það þarf eitthvað mikið til að menn láti af honum. Það þarf áreiðanlega meira en vel meint orð þótt þau séu ágæt og nauðsynleg. Það sem þarf að gera er að slá fast á ofsaaksturinn, þannig að engum komi til hugar að aka lengur á ólöglegum hraða. Það högg má veita með því að hækka viðurlög fyrir brot á umferðarlögum, þyngja sektirnar og lengja tímann sem bíl- stjórar eru sviptir ökuleyfum. Þetta er afar auðveld leið og það besta við hana er það, að hún er bæði fljótfarin og kostar lítið sem ekki neitt miðað við aðrar leiðir. Athugum nú t.d. hvað það kostar bílstjóra að keyra á 110 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/ klst. Jú, þá fær hann 10 þúsund króna sekt. Þetta er nánast feimnismál því að upphæðin er svo lág að það verður ekki litið á brotið sem glæp heldur líkt og ávaxtahnupl í stór- markaði. Annað kemur á daginn ef sektin væri 50.000 krónur. Þá sjá allir að það er glæpur að keyra á ólöglegum hraða og það að keyra á 150 km hraða og þaðan af meira er stórglæpur sem ætti að kosta hvern ökumanninn sem það reynir 100 þúsund krónur. Jafnframt ætti hann að missa ökuskírteinið í sex mánuði í stað þriggja. Þessar aðgerðir virka fljótt og vel, því að varla láta ökuþórarnir hanka sig oftar en einu sinni eftir að þeim verður ljóst að hraðakstur skoðast sem glæpur, og refsing verður í samræmi við hann. Varla ætti það að vefjast lengi fyrir yf- irvöldum að hagræða lögum og reglugerðum þannig að þessar að- gerðir geti komið til framkvæmda við fyrsta tækifæri. En vel og rækilega þarf að kynna almenningi breytinguna áður en hún tekur gildi til þess að bílstjórar viti hverju þeir megi búast við ef þeir brjóta af sér í umferðinni Er hægt að bæta umferðarmenninguna? Torfi Guðbrandsson fjallar um hraðakstur » Það sem þarf að geraer að slá fast á ofsa- aksturinn, þannig að engum komi til hugar að aka lengur á ólöglegum hraða. Torfi Guðbrandsson Höfundur er fyrrverandi skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.