Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 15
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um
0,36% í Kauphöll Íslands í gær og
var lokagildi hennar 6.320,71 stig
við lok markaða. Mest hækkuðu bréf
Össurar eða um 0,85%. Bakkavör
lækkaði um 0,98%, Fl Group 0,87%.
Gengi krónunnar styrktist um
0,17% samkvæmt upplýsingum frá
Glitni.
Velta á millibankamarkaði nam
5,7 milljörðum. Gengi dollarans er
68,05 krónur, pundsins 129,05 og
evrunnar 86,5.
Úrvalsvísitalan
lækkar um 0,36%
● ÍSLAND telst með-
al þeirra landa í
heiminum þar sem
spilling er minnst,
samkvæmt nýrri
skýrslu Transparency
International, sem
birt var í gær.
Finnland er talið það land þar
sem spilling er minnst, en Hahíti
tekur viðaf Bangladesh sem spillt-
asta land í heimi. Ísland er í öðru
sæti á eftir Finnlandi á listanum yfir
minnst spilltu löndin.
Spilling er enn útbreidd í fyrrver-
andi kommúnistaríkjum sem gengu
í Evrópusambandið fyrir tveim árum.
Gefnar voru einkunnir frá tíu (eng-
in spilling) niður í núll (mikil), og
hlaut Finnland 9,6 í einkunn. Af
þeim átta fyrrverandi komm-
únistaríkjum sem gengu í ESB í maí
2004 fengu einungis Eistland (6,7
stig) og Slóvenía (6,4) viðunandi út-
komu, að mati TI. Pólland fékk 3,7
stig.
Spilling næstminnst
á Íslandi
HAGNAÐUR SPRON eftir skatta fyrstu níu
mánuði ársins nam 9,8 milljörðum króna. Er hagn-
aðurinn nú þegar orðinn mun meiri en hann var
allt síðasta ár, sem þó var langbesta ár SPRON frá
upphafi, að því er segir í tilkynningu. Á fyrstu níu
mánuðum síðasta árs nam hagnaður SPRON 2,2
milljörðum króna.
Arðsemi eigin fjár var 87,1% og hreinar rekstr-
artekjur námu tæpum 14,8 milljörðum króna, sem
er um 200% aukning frá fyrra ári.
„Almennur rekstur SPRON og dótturfélaga
gekk mjög vel en gengishagnaðar af eignarhlut
sparisjóðsins í Exista sem myndaðist við skrán-
ingu félagsins í Kauphöll Íslands og jákvæð al-
menn þróun á hlutabréfamarkaði skapa þó stærst-
an hluta hagnaðarins, segir Guðmundur
Hauksson sparisjóðsstjóri SPRON í fréttatilkynn-
ingu.
Rekstrarhorfur jákvæðar
Eigið fé SPRON er nú komið yfir 26 milljarða
króna og heildareignir samstæðunnar nema rúm-
um 166 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall (CAD)
SPRON er nú 14,2%, en var 10,4% um síðustu ára-
mót, en eiginfjárþáttur A nam 27,8% miðað við
12,3% um áramótin.
Útlán til viðskiptamanna námu um 116 millj-
örðum króna í lok september og hækkuðu um
36,9% á fyrstu níu mánuðum ársins.
Segir í tilkynningu að rekstrarhorfur allra fé-
laga í samstæðu SPRON séu jákvæðar en áfram
muni þróun á fjármálamarkaði hafa mikil áhrif á
heildarafkomu SPRON.
SPRON skilar methagnaði
● AVION Group
hefur gengið frá
greiðslu á 86%
hlutafjár í Atlas
Cold Storage.
Atlas var af-
skráð úr Kaup-
höllinni í Toronto í
Kanada á föstu-
dag og Atlas mun
einnig leitast eftir
að losna undan
skyldum sem útgefandi verðbréfa
sem fyrst.
Í kjölfar yfirtökunnar hafa stjórn-
armeðlimir Atlas Cold Storage In-
come Trust og Atlas Cold Storage In-
come Trust hætt störfum og frá 3.
nóvember 2006 er stjórn Atlas Cold
Storage Income Trust skipuð Magn-
úsi Þorsteinssyni, Jon Love og Jo-
seph Mazzocco. Stjórn Atlas Cold
Storage Holding Inc. verður skipuð
Baldri Guðnasyni, Joe Mazzocco og
Reyni Gíslasyni.
Reynir Gíslason, forstjóri Eimskip
Ameríku hefur tekið við stöðu for-
stjóra Atlas af David Williamsson.
Avion Group hefur lokið yfirtöku á
Atlas fyrir 630 milljónir Kanadadoll-
ara. Kaupin eru fjármögnuð með láni
frá Royal Bank of Canada að upp-
hæð 260 milljónir dala, láni frá
KingStreet að upphæð 130 milljónir
dala og eigin fé frá Avion Group að
upphæð 230 milljónir dala, þar af
eru 100 milljónir dala í víkjandi láni
frá KingStreet. Avion Group áformar
að selja hluta af eignum Atlas á
næstu 18 mánuðum. Áætlað mark-
aðsviði eignanna er um 500 til 600
milljónir Kanadadala.
Tekur við rekstri Atlas
Magnús
Þorsteinsson