Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 17
ERLENT
NORSK hraðlest fór út af sporinu
nálægt Flå, á leiðinni milli Óslóar
og Bergen, um klukkan hálf þrjú í
fyrrinótt að staðartíma. Enginn
fórst og aðeins nokkrir farþeg-
anna urðu fyrir minniháttar
meiðslum.
Lestin fór út af sporinu eftir að
hafa rekist á tré sem höfðu fallið
á járnbrautina. Í lestinni voru um
220 farþegar og erfiðlega gekk að
koma rútum á slysstaðinn til að
flytja þá í burtu. Síðustu farþeg-
arnir voru sóttir um níuleytið í
gærmorgun, að sögn Aftenposten.
Lestarslys
í Noregi
Reuters
Mílanó. AFP. | Dómstóll í Mílanó á
Ítalíu dæmdi í gær Egyptan Rabei
Ousmane Sayed Ahmed í tíu ára
fangelsi fyrir aðild að samtökum
sem tengjast al-Qaeda hryðjuverk-
anetinu. Annar Egypti, Yahya Ma-
wad Mohamed Rajeh, fékk fimm
ára fangelsisdóm fyrir að tengjast
sama hópi sem undirbjó árásir í
Evrópu.
Þá er Ahmed grunaður um að
tengjast aðilum er skipulögðu
hryðjuverkaárásina í Madrid 2004,
þar sem 191 maður lét lífið.
Á sama tíma bárust fregnir um
að spænskur saksóknari færi fram á
270.000 ára fangelsi yfir 29 aðilum
sem sagðir eru tengjast árásinni, en
ákærurnar verða kynntar í dag.
Undirbjó árásir í London
Til frekari tíðinda dró í barátt-
unni gegn hryðjuverkum í gær,
þegar skýrt var frá því fyrir rétti,
að íslamistinn Dhiren Barot hefði
undirbúið að valda stórkostlegum
mannskaða í London með hryðju-
verkaárásum.
Tíu ár í fangelsi fyrir
tengsl við al-Qaeda
IMELDA Marcos, ekkja Ferdinands
Marcos, einræðisherra Filippseyja,
puntar sig á hóteli í Manila í gær.
Hún var að kynna skartgripi sem
hún hefur hannað og verða seldir
undir nafninu „Safn Imeldu“.
Hún bjó skartgripina til úr gömlu
skarti sem hún „endurvann“ og
bætti við nýjum gimsteinum og
öðru efni.
Imelda Marcos, sem er 77 ára,
var þekkt fyrir að safna skóm og
mjög áberandi skartgripum sem
hún keypti í dýrustu verslunum
New York meðan fátæktin svarf að
þjóð hennar.
AP
Selur endur-
unnið skart
Beit Lahiya. | Sautján ára námsmað-
ur og liðsmaður herskárrar hreyf-
ingar Palestínumanna biðu bana í
árásum Ísraela á Gaza-svæðinu í
gær. Þar með hafa 52 Palestínumenn
látið lífið í árásunum á síðustu sex
dögum.
Hernaður Ísraela síðustu fjóra
mánuði hefur kostað alls 300 Palest-
ínumenn lífið.
Námsmaðurinn Mahmud Ashrafi
beið bana og níu aðrir Palestínu-
menn særðust þegar ísraelsk her-
flugvél skaut flugskeyti á bæinn Beit
Lahiya á norðanverðu Gaza-svæð-
inu. Meðal þeirra sem særðust voru
tveir fimm ára drengir.
Ísraelar sögðu að árásin hefði
beinst að Palestínumönnum sem
hefðu verið að sækja vopn sem beitt
hefði verið til að skjóta tveimur flug-
skeytum á Ísrael á sunnudag.
Sjónarvottar sögðu að palestínsku
skæruliðarnir hefðu ekki særst í
árásinni en flugskeytið hefði sprung-
ið nálægt rútu sem flutti börn í skóla.
Liðsmaður vopnaðs hóps Hamas-
samtakanna beið bana í flugskeyta-
árás á Gazaborg í gær og nítján ára
Palestínumaður lést af sárum sem
hann fékk í árás Ísraelshers á laug-
ardag.
Um 50 féllu
á tæpri viku
Við styðjum Bryndi´si Haralds.
. .
Kosningaskrifstofa Bryndísar er að Bæjarlind 14 í Kópavogi. Upplýsingasími 554 1508
O´lafur G.
Einarsson
fyrrv. ra´ðherra
Sigri´ður Anna
Þo´rðardo´ttir
þingmaður
Salome
Þorkelsdo´ttir
fyrrv. forseti Alþingis
Almar Gri´msson
Baejarfulltru´i og
lyfjafraeðingur
Gullveig
Saemundsdo´ttir
fyrrv. ritstjo´ri
Haraldur
Sverrisson
baejarfulltru´i
Bjarki
Sigurðsson
handboltamaður
Helga Guðru´n
Jo´nsdo´ttir
kynningarstjo´ri
Kristinn
Andersen
verkfraeðingur
Stefa´n
Hilmarsson
to´nlistarmaður
Ro´sa
Guðbjartsdo´ttir
baejarfulltru´i
So´lveig Pa´lsdo´ttir
framhaldssko´lakennari
og varabaejarfulltru´i
Ragnhildur Inga
Guðbjartsdo´ttir
baejarfulltru´i
A´sthildur Helgado´ttir
fo´tboltakona
og baejarfulltru´i
Sigri´ður Ro´sa
Magnu´sdo´ttir
baejarfulltru´i
Mari´a Kristi´n Gylfado´ttir
formaður Heimilis og sko´la
og varabaejarfulltru´i
Guðru´n Brynja
Vilhja´lmsdo´ttir
framkvaemdastjo´ri
Borgar Þo´r
Einarsson
formaður SUS
Hafsteinn Þo´r
Hauksson
fyrrv. formaður SUS
Ragnheiður
Guðmundsdo´ttir
varabaejarfulltru´i