Morgunblaðið - 07.11.2006, Page 8

Morgunblaðið - 07.11.2006, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nei, nei, ekkert bruðl, engan nammidag strax. VEÐUR Það er löngu tímabært að fjallaum stjórnmálin á hugljúfum nótum. Allt þetta myndarlega fólk á flennistóru auglýsingaspjöldunum, fallegt bros og blik í augum, lín- urnar í lagi. Skiptir engu þó að stundum sé það annar frambjóðandi sem kemur til dyranna á kosn- ingaskrifstofunni; ólögulegur og úrillur – bara eins og við hin.     Prófkjörsbar-áttan er víð- ast hvar með hefðbundnu sniði, kosningaskrif- stofa, auglýs- ingar, vefsíða og úthringingar. En svo eru þeir sem fara aðrar leiðir. Pétur H. Blön- dal fór þá leið í nýafstöðnu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að opna enga kosningaskrifstofu. Jó- hanna Sigurðardóttir er með „skrif- stofu“ á hjólum um alla borg til að hitta kjósendur Samfylkingarinnar. Valgerður Bjarnadóttir hefur setið á Kaffi París frá hálffimm til sex í eftirmiðdaginn; það hefur verið hennar „skrifstofa“.     Ekki eru allar veitingar jafnáþreifanlegar. Það kostar Stein- unni Valdísi Óskarsdóttur ekkert að bjóða til „pulsujukks“ á sinni vef- síðu: „Pulsujukk á pönnu er eitthvað sem við Kristrún Vala elskum þegar Óli er ekki heima. Þá tökum við pylsupakka, skerum pylsur í bita, setjum olíu á pönnu, hristum tómata úr dós, eða hreinlega tómatsósu út á pönnuna, túnfisk, ólívur og gular baunir og látum malla smá stund. Með þessu borðum við hrísgrjón með fullt af sojasósu.“ Ellert B. Schram gengur enn lengra og biður ekki nokkurn mann um að kjósa sig, „ekki einu sinni krakkana mína“. Í hans baráttu er „ekki hringt eitt einasta símtal, ekki auglýst, bara setið auðum höndum og beðið.“     Þannig segist hann láta kjós-endum eftir ákvörðunina; það sé þeirra að velja sigurstranglegan lista af kjörseðlinum. Er kjósendum treystandi til þess – þarf ekki að mata þá? STAKSTEINAR Ellert B. Schram Ákvörðun kjósenda? SIGMUND                   !   "# $! %!!  !  &' ( ) * ! -. -/ -0 '1 -2 -3 - . -2 -- '3 4! 4! 5 4! 5 4! 5 4! 4! 4! 4! ) % 4! 4!  )# + !  ,- .  ' / ! ! 0     +-  ! !   / 1 3 . . 3 -- -' -- -1 62 5 4! 4! 5 4! 4! 5 4! 4! 4! 4! 4! 4!  ! "1 2  !     1  3    2- 2  4! 1! & 5# )67! 8 !!) 2 6- 1 6' - 60 - 62 -1 0 -' 7   %   4! 4! 4! 5 4! )*4! 4! 4! 4! 5 4! 4! 9! : ;                     ! " #  $   %   !         #   : #  !* )        !  <2   < #  <2   < #  <2   !   89    = !#-         <6  % :6*  7   ;5   !  =6  1 3 <         < $  % -16-38    ;   < )   !       4 <) - > %   * <(6-28<  % <;     ?  <  !     @  1 (  A; *4  *:    "3(4> ><4?"@A" B./A<4?"@A" ,4C0B*.A" 13/ '3. 31> 1<' 1<1 1<- >10 .1' ---> /-2 -2'/ -322 ->23 -12> -.'. '-'3 -022 .21 .31 .2/ .12 -03' -0/- -0'/ -0-(''2> /</ '<3 -</ '<3 1<2 1<- 1<1 1<' /<1 '<- '<1 1<'            LÖGREGLAN á Akranesi mun í dag ljúka yf- irheyrslum í 1. áfanga rannsóknar á meintum ólöglegum hlerunum í utanríkisráðuneytinu. Ákvörðun um framhaldið verður síðan tekin í sam- ráði við Boga Nilsson ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari ákvað um miðjan október að hefja rannsókn á málinu vegna ummæla Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkis- ráðherra, og Árna Páls Árnasonar, fyrrverandi starfsmanns í utanríkisráðuneytinu, um að þeir hefðu fengið upplýsingar um að símar þeirra hefðu verið hleraðir. Ólafi Haukssyni, sýslumanni á Akranesi, var falið að annast rannsóknina í sam- ráði við ríkissaksóknara. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Ólafur að skýrslur hefðu verið teknar af 7–8 manns og þegar yfirheyrslu yfir einum tilteknum manni lyki í dag, væri 1. áfanga rannsóknarinnar lokið. Allir hefðu þeir verið yfirheyrðir sem vitni og enginn fengið réttarstöðu sakbornings. Ólafur staðfesti að skýrslur hefðu verið teknar af Jóni Baldvini og Árna Páli en hann sagðist ekki geta greint frá öðr- um sem kallaðir hefðu verið til vitnis. „En það liggur í hlutarins eðli að við rekjum okkur eftir þeim vísbendingum sem við fáum,“ sagði hann. Ekki væri heldur útilokað að sömu aðilar og voru yfirheyrðir sem vitni í fyrsta áfanga rannsókn- arinnar yrðu síðar yfirheyrðir sem grunaðir menn. Tveir lögreglumenn auk sýslumanns hafa unnið að rannsókninni undanfarnar vikur. Lýkur yfirheyrslum vegna rannsóknar á hlerunum DR. Einar Stef- ánsson augn- læknir, prófessor við Háskóla Ís- lands, tók um helgina við veg- legum verðlaun- um frá SYNOP- TIK FONDEN í Danmörku og af því tilefni var haldin ráðstefna honum til heiðurs. Synoptik Fonden veitir árlega verðlaun þeim sem skarað hafa fram úr á sviði augn- rannsókna í okkar heimshluta. Á ráðstefnunni fjölluðu ýmsir vís- indamenn í faginu um rannsóknir Einars og hann hélt sjálfur yfirlits- fyrirlestur eftir að hafa veitt viður- kenningu og verðlaunum viðtöku. Einar hefur undanfarin ár unnið mikið frumkvöðlastarf í sínum rann- sóknum. Hann er eftirsóttur gesta- fyrirlesari á alþjóðlegum ráðstefnum vísindamanna í augnlækningum, hann situr í stjórn samtaka nor- rænna augnlækna og hann er rit- stjóri vísindatímaritsins Acta Op- hthalmologica Scandinavica, sem er ritrýnt tímarit fagfólks á sviði augn- lækninga á Norðurlöndum. Einar hlaut í sumar heiðursverðlaun í Þýskalandi fyrir rannsóknir sínar. Verðlaun- aður fyrir rannsóknir Einar Stefánsson Rýmingarsala á tilbúnum Rimlum Margir litir og stærðir Z-brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 l 108 Reykjavík l S.525 8200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.