Morgunblaðið - 07.11.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 303. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ENGAN DÓNASKAP
MARGRÉT REYNISDÓTTIR KENNIR MIKILVÆGI
KURTEISLEGRA TÖLVUPÓSTSSAMSKIPTA >> 22
PRINSESSUR
BLEIKKLÆDDAR OG
BERJAST VIÐ DREKA
AF LISTUM >> 41
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ÓMETANLEG og óbætanleg náttúruverðmæti
fóru forgörðum þegar eigendur frystiklefa, sem
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur verið með á
leigu, ákváðu að farga öllu innihaldi klefans að
stofnuninni óspurðri. Var innihaldinu fargað
sökum þess að rafmagn fór af frystiklefanum sl.
vor með þeim afleiðingum að kjöt sem þar var
geymt úldnaði. Ekki er vitað hvort um bilun hafi
verið að ræða eða rafmagnið verið tekið af vís-
vitandi.
Að sögn Jóns Gunnars
Ottóssonar, forstjóra Nátt-
úrufræðistofnunarinnar,
hefur stofnunin haft 8–10
rúmmetra frystiklefa á leigu
sl. 16 ár þar sem geymd hafa
verið meira en tvö þúsund
fuglasýni, smáhvalur og ým-
is minni sýni. Meðal þeirra
fugla sem í geymslunni voru
má nefna sex erni og fimm-
tíu fálka, auk ýmissa sjald-
gæfra flækingsfugla og afar verðmætrar seríu
af teistum sem eru fuglar af svartfuglsætt. Seg-
ir hann sum sýnanna allt að þrjátíu ára gömul
og því nær útilokað að hægt verði að bæta það
tjón sem orðið hafi, en fjárhagslega nemur tjón-
ið tugum ef ekki hundruðum milljóna króna.
Tildrög þess að sýnum NÍ var fargað má
rekja til þess að skipt var um eigendur frysti-
klefaleigunnar fyrir nokkru. Að sögn Jóns
Gunnars hefur hann nú komist að því að Heil-
brigðiseftirlitið hafði afskipti af nýju eigendun-
um í maí sl. vegna ábendingar þess efnis að þeir
hefðu ekki starfsleyfi. „Þeim var þá tjáð af eig-
endum að þeir hefðu í hyggju að loka frysti-
geymslunni og myndu láta alla leigjendur vita,“
segir Jón Gunnar, en starfsmenn NÍ fréttu fyrst
af málinu í síðasta mánuði þegar þeir áttu erindi
í frystiklefann. „Okkur er tjáð af eigandanum að
þetta hafi allt úldnað og því verið hent á haug-
ana,“ segir Jón Gunnar, en bendir á að mörg
verðmæt sýni hefðu ekki verið ónýt þó frost færi
úr þeim. Nefnir hann í því samhengi bæði dýra-
bein og arnarhami.
Aðspurður segir Jón Gunnar stofnunina vera
að hugsa sinn gang en ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort málið verður kært til lög-
reglunnar.
Óbætanlegt tjón Náttúrufræðistofnunar
Um 2.000 sýnum var fargað að stofnuninni forspurðri en m.a. var um að ræða fálka og erni
Jón Gunnar
Ottósson
EFTIR að hafa mælst með yfir tíu pró-
sentustiga forskot hjá líklegum kjósendum
á síðustu vikum búa demókratar sig nú und-
ir mun jafnari þingkosningar í Bandaríkj-
unum í dag, eftir að nýjustu kannanir benda
til að repúblikanar hafi sótt í sig veðrið.
Til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni
þurfa demókratar að vinna 15 sæti af repú-
blikönum, sem talið er alllíklegt að þeim
muni takast. Til að ná meirihluta í öldunga-
deildinni þurfa demókratar hins vegar að
sækja sex sæti af andstæðingum sínum og
er alls óvíst að það gangi eftir.
Aðeins eru nokkrar dagar frá því að tíma-
ritið Newsweek birti könnun þar sem demó-
kratar höfðu 15 prósentustiga forskot á
repúblikana sem margt bendir til að hafi
tekist að höfða til óákveðinna kjósenda á
síðustu dögum kosningabaráttunnar.
Ken Mehlman, formaður landsnefndar
Repúblikanaflokksins, sagði í gær að flokk-
urinn hefði fengið byr í seglin síðustu daga
og hann spáði því að bilið væri enn minna en
síðustu kannanir gæfu til kynna.
Chuck Schumer, sem stjórnar kosninga-
baráttu Demókrataflokksins, spáði góðu
gengi hjá sínum mönnum en vildi þó ekki
vera með neina sérstaka spádóma. Hann
kvaðst þó viss um að demókratar fengju
meirihluta í fulltrúadeildinni. Talið er að
kjörsókn verði í meira lagi á bandaríska
vísu að þessu sinni en það veit yfirleitt á
gott fyrir demókrata.
Reuters
Barátta Al Gore, fyrrverandi varaforseti,
lagði demókrötum í Maryland lið í gær.
Forskot
demókrata
minnkar
Bandarískir kjósendur
að kjörborðinu í dag
Miðopna | Hægrisveifla
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
BROTIST var inn í heimabanka og
peningar millifærðir milli íslenskra
banka og að lokum til banka í
Úkraínu. Talið er að Íslendingur
hafi verið blekktur til að millifæra
peningana úr landi. Atvikið átti sér
stað í síðustu viku.
„Ég fór inn á heimabankann
minn og sá strax að það var ekki
allt með felldu og það höfðu horfið
einhverjir peningar,“ segir karl-
maður á þrítugsaldri sem ekki vildi
láta nafns síns getið. Hann segist
hafa séð færslur sem hann kann-
aðist ekki við og um 200 þúsund kr.
vantaði á reikninga hans.
„Ég hringdi í bankann og þeir
sáu strax að það var eitthvað óeðli-
legt. Ég hringdi svo aftur til að at-
huga hvort einhver villa hefði kom-
ið upp hjá þeim og þeir sögðu að
þetta hefði komið úr heimabank-
anum mínum. Þá sneri ég mér
beint til lögreglunnar og kærði.“
Maðurinn fékk þær upplýsingar
hjá lögreglunni að peningarnir
hefðu verið millifærðir á reikning
hjá öðrum banka hér á landi og
þaðan á bankareikning í Úkraínu
þar sem peningarnir hefðu verið
frystir. Banki mannsins tók ábyrgð
á þessari færslu og millifærði upp-
hæðina aftur á reikning mannsins.
Guðjón Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka banka og
verðbréfafyrirtækja, segir að við-
skiptavinir frá öllum bönkum hafi
lent í því að óprúttnir aðilar komist
inn á heimabanka og reyni að milli-
færa fé, þótt tilvik sem þessi séu
ekki algeng. Bankar og sparisjóðir
meti hvert tilvik fyrir sig en í þeim
tilvikum þar sem notandi heima-
banka sé grunlaust fórnarlamb
tölvuþrjóta hafi bankar og spari-
sjóðir tekið á sig ábyrgðina.
Rændu 200 þúsundum
í gegnum heimabanka
Peningarnir voru komnir til Úkraínu en voru frystir þegar málið komst upp
Í HNOTSKURN
» Notuð var sama svika-mylla til að koma pening-
unum úr landi, með aðstoð
grunlausra einstaklinga, og
ríkislögreglustjóri varaði við
fyrir helgi.
» Peningarnir voru milli-færðir á reikning Íslend-
ings sem svo millifærði þá
áfram til Úkraínu. Hann taldi
sig vera að vinna lögmæta
vinnu við markaðsstörf á Net-
inu. Íslendingur flutti féð | 4
VERIÐ er að leggja lokahönd á
vinnslu tvísköttunarsamnings
milli Íslands og Úkraínu, og við-
ræður hafnar um gerð fjárfest-
ingarsamnings. Þetta kom fram í
ávarpi Valgerðar Sverrisdóttur
utanríkisráðherra á viðskiptaráð-
stefnu í Kænugarði í Úkraínu.
Hún sagði jafnframt að til stæði
að hefja viðræður um loftferða-
samning og undirbúning fríversl-
unarsamnings á vegum EFTA.
Fyrr um daginn átti Valgerður
fundi með Viktor Jústsjenkó, for-
seta Úkraínu, og sjást þau saman
á myndinni. Valgerður hitti einn-
ig Borys Tarasjúk utanrík-
isráðherra. Á fundunum var m.a.
rætt um áform Úkraínu um að
gerast aðili að NATO og tengsl
landsins við Evrópusambandið. AP
Samningar
við Úkraínu
ræddir